Innlent
131 132 133 134 135 136 137 138 139 … 334 ›
Vöruskipti óhagstæð um 13 milljarða í október Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 13 milljarða krónur í nóvember samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Þetta er 2 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Aukinn vöruskiptajöfnuð má rekja til sveiflna í olíuinnflutningi. Viðskipti innlent 6.12.2006 09:27
Kreditkortavelta jókst um 23 prósent á árinu Kreditkortavelta heimila hérlendis var 23,0% meiri á fyrstu 10 mánuðum þessa árs en í fyrra. Síðastliðna 12 mánuði nemur aukningin 22,1% samanborið við árið á undan. Debetkortavelta jókst um 6,9% á sama tímabili, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Viðskipti innlent 6.12.2006 09:21
Múlagöng lokuð á kvöldin Vegna vinnu í Múlagöngum verður göngunum lokað á kvöldin fram á föstudag og aftur frá sunnudagskvöldi og út næstu viku. Lokað er frá kl 21 til 23.30, þá er umferð hleypt í gegn til miðnættis og síðan lokað til kl. 6 að morgni. Innlent 6.12.2006 08:43
Rauk úr matnum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að íbúð á áttundu hæð í Þangbakka í Reykjavík rétt fyrir kl tíu í gærkvöldi. Enginn eldur var þó laus í íbúðinni eins og óttast var í fyrstu, heldur aðeins kafþykkur reykur úr potti á eldavél, og reykræstu slökkviliðsmenn íbúðina fljótt og vel. Innlent 6.12.2006 08:15
Meintir árásarmenn og þjófar neita sök í Keflavík Mennirnir tveir, sem handteknir voru í Reykjavík í fyrrinótt, grunaðir um húsbrot og fólskulega árás á húsráðanda í Keflavík í fyrrakvöld, neituðu allri sök við yfirheyrslur í Keflavík í gær. Innlent 6.12.2006 07:18
Kjarnfóður hækkar um 4 -6 % Bæði Fóðurblandan og Lífland,sem flytja inn nær allt kjarnfóður til landbúnaðarins, hafa tilkynnt um fjögurra til sex prósenta hækkun á kjarnfóðri. Innlent 6.12.2006 07:13
ASÍ lýsir yfir undrun sinni Alþýðusamband Íslands lýsir undrun sinni á undirritun viljayfirlýsingar íslenskra stjórnvalda um fríverslunarviðræður við Kína. Það endurspegli áform um að ætla íslenskum fyrirtækjum og launafólki að keppa á jafnréttisgrundvelli við ríki, sem virðir ekki grundvallar mannréttindi, segir í yfirlýsingu ASÍ. Innlent 6.12.2006 07:07
Á þreföldum hámarkshraða Ölvaður ökumaður ók á allt að þreföldum hámarkshraða þegar hann reyndi að stinga lögregluna af á miðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Þegar lögreglumenn eltu hann voru þeir á 85 kílómetra hraða en höfðu samt hvergi nærri við bíl mannsins. Hámarkshraðinn á þessu svæði er 30 kílómetrar. Innlent 6.12.2006 06:50
Bóndi ákærður fyrir spjöll við álver á Reyðarfirði Ábúandinn á Kollaleiru í Reyðarfirði, sagði fyrir Héraðsdómi Austurlands í dag, að honum liði eins og flóttamanni í eigin landi. Hann er sakaður um að hafa valdið Bechtel vinnutjóni á álverssvæðinu en sjálfur segir hann að fyrirtækið hafi valdið honum tjóni með ólöglegu athæfi á jörð hans. Innlent 5.12.2006 18:49
Vildu hækka eigin kjör um 75% Sjálfstæðismenn í Árborg fullyrða að þeir hafi staðið í vegi fyrir áformum framsóknarmanna í bæjarstjórn um allt að 75% kjarabót til bæjarfulltrúa. Upp úr samstarfinu slitnaði á föstudag með gagnkvæmum brigslyrðum. Eyþór Arnalds vísar því til föðurhúsanna að hans hagsmunir hafi nokkuð með uppslit samstarfsins að gera. Innlent 5.12.2006 18:46
Matisse á Íslandi Menning upp á tvo milljarða verður til sýnis í Listasafni Íslands í jólamánuðinum og geta þá landsmenn í fyrsta sinni barið verk eftir sjálfan Matisse augum á íslenskri grundu. Innlent 5.12.2006 18:43
14 milljarða afgangur Borgarsjóður verður rekinn með 14 milljarða afgangi á næsta ári, í stað eins milljarðs halla á þessu ári, segir borgarstjóri sem kynnti fjárhagsáætlun borgarinnar í dag. Bókhaldsleikir, segir oddviti Samfylkingar. Hann segir útgjöld aukast umfram tekjur. Innlent 5.12.2006 18:31
Álit Samkeppniseftirlitsins vegna RÚV-frumvarps Samkeppniseftirlitið segir nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið ohf. skekkja samkeppnisstöðu keppinautanna og stríða gegn anda samkeppnislaga. Þetta kemur fram í áliti sem eftirlitið lagði fyrir menntamálanefnd vegna málsins. Innlent 5.12.2006 14:10
Næstmesta verðbólgan á Íslandi Vísitala neysluverðs innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar hækkaði um 1,7 prósent í október samanborið við 2,1 prósents hækkun á milli mánaða í september. Ef raforkuverð er undanskilið jafngildir þetta 2,2 prósenta verðbólgu sem er óbreytt á milli mánaða. Næstmesta verðbólgan er líkt og fyrr hér á landi. Viðskipti innlent 5.12.2006 13:59
Tímamót við Kárahnjúkavirkjun Búið er að opna aðrennslisgöngin sem ætlað er að flytja Jöklu úr Hálslóni yfir í stöðvarhúsið í Fljótsdal. Borað var í gegnum síðasta haft ganganna klukkan hálf ellefu í morgun. Innlent 5.12.2006 12:58
