Innlent
284 285 286 287 288 289 290 291 292 … 334 ›
Vinstri hreyfingin grænt vill rannsókn á hönnun Kárahnjúkavirkjunnar Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tekur undir kröfu Náttúruverndar Íslands um að hrint verði af stað óháðri og gagnsærri rannsókn á þeirri áhættu sem tekin er með byggingu Kárahnjúkavirkjunnar áður en byrjað verði að safna vatni í Hálslón. Innlent 16.8.2006 16:55
Lokað vegna malbikunar Hringvegur 1 er lokaður til suðurs frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng næstu þrjá daga vegna malbikunar. Akrein til suðurs verður lokuð frá klukkan 7:30 til klukkan 20:00 á þessu tímabili. Vegfarendum er bent á að aka Akrafjallsveg. Innlent 16.8.2006 16:37
Danskir dagar í Stykkishólmi Hinir árlega bæjarhátíð Danskir dagar verður haldin í Stykkishólmi dagana 18. til 20. ágúst. Innlent 16.8.2006 16:25
Rafmagn komið á að nýju Rafmagn er komið á aftur í Hálsahverfi á Krókhálsi og Grafarholti. Rafmagnslaust varð þar skömmu fyrir þrjú í dag þegar grafið var í háspennustreng á framkvæmdasvæði við Korpu. Innlent 16.8.2006 16:05
Methagnaður hjá Sparisjóði Keflavíkur Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á fyrstu sex mánuðum ársins nam rúmum einum milljarði króna en það er 106.6 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrir skatta nam tæpum 1,2 milljarði króna. Þetta er mesti hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á einum árshelmingi og er arðsemi eiginfjár 55 prósent sem er ein sú mesta frá stofnun sjóðsins. Viðskipti innlent 16.8.2006 15:20
Byrjað er að hleypa umferð um Kjalarnesið Lögreglan hefur opnað aftur fyrir umferð um Kjalarnesið eftir að Vesturlandsvegi var lokað að hluta vegna bílslyss fyrr í dag. Búast má við einhverjum töfum til að byrja með þar sem umferð er hleypt í gegn í hollum. Innlent 16.8.2006 15:04
Farþegi lést og ökumaður slasaðist Farþegi lést og ökumaður slasaðist mjög alvarlega þegar tvær jeppabifreiðar rákust saman á Vesturlandsvegi rétt við kjúklingabúið Móa í hádeginu. Ökumaður hins jeppans er ekki talinn vera alvarlega slasaður. Lögregla er enn við störf á vettvangi og er Vesturlandsvegur lokaður frá afleggjaranum að Þingvöllum að syðri munna Hvalfjarðarganga á meðan lögreglan sinnir störfum sínum. Ökumönnum er bent á að fara um Kjósaskarð þar til vegurinn hefur verið opnaður. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. Innlent 16.8.2006 14:53
Fjórtán mótmælendur kærðir Fjórtán mótmælendur hafa verið kærðir fyrir mótmælin á byggingasvæði álversins á Reyðarfirði í morgun. Innlent 16.8.2006 14:48
Þrír bankar hækka vexti Landsbankinn, KB banki og sparisjóðirnir hafa hækkað vexti sína í kjölfar þess að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 50 punkta í morgun. Greiningardeild KB banka spáir 50 punkta hækkun á ný á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans í næsta mánuði. Viðskipti innlent 16.8.2006 14:03
Bílslys varð á Kjalarnesi Alvarlegt umferðarslys varð á Kjalarnesi nú rétt eftir hádegi nærri meðferðarheimili SÁÁ í Vík. Verið er að klippa bílflök utan af hinum slösuðu. Umferð um veginn er lokuð í báðar áttir. Innlent 16.8.2006 13:00
Spá harðari lendingu Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti í 13,5 prósent leiða til harðrar lendingar í íslensku efnahagslífi á næsta ári með minni hagvexti, lægri kaupmætti og auknu atvinnuleysi. Viðskipti innlent 16.8.2006 12:02
