Innlent
Í prófkjör Samfylkingarinnar Innlent 21.9.2006 21:36 Í prófkjör Sjálfstæðisflokksins Innlent 21.9.2006 21:35 « ‹ 236 237 238 239 240 241 242 243 244 … 334 ›
Grunaðir um að hafa skotið á bænahús gyðinga í Osló Lögreglan í Osló í Noregi hefur handtekið fjóra menn sem eru grunaðir um að hafa gert árás á bænahús gyðinga í borginni um síðustu helgi. Skotið var á bænahúsið. Einn þeirra handteknu var tekinn höndum í Þýskalandi síðasta sumar, grunaður um að skipuleggja hryðjuverkaárás þegar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu stóð sem hæst. Erlent 22.9.2006 08:34
Launavísitala hækkar um 0,7 prósent milli mánaða Launavísitala í ágúst hækkaði um 0,7 prósent frá fyrri mánuði samkvæmt tölum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 10,6 prósent. Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í október 2006 er 6506 stig. Innlent 22.9.2006 09:42
Viktor fer ekki í prófkjörsslag Viktor B. Kjartansson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ, hyggst ekki gefa kost á sér í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum. Innlent 22.9.2006 10:08
Spáir því að verðbólga standi í stað milli mánaða Greiningardeild KB banka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,6 prósent og að verðbólga muni áfram verða 7,6 prósent á ársgrundvelli eins og hún er nú. Segir í verðbólguspá bankans að hækkun á matvöru, fatnaði og húsnæði muni vega þyngst í hækkun vísitölunnar. Innlent 22.9.2006 09:59
Íslendingar munu líklega þjálfa heimamenn Íslendingum veður líklega falið að að þjálfa heimamenn til að taka við rekstri flugvallarins í Kabúl í Afganistan. Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu í gær í New York samhliða allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem nú er haldið þar í borg, og kom þetta fram á fundinum, sem Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra, sat. Innlent 22.9.2006 08:29
Allt að 113% verðmismunur á hæsta og lægsta verði á ákveðnum tegundum Meðalverð á fiski í fiskbúðum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 10% frá því í janúar samkvæmt nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ og munur á hæsta og lægsta verði á ákveðnum tegundum var allt að 113%. Í átján tilvikum af þeim tuttugu og níu, sem skoðuð voru, var munur á hæsta og lægsta verði um og yfir 50%. Lægsta verðið var oftast í fiskborði Fjarðarkaupa í Hafnarfirði en oftast hæst í Gallerý fiski við Nethyl í Reykjavík. Athygli vekur að hæsta verð var oft í nýju verslanakeðjunni Fiskisögu, þannig að hagkvæmni stærðarinnar virðist ekki vera að skila sér til neytenda í þeim fiskbúðum. Innlent 22.9.2006 08:24
KB banki spáir óbreyttri verðbólgu Greiningardeild KB banka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,6 prósent í október og muni 12 mánaða verðbólga standa í stað í 7,6 prósentum. Viðskipti innlent 22.9.2006 09:38
Stefnir lífeyrissjóðunum ef ekki verður fallið frá skerðingu Öryrkjabandalag Íslands hyggst stefna þeim lífeyrissjóðum sem hafa ákveðið að skerða eða fella niður lífeyrisgreiðslur til öryrkja ef ekki verður horfið frá þeirri framkvæmd. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar bandalagsins í gær. Innlent 22.9.2006 09:17
Óvenju mikið um árekstra í Reykjavík í gær Óvenju mikið var um árekstra í Reykjavík í gærdag þrátt fyrir hin ákjósanlegustu akstursskilyrði. Frá klukkan sjö í gærmorgun fram til klukkan níu í gærkvöldi urðu 24 árekstrar, þar af einn fimm bíla á Breiðholtsbraut, en engin slasaðist alvarlega. Þau mynduðu löggæslumyndavélar lögreglunnar tugi ökumanna fyrir of hraðan akstur í borginni í gær. Innlent 22.9.2006 08:09
