Innlent Úrvalsvísitalan yfir 8.000 stigum á ný Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,34 prósent og fór í 8.100 stig skömmu eftir opnun viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Vísitalan lækkaði um 3,47 prósent á föstudag og fór undir 8.000 stigin. Hún hafði ekki verið lægri síðan um miðjan maí í fyrra. Viðskipti innlent 13.8.2007 10:02 Útlán Íbúðalánasjóðs 6,3 milljarðar í júlí Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 6,3 milljörðum króna í síðasta mánuði. Af þeim voru 600 milljónir króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru 5,7 milljarðar króna, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Meðallán var tæplega 9,4 milljónir króna. Viðskipti innlent 13.8.2007 09:29 Víkingainnrásin sögð á enda Breskt blað gerir því skóna í dag að svokallaðri Víkingainnrás á breskan fjármálamarkað sé lokið. Þrjár helstu leiðir íslenskra fyrirtækja til að fjármagna kaup á breskum félögum séu nú lokaðar eða illfærar vegna niðursveiflu á alþjóðamörkuðum síðustu daga. Forstjóri Baugs segir sókn félagsins á markaði í Bretlandi hvergi nærri lokið. Innlent 12.8.2007 18:27 Færeyingar fjölmenna á menningarnótt Frændur okkar frá Færeyjum eru sérstakir gestir Menningarnætur í ár. Hátt á fjórða tug listamanna leggja leið sína þaðan til okkar og ætla að sýna brot af því besta af bæði færeyskri myndlist og tónlist. Upplýsingarmiðstöð Þórshafnar verður einnig með í för og því hægt að nálgast allskyns upplýsingar um þennan eyjaklasa sem telur 18 eyjar í allt sem á búa 48.000 manns. Innlent 12.8.2007 17:09 Passið ykkur á Hólsfjallavegi Hólsfjallavegur, vegur 864, sem liggur meðfram Jökulsá á Fjöllum og hjá Dettifossi að austanverðu, er mjög grófur og erfiður yfirferðar. Verið er að vinna við hringtorg á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar. Umferð um Vesturlandsveg við vegamót Þingvallavegar hefur verið hliðrað til vesturs og er nú ekið um vestari hluta hringtorgsins. Innlent 12.8.2007 11:27 Fangageymslur fullar Innlent 12.8.2007 10:18 Á flótta á nærunum einum Innlent 12.8.2007 10:16 Hópslagsmál á veitingastað Innlent 12.8.2007 10:14 Perri á reiðhjóli Innlent 12.8.2007 10:13 Stúlka kastaðist upp á framrúðu bifreiðar Sextán ára stúlka kastaðist upp á framrúðu bifreiðar sem ók aftan á mótorhjól sem hún var farþegi á um sjöleytið í dag. Þetta gerðist á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar. Mótorhjólið hafði numið staðar á gatnamótunum. Innlent 11.8.2007 20:32 Rosa fjör á Króksmóti Óhætt er að segja að Sauðárkrókur sé iðandi af lífi þessa dagana, en í morgun hófst hið árlega Króksmót fyrir 5., 6., og 7. flokk drengja og stúlkna í fótbolta. Mótið setti Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður knattspyrnudeildar Tindstóls, á vel heppnaðri setningarathöfn í morgun, en þetta er 20. Króksmótið sem félagið heldur. Innlent 11.8.2007 20:06 Vilja hluta af Kolaportinu undir bílastæði Minnihlutinn í borgarstjórn reynir nú að koma í veg fyrir að tollstjóri fái 5000 fermetra bílastæði með viðbyggingu ofan jarðar við tollhúsið. Til þess að koma stæðinu fyrir þyrfti að ganga á húsnæði Kolaportsins. Aðstandendur þess hafa miklar áhyggjur af málinu. Innlent 11.8.2007 16:14 Kostun Sýnar 2 tryggð í þrjú ár Í dag voru staðfestir samningar um kostun Sýnar 2 til næstu þriggja ára. Kostunaraðilar eru Vodafone, 10-11, Iceland Express og vátryggingafélagið Vörður. Ari Edwald, forstjóri 365, sagði við þetta tækifæri að kostendur tryggðu að Enski boltinn bærist um land allt á hagstæðum kjörum. Innlent 11.8.2007 15:34 Grímseyjarferjan er mesta skrifli Innlent 11.8.2007 09:50
