
Mál Julians Assange

Bein útsending: Assange lætur í sér heyra
Julian Assange ávarpar laga- og mannréttindanefnd Evrópuráðsins klukkan hálf sjö að íslenskum tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur opinberlega fram síðan hann var fangelsaður fyrir fimm árum.

Smellti rembingskossi á eiginkonuna við heimkomuna
Julian Assange er kominn til Ástralíu, sem frjáls maður í fyrsta sinn í fjórtán ár. Assange undirritaði í nótt samkomulag vegna dómssáttar sinnar þar sem hann játaði að hafa brotið njósnalög. Við komuna þakkaði hann forsætisráðherra Ástralíu fyrir að bjarga lífi sínu. Þingmaður Pírata og fulltrúi á Evrópuráðsþinginu segir mikið fagnaðarefni að Assange sé kominn heim, en á sama tíma sé umhugsunarefni að hann hafi neyðst til að játa brot á njósnalögum.

Assange frjáls og á leið til Ástralíu
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, er nú frjáls maður og er á leið til Canberra í Ástralíu. Assange undirritaði í nótt samkomulag vegna dómssáttar sinnar. Assange játaði að hafa brotið á ákvæðum njósnalaga þegar hann lak þúsundum skjala á Wikileaks. Fyrir það hlaut hann jafnlangan dóm og hann hefur þegar afplánað í Bretlandi í Belmarsh fangelsinu, eða um fimm ár.

Gleðitíðindi að koma Assange loks úr fangelsi
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, fagnar því í dag að Julian Assange, stofnandi Wikileaks sé frjáls maður eftir áralanga frelsissviptingu. Hann segir að ekki verði hægt að greina frá dómssáttinni í smáatriðum fyrr en á morgun.

Ekki vön því að tala um eiginmann sinn sem frjálsan mann
Stella Assange, eiginkona Julians Assange, segist í skýjunum með það eiginmaður hennar hafi gert dómsátt við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Í samtali við breska ríkisútvarpið segist hún ekki vön því að tala um eiginmann sinn frjálsan í nútíð frekar en framtíð.

Assange farinn frá Bretlandi
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, er farinn frá Bretlandi. Hann hefur náð samkomulagi við yfirvöld í Bandaríkjunum um að gangast undir dómsátt þar sem hann mun játa sök í njósnamáli á hendur honum, en ekki sitja í fangelsi.

Assange sagður játa sök til að ganga laus
Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, er sagður munu játa sök í sakamáli sem bandarísk stjórnvöld höfða á hendur honum. Það sé hluti af dómsátt sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna bjóði honum.

„Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“
Ákvörðun dómstóls í Bretlandi um framsal Julian Assange til Bandaríkjanna markar kaflaskil í máli blaðamannsins að mati ritstjóra WikiLeaks

Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali
Julian Assange, stofnandi WikiLeaks fær að áfrýja ákvörðun um framsal hans til Bandaríkjanna til hæstaréttar Bretlands eftir að dómarar við dómstól í London úrskurðuðu honum í vil.

Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið
Þingflokksformaður Pírata hefur nýlokið fundi með Julian Assange, stofnanda Wikileaks, í Belmarsh-öryggisfangelsinu í Lundúnum. Heimsóknin er liður í skýrslu sem hún er að skrifa fyrir Evrópuráðsþingið um kælandi áhrif varðhaldsins á tjáningarfrelsi í álfunni og þá verður kannað hvort Assange uppfylli skilyrði um að teljast pólitískur fangi.

Biden segist vera að íhuga að falla frá málinu gegn Assange
Joe Biden Bandaríkjaforseti staðfesti í gær að yfirvöld vestanhafs væru að íhuga að verða við beiðni stjórnvalda í Ástralíu um að fella niður ákærur á hendur Julian Assange.

Assange verður ekki framseldur strax
Hæstiréttur í Lundúnum ætlar að gefa yfirvöldum í Bandaríkjunum þriggja vikna frest til að tryggja að Julian Assange njóti stjórnarskrárbundinna réttinda til tjáningarfrelsis. Hann verður ekki framseldur til Bandaríkjanna fyrr en þetta er tryggt.

Gefur lítið fyrir mögulega dómsátt í máli Bandaríkjanna gegn Assange
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna er sagt velta því fyrir sér að bjóða Julian Assange dómsátt, sem myndi fela það í sér að hann játaði að hafa misfarið með leynileg gögn og yrði þess í stað ekki sóttur til saka fyrir njósnir og fleiri alvarlega glæpi.

Kristinn segir málið upp á líf og dauða
Mikill fjöldi safnaðist saman við dómsal í Lundúnum í dag þar sem áfrýjunarkrafa Julians Assange stofanda Wikileaks var tekin fyrir.

Ögurstund í máli Julian Assange
Hæstiréttur í Lundúnum tekur fyrir í dag og á morgun síðustu áfrýjun Julian Assange, eins stofnanda Wikileaks, um framsal til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur um brot á njósnalagalöggjöf landsins.

Örlög Julian Assange ráðast í næstu viku
Það kemur í ljós í næstu viku hvort Julian Assange fær heimild til að áfrýja framsalsmáli sínu einu sinni til viðbótar. Ef svarið verður nei, óttast eiginkona hans að hann verði fluttur til Bandaríkjanna innan fárra daga.

