Innlent
47 48 49 50 51 52 53 54 55 … 334 ›
Verður næststærsta Kauphöll heims Kauphöllin í Dubai eignast tuttugu prósenta hlut í sameinaðri Kauphöll NASDAQ og OMX. Með samkomulaginu lýkur baráttu NASDAQ og Kauphallarinnar í Dubai um yfirráð yfir OMX. Sýnileiki íslenskra fyrirtækja eykst til muna. „Þetta eru góð tíðindi fyrir okkur,“ segir forstjóri Kauphallar Íslands. Viðskipti innlent 21.9.2007 09:01
Metgjalddagi hafði lítil áhrif á gengi Krónubréf að nafnvirði sextíu milljarðar króna féllu á gjalddaga í gær. Þetta var stærsti einstaki krónubréfagjalddagi frá því að útgáfa þeirra hófst í ágúst 2005. Viðskipti innlent 21.9.2007 09:01
Lækkun í Kauphöllinni í kjölfar hækkunar Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í Kauphöllinni í dag eftir talsverða hækkun í gær. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum lækkaði mest, eða um 3,43 prósent. Gengi einungis tveggja félaga hækkaði i Kauphöllinni, í Teymi og FL Group. Viðskipti innlent 20.9.2007 15:38
Afmælisgjafirnar brunnu upp Græddur er geymdur eyrir. Eða ekki. Afmælisgjafir sem lagðar voru af hugulsemi og fyrirhyggju inn á sparisjóðsbók hjá ungum pilti á sjöunda áratugnum, allt frá því hann var eins árs og fram að fermingu, urðu að engu á nokkrum áratugum. Á svokölluðum vöxtum. Innlent 19.9.2007 18:28
Mótvægisaðgerðirnar brandari Mótvægisaðgerðir ríkistjórnarinnar eru brandari, segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Árni Johnsen. Hann segir ekki samræmi í aðgerðunum og óeðlilegt að taka Vestfirði fram yfir aðrar sjávarbyggðir. Innlent 19.9.2007 12:00
Hækkanahrina í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa tók stökkið við opnun viðskipta í Kauphöllinni í morgun. Þetta er í takti við þróunina á erlendum hlutabréfamörkuðum í kjölfar þess að bandaríski seðlabankinn lækkaði stýrivexti í gær meira en vonir stóðu til. Fjármálafyrirtæki leiða hækkanahrinuna. Gengi bréfa í Existu hefur hækkað langmest, eða um tæp 6,8 prósent. Viðskipti innlent 19.9.2007 10:04
Íslendingar kaupa fasteignir í Noregi Fasteignafélagið City Center Properties, sem er að stærstum hluta í íslenskri eigu, hefur keypt átta stórar fasteignir í Noregi af norska fasteignafélaginu BSA Kontoreiendom. Um er að ræða sex skrifstofubyggingar og tvær byggingar sem hýsa bæði skrifstofur og vörugeymslur, alls 67 þúsund fermetrar. Sjö bygginganna eru í Osló og ein í Bergen. Viðskipti innlent 18.9.2007 16:31
Færeyingar efstir og neðstir í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hækkaði almennt við lokun Kauphallarinnar í dag. Þetta er í takti við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum en fjárfestar þykja stíga varlega til jarðar áður en greint verður frá því hvort breytingar verði gerðar á stýrivaxtastigi í Bandaríkjunum um fimmleytið. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði langmest, eða um rúm fjögur prósent. Gengi landa Færeyinganna í Föroya banka lækkaði á móti mest, eða um 3,23 prósent. Viðskipti innlent 18.9.2007 15:44
Hið ógurlega hernaðarleyndarmál Íslands Ekki eru veittar upplýsingar um hvernig hið nýja varðskip sem verið er að smíða fyrir Landhelgisgæsluna verður vopnað. Það er sagt trúnaðarmál. Í uppflettibókum og á netinu er hægt að fá upplýsingar um það í smáatriðum hvernig öflugustu herskip Bandaríkjanna, Breta, Frakka og Rússa eru vopnuð. Raunar er hægt að fá þar upplýsingar um búnað allra herskipa og varðskipa um allan heim. Innlent 17.9.2007 14:16
Hlutabréfavísitölur lækka víða í Evrópu Gengi hlutabréfa hefur lækkað nokkuð í Kauphöllinni í dag líkt og á hlutabréfamörkuðum í Evrópu. Gengi bréfa í Exista hefur lækkað mest, eða um 3,84 prósent. Á eftir fylgir gengi bréfa í Kaupþingi, Straumi og Bakkavör, sem öll hafa lækkað um rúm tvö prósent. Ekkert félag hefur hækkað í dag. Viðskipti innlent 17.9.2007 10:51