53 54 55 56 57 58 59 60 61 … 334 ›
Úrvalsvísitalan yfir 8.000 stigum á ný Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,34 prósent og fór í 8.100 stig skömmu eftir opnun viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Vísitalan lækkaði um 3,47 prósent á föstudag og fór undir 8.000 stigin. Hún hafði ekki verið lægri síðan um miðjan maí í fyrra. Viðskipti innlent 13.8.2007 10:02
Útlán Íbúðalánasjóðs 6,3 milljarðar í júlí Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 6,3 milljörðum króna í síðasta mánuði. Af þeim voru 600 milljónir króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru 5,7 milljarðar króna, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Meðallán var tæplega 9,4 milljónir króna. Viðskipti innlent 13.8.2007 09:29
Víkingainnrásin sögð á enda Breskt blað gerir því skóna í dag að svokallaðri Víkingainnrás á breskan fjármálamarkað sé lokið. Þrjár helstu leiðir íslenskra fyrirtækja til að fjármagna kaup á breskum félögum séu nú lokaðar eða illfærar vegna niðursveiflu á alþjóðamörkuðum síðustu daga. Forstjóri Baugs segir sókn félagsins á markaði í Bretlandi hvergi nærri lokið. Innlent 12.8.2007 18:27
Færeyingar fjölmenna á menningarnótt Frændur okkar frá Færeyjum eru sérstakir gestir Menningarnætur í ár. Hátt á fjórða tug listamanna leggja leið sína þaðan til okkar og ætla að sýna brot af því besta af bæði færeyskri myndlist og tónlist. Upplýsingarmiðstöð Þórshafnar verður einnig með í för og því hægt að nálgast allskyns upplýsingar um þennan eyjaklasa sem telur 18 eyjar í allt sem á búa 48.000 manns. Innlent 12.8.2007 17:09
Passið ykkur á Hólsfjallavegi Hólsfjallavegur, vegur 864, sem liggur meðfram Jökulsá á Fjöllum og hjá Dettifossi að austanverðu, er mjög grófur og erfiður yfirferðar. Verið er að vinna við hringtorg á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar. Umferð um Vesturlandsveg við vegamót Þingvallavegar hefur verið hliðrað til vesturs og er nú ekið um vestari hluta hringtorgsins. Innlent 12.8.2007 11:27
Stúlka kastaðist upp á framrúðu bifreiðar Sextán ára stúlka kastaðist upp á framrúðu bifreiðar sem ók aftan á mótorhjól sem hún var farþegi á um sjöleytið í dag. Þetta gerðist á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar. Mótorhjólið hafði numið staðar á gatnamótunum. Innlent 11.8.2007 20:32
Rosa fjör á Króksmóti Óhætt er að segja að Sauðárkrókur sé iðandi af lífi þessa dagana, en í morgun hófst hið árlega Króksmót fyrir 5., 6., og 7. flokk drengja og stúlkna í fótbolta. Mótið setti Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður knattspyrnudeildar Tindstóls, á vel heppnaðri setningarathöfn í morgun, en þetta er 20. Króksmótið sem félagið heldur. Innlent 11.8.2007 20:06
