Peningaflóð til norska sambandsins eftir róður Haalands og félaga Sindri Sverrisson skrifar 18. september 2026 08:02 Hálfur milljarður er svo sem ekki há upphæð fyrir launamanninn Erling Haaland en skiptir sköpum fyrir norska knattspyrnusambandið, segir formaðurinn. Getty Norska knattspyrnusambandið greindi frá því á blaðamannafundi í gær að hagnaður vegna þátttöku Noregs á HM í fótbolta karla í sumar hefði verið mun meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Erling Haaland, Martin Ödegaard og félagar þeirra í norska landsliðinu slógu í gegn á HM með frammistöðu sinni og róðrinum fræga sem þeir tóku með stuðningsmönnum eftir leiki. Liðið lenti í 2. sæti í sínum riðli og vann svo bæði Fílabeinsströndina og Brasilíu í útsláttarkeppninni, sem þýðir að Noregur er áfram eina þjóðin sem mætt hefur Brasilíu í fótbolta en aldrei tapað. Í 8-liða úrslitum féllu Norðmenn þó úr leik með 2-1 tapi gegn Englandi í framlengdum leik. Norska knattspyrnusambandið hafði reiknað með því að heimsmeistaramótið myndi skila sér í hagnaði upp á 19 milljónir norskra króna, sem samsvarar um 245 milljónum íslenskra króna, en nú segist sambandið reikna með að mótið skili meira en tvöfaldri þeirri upphæð, eða hátt í 520 milljónum íslenskra króna. Lokaupphæðin veltur þó á skattamálum sem eftir er að fá niðurstöðu í. Það verður svo ákveðið á ársþingi norska sambandsins hvað gert verður við peningana. „Það er undir þinginu komið hvernig við notum afganginn, þannig að hver króna er lögð fyrir þingið. Stjórnin ræðir við stjórnsýsluna um hvernig við eigum að forgangsraða, en aðstaða landsliðanna er eitthvað sem við verðum að verja fjármunum í,“ sagði Lise Klaveness, formaður norska sambandsins.
HM 2026 í fótbolta Norski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Sjá meira