Spænski boltinn

Van Bommel við það að skrifa undir
Mark van Bommel hefur staðfest að hann sé við það að skrifa undir hjá einu af bestu félagi Evrópu. Barcelona eru taldir líklegastir en talið er að þeir hafi sigrað Real Madrid í kapphlaupinu um leikmanninn.

Barcelona heldur Real fjarri
Barcelona sigraði Albacete í spænsku úrvalsdeildinni í gær, 2-0, og hefur því enn á ný sex stiga forskot á Real Madrid þegar fjórar umferðir eru eftir. Samuel Eto´o og Leo Messi skoruðu mörk Börsunga.

Real sigraði Sociedad
Real Madrid sigraði Real Sociedad 2-0 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld, en Ronaldo skoraði bæði mörk Madrídinga. Liðið er nú í öðru sæti deildarinnar með 72 stig, þremur stigum á eftir Barcelona sem mæti Albacete í dag og getur aukið forskot sitt í deildinni í sex stig með sigri.
Osasuna lagði Villareal
Einn leikur var í spænsku fyrstu deildinni í knattspyrnu í gær. Osasuna vann Villareal með þremur mörkum gegn tveimur. Villareal er í 5. sæti í deildinni með 52 stig en stigin sem liðið tapaði í gær eru dýrmæt í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Osasuna er í 13. sæti með 43 stig.

Beckham í bakvörðinn
Knattspyrnumaðurinn David Beckham hjá Real Madrid mun leysa nýja stöðu þegar lið hans mætir Real Sociedad í spænska boltanum um helgina.

Beckham kærir barnapíu
Abbie Gibson, fyrrum barnfóstra David og Victoriu Beckham, á yfir höfði sér málsókn vegna ummæla í viðtali við breskt slúðurblað.

Alberto Gilardino til Real Madrid?
Mörg lið renna hýru auga til knattspyrnumannsins Alberto Gilardino sem leikur með Parma á Ítalíu.

Real saxaði á Barcelona
Real Madrid sigraði Villareal með tveimur mörkum gegn einu í spænsku 1. deildinni í gærkvöldi og minnkaði forystu Barcelona í þrjú stig. Barcelona mætir Malaga á La Rosaleda vellinum í Malaga í dag. Leikurinn hefst klukkan 17 og verður sýndur beint á Sýn.

Real getur minnkað muninn í 3 stig
Real Madríd mætir Villareal í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á Sýn. Real getur minnkað forystu Barcelona í þrjú stig en Barcelona mætir Malaga á morgun.

Barca og Juventus halda forystunni
Bæði Barcelona og Real Madríd unnu leiki sína í spænsku 1. deildinni í fóbolta í gær og Barcelona hefur því enn sex stiga forystu þegar sex umferðir eru eftir. Juventus náði þriggja stiga forystu í ítölsku 1. deildinni þegar liðið lagði Lecce að velli 5-2.
Deportivo vann Osasuna
Þrír leikir fóru fram í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Real Sociedad bar sigurorð af Deportivo 1-0, Osasuna vann Sevilla á útivelli 1-0 og Atletico Madrid og Epanyol gerðu markalaust jafntefli. Toppliðin tvö á Spáni verða í sviðsljósinu í dag.

Forlan langar aftur til Englands
Fyrrum framherji Manchester United, Diego Forlan frá Uruguay, segist vilja fá annan séns í ensku úrvaldsdeildinni. Forlan tókst ekki vil til hjá United en hefur brillerað á Spáni með Villarreal og skorað 18 mörk í vetur.

Owen neitar orðrómum
"Það var ekki ég sem kom þessum orðrómum af stað. Fólk er alltaf að tala um framtíð mína hjá Real af því ég er ekki í byrjunarliðinu, en ég get fullvissað alla um að þessar vangaveltur um endurkomu mína í ensku knattspyrnuna eru ekki frá mér komnar," sagði enski landsliðsmaðurinn Michael Owen, sem greinilega er orðinn mjög þreyttur á slúðrinu.

