Box

Fréttamynd

Hrein­skilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“

Íslenska hnefaleikakonan Valgerður Guðsteinsdóttir segist elska íþróttina sína en segir jafnframt að það bitni mikið á sér að hún sé ekki á heimavelli þegar kemur að því að draga að sér athygli á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum. Valgerður talar hreint út í myndbandi á samfélagsmiðlum.

Sport
Fréttamynd

„Stígðu út úr torfkofanum, kona“

Áætlanir Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sem jafnframt er ráðherra íþróttamála þess efnis að standa í vegi fyrir heimilun atvinnuhnefaleika hér á landi sætir gagnrýni víða. Málið var til umræðu í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar.

Sport
Fréttamynd

Inga vill á­fram banna at­vinnu­manna­hnefa­leika

Atvinnumannahnefaleikar eiga áfram að vera bannaðir á Íslandi, að mati Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hyggst ekki beita sér fyrir lagabreytingum til að heimila þá og vísar til hættu á höfuð- og heilaskaða.

Innlent
Fréttamynd

Mót­herji Eriku kastaði dós í hana

Erika Nótt mun stíga í hringinn gegn Carla Jade á laugardaginn á Misfits boxing kvöldinu sem haldið verður í Copper Box Arena í London. Jade var ekki ánægð með Eriku á blaðamannafundi fyrir bardagann og ákvað hún því að kasta dós í Eriku.

Sport
Fréttamynd

Af­salar sér ó­vænt öllum heims­meistara­titlum

Úkraínska hnefaleikastjarnan Oleksandr Usyk hefur ákveðið að afsala sér öllum heimsmeistaratitlunum sem hann hefur tryggt sér hjá nokkrum mismunandi samböndum. Á sama tíma hafnar hann því samt að ferlinum sé alfarið lokið.

Sport
Fréttamynd

Sjáðu al­blóðugan Kol­bein lúskra á Tékkanum

Kolbeinn Kristinsson hélt ferilskrá sinni sem atvinnuboxari flekklausri þegar hann vann Tékkann Pavel Sour með tæknilegu rothöggi á blóðugu boxkvöldi í Kaupmannahöfn. Frammistöðu Kolbeins má nú sjá á Vísi.

Sport
Fréttamynd

Lætur hnefana tala

Kolbeinn Kristinsson mun taka þátt í sínum tuttugasta atvinnumannabardaga í hnefaleikahringnum í Kaupmannahöfn í kvöld. Hann vonast eftir tuttugasta sigrinum.

Sport
Fréttamynd

Ferill Jake Paul í hættu

Jake Paul segir hnefaleikaferil sinn í hættu vegna þeirra meiðsla sem hann varð fyrir í tapi fyrir Anthony Joshua í hnefaleikabardaga þeirra í desember síðastliðnum. Kjálki hans mölbrotnaði og nokkrar tennur duttu úr kjafti hans.

Sport