Launavísitalan hækkaði um 0,7 prósent Launavísitala í ágúst 2006 er 297,4 stig og hækkaði um 0,7 prósent frá júlímánuði, samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands. Síðastliðna 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 10,6 prósent. Viðskipti innlent 22.9.2006 09:05
Sumarbústaður brann til kaldra kola Sumarbústaður í Sléttuhlíð, suðaustur af Hafnarfirði, brann til kaldra kola í nótt. Vegfarandi sá reyk langt að og tilkynnti um hann, en þegar slökkviliðið kom á vettvang skömmu síðar var bústaðurinn al elda. Engin hafði verið í honum eða nálægum bústöðum í gærkvöldi. Eldsupptök eru ókunn en lögregla vinnur að rannsókn á vettvangi. Innlent 22.9.2006 08:05
Íslensk leyniþjónusta starfrækt fyrir seinni heimsstyrjöld Vísir að íslenskri leyniþjónustu var starfræktur hér á landi frá því skömmu fyrir seinni heimstyrjöldina. Tíu árum síðar beitti Bjarni Benediktsson, þáverandi dómsmálaráðherra, sér fyrir leynilegri öryggisþjónustudeild hjá lögreglustjóraembættinu í nánum tengslum við dómsmálaráðuneytið. Morgunblaðið greinir frá því að þetta komi fram í grein eftir Þór Whitehead, prófessor, sem hann ritar í tímaritið Þjóðmál og kemur út á næstu dögum. Innlent 22.9.2006 08:18
Enn í yfirheyrslum vegna afbrota Lögreglan í Keflavík beið í gær eftir að lögreglan í Reykjavík lyki yfirheyrslum yfir tveimur síbrotamönnum, sem Reykjavíkurlögreglan handtók á stolnum jeppa í fyrrinótt eftir að Selfosslögreglan hafði handtekið þá á stolnum fólksbíl tveimur nóttum fyrr. Eftir yfirheyrslur í Keflavík, vegna afbrota mannanna þar í bæ, óskaði lögreglan eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir þeim, sem Héraðsdómur Reykjaness féllst á í gærkvöldi. Þegar það rennur út bíða svo Húsavíkurlögreglan og lögreglan í Borgarnesi eftir að fá að tala við mennina vegna afbrota þeirra í þeim bæjarfélögum. Innlent 22.9.2006 07:58
Ferðalagi síbrotamanna er lokið Tveir ungir menn sem grunaðir eru um innbrot víðs vegar um landið voru í gærkvöld úrskurðaðir af Héraðsdómi Reykjaness í síbrotagæslu til 20. desember. Innlent 21.9.2006 21:36
Pólverjar fengu ekki laun og bjuggu í lélegum bát Tveir Pólverjar segja vinnuveitendur sína ekki hafa staðið í skilum með laun og hafa svikið annað samkomulag. Pólverjarnir segja Íslendingana skulda sér 400 þúsund krónur. Þeir voru látnir búa í hálf-fokheldum bát í Reykjavíkurhöfn. Innlent 21.9.2006 21:36
Dísilolía dýrari en bensínið Í fyrsta skipti í sögunni er dísilolía dýrari en bensín á Íslandi. Lítri af dísilolíu með olíugjaldi var að meðaltali 30 aurum dýrari en bensínlítrinn í gær. Innlent 21.9.2006 21:35
Ekkert eftirlit með búnaði símafyrirtækja til hlerana Símafélögin þurfa samkvæmt lögum að vera með tækjabúnað sem hægt er að nota til símhlerana. Ekkert eftirlit er með búnaðinum. Póst- og fjarskiptastofnun þarf samkvæmt lögum að sinna eftirliti með búnaði. Innlent 21.9.2006 21:36
Mörg hryðjuverkamál til athugunar hjá lögreglunni Mál sem varða þjóðaröryggi, þar með talið hugsanlega hryðjuverkastarfsemi, hafa komið reglulega upp hér á landi að undanförnu og verið til athugunar hjá lögregluyfirvöldum. Innlent 21.9.2006 21:35
Biðlistar heyri sögunni til Á næsta ári verður ráðist í stækkun barna- og unglingageðdeildar. Þá færast greiningar á vægari tilfellum geðrænna vandamála til heilsugæslustöðva. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra vonar að með þessum aðgerðum heyri biðlistar brátt sögunni til. Áætlaður kostnaður stækkunarinnar er um 340 milljónir. Þess má geta að nú bíða 108 börn og unglingar eftir fyrsta viðtali á BUGL og hafa sumir beðið í á annað ár. Innlent 21.9.2006 21:36
