Spænski boltinn Fleiri ensk lið vilja Morientes Fernando Morientes, framherji Real Madrid, er nú eftirsóttur af enskum úrvalsdeildarliðum. Liverpool og Newcastle hafa þegar borið víurnar í kappann og falast eftir kröftum hans en umboðsmaður Morientes hefur nú gefið út að tvö önnur félög í ensku úrvalsdeildinni hafi bæst í hópinn. Hann vill hins vegar ekki gefa upp hvaða lið það eru. Sport 13.10.2005 15:15 Raul að fara frá Real Madrid? Æ fleira bendir til að miklar breytingar séu framundan hjá stórliði Real Madrid á komandi misserum og er orðið ljóst að nýr stjóri knattspyrnumála hjá liðinu, Ítalinn Arrigo Sacchi, mun framkvæma algera vorhreingerningu innan herbúða liðsins áður en ný leiktíð hefst í haust. Sport 13.10.2005 15:15 Real úti á þekju gegn Sevilla Stórlið Real Madrid kórónaði eitt versta tímabil sitt um langa hríð í fyrrakvöld þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Sevilla 0-1. Var leikur liðsins svo dapur að annars sauðtryggir aðdáendur liðsina bauluðu og hrópuðu á leikmenn þess nánast allan síðari hálfleikinn. Sport 13.10.2005 15:14 Valencia í 2. sætið á Spáni Sevilla vann heldur betur óvæntan útisigur á Real Madrid, 0-1 í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Fyrr í kvöld fóru hins vegar fram 6 aðrir leikir og ber hæst 3-0 sigur Valencia á Espanyol sem fyrir umferðina var í 2. sæti, tólf stigum á eftir toppliði Barcelona sem er með 42 stig. Real Madrid er í 5. sæti með 29 stig. Sport 13.10.2005 15:14 Barcelona með tólf stiga forystu Barcelona sigraði Levante 2-1 í spænsku 1. deildinni í gærkvöld og náði tólf stiga forystu á granna sína í Espanol. Barcelona tók forystuna á 28. mínútu þegar Deco skaut í varnarmann og þaðan fór boltinn í netið. Mateu Jofre jafnaði metin hálftíma fyrir leikslok en þegar fjórar mínútur voru eftir skoraði Samuel Eto´o sigurmark Barcelona. Sport 13.10.2005 15:14 Ronaldhino fer ekki til Chelsea Ronaldhino, nýkrýndur knattspyrnumaður árins 2004, segist hafa engin áform um að segja skilið við Barcelona til að ganga til liðs við Chelsea. Sport 13.10.2005 15:13 Betri en helmingur Chelsea-liðsins Kamerúnski sóknarmaðurinn Samuel Eto´o hefur ekki mikla trú á því að brasilíski snillingurinn Ronaldinho gangi til liðs við Chelsea á næstunni og hlær af tilraunum enska stórliðsins til að tryggja sér kappann. "Hann er betri en helmingur liðs þeirra til samans," segir Eto´o. Sport 13.10.2005 15:13 Beckham á bekkinn David Beckham var settur á bekkinn hjá Real Madrid þegar liðið mætti Racing Santander á laugardaginn. Sport 13.10.2005 15:13 Tókst ekki að saxa á forskotið Espanyol mistókst að saxa á forskot Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag þegar liðið gerði aðeins markalaust jafntefli við botnlið Numancia en endurheimti þó 2. sæti deildarinnar með stiginu. Barcelona gerði 1-1 jafntefli við Valencia í gærkvöldi og því hefði Espanyol getað minnkað bilið í 7 stig með sigri. Sport 13.10.2005 15:12 Loksins sigur hjá Inter Milan Roma valtaði yfir Parma 5-1 í ítölsku Serie A deildinni í knattspyrnu í dag þegar 8 leikir fóru fram. Francesco Totti og Antonio Cassano skoruðu tvö mörk hvor og Vincenzo Montella eitt fyrir Parma. Inter Milan tókst loks að innbyrða sigur eftir 12 jafntefli í 15 leikjum í vetur og unnu Brescia 1-0. Sport 13.10.2005 15:12 Morientes vill fara til Liverpool Fernando Morientes hefur látið hafa eftir sér að hann sé meira en tilbúinn til að ganga til liðs við Liverpool í janúar, en framherjinn hefur lítið fengið að spreyta sig hjá stjörnuprýddu liði Real Madrid þar sem hann er á eftir Raul, Ronaldo og Michael Owen í goggunarröðinni. Sport 13.10.2005 15:12 Gronkjær til Madrid Vængmaður Birmingham, Daninn Jesper Gronkjær, hefur samið við Spænska félagið Atletico Madrid