Vilja hluta af Kolaportinu undir bílastæði Minnihlutinn í borgarstjórn reynir nú að koma í veg fyrir að tollstjóri fái 5000 fermetra bílastæði með viðbyggingu ofan jarðar við tollhúsið. Til þess að koma stæðinu fyrir þyrfti að ganga á húsnæði Kolaportsins. Aðstandendur þess hafa miklar áhyggjur af málinu. Innlent 11.8.2007 16:14
Kostun Sýnar 2 tryggð í þrjú ár Í dag voru staðfestir samningar um kostun Sýnar 2 til næstu þriggja ára. Kostunaraðilar eru Vodafone, 10-11, Iceland Express og vátryggingafélagið Vörður. Ari Edwald, forstjóri 365, sagði við þetta tækifæri að kostendur tryggðu að Enski boltinn bærist um land allt á hagstæðum kjörum. Innlent 11.8.2007 15:34
Hagnaður Marels 7,4 milljónir evra Hagnaður matvælavinnsluvélafyrirtækisins Marel nam 7,4 milljónum evra, jafnvirði 670,8 milljónum íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins samanborið við 797 þúsund evrur, 71,9 milljónir króna, á sama tíma í fyrra. Þetta er nokkuð yfir væntingum. Viðskipti innlent 10.8.2007 16:53
Mikil lækkun Úrvalsvísitölunnar Úrvalsvísitalan lækkaði um 3,47 prósent í Kauphöllinni í dag og endaði hún í 7.993 stigum við lokun viðskipta. Viðlíka lækkun á vísitölunni hefur ekki sést síðan í byrjun apríl í fyrra en þá voru miklar hræringar á íslenskum hlutabréfamarkaði. Gengi bréfa í Evrópu hafa sömuleiðis lækkað mikið í dag. Lækkunin heldur áfram á bandarískum hlutabréfamarkaði. Viðskipti innlent 10.8.2007 16:03
Mosaic Fashions úr Úrvalsvísitölunni Breska tískuvörukeðjan Mosaic Fashions verður fjarlægt úr Úrvalsvísitölu Kauphallarinnar á mánudag í kjölfar þess að félagið Tessera Holding ehf og tengdir aðilar hafa eignast 99,8 prósent í félaginu. Fyrirtækið var skráð á markað fyrir tveimur árum. Viðskipti innlent 10.8.2007 14:23
Úrvalsvísitalan undir 8.000 stigum Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,47 prósent í Kauphöllinni í dag og stendur nú í 7.994 stigum. Vísitalan hefur ekki verið lægri síðan um miðjan maí. Gengi allra félaga í Kauphöllinni hafa ýmist staðið í stað eða lækkað. Gengi bréfa í Exista hafa lækkað mest, eða um 5,49 prósent. Viðskipti innlent 10.8.2007 13:35
Fjárfestar halda að sér höndum Úrvalsvísitalan hefur verið á hraðri niðurleið það sem af er degi og hefur ekki verið lægri síðan um miðjan maí. Vísitalan hafði lækkað um 3,33 prósent í dag og stendur vísitalan í 8.004 stigum. Krónan hefur veikst um tæp tvö prósent í dag og stóð í 121,9 stigum um hádegi. Sérfræðingur hjá Glitni segir fjárfesta halda að sér höndum á hlutabréfamarkaði. Viðskipti innlent 10.8.2007 12:22
Exista með fimmtung í Sampo Exista flaggaði í finnsku kauphöllinni í dag 20 prósenta hlut í A-hluta finnska fjármála- og tryggingafyrirtækinu Sampo. Fyrirtækið átti áður 19,93 prósent í Sampo. Kaupin eru háð samþykki fjármálaeftirlitsstofnana. Viðskipti innlent 10.8.2007 10:17
Mikil lækkun í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan lækkaði um þrjú prósent við opnun viðskipta í Kauphöllinni nú klukkan tíu og stendur nú í 8.032 stigum. Þetta er í takt við niðursveiflu á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum en lækkanir í Asíu og Evrópu hafa verið á svipuðu róli. Viðskipti innlent 10.8.2007 10:02
