Körfubolti
172 173 174 175 176 177 178 179 180 … 219 ›
Krísufundur vegna máls Larry Brown kvöld Í dag verður haldinn krísufundur hjá New York Knicks þar sem fulltrúar félagsins munu ræða við fyrrum þjálfara félagsins Larry Brown og hans fylgdarlið, þar sem umræðuefnið verður óuppgerður samningur þjálfarans frá því hann var rekinn í júní í sumar. Körfubolti 29.9.2006 18:16
Jay Williams snýr aftur Leikstjórnandinn Jay Williams hefur skrifað undir samning við New Jersey Nets í NBA deildinni en hann hefur ekki spilað leik í þrjú ár eftir að hafa lent í mjög alvarlegu bifhjólaslysi í júní árið 2003. Körfubolti 28.9.2006 22:23
Bonzi Wells semur við Houston Rockets Framherjinn Bonzi Wells sem lék með Sacramento Kings í NBA deildinni á síðustu leiktíð hefur gengið frá samningi við Houston Rockets. Wells var síðasta "stóra nafnið" á lista leikmanna sem voru með lausa samninga fyrir næsta tímabil, en samningur hans við Texas liðið er aðeins til tveggja ára og getur hann orðið laus allra mála eftir næsta tímabil. Körfubolti 28.9.2006 15:44
Nowitzki framlengir við Dallas Þýski stjörnuleikmaðurinn Dirk Nowitzki hefur framlengt samning sinn við NBA lið Dallas Mavericks til þriggja ára og fær fyrir það um 60 milljónir dollara samkvæmt heimildarmanni ESPN sjónvarpsstöðvarinnar. Körfubolti 27.9.2006 17:03
Spike Lee leikstýrir auglýsingu fyrir Dwyane Wade Kvikmyndaleikstjórinn og körfuboltaáhugamaðurinn Spike Lee hefur nú lokið tökum á nýjustu auglýsingaherferð fyrir nýja Converse-skó sem Dwyane Wade hjá Miami Heat mun nota á næsta tímabili. Wade var kjörinn verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna í NBA í sumar þegar lið Miami vann meistaratitilinn. Körfubolti 26.9.2006 16:08
Sigurhrina Bandaríkjamanna stöðvuð Kvennalið Bandaríkjanna fetaði í fótspor karlaliðsins í dag þegar liðið tapaði óvænt fyrir Rússum 75-68 í undanúrslitum á HM. Bandaríska liðið var tvöfaldur heimsmeistari og Ólympíumeistari fyrir leikinn og hafði liðið unnið 26 leiki í röð á HM, en síðasta tap þeirra var gegn Brasilíu á HM árið 1994. Það verða því lið Rússlands og Ástralíu sem leika til úrslita um helgina, en mótið fer fram í Brasilíu. Körfubolti 22.9.2006 14:12
Arenas ætlar að hefna sín á þjálfurum sínum Skorunarmaskínan Gilbert Arenas hjá Washington Wizards hugsar þjálfurum sínum hjá bandaríska landsliðinu nú þegjandi þörfina eftir að hann komst ekki í lokahópinn á HM í Japan á dögunum og ætlar að hefna sín rækilega á þeim þegar deildarkeppnin í NBA hefst síðar í haust. Körfubolti 14.9.2006 21:58
Finnar lögðu Georgíu Finnar eru komnir í efsta sætið í C-riðli okkar Íslendingar í B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik eftir góðan 91-81 sigur á Georgíumönnum á heimavelli nú síðdegis. Petri Virtanen skoraði 27 stig fyrir Finna og Teemu Rannikko 20, en Zaza Pachulia fór hamförum hjá Georgíu og skoraði 36 stig og hirti 13 fráköst. Finnar hafa því unnið sigur í öllum þremur leikjum sínum í riðlinum, en Georgía hefur unnið þrjá af fjórum leikjum. Körfubolti 13.9.2006 17:08
Tony Kukoc íhugar að hætta Króatíski framherjinn Tony Kukoc sem leikið hefur með Milwaukee Bucks undanfarin fjögur ár, segir að hann muni líklega leggja skóna á hilluna á næstu dögum eða vikum. Kukoc er 38 ára gamall og er líklega þekktastur fyrir að leika með gullaldarliði Chicago Bulls sem vann titilinn á árunum 1996-98. Körfubolti 13.9.2006 14:29
Við vinnum fyrir laununum okkar NFL-stjarnan Dhani Jones segir í einkaviðtali við Fréttablaðið að lífið í NFL-deildinni sé ekki bara gleði og glaumur. Ferillinn hefur tekið sinn toll af þessum 29 ára varnarmanni. Körfubolti 9.9.2006 20:56
Það vantar neistann Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers og bandaríska landsliðsins í körfubolta, segir að liðinu skorti neistann sem þarf til að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi. Bandaríkin náðu aðeins 3. sæti á nýafstöðnu Heimsmeistaramóti og olli liðið miklum vonbrigðum. Körfubolti 9.9.2006 16:46