um að ganga til liðs við þá þegar leikmannaglugginn opnar aftur í janúar. Sport 13.10.2005 15:11 Sport 13.10.2005 15:11 Sprengjuhótun á leik Real Madrid Sprengjuhótun leiddi til þess að knattspyrnuleikvangur Real Madrid var rýmdur í skyndingu í gær á áttugustu og áttundu mínútu leiks Real Madrid og Real Sociedad. Hótun, sem sögð var frá aðskilnaðarsamtökun herskárra Baska, ETA, barst dagblaði sem lét vita hvar og hvenær hún ætti að springa. Sport 13.10.2005 15:10 Barca enn á siglingu Barcelona heldur sigurgöngu sinni áfram í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðið lagði Albacete að velli á útivelli 2-1 í gærkvöldi. Xavi skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok. Asier Del Horno skoraði sigurmark Athletic Bilbao í 1-0 sigri á Atletico Madrid í gær. Barcelona hefur nú tólf stiga forystu í deildinni eru með 38 stig. Sport 13.10.2005 15:09 Valencia varð fyrir áfalli Momo Sissoko, miðjumaður Valencia, verður frá knattspyrnu í minnst tvo mánuði vegna uppskurðar á hné. Sport 13.10.2005 15:09 Simeone á leið frá Atletico? Samkvæmt spænskum blöðum ætlar Diego Simeone að segja skilið við Atletico Madrid og ganga til liðs við Racing Club í Buenos Aires í heimalandi sínu, Argentínu. Sport 13.10.2005 15:09 Fyrir neðan allar hellur Stórtap Deportivo á miðvikudaginn í Meistaradeildinni á heimavelli fyrir Mónakó kórónaði hörmulegt gengi liðsins í þeirri útvöldu deild en félagið lauk keppni ótrúlegt nokk með aðeins tvö stig og skoraði ekki eitt einasta mark. Sport 13.10.2005 15:09 Totti og Cassano til Real Greint er frá því í spænskum fjölmiðlum að góðar líkur séu á því að tvær helstu stjörnur liðs Roma frá Ítalíu, Antonio Cassano og Francesco Totti, gangi til liðs við Real Madrid strax og leikmannamarkaðurinn opnar eftir í byrjun janúar Sport 13.10.2005 15:08 Jafntefli hjá Real Madrid Real Madrid tókst aðeins að brúa bilið á Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Real gerði markalaust jafntefli gegn Villareal á útivelli. Barelona er með níu stiga forystu. Liðið er með 35 stig eftir 14 umferðir. Real madrid og Espanyol eru með 26 stig. Espanyol vann góðan 1-0 útisigur á Real Zaragoza. Sport 13.10.2005 15:07 Barcelona með tíu stiga forystu Barcelona náði í gærkvöldi tíu stiga forystu í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu eftir 4-0 sigur á Malaga. Kamerúninn Samuel Eto´o skoraði tvö markanna og þeir Deco og Anders Iniesta hin mörkin. Valencia vann Albacete 1-0 og Real Sociedad sigraði Real Betis 1-0. Sport 17.10.2005 23:41 Aðgerðin tókst vel Framherji Barcelona, hinn sænski Henrik Larsson, gekkst undir aðgerð í Bandaríkjunum í dag, og samkvæmt talsmanni félagsins gekk aðgerðin vonum framar. Henke verður þó frá út tímabilið, en hann meiddist upphaflega í 3-0 sigurleiknum gegn Real Madrid, 20. nóvember síðastliðinn. Þessi fyrrum leikmaður Celtic er harðákveðinn í að spila aftur á næsta tímabili og hefur Barcelona þegar framlengt samning hans við félagið. Sport 13.10.2005 15:06 Risaleikur í spænska boltanum Mestu erkifjendur knattspyrnusögunnar, Barcelona og Real Madrid, eigast við á Camp Nou, heimavelli Barcelona, í kvöld. Barcelona er í efsta sæti spænsku deildarinnar og Madrídingar eru í öðru sæti, fjórum stigum á eftir. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst upphitun klukkan 20.20 og leikurinn fjörutíu mínútum síðar. Sport 13.10.2005 15:01 Jóhannes Karl laus frá Betis Landsliðsmaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er laus allra mála frá spænska liðinu Real Betis. Hann hefur átt í viðræðum við félagið um starfslok og í dag var tilkynnt að samningi hans við félagið hefði verið rift með gagnkvæmum vilja og að hann gæti farið hvert sem hann vildi á frjálsri sölu. Sport 13.10.2005 14:26 « ‹ 263 264 265 266 ›
