Eldgos á Reykjanesskaga
57 58 59 60 61 62 63 64 65 … 84 ›
Mátti ekki banna börn í Meradölum Lögreglustjóranum á Suðurnesjum var ekki heimilt að banna för barna yngri en 12 ára að gosstöðvunum í Meradölum í ágúst 2022 í ljósi þess tíma sem leið frá því tilkynnt var um þau opinberlega og þar til þau voru látin niður falla, þar sem ekki hafði verið tekið til skoðunar hvort aðrar lagaheimildir gætu helgað slíkt bann til lengri tíma. Innlent 26.5.2023 12:17
„Við náttúrulega skoðum allt“ Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg skömmu fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. Stærsti skjálftinn mældist 3,8 að stærð og um níutíu skjálftar hafa mælst síðan hrinan hófst. Hrinan er talin vera í rénun. Innlent 11.2.2023 11:46
„Það voru margir undrandi og spurðu: Hvað er í gangi hjá ykkur?“ „Það voru margir undrandi og spurðu: Hvað er í gangi hjá ykkur? Hvers vegna Grindavík“ segir Hilmar Steinar Sigurðsson þegar hann rifjar upp þá ákvörðun hans og þriggja félaga um að kaupa þúsund fermetra netagerðarhús við höfnina í Grindavík árið 2018. Í húsinu hafði líka verið rekið lítið kaffihús við góðan orðstír, Bryggjan. Atvinnulíf 30.1.2023 07:00
„Við hefðum ekki getað verið heppnari“ Þúsundir flykktust að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli þegar eldgos hófst þar á ný í ágúst. Í þetta sinn voru engar samkomutakmarkanir líkt og árið áður og því fátt sem kom í veg fyrir að erlendir ferðamenn gerðu sér ferð til að skoða gosið. Eldgosið stóð undir væntingum og gerði marga agndofa. Innlent 5.12.2022 07:00
Býst við öðru gosi áður en langt um líður Eldfjallafræðingur býst við nýju gosi í Fagradalsfjalli áður en langt um líður. Staðsetning síðustu tveggja eldgosa hafi verið mikil heppni en slíkt verði ekki næst þar sem búið er að fylla alla dali. Hraunið mun þá flæða beint af fjallinu. Innlent 2.11.2022 18:05
Óþrifnaður við gosstöðvarnar Mörg hundruð manns leggja leið sína að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli á hverjum degi þrátt fyrir að nokkuð sé liðið frá goslokum. Klósettskortur á svæðinu hefur verið til vandræða þar sem þreyttir göngugarpar hafa gert þarfir sínar úti í náttúrunni og skilið ummerkin eftir. Innlent 26.10.2022 21:02
Guðni og krónprinsinn ganga að gosstöðvunum Hákon, krónprins Noregs, er staddur á Íslandi til þess að vera viðstaddur Hringborð norðurslóða sem hefst í Hörpu á morgun. Forseti Íslands tók á móti honum og eru þeir nú á göngu í átt að Fagradalsfjalli. Innlent 12.10.2022 14:04
Eldgosið í Fagradalsfjalli frábrugðið öðrum eldgosum Vísindamenn segja undanfara eldgossins í Fagradalsfjalli hafa verið ólíkan undanförum annarra eldgosa í heiminum. Fyrir gosið dró úr skjálftavirkni, en algengara er að jarðskjálftavirkni aukist fyrir gos, þegar kvika þrýstir sér upp á yfirborðið. Þeir segja niðurstaða rannsóknar um eldgosið í Fagradalsfjalli mikilvæga fyrir alþjóðasamfélagið. Innlent 14.9.2022 20:37
Hættustigi í Meradölum aflýst Hættustigi vegna eldgoss í Meradölum hefur verið aflýst sem og óvissustigi vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Virkni í gígunum hefur legið niðri í tæpar þrjár vikur. Innlent 8.9.2022 11:07
Landverðir taki við af björgunarsveitum Lítil virkni er á Reykjanesskaga og gosórói mælist ekki lengur en samkvæmt almannavörnum hætta björgunarsveitir nú gæslustörfum á svæðinu. Innlent 1.9.2022 22:32
Gosinu líklega lokið en langt frá því að vera styst eða minnst Allt bendir til þess að eldgosinu sem hófst í Meradölum þriðja ágúst sé lokið, að sögn eldfjallafræðings. Vika er í dag síðan virkni lagðist niður. Þetta sé ekki sambærilegt goshléum sem urðu í eldgosinu í fyrra en þá stöðvaðist virknin stundum snögglega áður en næsta hrina hófst. Nú hafi aðdragandinn hins vegar verið langur og virkni dvínað jafnt og þétt. Innlent 28.8.2022 18:36
Segir Reykjavíkurflugvöll gríðarlega mikilvægan varavöll millilandaflugs Yfirflugstjóri Icelandair segir gríðarlega mikilvægt að geta notað Reykjavíkurflugvöll sem varavöll millilandaflugs og kallar eftir betri innviðum á vellinum. Hann spari Icelandair hálfan milljarð króna á ári í eldsneytiskostnað og dragi verulega úr útblæstri koltvísýrings. Innlent 26.8.2022 22:12
Eldgosamaður vakti athygli í vefmyndavél Vísis Þrátt fyrir að eldgosinu í Meradölum sé að öllum líkindum lokið var nóg að gerast í vefmyndavél Vísis í fyrradag. Þar mætti maður í fullum skrúða hlífðarfatnaðar og lék listir sínar fyrir áhorfendur líkt og hann væri staddur í geimnum. Lífið 25.8.2022 16:31
