Bílastæði

Fréttamynd

Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður

Lagt er til að árspassi að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum kosti 4.500 krónur samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðuneytisins. Lægra gjald, 3.000 krónur, verði í boði fyrir heimsóknir frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis.

Innlent
Fréttamynd

Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“

Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir stuttan gjaldfrjálsan tíma í brottfararrennu Isavia við Keflavíkurflugvöll og hátt refsigjald vera ósanngirni og okur. Félagið kallar hana „ræningjarennuna“ og skorar á Isavia að stækka hana.

Neytendur
Fréttamynd

Bíla­stæði við Stúdenta­garða verða einkastæði

Þann 1. október verður tekin upp gjaldskylda á bílastæðum við Stúdentagarða vð Háskóla Íslands og mega einungis þeir sem eru með íbúakort leggja í stæðunum. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta segir íbúa á görðunum hafa verið orðna langþreytta á að geta ekki nálgast stæði við eigin heimili, mikil ásókn hafi verið í stæðin undanfarin ár. Íbúi lýsir yfir miklum áhyggjum vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Hafi ekki að­hafst nóg vegna bílastæðagjalda

Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, gagnrýnir að stjórnvöld hafi lítið sem ekkert aðhafst vegna bílastæðagjalda þrátt fyrir loforð um að gera það fyrir um ári síðan. Í tilkynningu gagnrýnir félagið einnig að engar stórar breytingar hafi verið gerðar á innheimtu vangreiðslugjalda vegna innheimtu bílastæðagjalda.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tíma­bært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar

Nýr meirihluti vill gera úrbætur á aðgengi og upplýsingagjöf um bílastæðahúsin í borginni. Þau séu vannýtt. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti nýlega að minnka gjaldskyldu í miðbæ um klukkutíma. Þá segir formaður umhverfis- og skipulagsráðs tímabært að ræða vaxtarmörk borgarinnar og aukna uppbyggingu í austurhluta borgarinnar. 

Innlent
Fréttamynd

Stytta gjald­skyldu og opna bílahús allan sólar­hringinn

Gjaldskyldutími á bílastæðum á P1 og P2 svæðum í Reykjavík verður styttur um eina klukkustund á kvöldin samkvæmt tillögu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í dag. Ráðið samþykkti jafnframt að bílahús borgarinnar verði opin allan sólarhringinn alla daga ársins.

Innlent
Fréttamynd

Sektir Neyt­enda­stofu á bílastæðafyrir­tækin „dropi í hafið“

Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir bílastæðafyrirtæki sum „síbrotafyrirtæki“.  Þó svo að hann sé ánægður með nýlega sekt Neytendastofu telur hann þurfa að stíga fastar niður. Það eigi að vera skýrt hver kostnaður er við að leggja á bílastæði áður en fólk leggur. Rætt var við Breka í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Neytendur
Fréttamynd

Neytendastofa tæklar bílastæðamálin

Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum.  Fyrirtækin verða beitt stjórnvaldssektum að upphæð tvö til fjögur hundruð þúsund krónum. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Taka ekki upp gjald­skyldu við Kringluna

Ekki stendur til að taka upp gjaldskyldu á bílastæði við Kringluna líkt og ákveðið hefur verið að gera við verslunarmiðstöðina Smáralind. Markaðsstjóri Kringlunnar segir meiri aðsókn í verslunarmiðstöðina en bílastæðaskortur sé ekki sérstakt vandamál.

Neytendur
Fréttamynd

Taka upp gjald­skyldu við Smára­lind

Forsvarsmenn Smáralindar hafa ákveðið að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum við verslunarmiðstöðina en uppbygging á svæðinu og aðsókn í húsið eru meðal þess sem spilaði inn í ákvarðanatökuna að sögn markaðsstjóra Smáralindar.

Neytendur
Fréttamynd

Segir milljarða­hönnun skóla í Voga­hverfi óraun­hæfa

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir nýjan meirihluta vilja einfalda uppbyggingu skóla og leikskóla og segir verða að læra af uppbyggingu Brákarborgar. Hönnun nýs skóla í Vogahverfi sem samþykkt var fyrir kosningar, verði til dæmis aldrei að veruleika. Framkvæmdin sé of dýr. Nota eigi teikningar sem til eru og nýta betur samstarfi við einkaaðila við hagkvæma uppbyggingu. 

Innlent
Fréttamynd

Skoða hvaða bíla­stæði megi aftur taka í notkun

Reykjavíkurborg hyggst endurskoða gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni, einfalda rafræna greiðslumáta og fara yfir reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Þá verður einnig skoðaða hvort taka megi einhver stæði aftur í notkun.

Innlent
Fréttamynd

Sund­laugar opnar til mið­nættis og ótak­mörkuð bíla­stæði

Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri í dag. Hún segir starfinu fylgja mikil ábyrgð og að hún muni skera niður í stjórnkerfinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leggja niður bæði mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð. Í tillögum nýs meirihluta er gert ráð fyrir að lengja opnunartíma sundlauga um helgar á sumrin til miðnættis og afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. 

Innlent
Fréttamynd

Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk?

Fatlað fólk er háð því að aðgengi að samgöngum og innviðum sé gott. Ekki síst er mikilvægt að hreyfihamlað fólk geti lagt bílum sínum sem næst áfangastað, og sökum þess er fólk með P-merki undanþegið greiðsluskyldu í öllum gjaldskyldum stæðum. Samt fær það ítrekað sektir, sem er bæði óþarft og ólíðandi.

Skoðun
Fréttamynd

Hin heillandi fortíðarþrá

Stundum er bent á að kosningabarátta sé jafnan heldur leiðinleg og fátt sem framkallar bros eða hlátur. Nú hafa vinir mínir á L-listanum á Akureyri bætt úr þessu svo um munar. Ég vissi auðvitað að það góða fólk hefur húmorinn í lagi en að hann væri svona þróaður og stórfenglegur kom mér töluvert á óvart.

Skoðun
Fréttamynd

Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík

Samgöngusáttmáli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er í algleymingi í stefnum flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík, ýmist stuðningur við sáttmálann, andstaða eða tillögur að endurskoðun hluta hans. Vísir tók saman stefnu flokkanna í málaflokknum en áhersla á bílastæði fer þar mikinn.

Innlent
Fréttamynd

Fjölga stæðum fyrir deili­bíla og raf­hlaupa­hjól í Reykja­vík

Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í vikunni að fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól frá stöðvalausum rafhlaupahjólaleigum. Í dag eru níu safnstæði en lagt er til að þeim verði fjölgað í tuttugu til þrjátíu og þau verði annars vegar fyrir rafhlaupahjól og hins vegar fyrir deilibíla.

Innlent
Fréttamynd

Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi úrskurð Neytendastofu að Isavia hafi gerst brotlegt við lög með því að hefja gjaldtöku í svokallaðri brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll.

Neytendur