Lög og regla
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 120 ›
Lífeyrissjóður var sýknaður Hæstiréttur féllst ekki á kröfu fyrrum bankastarfsmanns um að breyting á reglugerð um lífeyrisgreiðslur hefði svipt hann áunnum réttindum. Fyrir gildistöku reglugerðar í árslok 1997 var miðað við laun eftirmanns, en vísitölu neysluverðs á eftir. Innlent 23.10.2005 15:04
Sýslumaður verður tollstjóri Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði, hefur óskað eftir því með tilvísun til tilraunaverkefnis um tímabundin vistaskipti ríkisstarfsmanna að taka við störfum hjá embætti Tollstjórans í Reykjavík, frá 15. október 2005 til 1. maí 2006. Fallist hefur verið á ósk sýslumannsins og honum veitt leyfi frá störfum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Innlent 23.10.2005 15:04
Kona fær greiddar bensíndælur Kona sem leigði olíufélaginu Skeljungi land og húsnæði í Kópavogi undir bensínstöð fær að eiga tanka og dælubúnað samkvæmt dómi Hæstaréttar. Hæstiréttur sneri í vikunni fyrri dómi Héraðsdóms Reykjaness frá því í desember í fyrra. Innlent 23.10.2005 15:04
Tíu mánuðir fyrir fjárdrátt Fyrrum framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfjarða hefur verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir að draga sér rúmar 17 milljónir króna á árunum 2002 og 2003. Maðurinn játaði fjárdráttinn, en hann færði upphæðir til skuldar og endurgreiddi í mörgum greiðslum. Hæst varð skuldin rúmar 5 milljónir. Dómurinn var skilorðsbundinn. Innlent 23.10.2005 15:04
Óvissa um nýjan vef dómstólanna Anna Mjöll Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Dómstólaráðs, segir ekki hægt að segja til um hvernær ný heimasíða héraðsdómstóla landsins komist í loftið, en búið er að loka þeirri sem fyrir var. Nú er á slóðinni domstolar.is einungis að finna tilkynningu um að ný síða sé væntanleg. Innlent 23.10.2005 15:04
Gæsluvarðhald framlengt Framlengt hefur verið til 25. nóvember gæsluvarðhald yfir pilti sem játað hefur að hafa stungið annan á menningarnótt í Reykjavík í ágúst. Pilturinn er grunaður um að hafa stungið tvo, en vill ekki kannast við nema eina árás. Innlent 23.10.2005 15:04
Skilorðsdómur fyrir fjárdrátt Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í gær fyrrverandi framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Vestfirðinga í tíu mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir fjárdrátt í opinberu starfi. Innlent 23.10.2005 15:04
Borgin hótar lögsókn Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir standa af hálfu borgarinnar að farið verði með samráðsmál olíufélaganna fyrir dómstóla fá borgin ekki greiddar bætur.Í gær rann út frestur sem Reykjavíkurborg gaf olíufélögunum til greiðslu bóta vegna verðsamráðs sem þau höfðu í tengslum við tilboðsgerð vegna olíusölu árið 1996. Innlent 23.10.2005 15:04
Þrotabúskrafa tekin fyrir í dómi Tekin var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær krafa Sparisjóðs Vestfjarða í þrotabú Kristjáns Ragnars Kristjánssonar, eins sakborninga úr Landssímamálinu. Björn Jóhannesson, lögmaður sparisjóðsins, segir deilt um hvers eðlis krafa sjóðsins sé, en hún sé til komin vegna láns til fyrirtækisins Lífsstíls. Innlent 23.10.2005 15:04
