Ítalski boltinn
181 182 183 184 185 186 187 188 189 … 198 ›
Juventus ekki á eftir Lampard Claudio Ranieri segir Juventus ekki vera á höttunum eftir miðjumanninum Frank Lampard hjá Chelsea eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Hann segir að þó Lampard sé frábær leikmaður, vanti Juventus aðeins miðvörð í leikmannahóp sinn fyrir átökin á næstu leiktíð. Fótbolti 3.7.2007 13:45
Kaká að biðja um að vera seldur til Real Madrid? Samkvæmt spænska dagblaðinu AN hefur brasilíski snillingurinn Kaká biðlað til AC Milan um að vera seldur til Real Madrid. Samkvæmt blaðinu hafði Kaká samband við Silvio Berlusconi rétt áður en hann fór í sumarfrí til New York. Fótbolti 1.7.2007 18:54
Trezeguet neitaði United og Liverpool Franski markaskorarinn David Trezeguet hjá Juventus framlengdi samning sinn við ítalska félagið til ársins 2011 á dögunum en hann hefur nú gefið upp að hann hafi neitað tilboðum bæði Manchester United og Liverpool á Englandi og Barcelona á Spáni. Fótbolti 28.6.2007 11:19
Trezeguet framlengdi við Juventus Franski framherjinn David Trezeguet framlengdi í gær samning sinn við ítalska liðið Juventus til ársins 2011 og batt þar með enda á sögusagnir um að hann væri á leið til Arsenal á Englandi. Trezeguet hafði lengi verið ósáttur í herbúðum Juventus og lýsti því yfir á dögunum að hann ætlaði ekki að spila aftur með liðinu. Hann dró þó í land þegar honum voru boðin betri kjör. Hann hefur skorað 145 mörk á sjö árum hjá Juve. Fótbolti 26.6.2007 11:04
Kaka keyptur til Real fyrir 6,7 milljarða? Talsmaður miðjumannsins Kaka hjá AC Milan segir hann hreint ekki vera búinn að útiloka að ganga í raðir Real Madrid á Spáni í sumar. Hann segir leikmanninn kunna vel við sig í Mílanó, en segir spænska liðið þegar vera búið að gera Kaka tilboð "sem hann geti ekki hafnað." Fótbolti 24.6.2007 16:36
Suazo fer ekki til AC Milan Sápuóperunni í kring um framherjann David Suazo virðist hvergi nærri lokið en í dag tilkynntu forráðamenn AC Milan að ekkert yrði af fyrirhuguðum kaupum félagsins á leikmanninum því hann hefði þegar verið búinn að skrifa undir samning við Inter áður en hann skrifaði undir samning hjá félaginu. Það er því útlit fyrir að framherjinn muni enda hjá Inter eftir allt saman. Fótbolti 23.6.2007 14:19
Inter sýknað af símahlerunum Inter Milan hefur verið hreinsað af ásökunum um að félagið hafi hlerað símtöl leikmanna og dómara. Þetta tilkynnti knattspyrnusamband Ítalíu í dag. Fyrrverandi leikmenn Inter, Christian Vieiri og Ronaldo voru meðal þeirra sem sögðu Inter hafa njósnað um sig, og einnig dómarinn Massimo De Santis. Fótbolti 22.6.2007 16:34
AC Milan bregst harðlega við mynd af Kaka Forráðamenn AC Milan á Ítalíu eru æfir vegna myndar sem birtist af leikmanni liðsins, Kaka, í spænska dagblaðinu AS um helgina. Kaka sést halda á eintaki af blaðinu með mynd af fagnaðarlátum Real Madrid þegar liðið vann meistaratitilinn á dögunum og þykir Ítölunum þetta vera beinn áróður spænska liðsins til að lokka miðjumanninn til Spánar. Fótbolti 21.6.2007 14:11
Fenerbahce: Við erum að kaupa Ronaldo Stjórnarformaður Fenerbahce í Tyrklandi segir að félagið sé við það að ganga frá kaupum á brasilíska framherjanum Ronaldo frá AC Milan. Félagið gekk frá kaupum á landa hans Roberto Carlos frá Real Madrid á dögunum og segir stjórnarformaðurinn það ekkert leyndarmál lengur að félagið sé að landa Ronaldo. Fótbolti 20.6.2007 17:24
Camoranesi ósáttur hjá Juventus Svo gæti farið að ítalski landsliðsmaðurinn Mauro Camoranesi færi frá Juventus í sumar eftir að slitnaði upp úr viðræðum umboðsmanns hans við félagið varðandi framlengingu á samningi leikmannsins. Leikmaðurinn á tvö ár eftir af samningi sínum en vildi bættari kjör eftir að hafa hjálpað liðinu upp úr B-deildinni í vor. Fótbolti 20.6.2007 15:21
