Innlent
154 155 156 157 158 159 160 161 162 … 334 ›
Bílslys undir Eyjafjöllum Bílslys varð nú í kvöld undir Eyjafjöllum en tveir ungir Englendingar voru þar á ferð. Flughálka var á staðnum og misstu þeir stjórn á bílnum þar sem þeir komu að brúnni yfir Holtsá. Fór bíllinn yfir varnargarð og út í ánna og er hann talinn gjörónýtur. Mennirnir tveir skárust tölvuvert á höfði en annars er líðan þeirra góð eftir atvikum. Innlent 15.11.2006 22:44
Breytinga þörf á Akureyrarflugvelli Akureyrarbær og KEA hafa boðist til þess að reiða fram fé til að hægt verði að lengja flugbrautina á Akureyrarflugvelli gegn því að ríkið endurgreiði þeim seinna. Innlent 15.11.2006 22:05
Þungfært á Öxnadalsheiði Ófært um Víkurskarð og Öxi og þungfært á Öxnadalsheiði. Á Norður og Norðausturlandi er víðast hvar stórhríð. Innlent 15.11.2006 21:43
Dómsmálaráðherra svaraði ekki fyrirspurnum um hleranir Dómsmálaráðherra svaraði ekki í fyrirspurnartíma á Alþingi spurningum Kristins H. Gunnarssonar þingmanns Framsóknarflokksins um hleranir á símum Alþingismanna, ástæður hleranna og hvenær þær hefðu tengst rannsókn sakamála. Ráðherrann sagði ótækt að yfirvöld tækju frumkvæði að því að birta nöfn þingmannanna með tilliti til einkalífshagsmuna þeirra. Innlent 15.11.2006 21:25
SUS ályktar um Árna Johnsen Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sendi í kvöld frá sér ályktun þar sem skorað er á Árna Johnsen að sýna auðmýkt þegar hann talar um þau brot sem hann var sakfelldur fyrir í starfi sínu sem þingmaður. Innlent 15.11.2006 19:22
Líknarsamtök fá 20% af sölu Líknarsamtök, eins Samhjálp og Fjölskylduhjálpin, fá í sinn hlut 20% af sölu hljóð- og mynddiska sem seldir eru í símasölu í þeirra nafni. Fyrirækið BM ráðgjöf sem sér um sölustarfið segir að tap hafi verið á þessu starfi þrátt fyrir þessi hlutaskipti. Innlent 15.11.2006 18:52
Ekki á döfinni að flytja Landhelgisgæsluna til Keflavíkur Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sagði við utandagskrárumræðu á Alþingi í dag að það væri ekki útilokað að flugstarfssemi Landhelgisgæslunnar verði flutt til Keflavíkur. Sagði hann þó að það væri ekki forgangsverkefni og að nú væri mikilvægasta verkefnið að huga að ytri umgjörð starfssemi Landhelgisgæslunnar. Innlent 15.11.2006 18:23
Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar afhent í þriðja sinn Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar voru afhent í þriðja skipti við athöfn á Hótel Holti í dag, miðvikudaginn 15. nóvember. Landnámssetur Íslands hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir vel útfærðar og vandaðar sýningar sem efla ímynd Íslands og eru til þess fallnar að efla ferðaþjónustu utan hins hefðbundna tímabils. Innlent 15.11.2006 18:01
Verið að endurskoða reglur um flutning fanga Lögreglan leitar enn Ívars Smára Guðmundssonar fanga af Litla Hrauni sem strauk í gær frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Fangelsismálastjóri segir að ekki hafi verið talin ástæða til að hafa fangann í handjárnum. Reglur um flutning fanga eru nú í endurskoðun. Innlent 15.11.2006 16:50
Krónan veiktist á ný Gengi krónunnar veiktist um 1,2% við lokun markaða í dag. Síðastliðna tvo daga hefur krónan veikst um nær 3% og styrking síðustu 6 vikna hefur því gengið til baka á aðeins tveimur dögum. Viðskipti innlent 15.11.2006 16:36