Canizares er miður sín
Santiago Canizares markvörður Evrópumeistara Valencia biður stuðningsmenn liðsins afsökunar í blaðaviðtali á Spáni í dag en hann gerði afdríkadrík mistök á 93. mínútu í leik gegn Malaga í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina, sem kostuðu Valencia sigur í leiknum.
Ronaldo kemur Real í 2-0
Ronaldo er búinn að koma Real Madrid í 2-0 gegn erkifjendum sínum í Barcelona í hörkuleik sem stendur yfir í Madrid.
Mörkunum rignir í Madrid
Staðan í leik Real Madrid og Barcelona er orðin 4-2 fyrir heimamenn. Michael Owen kom Real í 4-1 eftir um klukkutíma leik eftir glæsilega sendingu frá landa sínum David Beckham og úrslitin virtust ráðin í leiknum.
Real yfir gegn Barcelona
Zinedane Zidane hefur komið Real Madrid 1-0 yfir gegn Barcelona í toppslag spænsku 1. deildarinnar í fótbolta en leikurinn hófst kl. 17.00. Markið kom strax á 7. mínútu eftir frábæran undirbúning brasilíska sóknarmannsins Ronaldo. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.
Real leiðir 3-1 í hálfleik
Real Madrid hefur 3-1 forskot gegn erkifjendum sínum í Barcelona í stórleik helgarinnar í spænska boltanum, sem stendur yfir í Madrid núna. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefur verið sannkölluð flugeldasýning það sem af er.
Barcelona minnkar muninn
Samuel Eto´o er búinn að minnka muninn fyrir Barcelona gegn Real Madrid í stórkostlegum knattspyrnuleik sem stendur yfir í Madrid og er í beinni útsendingu á Sýn.

Áhyggjulaus yfir markaleysinu
Stórliðin Real Madrid og Barcelona mætast í dag á Santiago Bernebau-leikvanginum í Madríd. Gríðarleg spenna ríkir fyrir þessum leik en Barcelona er með níu stiga forystu á Real Madrid á toppi deildarinnar.

Numancia mætir Atletico Madrid
Numancia og Atletico Madrid mætast í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst klukkan 17.

Owen saknar Liverpool
Framherjinn knái hjá Real Madrid, Michael Owen, segist sakna heimaslóðanna í Liverpool og viðurkenndi í nýlegu viðtali að hann hefði ekkert á móti því að snúa heim ef sú staða kæmi upp.

Real saxaði á forskot Barcelona
Real Madrid saxaði á forskot Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld eftir sigur á Albaceti á útivelli, 2-1. Ivan Helguera og Michael Owen skoruðu mörk Madrídinga sem eru níu stigum á eftir Barcelona. Stórliðin mætast um næstu helgi.

Villareal í þriðja sætið
Villareal náði í gær þriðja sætinu í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið sigraði Athletic Bilbao 3-1. Jose Mari skoraði tvö marka Villareal og Diego Forlan eitt en hann hefur nú skorað 18 mörk, jafnmörg og Samuel Eto´o hjá Barcelona. Zaragoza og Valencia gerðu 2-2 jafntefli og Real Sociedad sigraði Osasuna 2-0.

Ranieri kærði Valencia
Claudio Ranieri hefur kært sitt gamla félag, Valencia, en kappinn var rekinn úr þjálfarastöðu liðsins eftir aðeins 8 mánaða dvöl.

Óstöðugt, segir Luxemburgo
Wanderley Luxemburgo, þjálfari Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, varaði stjórn liðsins við veikleikum Madrídarliðsins er hann tók við af Mariano Garcia Remon.

Er búinn að sanna mig, segir Owen
Það er mikið rætt og ritað um framtíð enska framherjans Michael Owen hjá Real Madrid á Spáni, eftir ummæli samherja hans, Raúl, í síðustu viku en hann gaf það í skyn að best væri að Owen færi frá Real.

Casillas hefur ekki áhuga á United
Gines Carvajal, umboðsmaður Iker Casillas, markvarðar Real Madrid, fullyrti nýlega að skjólstæðingur sinn hefði ekki áhuga á að ganga til liðs við Manchester United og bætti því við að Casillas hefði fullan hug á að dvelja áfram á Spáni.

Henry til Barcelona?
Forráðamenn Barcelona hafa uppi áform um að næla í franska framherjann Thierry Henry sem leikur með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Owen er einn af þeim bestu
Ivan Helguera hjá Real Madrid segir að Michael Owen félagi sinn hjá Real Madrid sé einn af allra bestu framherjum í spænsku deildinni.