Fleiri ensk lið vilja Morientes Fernando Morientes, framherji Real Madrid, er nú eftirsóttur af enskum úrvalsdeildarliðum. Liverpool og Newcastle hafa þegar borið víurnar í kappann og falast eftir kröftum hans en umboðsmaður Morientes hefur nú gefið út að tvö önnur félög í ensku úrvalsdeildinni hafi bæst í hópinn. Hann vill hins vegar ekki gefa upp hvaða lið það eru. Sport 13.10.2005 15:15
Raul að fara frá Real Madrid? Æ fleira bendir til að miklar breytingar séu framundan hjá stórliði Real Madrid á komandi misserum og er orðið ljóst að nýr stjóri knattspyrnumála hjá liðinu, Ítalinn Arrigo Sacchi, mun framkvæma algera vorhreingerningu innan herbúða liðsins áður en ný leiktíð hefst í haust. Sport 13.10.2005 15:15
Real úti á þekju gegn Sevilla Stórlið Real Madrid kórónaði eitt versta tímabil sitt um langa hríð í fyrrakvöld þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Sevilla 0-1. Var leikur liðsins svo dapur að annars sauðtryggir aðdáendur liðsina bauluðu og hrópuðu á leikmenn þess nánast allan síðari hálfleikinn. Sport 13.10.2005 15:14
Valencia í 2. sætið á Spáni Sevilla vann heldur betur óvæntan útisigur á Real Madrid, 0-1 í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Fyrr í kvöld fóru hins vegar fram 6 aðrir leikir og ber hæst 3-0 sigur Valencia á Espanyol sem fyrir umferðina var í 2. sæti, tólf stigum á eftir toppliði Barcelona sem er með 42 stig. Real Madrid er í 5. sæti með 29 stig. Sport 13.10.2005 15:14
Barcelona með tólf stiga forystu Barcelona sigraði Levante 2-1 í spænsku 1. deildinni í gærkvöld og náði tólf stiga forystu á granna sína í Espanol. Barcelona tók forystuna á 28. mínútu þegar Deco skaut í varnarmann og þaðan fór boltinn í netið. Mateu Jofre jafnaði metin hálftíma fyrir leikslok en þegar fjórar mínútur voru eftir skoraði Samuel Eto´o sigurmark Barcelona. Sport 13.10.2005 15:14
Ronaldhino fer ekki til Chelsea Ronaldhino, nýkrýndur knattspyrnumaður árins 2004, segist hafa engin áform um að segja skilið við Barcelona til að ganga til liðs við Chelsea. Sport 13.10.2005 15:13
Betri en helmingur Chelsea-liðsins Kamerúnski sóknarmaðurinn Samuel Eto´o hefur ekki mikla trú á því að brasilíski snillingurinn Ronaldinho gangi til liðs við Chelsea á næstunni og hlær af tilraunum enska stórliðsins til að tryggja sér kappann. "Hann er betri en helmingur liðs þeirra til samans," segir Eto´o. Sport 13.10.2005 15:13
Beckham á bekkinn David Beckham var settur á bekkinn hjá Real Madrid þegar liðið mætti Racing Santander á laugardaginn. Sport 13.10.2005 15:13
Tókst ekki að saxa á forskotið Espanyol mistókst að saxa á forskot Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag þegar liðið gerði aðeins markalaust jafntefli við botnlið Numancia en endurheimti þó 2. sæti deildarinnar með stiginu. Barcelona gerði 1-1 jafntefli við Valencia í gærkvöldi og því hefði Espanyol getað minnkað bilið í 7 stig með sigri. Sport 13.10.2005 15:12
Loksins sigur hjá Inter Milan Roma valtaði yfir Parma 5-1 í ítölsku Serie A deildinni í knattspyrnu í dag þegar 8 leikir fóru fram. Francesco Totti og Antonio Cassano skoruðu tvö mörk hvor og Vincenzo Montella eitt fyrir Parma. Inter Milan tókst loks að innbyrða sigur eftir 12 jafntefli í 15 leikjum í vetur og unnu Brescia 1-0. Sport 13.10.2005 15:12
Morientes vill fara til Liverpool Fernando Morientes hefur látið hafa eftir sér að hann sé meira en tilbúinn til að ganga til liðs við Liverpool í janúar, en framherjinn hefur lítið fengið að spreyta sig hjá stjörnuprýddu liði Real Madrid þar sem hann er á eftir Raul, Ronaldo og Michael Owen í goggunarröðinni. Sport 13.10.2005 15:12