Hagnaður Milestone 27,2 milljarðar króna Fjármálafyrirtækið Milestone hagnaðist um 27,2 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 1,9 milljarða á sama tíma fyrir ári. Milestone seldi 13 prósenta hlut í Glitni í byrjun apríl fyrir 54 milljarða króna. Félagið og tengdir aðilar eiga enn um sjö prósent í bankanum. Viðskipti innlent 10.8.2007 09:38
Alfreð: Langaði að vera með í Noregi Alfreð Gíslason og Handknattsleikssamband Íslands komust að þeirri niðurstöðu í dag að Alfreð muni halda áfram sem þjálfari landsliðsins. Alfreð mun stjórna liðinu fram yfir EM 2008 í Noregi sem fer fram í janúar. Innlent 9.8.2007 21:14
Umhverfisvænir leigubílar Leigubílastöð í Hafnarfirði ætlar að skipta öllum bílaflota sínum út fyrir umhverfisvæna bíla fyrir mitt næsta ár. Tveir metanbílar og einn tvinnbíll eru þegar komnir á göturnar. Talsmenn stöðvarinnar hvetja stjórnvöld til að taka frumvkæði í vistvæðingu bíla. Innlent 9.8.2007 18:56
Ólögleg seðilgjöld? Heimilin í landinu greiða upp undir hundrað og tuttugu þúsund krónur í seðilgjöld hvert á ári, sem forstjóri Neytendastofu segir oft tilhæfulaus og jafnvel ólögleg. Hann skorar á viðskiptaráðherra að beita sér fyrir lagasetningu sem dregur úr seðilgjöldum. Innlent 9.8.2007 18:27
Tímamótauppgvötvanir á erfðafræði gláku Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsaðilar þeirra hafa gert tímamótauppgvötvanir á erfðafræði sjúkdómsins gláku. Gláka er ein af algengustu orsökum blindu. "Okkur þykir þessi uppgötvun spennandi fyrir ýmsar sakir en hér höfum við fundið stökkbreytingar sem skýra öll tilfelli sjúkdóms," segir Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Viðskipti innlent 9.8.2007 15:12
Stór hluti ratsjárkerfisins gagnslaus Íslendingar hafa ekkert gagn af stórum hluta þeirra upplýsinga sem ratsjárkerfið hér á landi skilar. Eins og staðan er í dag nýtist ekkert sá hluti kerfisins sem Bandaríkjamenn notuðu til þess að hafa eftirlit með ferðum ókunnra véla við landið. Því er spursmál hvort Íslendingar hafa eitthvað að gera við að halda þeim hluta kerfisins gangandi. Með ærnum tilkostnaði. Innlent 9.8.2007 14:30
Lækkanir á flestum fjármálamörkuðum Gengi hlutabréfa á bandarískum fjármálamarkaði lækkaði talsvert við opnun viðskipta í dag. Helstu vísitölurnar hækkuðu nokkuð í gær en tóku dýfu í dag. Skýringanna er að leita í áhyggjum manna um að samdráttur á bandarískum fasteignalánamarkaði hafi haft áhrif á alþjóðamarkaði. Gengi bréfa á evrópskum fjármálamörkuðum hefur sömuleiðis farið niður í dag. Viðskipti erlent 9.8.2007 14:28
Hraður vöxtur á Norðurlöndunum Norræn hagkerfi munu vaxa hratt á árinu, eða allt frá 3,8 prósentum til 4,5 prósenta. Vöxturinn mun verða talsvert minni hér á landi á sama tíma, einungis 1,5 prósent, að því er fram kemur í nýrri skýrslu greiningardeildar Glitnis um stöðu og horfur í efnahagsmálum á Norðurlöndunum. Viðskipti innlent 9.8.2007 12:05
Vilja 25 prósent í OMX Kauphöllin í Dubaí er enn að þreifa fyrir sér með kaup á norrænu kauphallarsamstæðunni OMX og greindi frá því í dag að hún ætli að tryggja sér allt að fjórðung í henni. OMX-samstæðan rekur kauphallir víða á Norðurlöndunum, þar á meðal hér, og í Eystrasaltsríkjunum. Gengi bréfa í OMX-samstæðunni hækkaði um tæp sex prósent í dag. Viðskipti innlent 9.8.2007 09:44