Segir erfiðar samningalotur framundan Formaður nefndar Evrópusamtaka atvinnulífsins um loftslagsbreytingar telur að árangur hafi náðst á loftslagráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Naíróbí í Kenía í síðasta mánuði. Hann varar þó við erfiðu samningaferli næstu árin. Innlent 5.12.2006 12:17
Fráleit ásökun um óheiðarleika Eyþór Arnalds segir það tilhæfulaust að tengja samstarfsslit meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á Selfossi við sína persónu eða hagsmuni. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vísa einnig til föðurhúsanna ásökunum um óheiðarleika í starfi í bæjarstjórninni og standa við fullyrðingar sínar um að steytt hafi á óhóflegum tillögum framsóknarmanna um allt að 70% hækkun til bæjarfulltrúa. Innlent 5.12.2006 12:05
Höggva sitt eigið jólatré Sífellt fleiri höggva sitt eigið jólatré hér á landi. Skógræktarfélag Reykjavíkur býður í ár líkt og fyrri ár fólki að koma í Heiðmörk fyrir jólin og höggva jólatré gegn hóflegu gjaldi. Innlent 5.12.2006 10:32
Aðstoða þá sem huga að leiðum ástvina Starfsmenn Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastdæmanna aðstoða í desember þá sem huga að leiðum ástvina sinna. Á Þorláksmesssu og aðfangadag verða starfsmenn í kirkjugörðunum þremur; Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði og gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Innlent 5.12.2006 09:35
Vopnaeign könnuð í Vík í Mýrdal Lögreglumenn í Vík í Mýrdal hafa að undanförnu gengið í hús, þar sem vitað er um þrjú skotvopn, eða fleiri, og kannað hvort þau eru geymd á viðeigandi hátt, samkvæmt reglugerð. Innlent 5.12.2006 08:36
Missti stjórn á bíl og lenti á ljósastaur Ökumaður fólksbíls missti stjórn á farartækinu á Nýbýlavegi á níunda tímanum í gærkvöldi og lenti á ljósastaur. Innlent 5.12.2006 08:33
Risaborinn við Kárahnjúka kominn í lag Verktakar við Kárahnjúka hafa unnið hörðum höndum að viðgerð á risabornum, sem bilaði í gær þegar hann átti að bora í gegnum síðasta haftið á milli Hálslóns og stöðvarhússins. Innlent 5.12.2006 08:27
Þrír bæjarstjórar á fullum launum í Árborg Eftir sviftingar í bæjarstjórn Árborgar og bæjarstjóraskipti í gær, er komin upp sú staða að þrír bæjarstjórar eru nú á fullum launum í Árborg. Innlent 5.12.2006 08:22
Lyfjafyrirtæki verja allt að 400 milljónum á ári til að liðka fyrir sölu á lyfjum sínum Talið er að lyfjafyrirtæki verji allt að fjögur hundruð milljónum króna á ári til að liðka fyrir sölu á lyfjum sínum hér á landi. Þetta kom fram í svari Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Hjálmars Árnasonar á Alþingi. Innlent 5.12.2006 08:16
Ökuníðingur játar að hafa ekið á Reykjanesbraut en ekki á 200 km hraða Ungi maðurinn , sem mældist á rúmlega 200 kílómetra hraða á Reykjanesbraut fyrir helgi og stakk lögregluna af, hefur loks játað að hafa verið á ferð á umræddum stað og á umræddum tíma. Innlent 5.12.2006 08:12
Handrukkarar á ferð? Tveir karlmenn eru í haldi lögreglunnar í Keflavík eftir að þeir voru handteknir þar um hálf sjö í gærkvöldi, vegna líkamsárásar. Þeir höfðu ráðist á mann fyrir utan heimili hans í bænum og leikið hann svo hart að hann var fluttur á slysadeild Landsspítalans þar sem gert var að sárum hans. Innlent 5.12.2006 08:00
Tvöföldun Suðurlands- og Vesturlandsvega kostar 20 milljarða Tvöföldun Suðurlandsvegar að Selfossi og Vesturlandsvegar að Hvalfjarðargöngum myndi kosta um 20 milljarða - helmingi meira heldur en svokölluð tveir plús einn leið með vegriði. Sveitarstjórnarmenn í Ölfusi eru hins vegar ekki til viðræðu um annað en tvöföldun. Innlent 4.12.2006 18:27
Bónus styrkir Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Bónus færði í dag Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur 21 milljón króna að gjöf. Þessar tvær stofnanir taka sameinast um að veita jólaaðstoð nú í desember. Aðstoðin er veitt bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni þeim sem búa við bág kjör. Innlent 4.12.2006 15:33
Nöfn þeirra sem létust í slysinu á Sandskeiði Stúlkan sem lést í bílslysinu á Sandskeiði á laugardaginn hét Svandís Þula Ásgeirsdóttir. Svandís var fimm ára til heimilis að Sandvaði 1 í Reykjavík. Karlmaður sem einnig lést í slysinu hét Ásgeir Jón Einarsson til heimilis að Fljótaseli 10 í Reykjavík. Ásgeir Jón var 29 ára, einhleypur og barnlaus. Innlent 4.12.2006 15:12
Landsbankinn mælir með kaupum í Icelandair Greiningardeild Landsbankans mælir með þátttöku í hlutafjárútboði Icelandair Group Holding, sem lýkur í kvöld. Deildin telur virði félagsins standa undir útboðsgengi og mælir með að langtímafjárfestar taki þátt í útboðinu. Viðskipti innlent 4.12.2006 13:40