![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2018-10-22T153245.909Z-Manchester_City_FC_badge.svg.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/gracenote/4087.png)
Ríkislögreglustjóri varaði við því að ófullnægjandi lög um trú- og lífsskoðunarfélög sköpuðu hættu á að þau væru misnotuð í þágu brotastarfsemi meira en ári áður en stjórnendur Zuism voru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti.
Ísland hefur verið fjarlægt af svokölluðum „gráum lista“ FATF, alþjóðlegs fjármálaaðgerðahóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Alþjóðlegur starfshópur sem vinnur gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, FATF-hópurinn svokallaði, mun koma saman á föstudag.
Ísland hefur lokið aðgerðum sínum sem farið var í vegna flokkunar Íslands á gráa lista FATF yfir ríki sem hafa ónægar varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Fjártækniklasinn stendur fyrir málþingi um hvernig sporna megi gegn peningaþvætti. Tveir bankastjórar, varaseðlabankastjóri og dómsmálaráðherra eru meðal ræðumanna.
Á síðustu dögum hefur síminn ekki stoppað hjá þjónustuskrifstofu Heimilis og skóla, Landssamtaka foreldra og SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík vegna tilmæla Skattsins um að skrá raunverulega eigendur allra fyrirtækja.
Enn eru bundnar vonir við að Ísland komist af listanum í október.
Ísland verður áfram á gráum peningaþvættislista samtakanna Financial Action Task Force (FATF) fram í júní hið minnsta.
Viðunandi skráning raunverulegra eigenda er ein af forsendum þess að Ísland komist af gráum lista.
Samstarf EFTA-ríkjanna í samskiptum við Bretland á árinu var sérstaklega rætt á fundinum en ríkin eiga marga sameiginlega hagsmuni gagnvart Bretlandi.
Vera Íslands á gráa listanum hefur að sögn Seðlabanka Íslands enn sem komið er ekki haft áhrif á starfsemi aðila á borð við tryggingafélög og lífeyrissjóði á Íslandi.
Tveir rúmenskir bankar taka ekki við greiðslum frá Íslandi eftir að Ísland fór á gráa listann. Einhver tilvik hafa komið upp þar sem íslenskir aðilar lenda í vandræðum með greiðslur til og frá landi.
Úrvinnsla íslenskra stjórnvalda á útistandandi atriðum sem varða varnir gegn peningaþvætti fór alvarlega út af sporinu í kjölfar hrunsins.
Hverfandi líkur eru á því að Ísland komist af gráum lista FATF í febrúar líkt og vonast hefur verið til að sögn formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Viðskiptavinum sem þurfa að nýta sér slíka þjónustu er bent á að gera viðeigandi ráðstafanir hjá öðru fjármálafyrirtæki.
Það að Ísland sé á gráa lista FATF hefur ekki áhrif á innleiðingu Nasdaq verðbréfamiðstöðvar á nýju uppgjörskerfi sem á að klárast næsta vor. Seðlabankinn segir að upp hafi komið tilvik þar sem greiðslur hafa tafist eða verið stöðvaðar.
Erlend verðbréfafyrirtæki hafa slitið viðskiptasamböndum við Íslendinga og lokað verðbréfareikningum þeirra vegna veru Íslands á gráum lista alþjóðlega hópsins FATF.
Skýrsla dómsmálaráðherra um viðbrögð stjórnvalda vegna ákvörðunar FATF-hópsins svokallaða um að setja Ísland á gráan lista yfir ríki sem hafa ónægar varnir gegn peningaþvætti er tilbúin.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, segist ekki hafa stutt tillögu um að hefja frumkvæðisathugun á verklagi ráðherra í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka þar sem ekki lægi nægilega ljóst fyrir hvernig ætti að framkvæma slíka athugun
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samþykkti á fundi sínum í dag að hefja frumkvæðisrannsókn á verklagi ráðherra í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tillagan var samþykkt með öllum atkvæðum nefndarmanna nema einu.
„Við viljum auðvitað ekki vera á þessum lista, og okkur finnst skömm að því, en ég hef trú á því að við verðum fljótt tekin af honum,“ segir Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME.
Fjármálaráðherra segir að vera Íslands á gráum lista hafi ekki haft veruleg áhrif til þessa. Dómsmálaráðherra bindur vonir við að Ísland komist af listanum í febrúar.
Fjármálaráðherra segir ferlið við ákvörðun um grálistun FATF-hópsins, sem vaktar varnir ríkja gegn peningaþvætti, vera ógagnsætt.
Engar vísbendingar eru um það að vera Íslands á gráum lista FATF-hópsins hafi haft veruleg áhrif á íslenskt efnahagslíf til þessa. Þetta hafi þó í för með sér óvissuþætti. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra.
Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar sem fjalla á um veru Íslands á gráum lista samtakanna Financial Action Task Force (FATF) yfir ríki sem hafa ekki nægar varnir gegn peningaþvætti hefst klukkan níu.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gerir athugasemdir við ummæli sem látin hafa verið falla um að Seðlabanki Íslands hafi beinlínis staðið fyrir peningaþvætti með fjárfestingaleið bankans.
Formaður stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar Alþingis segir að nefndin muni ákveða á miðvikudaginn að hefja frumkvæðisrannsókn á verklagi dómsmálaráðherra vegna ábendinga FAFT samtakanna.
Framkvæmdastjóri samtaka fjármálafyrirtækja segir áhrifin ekki mikil fyrir bankana því þeir eru nú þegar í sterkum viðskiptasamböndum við erlenda aðila þar sem þarf að fara eftir erlendu regluverki. Einhver fyrirtæki gætu þó lent í athugun ef stofnað er til nýrra viðskiptasambanda.
Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, segir það áfellisdóm yfir stjórnvöldum að Ísland skuli í dag hafa verið sett á gráan lista þjóða sem ekki hafi gripið til nægjanlegra varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Dómsmálaráðherra segir þetta vonbrigði en unnið sé að úrbótum þannig að Ísland fari af listanum á næsta ári.
Boðað verður til opins fundar í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á þriðjudaginn í framhaldi af ákvörðun FATF-hópsins um að setja Ísland á svokallaðan gráan lista.