Ómar er bara góður vinur Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir það túlkunaratriði hvort Ómar Ragnarsson fjalli minna eða meira um umhverfismál á næstunni. Ætli hann fjalli ekki bara þeim mun meira um þau, segir hann. Innlent 21.9.2006 21:35
Berjast um fyrsta sæti á lista stjórnmál Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og alþingismennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pétur Blöndal sækjast eftir öðru sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Efnt verður til sameiginlegs prófkjörs fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin og mun annað sætið í því veita forystusæti á öðrum listanum. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun að líkindum sækjast einn eftir fyrsta sæti í prófkjörinu og skipa sama sæti á lista og í síðustu kosningum, það er fyrsta sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Innlent 21.9.2006 21:36
Ætlar að spila með öðru liðinu Umhverfismál Ómar Ragnarsson sjónvarpsfréttamaður er hættur að fjalla um umhverfismál í Sjónvarpinu og ætlar að beita sér í umhverfismálum þjóðarinnar. Hann segir það hafa verið draum sinn frá tíu ára aldri að beita sér í þjóðmálaumræðu. Innlent 21.9.2006 21:36
Björgvin og Lúðvík í 1. sæti Þingmennirnir Björgvin G. Sigurðsson og Lúðvík Bergvinsson sækjast báðir eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Innlent 21.9.2006 21:35
Það þarf rökstuddan grun um afbrot Lögregla hefur ekki mikið svigrúm til að grípa inn í mál sem bent geta til yfirvofandi hryðjuverka. Hún getur ekki farið fram á heimild dómara til að beita sérstökum rannsóknaraðferðum, nema um rökstuddan grun sé að ræða. Innlent 21.9.2006 21:36
Vil ekki frekari afslátt á mannréttindum en orðið er Ég vil ekki gefa frekari afslátt á einkalífs- og mannréttindum en þegar er orðið, segir Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður spurður álits á auknum heimildum lögreglu til rannsókna í málum er varða þjóðaröryggi. Innlent 21.9.2006 21:36
Kæfisvefn getur valdið slysum „Okkar aðaláhyggjumál er að biðlistar hafa farið mjög vaxandi. Í dag bíða 116 greindir kæfisvefnssjúklingar eftir meðferð og 178 manns eru á biðlista eftir mælingu," segir Þórarinn Gíslason, yfirlæknir lungnadeildar Landspítala-háskólasjúkrahúss. „Það þarf úrbætur á þessu sviði svo við getum staðið undir væntingum. Fólk sættir sig illa við að bíða í fjóra til sex mánuði eftir úrlausn sinna mála í þessu ríka samfélagi." Kæfisvefn er meðal þess sem fjallað verður um á Vísindavöku Rannís í Listasafni Reykjavíkur í dag. Innlent 21.9.2006 21:36
Hlutur Íslands vel viðunandi Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra undirritaði í fyrradag samkomulag milli Íslands, Danmerkur, Færeyja og Noregs um skiptingu landgrunns utan tvö hundruð mílna í suðurhluta Síldarsmugunnar. Samkomulagið felur í sér viðurkenningu á landgrunnsréttindum Íslands yfir 29 þúsund ferkílómetra svæði vestast í Síldarsmugunni í beinu framhaldi af íslensku efnahagslögsögunni norðaustur af landinu. Innlent 21.9.2006 21:36
Sækist eftir öðru sæti Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sækist eftir öðru sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Hún var kjörin á þing í síðustu kosningum en þá skipaði hún fjórða sætið á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu. Innlent 21.9.2006 21:35