Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Býst áfram við þungum róðri á Landspítalanum
Starfandi forstjóri Landspítalans segir helsta vandann sem spítalinn stendur nú frammi fyrir vera einangrun starfsfólks. Smit á spítalanum séu nokkuð dreifð og því sé áskorun að einangra sjúklinga og verja þá fyrir smiti.

Krónan fellir grímuna
Verslunarkeðjan Krónan mun frá og með morgundeginum ekki gera kröfu um að viðskiptavinir beri andlitsgrímur, líkt og flestar verslanir hafa að undanförnu gert vegna kórónuveirufaraldursins.

„Það verður partý í kvöld, það verður veisla“
Einn eigenda skemmtistaðarins Priksins er spenntur fyrir því að geta haft opið til klukkan eitt í nótt, en reglugerð heilbrigðisráðherra um tilslakanir á sóttvarnatakmörkunum tekur gildi á miðnætti. Þrátt fyrir þakklæti fyrir auka klukkustund má heyra á veitingamönnum að þeir telji tilslakanir ganga frekar hægt.

Tæplega 10 þúsund manns losnuðu úr sóttkví í dag
Tæplega tíu þúsund manns losnuðu úr sóttkví í dag og hún heyrir nú sögunni til vegna tilslakana á sóttvarnaráðstöfunum. Frá miðnætti mega tvö hundruð manns koma saman og opnunartími veitinga- og skemmtistaða lengist. Stefnt er að því að aflétta öllum aðgerðum í lok mánaðar.

Segir skilyrðislausa ríkisstyrki á meðal stærstu hagstjórnarmistakanna
Á meðal stærstu pólitísku hagstjórnarmistaka sem gerð voru í kórónuveirufaraldrinum var að láta hjá líða að setja skilyrði um að fyrirtæki geti ekki greitt út arð ef þau þiggja lokunar- og viðspyrnustyrki. Þetta segir Drífa Snædal forseti Alþýðusambands Íslands.

Hægt að aflétta öllu fyrir mánaðamót komi ekkert óvænt upp
Komi ekkert óvænt upp ætti að vera hægt að stefna að afléttingu allra samkomutakmarkana vegna kórónuveirunnar fyrir næstu mánaðamót. Frá 14. janúar hafa tæplega 37 þúsund greinst með Covid-19 en 44 lagst inn á sjúkrahús vegna Covid-19.

Tvö hundruð mega koma saman og sóttkví afnumin
Slakað verður á sóttvarnaraðgerðum á miðnætti eins og búist var við. Tvö hundruð mega koma saman. Reglur um sóttkví verða afnumdar.

WHO, almannatenglar og Kardemommubærinn
Að margra mati hafði WHO, Alþjóða heilbrigðismálastofnunin, gert of lítið úr Covid-19 faraldrinum í byrjun.

1.800 greindust innanlands í gær
1.800 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 76 á landamærum.

Ríkisstjórnin fundar um afléttingar
Nú stendur yfir ríkisstjórnarfundur þar sem meðal annars er rætt um afléttingar á sóttvarnaaðgerðum. Fregna af fundinum er beðið með mikilli eftirvæntingu en sóttvarnalæknir skilaði nýjum tillögum til heilbrigðisráðherra í gær.

32 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19
32 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Tveir eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél.

Sjúklingur með Covid-19 lést á Landspítala í gær
Sjúklingur með Covid-19 lést á legudeild Landspítala í gær. Um var að ræða karlmann á níræðisaldri.

Stefna á að fella allar sóttvarnarreglur úr gildi í lok mánaðar
Forsvarsmenn ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta stefna á að fella allar sóttvarnarreglur á leikjum deildarinnar úr gildi í lok þessa mánaðar.

Bílaframleiðendur skella í lás vegna mótmæla vörubílstjóra
Mótmælendur í Frelsislestinni svokölluðu í Ottawa í Kanada hafa lokað landamærastöðum milli Kanada og Bandaríkjanna og mótmælin hafa leitt til þess að bílaframleiðendur í álfunni hafa þurft að skella í lás.

„Ég held að við eigum að aflétta öllu utan einangrunar“
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segist þeirrar skoðunar að aflétta eigi öllum sóttvarnaaðgerðum utan einangrunar. Hann telur að faraldrinum ljúki hér á landi í apríl.