Suazo snerist hugur - Eto´o út úr myndinni Framherjinn David Suazo skipti heldur betur um skoðun í gær þegar hann gerði samning við AC Milan. Suazo, sem er landsliðsmaður Hondúras, var fyrir helgina sagður hafa gengið í raðir Inter Milan frá Cagliari eftir frábært tímabil í vetur þar sem hann skoraði 14 mörk. Forráðamenn Cagliari tilkynntu fyrir helgi að Inter væri þegar búið að kaupa hann, en nú hefur hann gengið í raðir erkifjendanna. Fótbolti 19.6.2007 11:55
Totti sáttur við sjálfan sig Francesco Totti hjá Roma var að vonum ánægður þegar hann var sæmdur gullskónum um helgina, en það eru verðlaun sem veitt eru markaskorara ársins í Evrópuknattspyrnunni. Totti gleymdi ekki að þakka sjálfum sér þegar hann var spurður út í heiðurinn. Fótbolti 19.6.2007 11:37
AC Milan: Eto´o er fyrsti kostur Varaformaður AC Milan, Adriano Galliani, hefur nú tilkynnt að framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona sé fyrsti kostur félagsins á leikmannamarkaðnum í sumar. Þetta sagði hann á heimasíðu félagsins. Hann var spurður út í ummæli forseta félagsins á dögunum þar sem hann sagði að félagið ætlaði að næla aftur í Andriy Shevchenko og saðgði þá; "Við forsetinn höfum aldrei verið ósammála á síðustu 30 árum. Hver veit hvað gerist?" Fótbolti 19.6.2007 11:30
Totti fær gullskó Evrópu Ítalinn Francesco Totti hlaut gullskó Evrópu fyrir nýafstaðið tímabil. Totti skoraði 26 mörk fyrir Roma á tímabilinu, einu marki meira en Ruud Van Nistelrooy skoraði fyrir Real Madrid. Fótbolti 18.6.2007 16:59
Milan segist ekki ætla að selja Kaka AC Milan ætlar sér ekki að selja Kaka þrátt fyrir að faðir Brasilíumannsins hafi fundað með Real Madrid. Adriano Galliani, varaforseti AC Milan sagði fréttamönnum þetta í morgun. „Við getum staðfest að Kaka verður ekki seldur en við vissum af fundi föður hans með Real þar sem hann hafði þegar sagt okkur frá honum.“ Fótbolti 15.6.2007 11:43
Inter kaupir Suazo Inter Milan var að ganga frá kaupum á framherjanum Davis Suazo frá Cagliari. Þessu greindi Massimo Cellino, forseti Cagliari, frá í dag. „Inter voru að gera frábær kaup, Suazo mun verða þeirra fyrsti kostur, hann er frábær leikmaður." Fótbolti 13.6.2007 16:45
Trezeguet: Ég spila ekki lengur hjá Juventus Franski framherjinn David Trezeguet hjá Juventus segist ekki ætla að halda áfram að leika með liðinu á næstu leiktíð þó það hafi tryggt sér sæti í A-deildinni á ný. "Það er ekki möguleiki á að ég verði áfram og viðræðum um það verður ekki haldið áfram," sagði Frakkinn í dag. Fótbolti 11.6.2007 19:16
Figo framlengir við Inter Portúgalski miðjumaðurinn Luis Figo hefur framlengt samning sinn við Ítalíumeistara Inter Milan. Gamli samningurinn hans rennur út um næstu mánaðamót en hann hefur nú framlengt út næstu leiktíð. Figo er 34 ára gamall og fyrrum knattspyrnumaður ársins hjá FIFA. Hann gekk í raðir Inter frá Real Madrid árið 2005 og hefur gegnt mikilvægu hlutverki hjá ítalska liðinu. Fótbolti 11.6.2007 19:11
Iaquinta á leið til Juventus Forseti ítalska knattspyrnufélagsins Udinese tilkynnti í dag að félagið hefði samþykkt tilboð Juventus í landsliðsframherjann Vincenzo Iaquinta. Hann er 24 ára gamall og hefur spilað fyrir Udinese í sjö ár. "Ekki hefur verið gengið formlega frá kaupunum en þetta er allt klappað og klárt," sagði forseti Udinese í dag. Fótbolti 11.6.2007 17:16