Unnið með vitund en ekki sátt fjölskyldunnar
Troels Uhrbrand Rasmussen dagskrárstjóri Pipeline, kvikmyndafyrirtækisins sem framleiddi þættina A Dangerous Boy, eða Hættulegur strákur, þar sem fjallað er um Sigga hakkara svokallaðan, segir margt skjóta skökku við í gagnrýni sem fram hefur komið á þættina og verklagið.

„Mér varð hreinlega óglatt"
„Þetta er alrangt. Og það get ég sagt það með góðri samvisku,“ segir Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður.

Hættulegur strákur: „Ég var mjög hræddur við hann“
Einn þolenda Sigurðar Þórðarsonar, sem er betur þekktur sem Siggi hakkari, segist hafa hræðst um líf sitt. Sigurður hafi ferðast um með byssur, rafbyssur og handjárn svo fátt eitt sé nefnt. Sigurður hafi neytt hann til kynmaka oftar en fimmtíu sinnum.

Hættulegur strákur: „Tilfinningin var eins og í Hollywood-mynd“
Sigurður Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, segir árin sem hann var virkur í störfum WikiLeaks helst minna á Hollywood-mynd. Hann segir fáránlegt að sér hafi verið treyst fyrir jafn miklu og raun bar vitni þegar hann var bara unglingur.

Assange nú sagður „hættulega nálægt því að verða framseldur“
Bróðir Julian Assange segir hann „hættulega nálægt því að verða framseldur“ til Bandaríkjanna eftir að dómari við yfirrétt á Bretlandseyjum hafnaði alfarið umleitan lögmanna hans.

Assange var svikinn í hendur bandarísku leyniþjónustunnar
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, var svikinn í hendur bandarísku leyniþjónustunnar af fyrirtækinu sem hafði tekið að sér að gæta öryggis hans í sendiráði Ekvador í Lundúnum. Spænska dagblaðið El País hefur upptökur og pósta sem sýna svikin með óyggjandi hætti.

Fjölskylda Assange vill að stjórnvöld í Ástralíu setji Bandaríkjunum afarkosti
Fjölskylda Julian Assange, stofnanda Wikileaks, segir það jafngilda dauðadómi ef Assange verður framseldur frá Bretlandi til Bandaríkjanna. John Shipton, faðir Assange, og bróðir hans Gabriel Shipton, hafa freistað þess að fá stjórnvöld í Ástralíu, heimalandi Assange, til að grípa inn í en segjast ekki hafa fengið fund með forsætisráðherranum Anthony Albanese.

Vill ekki skipta sér opinberlega af máli Assange
Nýkjörinn forsætisráðherra Ástralíu ætlar ekki að óska þess opinberlega að Bandaríkjastjórn láti mál sitt gegn Ástralanum Julian Assange, stofnanda Wikileaks, niður falla. Bresk stjórnvöld eru tilbúin að framselja hann vestur um haf.

Segir að Assange muni áfrýja: „Þessi slagur heldur áfram“
Innanríkisráðherra Bretlands hefur gefið grænt ljós á framsal Julians Assange, stofnanda Wikileaks, frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Ritstjóri Wikileaks segir um pólitískar ofsóknir að ræða og málinu sé ekki lokið fyrir dómstólum.

Innanríkisráðherra Bretlands gefur grænt ljós á framsal Assange
Priti Patel innanríkisráðherra Bretlands hefur gefið grænt ljós á framsal Julians Assange, stofnanda Wikileaks, frá Bretlandi til Bandaríkjanna.

Dómari gefur grænt ljós á framsal Assange
Breskur dómari gaf í dag grænt ljós á framsal Julian Assange, stofnanda Wikileaks, frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Það er þó ríkisstjórnar Bretlands að taka lokaákvörðun í málinu og er það nú á borði Priti Patel, innanríkisráðherra.

Kristinn kallar eftir skýrri afstöðu þingmanna í máli Assange
Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks hefur rætt við þingmenn ýmissa ríkja og kallar eftir víðtækri pólitískri samstöðu sem feli í sér fordæmingu á meðferðinni á Julian Assange. „Nú er lag,“ segir hann í samtali við Vísi.

Segir málfrelsið og frelsi fjölmiðla undir í máli Assange
Ritstjóri WikiLeaks segir ómannúðlega meðferð breskra stjórnvalda á Julian Assange skipta alla sem láti málfrelsið og frjálsa fjölmiðla sig varða máli. Mótmælendur við breska sendiráðið kröfðust þess í dag að Assange verði sleppt úr haldi þegar í stað.

Ögmundur og Kristinn segja meðferðina á Assange ekkert annað en pyndingar
Mótmælendur kröfuðst þess fyrir utan breska sendiráðið í dag að Julian Assange stofnandi WikiLeaks verði nú þegar látinn laus úr bresku fangelsi og þar með ekki framseldur til Bandaríkjana. Ögmundur Jónasson fyrrverandi dómsmálaráðherra segir að þar biði hans allt að 170 ára fangelsi.