„Eiginlega alveg öruggt“ að gosinu sé lokið Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir að það sé eiginlega alveg öruggt að eldgosinu í Meradölum sé lokið. Innlent 22.8.2022 09:23
Gosið enn í dvala og órói liggur niðri Eldgosið í Fagradalsfjalli er enn í dvala og óróinn liggur sömuleiðis niðri eftir að hafa farið niður í gærmorgun. Innlent 22.8.2022 07:26
„Það eru augljóslega einhver kaflaskil“ Getgátur um goslok hafa verið á sveimi síðan í gærdag en þá sagði Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur gosinu mögulega lokið, hann þyrfti þó að fá staðfestingu á því. Náttúruvársérfræðingur Veðurstofunnar þorir ekki að fullyrða að gosinu sé lokið í samtali við fréttastofu í morgun. Innlent 21.8.2022 10:08
„Hugsanlegt að við séum að nálgast goslokin“ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir gosinu mögulega lokið, eldgosatímabilinu sé þó ekki að ljúka og Fagradalsfjallseldum ekki heldur. Innlent 20.8.2022 15:47
Kanna hvort komið sé að goslokum Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Ísland sendi frá sér færslu fyrr í dag þar sem kemur fram að dregið hafi jafnt og þétt úr virkni í gígnum í Meradölum og óróa á svæðinu. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segist ekki geta fullyrt að komið sé að goslokum. Innlent 20.8.2022 14:57
Opið að gosstöðvum en varað við veðri Opið er á gosstöðvum í Meradölum í dag en þó er varað við vindi en búist er við norðan 10 til 18 metrum á sekúndu í dag. Innlent 20.8.2022 10:25
Tæplega hundrað fluttir af gossvæðinu vegna meiðsla eftir að eldgos hófst Gosórói mælist minni en áður við Meradali og hraunrennsli sömuleiðis. Það nemur nú um fjórum rúmmetrum á sekúndu. Nýtt hraun hefur haldist innan Meradala en gæti með tímanum farið yfir slóða sem viðbragðsaðilar hafa notað til að komast á gosstöðvarnar. Innlent 20.8.2022 08:21
Opið bréf til Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum Gunnar, ég vona að þú getir svarað nokkrum spurningum. Ég er búin að vera búsett erlendis í áratugi og fylgist þar af leiðandi stopult með á Íslandi. Ég hef hins vegar rekið augun núna upp á síðkastið, í yfirlýsingar frá þér sem ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta yfir. Skoðun 19.8.2022 19:31
Flaug dróna eins nálægt og hægt er að komast gosinu Breski drónaljósmyndarinn Louis Houiller, náði nokkuð mögnuðu myndskeiði af eldgosinu í Meradölum á dögunum. Innlent 18.8.2022 23:21
Gossvæðið opið í dag Opið verður fyrir ferðamenn að ganga í átt að eldgosinu í Meradölum í dag. Gossvæðinu var lokað í gær en lokunaraðgerðir gengu vel samkvæmt viðbragðsaðilum. Innlent 18.8.2022 10:17
Mæla gegn því að taka hunda að gosstöðvunum Matvælastofnun (MAST) ræður fólki eindregið frá því að taka hunda og önnur dýr með að gosstöðvunum í Meradölum. Mengun getur haft afar skaðleg áhrif á dýrin. Innlent 17.8.2022 16:29
Gossvæðið áfram lokað Gossvæðið í Meradölum verður áfram lokað í kvöld og í nótt. Tekin verður ákvörðun um hvenær svæðið verður opnað á fundi viðbragðsaðila klukkan hálf níu í fyrramálið. Innlent 17.8.2022 15:18
Gæti liðið að goslokum á næstu dögum Dregið gæti að goslokum á næstu dögum að mati eldfjallafræðings þar sem hraunflæðið nálgast lágmarksþröskuld. Lokað er inn á svæðið í dag vegna veðurs Innlent 17.8.2022 12:01
Ekkert útivistarveður við gosstöðvarnar í dag Lokað er inn á gossvæðið í Meradölum í dag og verða allir sem ætla Suðurstrandarveginn stoppaðir og rætt við þá. Spáð er vonskuveðri í dag, allt að 23 metrum á sekúndu ásamt talsverðri rigningu. Innlent 17.8.2022 09:56
Glóandi bráð úr gosinu í fyrra kreistist úr gamla hrauninu vegna þrýstings frá því nýja Bráð úr hrauninu sem rann úr eldgosinu við Fagradalsfjall í fyrra hefur kreist út um hraunið vegna þunga nýja hraunsins sem rennur úr eldgosinu í Meradölum. Þessir kraftar gera það að verkum að enn varasamara getur verið að ganga á gamla hrauninu. Innlent 16.8.2022 20:29
Skellt í lás á morgun Þeim sem ætla að skoða eldgosið í Meradölum á morgun verður snúið við þar sem svæðinu verður lokað vegna slæms veður sem ganga á yfir svæðið. Innlent 16.8.2022 19:36
Fór að gosstöðvunum á inniskónum því gönguskórnir voru of ljótir Tugir þúsunda hafa lagt leið sína að gosstöðvunum í Meradölum frá því að eldgos hófst þar fyrir tæpum tveimur vikum. Göngufólk hefur þó verið misvel búið og sumir lagt í hann ekki betur skóaðir en í inniskóm. Innlent 16.8.2022 15:32