Rektor Bifrastar hlaut umbeðinn stuðning Um sjötíu prósent viðstaddra nemenda og starfsfólks í Háskólanum á Bifröst lýsti í dag yfir stuðningi við Runólf Ágústsson, rektor skólans. Atkvæðagreiðslan fór fram á fundi, sem haldinn var rétt í þessu á háskólasvæðinu á Bifröst, vegna óánægju sem verið hefur verið innan skólans með störf rektors. Innlent 15.11.2006 16:28
Um tvö hundruð hafa svarað kalli Blóðbankans Um tvö hundruð manns hafa svarað kalli Blóðbankans og gefið blóð í dag en skortur hefur verið á blóði í bankanum. Sigríður Ósk Lárusdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Blóðbankanum, segir starfsfólk þakklát fyrir góð viðbrögð en enn vanti þó blóð. Innlent 15.11.2006 16:15
Kosið um hvort rektor hafi stuðning Nemendur og stjórnendur Háskólans á Bifröst funda nú vegna óánægju sem verið hefur með störf Runólfs Ágústssonar, rektors skólans. Að tillögu rektors er nú verið að greiða atkvæði um það hvort rektor njóti fulls stuðnings nemenda. Innlent 15.11.2006 15:36
Dómsmálaráðherra neitaði að svara fyrirspurn á Alþingi Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, var gagnrýndur á Alþingi í dag þegar hann neitaði að svara fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Kristinn vildi vita hversu oft símar Alþingismanna hafi verið hleraðir fyrir atbeina íslenskra stjórnvalda, hvenær það hafi gerst, hverjir hafi verið hleraðir og hver ástæðan var fyrir hleruninni. Innlent 15.11.2006 15:17
Síminn breytir farsímagjöldum til Íslands Síminn ætlar að breyta verði á símtölum til Íslands, úr farsímum, í næsta mánuði. Viðskiptavinir Símans greiða þá 137 króna tengigjald í upphafi en eftir það 11 krónur á mínútuna sem er innanlandstaxti. Innlent 15.11.2006 15:01
Deilt á rektor á Bifröst Boðað hefur verið til fundar nemenda og starfsfólks Háskólans á Bifröst nú klukkan þrjú og hefur kennsla verið felld niður í skólanum á meðan. Nokkur óánægja hefur verið innan skólans með störf Runólfs Ágústssonar rektor skólans. Innlent 15.11.2006 14:58
Rætt um umferðaröryggi á Kjalarnesi Vegargerðin mun á næstu vikum leggja fram tillögur um úrbætur til að auka umferðaröryggi á Vesturlandsvegi um Kjalarnes. Tillögurnar fela meðal annars í sér breikkun vegarins á köflum. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, lýsti þessu yfir þegar rætt var um umferðaröryggi á Kjalarnesi í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Innlent 15.11.2006 14:52
Alvarlegum slysum fjölgar Alvarlegum slysum hér á landi hefur fjölgað um 43,6% á fyrstu níu mánuðum ársins. Alls hafa tuttugu og fimm látist í tuttugu og þremur banaslysum á árinu. Allt árið í fyrra létust nítján manns í umferðarslysum. Innlent 15.11.2006 14:03
Hlíðarfjall opnað um helgina Skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli verður opnað á laugardaginn kemur. Flestar lyftur verða í gangi og skíðagöngusvæðið verður opið. Snjór á svæðinu er töluvert meiri en sést hefur á sama árstíma undanfarin ár. Snjókerfi, sem tekið var í notkun í fyrravetur gerir það einnig að verkum að hægt er að opna skíðasvæðið svo snemma. Innlent 15.11.2006 13:08
Vinsælt að eiga sumarhús á Spáni Hundruð ef ekki þúsundir Íslendinga eiga nú fasteignir á Spáni. Þeim hefur fjölgað verulega síðustu tvö árin. Á sama tíma fara æ fleiri í hefðbundnar pakkaferðir. Innlent 15.11.2006 12:21
