Ástin á götunni

Fréttamynd

Mikil meiðsli hjá Birmingham

Steve Bruce, stjóri Birmingham í ensku úrvalsdeildinni, á í stökustu erfiðleikum með að ná í fullskipað lið fyrir leikinn gegn Arsenal á sunnudaginn vegna meiðsla sem hrjá leikmenn liðsins.

Sport
Fréttamynd

Marel á leið heim

Marel Jóhann Baldvinsson, knattspyrnumaður Lokeren í Belgíu, er á heimleið eftir rúm fimm ár í atvinnumennsku. Marel hefur átt við erfið meiðsli á hné að stríða undanfarin ár og sækist nú eftir starfslokasamningi hjá belgíska liðinu.

Sport
Fréttamynd

Skagamenn ræða við Þórð

Skagamenn eiga í viðræðum við Þórð Guðjónsson um að hann gangi á ný til liðs við félagið. Þórður hefur fengið þau skilaboð frá Johan Boskamp, knattspyrnustjóra Stoke City, að hann muni ekki fá tækifæri í liðinu í vetur.

Sport
Fréttamynd

Stack sýknaður

Markvörður Arsenal, Graham Stack, sem er í láni hjá liði Reading, var í dag sýknaður af nauðgunarákæru sem hann fékk á sig fyrir ári síðan. Hann hafði verið sakaður um að hafa nauðgað 22 ára gömlum laganema í London þann 1. september í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Þórður á heimleið frá Stoke

Landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Þórður Guðjónsson, segir í samtali við <em>Morgunblaðið</em> í dag að hann hafi tekið þá ákvörðun að snúa heim til Íslands þegar samningur hans við enska 1. deildarliðið Stoke City rennur út næsta vor. Þórður sem orðinn er 32 ára hefur ekkert leikið með Stoke á þessri leiktíð og ekki er gert ráð fyrir því í áætlunum knattspyrnustjóra liðsins, Johans Boskamp.

Sport
Fréttamynd

Keane ekki forgangsatriði

Carlos Queiroz, aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United, segir að samningaviðræður við fyrirliðann Roy Keane hafi ekki forgang í augnablikinu, heldur séu menn í herbúðum liðsins fyrst og fremst að einbeita sér að leiknum við Fulham í deildinni á sunnudaginn.

Sport
Fréttamynd

Gerrard vill meiri ævintýramennsku

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að Chelsea séu langt í frá ósigrandi og vill að lið sitt verði frakkara í sóknarleiknum á sunnudaginn þegar liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Beckham fer í gömlu stöðuna

Talið er víst að David Beckham muni fá gömlu stöðuna sína á hægri kantinum hjá enska landsliðinu aftur þegar liðið mætir Austurríki í undankeppni HM í byrjun mánaðarins. Þá stendur landsliðsþjálfarinn fram fyrir erfiðum ákvörðunum varðandi nokkrar stöður í liðinu.

Sport
Fréttamynd

Gunnar skoraði - Halmstad áfram

Markahrókurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir lið sitt Halmstad í Svíþjóð, þegar það gerði sér lítið fyrir og sló Sporting frá Lissabon út úr Evrópukeppni félagsliða í Portúgal í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Grétar og félagar áfram

Grétar Rafn Steinsson og félagar í hollenska liðinu AZ Alkmaar unnu góðan sigur á rússneska liðinu Krylya Sovietiov í Evrópukeppni félagsliða nú áðan 3-1, eftir að hafa tapað fyrri leiknum 5-3 og eru því komnir áfram í keppninni. Grétar Rafn fékk að spila síðustu mínúturnar í leiknum eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Sport
Fréttamynd

Wembley verður klár

Enska knattspyrnusambandið segir að það hafi fengið staðfestingu á því frá verktökum um að bygging hins nýja þjóðarleikvangs verði tilbúin á tilsettum tíma fyrir bikarúrslitaleikinn í ensku knattspyrnunni þann 13. maí á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Uefa-bikarinn í kvöld

Fjölmargir leikir fara fram í Evrópukeppni félagsliða í dag og í kvöld, en tveimur þeirra er þegar lokið. Stuttgart tryggði sig áfram í riðlakeppnina nú áðan, þrátt fyrir tapi gegn NK Domzale 1-0, en þýska liðið vann fyrri leikinn 2-0. Landar þeirra í Leverkusen voru ekki jafn heppnir og féllu úr keppni fyrir CSKA Sofia, samanlagt 2-0.

Sport
Fréttamynd

Eiður handarbrotinn

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, handabrotnaði á æfingu með Chelsea fyrir skemmstu en þarf þó ekki að taka sér frí frá æfingum eða keppni.

Sport
Fréttamynd

Lampard vill Crouch í landsliðið

Leikur Liverpool og Chelsea í Meistaradeildinni í gær var nokkuð stíft leikinn og mikið var um hörð návígi. Frank Lampard, miðjumaður Chelsea og lykilmaður í enska landsliðinu, gaf sér þó tíma til að hrósa landa sínum leggjalanga, Peter Crouch, og telur að hann ætti að eiga fast sæti í landsliði Englendinga.

Sport
Fréttamynd

Chelsea er hrætt við okkur

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Chelsea-liðið sé líklega hrætt við Liverpool og segir að dómarinn hafi sleppt þremur augljósum vítaspyrnum í leik liðanna í Meistaradeildinni á Anfield í gærkvöldi.

