Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 07:01 Bandaríska hnefaleikakonan Hannah Rapp var aðeins 26 ára gömul. Hún var flutt í skyndi á sjúkrahús þar sem hún lést. @hrapp7 Bandaríska hnefaleikakonan Hannah Rapp lést á laugardag eftir að hafa orðið fyrir bíl á meðan hún var úti að hjóla í Texas-fylki í Bandaríkjunum.
Samkvæmt upplýsingum yfirvalda var ekið fram úr hinni 26 ára gömlu Rapp en bíllinn stöðvaði svo skyndilega og bakkaði á hana en hún var að hjóla með kærasta sínum. Ökumaðurinn, hinn 31 árs gamli Charles Medina, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir manndráp. Boxing star Hannah Rapp killed by road rage driver while cycling in Texas https://t.co/4RLRzonsBy pic.twitter.com/F4WT2SQA9u— New York Post Sports (@nypostsports) July 19, 2026 Samkvæmt skýrslu frá skrifstofu sýslumannsins er Medina sagður hafa ekið á ofsahraða fram hjá þeim og verið um það bil þrjátíu sentímetra frá því að aka á þau. Eftir að hjólreiðafólkið kallaði á hann og kastaði upp höndunum segja rannsóknarlögreglumenn að Medina hafi nauðhemlað, stöðvað, sett í bakkgír, gefið í afturábak og ekið á Hönnuh. Hún var flutt í skyndi á sjúkrahús þar sem hún lést. Medina sagði rannsóknarlögreglumönnum að hann hefði talið að hjólreiðafólkið væri að reyna að veifa honum og sagðist ekki hafa séð Rapp fyrr en á síðustu stundu þegar hann bakkaði. Hann sagði lögreglumönnum að hann hefði verið á um 24 kílómetra hraða aftur á bak. Rannsóknarlögreglumenn segja að gögn á vettvangi, þar á meðal hemlunarför, og vitnisburður frá kærasta Rapp, samræmist því að ökutækið hafi bakkað hratt í átt að hjólreiðafólkinu. ‼️ NEW DETAILS ‼️ I just received a copy of the arrest report for the driver who hit and killed rising boxing star Hannah “Hanarchy” Rapp. The 26-year-old was out biking with her boyfriend Saturday morning on FM 159 when she was hit. The driver, Charles Medina, 31, of Navasota… pic.twitter.com/Gg31xfUF1D— Rusty Surette (@RustySuretteTV) July 19, 2026 Rapp keppti um WBC-heimsmeistaratitil kvenna í fjaðurvigt í júní en tapaði þar fyrir Tiöru Brown en eftir bardagann var árangur hennar á ferlinum voru átta sigrar, eitt tap og eitt jafntefli. „Hún var einstakur hnefaleikakappi en umfram allt ómetanlegur meðlimur í hnefaleikafjölskyldu okkar,“ sagði Mauricio Sulaiman, forseti WBC, í yfirlýsingu. Brown kallaði Rapp „besta dansfélaga sem ég hef mætt á atvinnumannaferli mínum“ og sagði að Rapp hefði beðið um eiginhandaráritun hennar í aðdraganda bardagans. „Það gladdi mig innilega því við vorum að búa okkur undir stríð, en samt var hún að biðja um eiginhandaráritunina mína. Við háðum frábæran bardaga. Það var mér heiður að deila hringnum með henni,“ sagði Brown. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=Akh8u_aVjOk">watch on YouTube</a> Rapp, sem var frá Indiana, keppti í frjálsum íþróttum áður en hún sneri sér að hnefaleikum. Hún gerðist atvinnumaður árið 2024 en starfaði áfram í fullu starfi sem eldvarna- og öryggiseftirlitsmaður. „Hannah hafði varanleg áhrif á alla sem fengu tækifæri til að kynnast henni. Hún var hæfileikaríkur íþróttamaður, virtur meðlimur hnefaleikasamfélagsins og naut mikillar virðingar þeirra sem í kringum hana voru,“ sagði umboðsfyrirtæki hennar í yfirlýsingu og þar kom einnig fram: „Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í ferðalagi hennar og munum heiðra minningu hennar á næstu vikum.“
Box Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Enski boltinn Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Fleiri fréttir Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Óttast slitið krossband og gæti verið lengi frá Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Sjá meira