Candover dregur tilboð í Stork til baka Breska fjárfestingafélagið Candover hefur dregið yfirtökutilboð sitt í hollensku iðnsamsteypuna Stork NV til baka þar sem tilskilinn fjöldi hluthafa var ekki samþykkur því. LME, eignarhaldsfélag í eigu Eyris Invest, Landsbankans og Marel, sem er stærsti hluthafi Stork, hefur átt í viðræðum við forsvarsmenn Candover vegna tilboðsins og verður þeim haldið áfram. Viðskipti innlent 17.9.2007 09:53
Lögmaður Færeyja fékk ekki þjóðhöfðingjaorðu Allir þjóðhöfðingjar Norðurlandanna hafa fengið fimmta og æðsta stig hinnar íslensku fálkaorðu - stórkross með keðju. Lögmaður Færeyja er ekki í þeim hópi. Innlent 16.9.2007 18:02
Hópur fjárfesta styrkir skóla fyrir fatlaða Fjársterk kona leiðir hóp einstaklinga sem hyggst styrkja byggingu á nýjum skóla fyrir fatlaða í Mjóddinni. Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla verður því lokað innan fárra ára þegar nýi skólinn verður tekinn í notkun. Innlent 16.9.2007 18:14
Fólk fær að kaupa í Símanum fyrir áramót Engin áform eru uppi hjá Símanum um að fá undanþágu til að fresta því að selja almenningi þrjátíu prósenta hlut í félaginu. Fyrirtækið verður skráð í Kauphöllinni fyrir áramót. Innlent 16.9.2007 18:08
Jafnlaunavottun úr sögunni? Ákvörðun verður tekin í kvöld um það hvort ráðherraskipuð nefnd sem ætlað var að undirbúa jafnlaunavottun fyrirtækja, heldur áfram störfum. Fyrrverandi félagasmálaráðherra skipaði nefndina til að vinna gegn kynbundnum launamun, en hana vantar 75 milljónir til að ljúka verkinu. Innlent 16.9.2007 17:57
Stjórnvöld flýta ekki fyrir vistvæðingu bílaflotans Stjórnvöld þurfa að gera gangskör í að breyta gjöldum vistvænna bíla, segir framkvæmdastjóri Orkuseturs. Sýnishorn af vistvænustu bílum landsins eru til sýnis í Perlunni um helgina. Innlent 15.9.2007 17:20
Hluthafar Storebrand sagðir styðja kaup á SPP Fulltrúar hluthafa í norska tryggingafyrirtækinu Storebrand eru sagðir styðja kaup félagsins á sænska tryggingafélagið SPP, líftryggingahluta Handelsbanken. Skrifað var undir yfirlýsingu um kaupin í byrjun mánaðar. Líklegt þykir að Kaupþing, sem er stærsti hluthafi Storebrand, sé fylgjandi kaupunum. Viðskipti innlent 15.9.2007 10:38
Formaður menntaráðs í skólaakstri Formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, Júlíus Vífill Ingvarsson, er stjórnarformaður rútufyrirtækis sem hefur hundruð milljóna króna samning um skólaakstur fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu. Júlíus segir skólaakstur aldrei koma inn á borð menntaráðs og hagsmunaárekstur því ekki fyrir hendi. Innlent 14.9.2007 17:41
Ársyfirdráttur 400 manna gæti borgað lúxusferð Yfirdráttarvextir rétt rúmlega fjögur hundruð einstaklinga þarf til að standa undir áætluðum kostnaði við lúxusferð Landsbankans til Ítalíu. Tvö hundruð útvaldir viðskiptavinir bankans flugu til Ítalíu í morgun. Innlent 14.9.2007 17:48
Úrvalsvísitalan lækkaði í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði talsvert í Kauphöllinni í dag en það er í takt við þróun á hlutabréfamörkuðum í Evrópu en gengi bréfa í fjármálafyrirtækjum lækkaði nokkuð eftir að breska fasteignalánafyrirtækið greindi frá því að það hefði nýtt sér lánaheimild Englandsbanka. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,49 prósent og stendur í 7.772. Gengi bréfa í FL Group lækkaði mest, eða um 2,99 prósent. Viðskipti innlent 14.9.2007 16:30