Milljóndollara seðlar Bíræfnir peningafalsarar hafa undanfarna mánuði reynt að fá íslenska banka til að taka sjötíu einnar milljónar dollara seðla sem veð gegn láni. Það jafngildir nærri fjórum og hálfum milljarði króna. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur seðlana undir höndum og vinnur nú að því með lögregluyfirvöldum í Bretlandi að hafa hendur í hári svindlaranna. Innlent 23.10.2005 15:04
Eykur eftirlit vegna rjúpnaveiða Lögregla um allt land hyggst auka eftirlit sitt vegna þess að rjúpnaveiðar hefjast á morgun að nýju eftir tveggja ára hlé. Veiðimenn á Vesturlandi eru varaðir við því að á sama tíma og þeir halda til veiða leita bændur fjár. Innlent 23.10.2005 15:04
Ríkissaksóknari kemur ekki að máli Bogi Nilsson ríkissaksóknari mun ekki koma að meðferð Baugsmálsins svokallað fyrir hönd ákæruvaldsins, eins og tilkynnt var á dögunum, vegna tengsla sinna við endurskoðunarfyrirtæki Baugs. Innlent 23.10.2005 15:04
Fundu töluvert af fíkniefnum Tveir karlmenn og tvær konur voru handtekinn í íbúð í vesturbæ Kópavogs í gærkvöldi eftir að hópur lögreglumanna og tollvarða, ásamt fíkniefnahundi, fann þar talsvert af fíkniefnum af öllum gerðum sem greinilega voru ætluð til sölu. Lögregla vill ekki gefa upp magnið en segir það vera talsvert. Innlent 23.10.2005 15:04
Féflettur á Goldfinger Karlmaður telur að sér hafi verið byrluð ólyfjan á nektardansstaðnum Goldfinger og þar hafi menn nýtt sér ástandið og hreinsað út af kortareikningi hans. Lögreglan segir sönnunarfærslu í slíkum málum afar erfiða. Innlent 23.10.2005 15:04
Kynferðisbrot sjaldnast kærð Innan við helmingur þeirra fórnarlamba kynferðisbrota sem leita til Stígamóta, hefur fengið hjálp annars staðar. Aðeins hefur verið ákært í einu slíku máli af hverjum tuttugu. Innlent 23.10.2005 15:04
Dópsalar dæmdir í fangelsi Tveir hafa verið dæmdir í fjögurra mánaða fangelsi hvor fyrir að selja þremur öðrum 50 grömm af amfetamíni í vor. Dómur var upp kveðinn í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Efnin voru keypt í Reykjavík en seld fyrir norðan. Þeir sögðust hafa keypt 20 grömm af amfetamíni og drýgt upp í 50 sem þeir voru ákærðir fyrir að selja á 250.000 krónur. Innlent 23.10.2005 15:04
Fangi fékk eiturlyf í pósti Fangi í fangelsinu á Akureyri fékk 6. júní í sumar óþekktan mann til að fela eitt gramm af maríhúana í tölvulyklaborði og senda sér í pósti í fangelsið. Héraðsdómur Norðurlands eystra ákvað í vikunni að gera manninum ekki sérstaka refsingu vegna málsins. Innlent 23.10.2005 15:04
18 mánuðir fyrir sinnuleysi Hæstiréttur dæmdi í dag tvo menn í 18 og 24 mánaða fangelsi fyrir brot á hegningarlögum. Sá sem fékk tveggja ára dóminn braut skilorð með ítrekuðum umferðar- og fíkniefnalagabrotum. Sá sem fékk átján mánaða refsingu hlaut sinn dóm fyrir að koma ekki ungri stúlku til bjargar í neyð, en stúlkan lést eftir að hafa tekið of stóran skammt af eiturlyfjum með manninum sem tilkynnti ekki um ástand hennar fyrr en nokkrum klukkustundum eftir að hún var talin látin. Innlent 23.10.2005 15:04
Fasteignasali í árs fangelsi Hæstiréttur þyngdi í dag refsingu yfir fasteignasala fyrir fjárdrátt og skjalafals í starfi. Héraðsdómur hafði dæmt manninn í 9 mánaða fangelsi, sem að mestu var skilorðsbundið, en hæstiréttur þyngdi refsinguna í 12 mánaða fangelsi. Innlent 23.10.2005 15:04
Makaskipti hrepps og kirkju Dómstólar<cstyle name="[No character style]" /> Héraðsdómur Suðurlands ógilti í gær úrskurð óbyggðanefndar frá í mars 2002 um eignarhald á Grímsnesafrétti og jörðum umhverfis Lyngdalsheiði að því er varðar land sem Grímsneshreppur fékk í makaskiptum við Þingvallakirkju árið 1896. Innlent 23.10.2005 15:04