Gasol frá keppni í fjóra mánuði Spænski framherjinn Paul Gasol verður á hliðarlínunni næstu fjóra mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á vinstri fæti. Þetta er mikið áfall fyrir lið Memphis Grizzlies í NBA þar sem Gasol er lykilmaður liðsins. Körfubolti 9.9.2006 12:09
Gary Payton framlengir við Miami Leikstjórnandinn Gary Payton hefur efnt loforð sitt frá því í vor og hefur nú framlengt samning sinn við NBA meistara Miami Heat um eitt ár. Payton fær aðeins rúma milljón dollara í árslaun fyrir samninginn og segist vilja vinna annan titil með liðinu áður en hann leggur skóna á hilluna. Körfubolti 7.9.2006 14:53
Lisa Leslie verðmætasti leikmaðurinn Lisa Leslie var á sunnudag valin verðmætasti leikmaðurinn í amerísku kvennadeildinni í körfubolta í þriðja sinn á ferlinum. Leslie leikur með Los Angeles Sparks og var þetta í þriðja sinn á ferlinum sem hún vinnur þessi verðlaun, en aðeins Sheryl Swoopes hjá Houston Comets hefur unnið verðlaunin jafn oft. Leslie skoraði 20 stig að meðaltali í leik í sumar og leiddi deildina í stigum og fráköstum. Körfubolti 6.9.2006 14:01
Tveir Spánverjar í úrvalsliði HM Spánverjar áttu tvo leikmenn í úrvalsliði HM sem útnefnt var eftir úrslitaleikinn í gær. Þeir Pau Gasol og Jorge Garbajosa voru fulltrúar Spánar, en auk þeirra voru þeir Carmelo Anthony frá Bandaríkjunum, Manu Ginobili frá Argentínu og Theodoros Papaloukas frá Grikklandi í úrvalsliði keppninnar. Körfubolti 4.9.2006 17:37
Spánverjar heimsmeistarar Spánverjar tryggðu sér í dag heimsmeistarartitilinn í körfubolta með í fyrsta sinn með óvæntum stórsigri á Grikkjum í úrslitaleik 70-49. Spánverjar léku án síns besta manns, Pau Gasol, en það kom ekki að sök. Gasol meiddist í undanúrslitaleiknum gegn Argentínu, en hann var kosinn maður mótsins eftir leikinn. Körfubolti 3.9.2006 14:39
Gasol spilar ekki úrslitaleikinn Spænski framherjinn Pau Gasol getur ekki spilað úrslitaleikinn á HM með liði Spánverja eftir að í ljós kom að hann er ristarbrotinn. Gasol hefur verið langbesti maður spænska liðsins á leið þess í úrslitaleikinn og er þetta því gríðarleg blóðtaka fyrir liðið. Hann hefur skorað að meðaltali rúm 21 stig og hirt yfir 9 fráköst. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun. Körfubolti 2.9.2006 13:28
Bandaríkjamenn hirtu bronsið Bandaríska landsliðið tryggði sér í dag bronsverðlaun á HM í körfubolta sem fram fer í Japan með öruggum sigri á Argentínumönnum 96-81. Dwyane Wade skoraði 32 stig fyrir Bandaríkjamenn, sem þurftu að gera sér þriðja sætið að góðu líkt og á Ólympíuleikunum fyrir tveimur árum. Körfubolti 2.9.2006 13:18
Spánverjar í úrslit Það verða Spánverjar og Grikkir sem leika til úrslita á HM í körfubolta eftir að liðið vann nauman sigur á Ólympíumeisturum Argentínu í undanúrslitunum í dag 75-74. Leikurinn var í járnum allan tímann, en spænska liðið náði að landa naumum sigri á lokasekúndunum þrátt fyrir að vera án Pau Gasol sem meiddist á ökkla í lokin. Körfubolti 1.9.2006 12:31
Grikkir lögðu Bandaríkjamenn Evrópumeistarar Grikkja gerðu sér lítið fyrir og lögðu Bandaríkjamenn 101-95 á HM í körfubolta sem fram fer í Japan og tryggðu sér þar með sæti í úrslitaleik mótsins á sunnudag. Bandaríkjamenn áttu ekkert svar við einföldum en árangursríkum sóknarleik gríska liðsins, sem nýtti 63% skota sinna í leiknum og því verða Bandaríkjamenn í besta falli að sætta sig við bronsverðlaun á mótinu líkt og á Ólympíuleikunum fyrir tveimur árum. Körfubolti 1.9.2006 11:55
Repúblikanarnir eru að eyðileggja landið Fyrrum körfuboltamaðurinn Charles Barkley íhugar nú að fara í framboð til fylkisstjóra í Alabama og í viðtali við Fox sjónvarpsstöðina sem fer í loftið á sunnudag, segir Barkley að Repúblikanar séu að fara eyðileggja Bandaríkin. Hann sagðist ennfremur ekkert hafa á móti því að samkynhneigðir fengju að ganga í hjónaband. Körfubolti 31.8.2006 20:10