Gronkjær til Madrid Vængmaður Birmingham, Daninn Jesper Gronkjær, hefur samið við Spænska félagið Atletico Madrid um að ganga til liðs við þá þegar leikmannaglugginn opnar aftur í janúar. Sport 13.10.2005 15:11
Sprengjuhótun á leik Real Madrid Sprengjuhótun leiddi til þess að knattspyrnuleikvangur Real Madrid var rýmdur í skyndingu í gær á áttugustu og áttundu mínútu leiks Real Madrid og Real Sociedad. Hótun, sem sögð var frá aðskilnaðarsamtökun herskárra Baska, ETA, barst dagblaði sem lét vita hvar og hvenær hún ætti að springa. Sport 13.10.2005 15:10
Barca enn á siglingu Barcelona heldur sigurgöngu sinni áfram í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðið lagði Albacete að velli á útivelli 2-1 í gærkvöldi. Xavi skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok. Asier Del Horno skoraði sigurmark Athletic Bilbao í 1-0 sigri á Atletico Madrid í gær. Barcelona hefur nú tólf stiga forystu í deildinni eru með 38 stig. Sport 13.10.2005 15:09
Valencia varð fyrir áfalli Momo Sissoko, miðjumaður Valencia, verður frá knattspyrnu í minnst tvo mánuði vegna uppskurðar á hné. Sport 13.10.2005 15:09
Simeone á leið frá Atletico? Samkvæmt spænskum blöðum ætlar Diego Simeone að segja skilið við Atletico Madrid og ganga til liðs við Racing Club í Buenos Aires í heimalandi sínu, Argentínu. Sport 13.10.2005 15:09
Fyrir neðan allar hellur Stórtap Deportivo á miðvikudaginn í Meistaradeildinni á heimavelli fyrir Mónakó kórónaði hörmulegt gengi liðsins í þeirri útvöldu deild en félagið lauk keppni ótrúlegt nokk með aðeins tvö stig og skoraði ekki eitt einasta mark. Sport 13.10.2005 15:09
Totti og Cassano til Real Greint er frá því í spænskum fjölmiðlum að góðar líkur séu á því að tvær helstu stjörnur liðs Roma frá Ítalíu, Antonio Cassano og Francesco Totti, gangi til liðs við Real Madrid strax og leikmannamarkaðurinn opnar eftir í byrjun janúar Sport 13.10.2005 15:08
Jafntefli hjá Real Madrid Real Madrid tókst aðeins að brúa bilið á Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Real gerði markalaust jafntefli gegn Villareal á útivelli. Barelona er með níu stiga forystu. Liðið er með 35 stig eftir 14 umferðir. Real madrid og Espanyol eru með 26 stig. Espanyol vann góðan 1-0 útisigur á Real Zaragoza. Sport 13.10.2005 15:07
Barcelona með tíu stiga forystu Barcelona náði í gærkvöldi tíu stiga forystu í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu eftir 4-0 sigur á Malaga. Kamerúninn Samuel Eto´o skoraði tvö markanna og þeir Deco og Anders Iniesta hin mörkin. Valencia vann Albacete 1-0 og Real Sociedad sigraði Real Betis 1-0. Sport 17.10.2005 23:41
Aðgerðin tókst vel Framherji Barcelona, hinn sænski Henrik Larsson, gekkst undir aðgerð í Bandaríkjunum í dag, og samkvæmt talsmanni félagsins gekk aðgerðin vonum framar. Henke verður þó frá út tímabilið, en hann meiddist upphaflega í 3-0 sigurleiknum gegn Real Madrid, 20. nóvember síðastliðinn. Þessi fyrrum leikmaður Celtic er harðákveðinn í að spila aftur á næsta tímabili og hefur Barcelona þegar framlengt samning hans við félagið. Sport 13.10.2005 15:06
Risaleikur í spænska boltanum Mestu erkifjendur knattspyrnusögunnar, Barcelona og Real Madrid, eigast við á Camp Nou, heimavelli Barcelona, í kvöld. Barcelona er í efsta sæti spænsku deildarinnar og Madrídingar eru í öðru sæti, fjórum stigum á eftir. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst upphitun klukkan 20.20 og leikurinn fjörutíu mínútum síðar. Sport 13.10.2005 15:01
Jóhannes Karl laus frá Betis Landsliðsmaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er laus allra mála frá spænska liðinu Real Betis. Hann hefur átt í viðræðum við félagið um starfslok og í dag var tilkynnt að samningi hans við félagið hefði verið rift með gagnkvæmum vilja og að hann gæti farið hvert sem hann vildi á frjálsri sölu. Sport 13.10.2005 14:26