Gengi fjármálafyrirtækja lækkar Gengi hlutabréfa hefur lækkað talsvert í Kauphöllinni í dag. Þetta er í takti við þróunina á hlutabréfamörkuðum í Evrópu. Fjármálafyrirtæki það leiða lækkanalestina líkt og hér. Gengi bréfa í FL Group hefur lækkað mest, eða um 2,4 prósent, en bréf í Exista fylgir fast á eftir. Einungis gengi bréfa í fjórum félögum hefur hækkað í dag, mest í 365. Viðskipti innlent 14.9.2007 12:02
Vinnslustöðin óskar eftir afskráningu Stjórn Vinnslustöðvarinnar telur félagið ekki uppfylla lengur skráningarskilyrði um fjölda hluthafa og dreifða eignaraðild og hefur farið þess á leit við Kauphöllina að hlutabréf félagsins verði tekin af markaði. Afskráningin var samþykkti á stjórnarfundi Vinnslustöðvarinnar í gær. Viðskipti innlent 14.9.2007 11:00
Ólafur krækti í Goldman Sachs Geysir Green Energy er langtímafjárfesting að sögn Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Hann telur Goldman Sachs besta erlenda fjárfesti sem völ er á. Ólafur Jóhann Ólafsson, fjárfestir og rithöfundur, hafði milligöngu um komu bandaríska fjárfestingarbankans Goldman Sachs inn í fjárfestahóp Geysis Green Energy. Viðskipti innlent 14.9.2007 08:30
Færeyingar leiddu hækkun í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega í Kauphöllinni í dag. Hækkunin nemur 0,25 prósentustigum og endaði hún í 7.889 stigum. Gengi bréfa í Föroya banka hækkaði langmest allra félaga í Kauphöllinni, eða um 3,20 prósent. Landar færeyinganna í olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum fylgdi fast á eftir. Gengi bréfa í Eik banka hækkaði sömuleiðis, en nokkru minna. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:35
Icelandair semur við Rolls-Royce Breski vélaframleiðandinn og þjónustufyrirtækið Rolls-Royce greindi frá því í dag að það hefði gert þjónustusamning við Icelandair til næstu fimm ára um endurnýjun og viðhald á flugvélum fyrirtækisins. Virði samningsins nemur 100 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði 6,4 milljarða króna. Viðskipti innlent 13.9.2007 15:05
Rektor braut klósett í reiðikasti Rektor Menntaskólans við Hamrahlíð braut í gær klósett sem nemendur höfðu ætlað að nota við busavígslu og hellti úr skálum reiði sinnar yfir þá. Nemendur voru miður sín eftir atvikið, en þeir höfðu fengið klósettið lánað fyrir vígsluna. Innlent 13.9.2007 13:44
Kortaveltumet í ágúst Kortavelta var aldrei meiri en í síðasta mánuði en þá nam hún 25,5 milljörðum króna, samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans. Greiningardeild Glitnis segir mikinn vöxt hafa hlaupið í einkaneyslu og stefni í að hún verði myndarlegum á þessum þriðja fjórðungi. Viðskipti innlent 13.9.2007 11:42
Óbreyttir vextir Íbúðalánasjóðs Vextir Íbúðalánasjóðs eru óbreyttir í 4,85 prósentum með uppgreiðsluþóknun í kjölfar útboðs sjóðsins í morgun. Tilboð fyrir 22,1 milljarð króna að nafnvirði bárust í bréfin en sjóðurinn tók aðeins tilboðum í lengsta flokk íbúðabréfa, fyrir 9,3 milljarða á nafnvirði. Viðskipti innlent 13.9.2007 11:25
Hlutabréf lækka í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði í Kauphöllinni í dag en Úrvalsvísitalan lækkaði um eitt prósent. Gengi bréfa í fjórum félögum hækkaði, þar af í Marel mest, eða um 0,61 prósent. Gengi bréfa í Flögu féll hins vegar um 6,45 prósent. Viðskipti innlent 12.9.2007 15:54
Hagvöxtur yfir spám í fyrra Hagvöxtur mældist 4,2 prósent á síðasta ári, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Greiningardeild Glitnis bendir á að þetta sé umfram spár og bendir á að gert hafi verið ráð fyrir 2,6 prósenta hagvexti í spá Hagstofunnar fyrr á árinu. Glitnir telur líkur á að Seðlabankinn dragi vaxtalækkun frekar á langinn vegna aukins verðbólguþrýstings. Viðskipti innlent 12.9.2007 11:57