Ferðamaður beið bana við Hrafntinnusker Erlendur ferðamaður beið bana þegar hann varð undir hruni í íshelli við Hrafntinnusker, skammt frá svonefndum Laugavegi, á níunda tímanum í morgun. Samferðamenn hans kölluðu á aðstoð þar sem þeir töldu að hann hefði lokast inn í hellinum, en þeir höfðu náð til hans áður en björgunarlið kom á vettvang, og var hann þá látinn. Þá var meðal annars búið að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar, en henni var snúið við ásamt flestum björgunarmönnunum. Hinir munu flytja lík mannsins til byggða. Innlent 16.8.2006 10:46
Lögreglumenn á leið upp krana á eftir mótmælanda Tveir lögreglumenn eru nú að klifra up í háan byggingakrana á vinnusvæði álvers Alcoa á Reyðarfirði, til að ná niður mótmælanda, sem klifraði þar upp í morgun í mótmælaskyni við framkvæmdirnar. Innlent 16.8.2006 09:36
Slys við Hrafntinnusker Talið er maður sé lokaður inni í íshelli við Hrafntinnusker, eftir að hellirinn féll saman í morgun. Talið er að einn maður sé lokaður inn í hellinum og er þyrla Landhelgisgæslunnar á leið á staðinn ásamt lögreglu og björgunarsveitarmönnum. Innlent 16.8.2006 09:03
Seðlabankinn hækkar stýrivexti Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig og verða vextirnir eftirleiðis 13,5 prósent. Vextir af bundnum innstæðum og daglánum hækka um 0,25 prósentustig en aðrir vextir bankans um 0,5 prósentustig. Þetta er í samræmi við spár greiningadeilda viðskiptabankanna. Viðskipti innlent 16.8.2006 08:59
Leitar enn árásarmannsins í Breiðholti Lögregla leitar enn árásarmannsins, sem réðst á stúlku í Breiðholti að næturlagi í síðustu viku og reyndi að nauðga henni. Stúlkan, sem var á leið til vinnu, náði að slíta sig frá árásarmanninum og leita hjálpar, en meðal annars þurfti að gera að bitsári á hálsi hennar. Hún hefur ekki getað gefið góða lýsingu á árásarmanninum. Innlent 16.8.2006 07:59
Fjórtán ára ökuníðingur Fjórtán ára unglingur er uppvís að því að hafa næstum ekið niður tvo lögreglumenn á Neshaga í Reykjavík, aðfararnótt mánudags, og stungið af. Hann mun hafa fengið lykil að bílnum hjá dóttur eigandans og voru að minnstakosti tveir jafnaldrar hans með honum í bílnum, þegar atvikið varð, þar sem lögreglu- og slökkviliðsmenn voru að sinna störfum vegna elds í íbúð. Þegar pilturinn ók óvænt farm á þann liðsafla, mun honum hafa brugðið og í fátinu munaði minnstu að hann æki lögrelgumennina niður. Ferðir unglinganna á bílnum, munu ekkert tengjast íkveikjunni í íbúðinni, eins og grunur lék á í fyrstu.- Innlent 16.8.2006 07:47
Glitnir kaupir 45% hlut í norsku fjármálaþjónustufyrirtæki BNbank sem er í eigu Glitnis hefur náð samkomulagi um kaup á 45% hlut í Norsk Privatokonomi sem veitir sérhæfða fjármálaþjónustu í Noregi. Fyrirtækið verður áfram óháð ráðgjafafyrirtæki og mun styrkja dreifikerfi og þar með markaðssókn BNbank og Glitnis í Noregi. Viðskipti innlent 15.8.2006 20:15
Hostel II tekin upp að hluta á Íslandi Til stendur að taka hluta hryllingsmyndarinnar Hostel II hér á landi og er áætlað að tökur fari fram í október og nóvember. Innlent 15.8.2006 20:01
Gæðamat á íslenskum vegum Gert hefur verið gæðamat á öryggisstöðlum á íslenskum vegum. Vegirnir eru í misgóðu ástandi, mörgu er ábótavant og slysagildrur leynast víða. Innlent 15.8.2006 19:37