Figo hefur ekki áhuga á Tottenham Portúgalski vængmaðurinn Luis Figo hjá Inter Milan segist ekki vilja spila annarsstaðar í Evrópu og hafnar slúðri sem verið hefur á kreiki um að hann sé á leið til Tottenham á Englandi. "Ef ég held áfram að spila í Evrópu, verður það aðeins fyrir Inter og ég er ekki á leið til Portúgal eða Englands," sagði Figo, sem einnig hefur verið orðaður við lið í Saudi Arabíu. Fótbolti 6.6.2007 16:51
Milan staðfestir áhuga sinn á Eto´o Forráðamenn AC Milan staðfestu í dag að þeir hefðu mikinn áhuga á að kaupa sóknarmanninn Samuel Eto´o frá Barcelona í sumar. Þeir vísa hinsvegar á bug fregnum um að kaupin séu komin langt á veg og taka fram að ekkert verði gert í málinu fyrr en eftir að deildarkeppninni lýkur á Spáni. Fótbolti 6.6.2007 13:48
Gildardino er falur hjá AC Milan Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að framherjinn Alberto Gilardino sé falur fyrir 24 milljónir evra eða 2 milljarða króna. Gilardino skoraði 12 mörk fyrir Milan í A-deildinni í vetur en er ósáttur við hlutskipti sitt hjá liðinu og vill gjarnan breyta til. Fótbolti 5.6.2007 17:09
Ramos orðaður við Manchester City Eftir að Claudio Ranieri samdi við Juventus í gær hafa forráðamenn Manchester City snúið sér að að Juande Ramos, stjóra Sevilla, til að fylla í skarð Stuart Pearce. Ramos hefur stjórnað Sevilla í næstum því sex ár. Fótbolti 5.6.2007 09:26
Ranieri búinn að taka við Juventus Claudio Ranieri, sem sagði upp starfi sínu sem framkvæmdastjóri Parma í síðustu viku hefur verið ráðinn þjálfari Juventus. Þessi fyrrverandi stjóri Chelsea var sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá Manchester City eftir að Stuart Pearce var sagt upp störfum. Fótbolti 4.6.2007 14:54
Ranieri gæti verið á leiðinni til Juventus Claudio Ranieri, sem nýlega sagði upp starfi sínu sem framkvæmdarstjóri Parma er núna sterklega inni í myndinni sem arftaki Didier Deschamps hjá Juventus ef eitthvað er að marka orð Giovanni Cobolli Gigli, forseti Juventus. Fótbolti 3.6.2007 20:33
Vanden Borre að ganga til liðs við Fiorentina Leikmaður Anderlecht í Hollandi, Anthony Vanden Borre hefur skrifað undir 5 ára samning við Fiorentina á Ítalíu. Vanden Borre er gríðarlega efnilegur varnarmaður og spilaði meðal annars 6 leiki fyrir Anderlecht Meistaradeild Evrópu á síðasta tímabili. Fótbolti 3.6.2007 20:10
Juventus tapaði fyrir Bari Juventus töpuðu fyrir Bari í dag 0-1 í næstsíðasta leik liðsins í Serie B. Það var Carrus sem skoraði markið fyrir heimamenn í Bari á 57. mínútu. Bari voru óheppnir að bæta ekki við öðru marki því að Ganci misnotaði vítaspyrnu á 87. mínútu eftir að Legrottaglie leikmaður Juventus var vikið af velli. Fótbolti 3.6.2007 15:32
Ranieri hættur hjá Parma Ítalska knattspyrnufélagið Parma hefur staðfest að að Claudio Ranieri sé hættur hjá félaginu. Getgátur hafa verið uppi um að hann taki við Manchester City ef að Thaksin Shinawatra nái að yfirtaka klúbbinn. Fótbolti 31.5.2007 20:20
Júlio César framlengir við Inter Markvörðurinn Júlio César hefur skrifað undir nýjan samning við Ítalíumeistara Inter Milan sem gildir til ársins 2012. César hefur spilað 13 landsleiki fyrir Brasilíumenn og spilaði 32 leiki fyrir Inter á leiktíðinni þar sem liðið hafði gríðarlega yfirburði í A-deildinni. Hann hefur átt fast sæti í liði Inter síðan hann gekk í raðir liðsins frá Chievo fyrir leiktíðina 2005/06. Fótbolti 31.5.2007 18:00
Flachi í 16 mánaða bann Ítalski knattspyrnumaðurinn Francesco Flachi fékk í dag 16 mánaða keppnisbann eftir að eiturlyfjapróf sýndu að hann hafði neytt kókaíns. Félag Flachis, Fiorentina, skýrði frá þessu í dag. Flachi, sem er 32 tveggja ára, mældist með kókaín í blóði sínu eftir leik við Inter Milan þann 28. janúar á þessu ári. Fótbolti 31.5.2007 11:02