Kannað hvort kortaupplýsingar hafi verið nýttar Lögregla rannsakar nú í samvinnu við kortafyrirtæki, hvort mennirnir tveir, sem voru handteknir í Reykjavík á laugardag fyrir að setja upp afritunarbúnað á hraðbanka, hafi nýtt sér upplýsingarnar, eða jafnvel komið þeim úr landi. Innlent 15.11.2006 12:08
Bestir rekstrarárangur í sögu Icelandair Group Icelandair Group skilaði rétt tæplega 4 milljarða króna hagnaði fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins. Jón Karl Ólafsson, forstjóri félagsins, segir þetta besta árangurinn í sögu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 15.11.2006 11:55
Fara á yfir reglur um fangaflutninga Lögreglan í Reykjavík leitar enn að Ívari Smára Guðmundssyni, tuttugu og sex ára fanga, sem strauk frá lögreglumönnum við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær. Lögreglan telur ástæðu til að ætla að Ívar Smári geti verið varasamur en hann hefur sætt ákæru fyrir líkamsárás. Fangelsismálastjóri ætlar í dag að funda með forstöðumönnum fangelsanna og fara yfir reglur um fangaflutninga. Innlent 15.11.2006 11:44
Englandsbanki spáir hraðari lækkun á verðbólgu Englandsbanki birti verðbólguskýrslu sína fyrir fjórða ársfjórðung í dag. Bankinn býst við að verðbólgan lækki hraðar en áður hafði verið gert ráð fyrir og verði 2,7 prósent í lok árs en fari svo niður í 2 prósent um mitt næsta ár. Viðskipti erlent 15.11.2006 11:43
Frambjóðendur birta kostnað við prófkjör Frambjóðendur í þeim prófkjörum sem farið hafa fram síðustu vikurnar eru byrjaði að birta kostnað við prófkjörin. Heildarkostnaður frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík var 23 milljónir króna. Innlent 15.11.2006 11:03
Ticket styrkir sig í viðskiptaferðalögum Ticket hefur keypt sænsku viðskiptaferðaskrifstofuna MZ Travel. Kaupverð er háð rekstrarárangri MZ á þessu ári og getur hæst farið í 750 milljónir króna. Velta MZ nam um átta milljörðum króna í fyrra og skilaði félagið þá um fjörutíu milljóna króna hagnaði. Viðskipti innlent 15.11.2006 09:48
Sala á ostum og smjöri eykst Landsmenn tóku vel við sér í neyslu á mjólkurafurðum í október. Milli september og október jókst sala mjólkurafurða um 9,8 prósent á prótíngrunni miðað við sama tímabil í fyrra, en 13,9 prósent á fitugrunni. Þetta kemur fram á heimasíðu Landssambands kúabænda. Þar er þó tekið fram að í október í ár voru söludagar einum fleiri en í fyrra. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:32
Bretar spara í LÍ Sparnaðarreikningur LÍ í Bretlandi hefur fengið mikla umfjöllun þar í landi og viðskiptavinum hefur fjölgað ört. Viðskipti innlent 14.11.2006 17:33
Telja nýtt frumvarp um umferðaröryggi of þungt í vöfum Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, telur að nýtt frumvarp samgönguráðherra um umferðaröryggi sé of sérstækt og aðgerðir í frumvarpinu of þungar í vöfum. Innlent 15.11.2006 09:29
Vísitala framleiðsluverðs hækkar um 2 prósent Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2 prósent á þriðja fjórðungi ársins miðað við fjórðunginn á undan. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hækkar um 5,6 prósent en vísitala framleiðsluverðs fyrir annan iðnað lækkar um 0,4 prósent á milli fjórðunga, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Vísitalan hefur hækkað um 20,9 prósent frá sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 15.11.2006 09:15