Sport
Fréttamynd

Everton úr leik

Everton er fallið úr leik í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, þrátt fyrir að hafa sigrað rúmenska liðið Dinamo Búkarest 1-0 í kvöld, með marki frá Tim Cahill. Dinamo vann fyrri leikinn í Rúmeníu 5-1 og samanlagt 5-2. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Everton, sem hefur byrjað leiktíðina skelfilega í ár, eftir gott gengi á síðustu leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Tromsö sló út Galatasaray

Norska liðið Tromsö gerði sér lítið fyrir og sló tyrkneska liðið Galatasaray út í Evrópukeppni félagsliða nú í kvöld. Norska liðið vann fyrri leikinn í Tromsö 1-0, og náði svo jafntefli í Tyrklandi í kvöld 1-1.

Sport
Fréttamynd

Fer Keane frá United?

Roy Keane, fyrirliði Manchester United segist ekki eiga von á öðru en hann muni yfirgefa félagið næsta sumar þegar samningur hans rennur út.

Sport
Fréttamynd

Bolton áfram á elleftu stundu

Úrvalsdeildarlið Bolton tryggði sér dramatískan sigur á búlgarska liðinu Lokomotiv Plovdov í Evrópukeppni félagsliða nú rétt áðan. Bolton vann fyrri leik liðanna á heimavelli á dögunum 2-1, en lenti undir á 52. mínútu í dag og um tíma leit út fyrir að liðið væri að falla úr keppni fyrir minni spámönnum.

Sport
Fréttamynd

KS og ÍA fá 2,5 milljónir

Uppeldisfélög knattspyrnumannsins Grétars Rafn Steinssonar munu skipta á milli sín fimm prósenta hlut af þeim tæplega fimmtíu milljónum sem svissneska félagið Young Boys fékk fyrir hann þegar hann gekk til liðs við hollenska félagið AZ Alkmaar.

Sport
Fréttamynd

Hetjuleg barátta Brann dugði ekki

Kristján Örn Sigurðsson og félagar í Brann háðu hetjulega baráttu við rússnenska liðið Lokomotiv frá Moskvu í Evrópukeppni félagsliða nú síðdegis. Rússarnir unnu fyrri leikinn í Noregi 2-1, en Brann stríddi þeim vel í Moskvu í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Greta fór á kostum

Markahrókurinn Greta Mjöl Samúelsdóttir fór á kostum í dag þegar íslenska U-19 ára landslið kvenna vann stórsigur á liði Bosníu og Hersegóvínu í undankeppni EM.

Sport
Fréttamynd

Gaui fúll yfir agaleysi leikmanna

Leikmenn Notts County hafa nælt sér í þrjú rauð spjöld í síðustu fjórum leikjum og stjóri liðsins, Guðjón Þórðarson, hefur ákveðið að grípa til ráða svo þetta agaleysi leikmanna endurtaki sig ekki í næstu leikjum.

Sport
Fréttamynd

Liverpool - Chelsea að byrja á Sýn

Leikur Liverpool og Chelsea  í Meistaradeild Evrópu er nú að hefjast og verður hann sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Eiður Smári er á varamannabekknum hjá Chelsea, sem vilja eflaust hefna ófaranna frá í fyrra, þegar þeir duttu út úr meistaradeildinni á Anfield.

Sport
Fréttamynd

Mourinho hugsar enn um "markið"

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur nú enn vakið athygli á þeirri ósk sinni að tekinn verði upp búnaður til að ákvarða hvort boltinn fer inn fyrir línuna í leikjum á Englandi og í Meistaradeildinni, eftir að lið hans féll úr Meistaradeildinni í fyrra á vafasömu marki á Anfield.

Sport
Fréttamynd

Óvíst með Árna Gaut

Óvíst er hvort Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður geti leikið gegn Pólverjum og/eða Svíum 7. og 12. október næstkomandi þar sem sambýliskona hans á von á barni og er skrifuð á fæðingardeildina daginn eftir Svíaleikinn.

Sport
Fréttamynd

LuaLua með malaríu

Kongómaðurinn Lomana LuaLua hjá Portsmouth hefur verið lagður inn á sjúkrahús vegna veikinda, sem talið er að sé malaría, og gæti orðið frá keppni í allt að sex vikur.

Sport
Fréttamynd

Íslenska landsliðið sektað

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur fengið sekt frá Alþjóða knattspyrnusambandinu fyrir fjölda gulra spjalda sem liðið fékk í leikjunum tveimur gegn Króatíu og Búlgaríu í undankeppni HM í byrjun mánaðarins.

Sport
Fréttamynd

Kewell að ná sér

Ástralski miðjumaðurinn Harry Kewell hjá Liverpool, er nú byrjaður að æfa með liðinu í fyrsta sinn síðan í úrslitaleiknum gegn AC Milan í Meistaradeildinni í vor, en hann hefur þurft að gangast undir tvær aðgerðir tengdar kviðsliti.

Sport
Fréttamynd

Íslendingar undir smásjánni

Það verður vel fylgst með leikmönnum ungmennalandsliðs Íslands í knattspyrnu þegar það mætir Svíum, en leikurinn fer fram hinn 11. október í Svíþjóð. Að sögn Ólafs Garðarssonar, umboðsmanns nokkurra leikmanna liðsins, má búast við því að forráðamenn flestra félaganna í Svíþjóð muni fylgjast með leiknum.

Sport