Dæmd fyrir vegabréfafals Par á fertugsaldri frá Sri Lanka hefur verið dæmt í 45 daga fangelsi fyrir að hafa framvísað á Keflavíkurflugvelli fölsuðum vegabréfum á leið sinni vestur um haf. Með fólkinu í för var piltur sem talinn er vera 17 ára, einnig með fölsuð skilríki, en sökum aldurs sætti hann ekki ákæru. > Innlent 23.10.2005 18:59
Svikarar bjóða milljónir Fjársvikamenn um allan heim beita sífellt lævísari leiðum til að lokka fólk til að láta fé af hendi gegn loforði um ofsagróða. Bréf með tilboðum um háar fjárhæðir gegn því að viðkomandi gefi upp persónuupplýsingar og jafnvel kreditkortanúmer eru ein leiðin sem svikararnir nota. > Innlent 23.10.2005 18:59
Dularfull námsstefna Grunur leikur á að enn einn svindlpósturinn sé í umferð hér á landi. Fjöldi fólks hefur undanfarna daga fengið boð um að sækja ókeypis námsstefnu á Grand Hótel í nóvember, en hótelstjórinn segir hana hins vegar ekki á dagskrá. Lögreglan telur að taka beri boðinu með fyrirvara. > Innlent 23.10.2005 18:59
Múgæsingur á Seltjarnarnesi Fréttaflutningur af viðveru Steingríms Njálssonar á Seltjarnarnesi hefur valið nokkrum usla í bænum, en Steingrímur er margdæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Í síðustu viku gerðu unglingar meðal annars aðsúg að húsi þar sem Steingrímur átti að hafa verið. Innlent 23.10.2005 15:03
Hnuplað fyrir milljarða Búðarþjófar leggja oft mikið á sig við iðju sína og beita ótrúlegustu aðferðum. Íslendingar stálu úr verslunum á síðasta ári fyrir einn komma átta milljarða króna. Spenna, gróðafíkn eða fátækt býr gjarnan að baki búðahnuplinu. Innlent 23.10.2005 15:03
Fékk milljónasekt og skilorð Jón Axel Ólafsson, fyrrum fjölmiðlamaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir brot á skatta- og hegningarlögum árin 1998 og 1999. Innlent 23.10.2005 15:03
Þjófnuðum fækkar í Hafnarfirði Þjófnuðum og eignaspjöllum hefur farið fækkandi í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði á árunum 2000-2004. Samkvæmt tölfræðilegri úrvinnslu lögreglunnar á ýmsum afbrotum í umdæminu má sjá að eignaspjöllum fækkaði um 35 prósent frá árinu 2002 og þjófnuðum fækkaði um 45 prósent. Innlent 23.10.2005 15:03
Kerfi hafi ekki sagt sitt síðasta Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir í grein á heimasíðu sinni í gær að réttarkerfið hafi ekki sagt sitt síðasta í kærumálinu gegn Baugi og að lögheimildir séu til þess að ákæruvaldið taki mið af því sem fram hafi komið hjá Hæstarétti við frekari ákvarðanir um framhald málsins. Innlent 23.10.2005 15:03
Jón Axel fékk 3 mánuði Jón Axel Ólafsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður, var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir brot á skatta- og hegningarlögum þegar hann sat sem stjórnarformaður Íslenska fjölmiðlafélagsins ehf. Honum var einnig gert að greiða 14,3 milljónir króna í sekt sem Jón Axel á að greiða innan fjögurra vikna, ella sæta sex mánaða fangelsi. Innlent 23.10.2005 15:03
Lögbannsmál þingfest Mál Jónínu Benediktsdóttur á hendur Fréttablaðinu og Kára Jónassyni ritstjóra þess var þingfest í Héraðsdómi Reykjvíkur í gærmorgun. Krafist er staðfestingar á lögbanni sem sett var á birtingu einkagagna Jónínu og upptöku á gögnum hjá blaðinu, auk bóta og refsingar. Innlent 23.10.2005 15:03