Sameinað menntaráð skapi samfellu Leikskólastjórar sem sátu fund með stjórnmálaflokkum í Ráðhúsinu í dag hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á borgaryfirvöld að endurskoða ákvörðun sína um að kljúfa menntaráð. Fundarmenn voru sammála um að sameinað menntaráð gæti stuðlað að samfellu í námi barna og samvinnu kennara milli skólastiga. Nýtt leikskólaráð tekur til starfa í Reykjavíkurborg um miðjan september en málefni leikskólanna hafa síðasta árið verið undir sameinuðu menntaráði. Innlent 15.8.2006 19:16
Verðstríð á skólavörum Verðstríð geysar á ritfangamarkaðnum og tilboðum á stílabókum, strokleðrum, skærum, tússlitum og öðrum skólavörum rignir yfir fólk, enda stutt í að skólar hefjist. Verðmunur á þessum smávörum getur hlaupið á hundruðum króna. Innlent 15.8.2006 19:10
Mótmælum við Kárahnjúka líklega ekki lokið Mörgum þykir harka hafa færst í mótmæli umhverfisverndarsinna vegna Kárahnjúkavirkjunar að undanförnu. Talsmaður Íslandsvina vill þó ekki meina að málstaður þeirra hafi beðið álitshnekki. Innlent 15.8.2006 19:06
Sært stolt Formaður félags leikskólakennara segir stolt þeirra sært með því að draga leikskólana út úr menntaráði Reykjavíkurborgar. Borgaryfirvöld segja nýju leikskólaráði komið á fót til að gefa leikskólunum meira vægi. Innlent 15.8.2006 18:53
Landlæknir segir ekki hægt að lækna samkynhneigð Landlæknir varar við námskeiðum eins og þeim sem um er getið í auglýsingu frá Samvinnuhópi kristinna trúfélaga, þar sem boðið er upp á meðferð gegn samkynhneigð. Þá þurfi ekki að lækna samkynhneigð, því hún sé ekki sjúkdómur. Innlent 15.8.2006 18:29
Segja skýringar á framúrkeyrslu fjárlaga Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landhelgisgæslunnar segir hluta tugmilljóna framúrkeyrslu stofnunarinnar hafa verið með leyfi dómsmálaráðuneytisins. Rektor Háskólans á Akureyri, skýrir framúrkeyrslu skólans með fjölgun nemenda. Innlent 15.8.2006 18:21
Verri heilsa hátekjufólks Heilsa hátekjufólks er verri en hins almenna borgara. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem kynnt var í dag. Rannsóknin var hluti af doktorsverkefni Tinnu Laufeyjar Ásgeirsdóttur. Niðurstöðurnar sýndu að heilsa Íslendinga fer batnandi með hækkandi launum þar til tekjur eru orðnar talsvert háar. Þá snýst sambandið við og heilsa versnar. Innlent 15.8.2006 17:42
Öll stærstu olíufélögin hafa lækkað bensínverð Öll stærstu olíufélögin hafa nú lækkað bensínverð í dag. Orkan tók af skarið og lækkaði í morgun bensínverð um 1,60 kr. á lítrann. Innlent 15.8.2006 17:37
Eigendur Dell-fartölva kanni framleiðslunúmer rafhlöðu Engin af þeim tölvum sem nú eru til sölu hjá umboðsaðila Dell hér á landi, EJS, er með rafhlöður sem kalla þarf inn en eigendur Dell-fartölva eru beðnir um að fara inn á heimasíðu EJS og kanna hvort rafhlaðan í tölvunni hafi tiltekið framleiðslunúmer. Innlent 15.8.2006 15:22
Hagnaður Sparisjóðabankans aldrei meiri Hagnaður Sparisjóðabanka Íslands á fyrri helmingi ársins nam rúmum 1,7 milljarði króna sem er 129,9 prósenta aukning á milli ára og hefur hagnaðurinn aldrei verið meiri á sex mánaða tímabili. Hagnaðurinn svarar til 50,8 prósenta arðsemi eigin fjár miðað við heilt ár og er það með því hæsta sem þekkist meðal innlendra og erlendra fjármálafyrirtækja. Viðskipti innlent 15.8.2006 14:59