Tyrkir létu jarðskjálfta ekki hafa áhrif á sig Það verða Tyrkir og Frakkar sem keppa um fimmta sætið á HM í körfubolta eftir leiki dagsins á mótinu í Japan. Tyrkir lögðu Litháa 95-84 í framlengdum leik, þar sem jarðskjálfti upp á 4,8 á Richter skók höllina í hálfleik og Frakkar lögðu Þjóðverja síðar í dag 75-73 þar sem Mickael Gelabale skoraði sigurkörfuna í lokin. Joseph Gomis skoraði 22 stig fyrir Frakka en Dirk Nowitzki skoraði 29 stig fyrir Þjóðverja, þar af 21 í síðari hálfleik. Körfubolti 31.8.2006 14:36
Grikkir og Bandaríkjamenn í undanúrslit Evrópumeistarar Grikkja og Bandaríkjamenn tryggðu sér í morgun sæti í undanúrslitum HM í körfubolta sem fram fer í Japan. Grikkir unnu Frakka auðveldlega 73-56 í morgun og í hádeginu lögðu Bandaríkjamenn Þjóðverja 85-65, þrátt fyrir að vera langt frá sínu besta í sóknarleiknum. Körfubolti 30.8.2006 12:33
Don Nelson tekinn aftur við liði Golden State Gamla brýnið Don Nelson er kominn aftur á hliðarlínuna í NBA deildinni eftir stutta fjarveru, en í kvöld verður hann kynntur sem næsti þjálfari Golden State Warriors. Félagið hefur rift samningi við Mike Montgomery og verður undir leiðsögn Nelson á næstu leiktíð. Liðið hefur ekki komist í úrslitakeppnina síðan árið 1994, en þá var Nelson einmitt þjálfari liðsins. Körfubolti 29.8.2006 18:10
Spánn og Argentína í undanúrslit Spánverjar og Argentínumenn mætast í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í körfuknattleik í Japan á föstudaginn eftir að liðin unnu bæði mjög sannfærandi sigra á andstæðingum sínum í 8-liða úrslitunum. Bæði lið hafa unnið alla sjö leiki sína á mótinu og ljóst að einvígi þeirra í undanúrslitunum verður frábær slagur. Körfubolti 29.8.2006 13:59
Al Harrington loksins til Indiana Framherjinn Al Harrington er loksins genginn í raðir Indiana Pacers frá Atlanta Hawks í NBA deildinni. Félögin hafa þráttað við samningaborðið í allt sumar en í dag varð loks ljóst að Harrington gengi aftur til liðs við félagið sem tók hann í nýliðavalinu árið 1998. Harrington er 26 ára gamall og skoraði 18 stig og hirti 7 fráköst að meðaltali með Atlanta Hawks í fyrra. Körfubolti 24.8.2006 18:37
Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Riðlakeppninni á HM í körfubolta í Japan er nú lokið og ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum keppninnar. Bandaríkjamenn völtuðu yfir Senegala í lokaleik sínum í dag og vann liðið því alla fimm leiki sína í riðlinum. Evrópumeistarar Grikkja lögðu Tyrki 76-69 og unnu einnig alla leiki sína í riðlakeppninni. Körfubolti 24.8.2006 14:38
Dirk Nowitzki fór hamförum Dirk Nowitzki var gjörsamlega óstöðvandi í morgun þegar Þjóðverjar unnu 108-103 sigur á Angóla í rafmögnuðum þríframlengdum leik á HM í körfubolta sem fram fer í Japan. Nowitzki skoraði 47 stig og hirti 16 fráköst fyrir Þjóðverja, en þetta var í fyrsta sinn í sögu HM sem leikur fer í þrjár framlengingar. Körfubolti 24.8.2006 12:37
Pat Riley verður áfram með Miami Hinn sigursæli þjálfari Pat Riley, sem þjálfaði Miami Heat og stýrði liðinu til NBA meistaratitilsins í vor, hefur tilkynnt að hann muni þjálfa liðið áfram á næstu leiktíð. Riley hefur legið undir feldi í allt sumar og í dag gaf Miami út yfirlýsingu þar sem fram kemur að Riley verði áfram þjálfari liðsins. Körfubolti 23.8.2006 17:11
Anthony setti met í sigri Bandaríkjamanna Carmelo Anthony skoraði 35 stig þegar bandaríska landsliðið í körfubolta lagði sterkt lið Ítala 94-85 á HM í körfubolta í dag. Þetta var fjórði sigur Bandaríkjamanna í röð og tryggði sigurinn liðinu toppsætið í D-riðli. Enginn leikmaður hefur skorað jafn mörg stig og Anthony í landsleik fyrir Bandaríkin, en eldra metið átti Kenny Anderson þegar hann skoraði 34 stig fyrir landsliðið árið 1990. Körfubolti 23.8.2006 13:40