Hætt við að bið eftir niðurstöðum lengist enn frekar vegna álags
Sóttvarnalæknir leggur til að hraðprófum verði beitt í auknum mæli í stað PCR-prófa í ljósi þess hve löng bið getur verið eftir niðurstöðum. Biðtíminn getur nú verið allt að þrír sólarhringar. Yfirlæknir sýkla og veirufræðideildar Landspítala segir deildina ekki ráða við álagið um þessar mundir og óttast að biðtími muni lengjast hratt verði ekkert gert.

Heilsugæslan keypt hraðpróf fyrir 380 milljónir
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) hefur keypt Covid-19 hraðpróf fyrir 379,8 milljónir króna en hún hefur sinnt innkaupunum fyrir allar heilbrigðisstofnanir landsins og hjúkrunarheimili frá síðastliðnu vori.

Karl Bretaprins greinist með Covid-19 í annað sinn
Karl Bretaprins hefur greinst með kórónuveiruna og er nú í einangrun. Þetta er í annað sinn sem Karl greinist með Covid-19, en hann greinist einnig í mars 2020 og fékk þá væg einkenni sjúkdómsins.

Fjórtán prósent grunnskólabarna fjarverandi vegna veikinda í síðustu viku
Töluverður fjöldi grunnskóla- og leikskólanemenda voru fjarverandi vegna veikinda í skólum í Reykjavík í síðustu viku en um 12,4 prósent leikskólabarna voru fjarverandi og 14 prósent grunnskólabarna. Þetta kemur fram í svari skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fréttastofu.

Major sakar Johnson um óheiðarleika og aðför að lýðræðinu
Boris Johnson braut sóttvarnalög, virðist ekki halda að reglurnar eigi við sig og hefur skapað vantraust á stjórnmálunum sem ógnar lýðræðislegri framtíð Bretlands.

Trudeau gagnrýnir mótmæli vörubílstjóra: „Þessu verður að ljúka“
Ekkert lát virðist vera á mótmælum vörubílstjóra í Kanada, hinni svokölluðu Frelsislest (e. Freedom Convoy), en undanfarnar tvær vikur hefur bólusetningarskyldu verið harðlega mótmælt til að mynda í höfuðborginni Ottawa og á landamærum Kanada og Bandaríkjanna.

Þórólfur og Willum sammála um að fella ekki niður einangrun
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur ekki til að einangrun verði afnumin í nýju minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra. Þetta segir hann í samtali við fréttastofu. Heilbrigðisráðherra segir að halda eigi í einangrun.

2.167 greindust innanlands
2.167 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og fjórtán á landamærum.

36 sjúklingar nú með Covid-19 á Landspítalanum
36 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Tveir eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél.

Andlát vegna Covid-19
Kona á tíræðisaldri lést af völdum Covid-19 á legudeild Landspítalans í gær.

Öllum takmörkunum aflétt á Grænlandi
Frá og með miðnætti í kvöld verður öllum sóttvarnaaðgerðum aflétt á Grænlandi. Stjórnvöld segja aðgerðirnar engu máli skipta þar sem kórónuveirusmit eru svo útbreidd í samfélaginu.

Stjórnendum Landspítala stendur uggur af afléttingaáætlun
Starfandi forstjóri Landspítalans segir fyrirhugaðar afléttingar stjórnvalda á sóttvarnaaðgerðum innanlands ekki boða gott. Ekkert lát sé á því að starfsmenn spítalans veikist af veirunni og innlögnum vegna veirunnar fjölgi í takt við fleiri smit í samfélaginu.

Netverjar furða sig á fyrirhuguðu afnámi einangrunar
Netverjar hafa margir hverjir furðað sig á fyrirhuguðu afnámi einangrunar og sóttkvíar á sama tíma og aðeins 200 munu mega koma saman, ef afléttingaáætlun stjórnvalda gengur eftir á föstudag.

Minna á bakvarðasveitina vegna mikilla forfalla
Þörf er á fleira heilbrigðisstarfsfólki á skrá í bakvarðasveitina svokölluðu vegna mikilla forfalla starfsfólks heilbrigðisstofnana sem er í einangrun.

Stefna á að aflétta öllum takmörkunum síðar í mánuðinum
Mögulegt er að öllum takmörkunum vegna Covid verði aflétt síðar í þessum mánuði að sögn Boris Johnsons, forsætisráðherra Bretlands, en það er mánuði á undan áætlun. Þannig yrði meðal annars einangrun vegna Covid smits afnumin.