Erlent
Loftslagsbreytingar eru ekki okkur að kenna Erlent 12.10.2006 16:16 Blaðberar grunaðir um innbrot Erlent 12.10.2006 15:23 Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. Erlent 12.10.2006 15:20 Skoðana hvað ? Erlent 12.10.2006 14:59 Dow Jones í methæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones sló met í dag þegar hún fór í 11.909,92 stig og rauf 11.900 stiga múrinn. Ástæðan er aukin bjartsýni fjárfesta í kjölfar aukinnar afkomu fyrirtækja á borð við McDonald's þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagslífinu. Viðskipti erlent 12.10.2006 14:40 Viðurkenndi undirbúning árása Erlent 12.10.2006 13:43 Metviðskiptahalli í Bandaríkjunum Vöruskipti voru óhagstæð um 69,8 milljarða bandaríkjadali eða rúma 4.815 milljarða íslenskra króna í Bandaríkjunum í ágúst. Viðskiptahallinn vestra nemur 716,7 milljörðum dala, jafnvirði 49.445 milljarða íslenskra króna og hefur aldrei verið meiri. Viðskipti erlent 12.10.2006 13:39 « ‹ 256 257 258 259 260 261 262 263 264 … 334 ›
Hershöfðinginn stendur við yfirlýsingar sínar Nýr yfirmaður breska heraflans, Sir Richard Dannatt, segist standa við yfirlýsingar sínar um að réttast væri að Bretar kölluðu fljótlega hermenn sína heim frá Írak. Yfirlýsing hans er á skjön við stefnu breskra stjórnvalda og hefur Dannatt verið kallaður á fund varnarmálaráðherra Breta. Erlent 13.10.2006 11:28
Fimm látnir eftir sjálfsmorðsárás í Kandahar Að minnsta kost fimm óbreyttir borgarar létust í sjálfsmorðssprengjuárás á bílalest á vegum Atlantshafsbandalagsins í borginni Kandahar í suðurhluta Afganistans í morgun. Tveir hermenn á vegum NATO særðust í sprengingunni en ekki hefur verið gefið upp hverrrar þjóðar þeir eru. Erlent 13.10.2006 10:40
Sameinast um yfirtöku á Euronext Kauphallir á Ítalíu og í Þýskalandi hafa gert með sér samkomulag um að gera yfirtökutilboð í samevrópska hlutabréfamarkaðinn Euronext. Verði af yfirtöku skáka markaðirnir tilboði NYSE Group, sem rekur kauphöllina í New York í Bandaríkjunum, í evrópska markaðinn. Viðskipti erlent 13.10.2006 09:36
Íhuga að halda sig heima föstudaginn þrettánda Einn af hverjum fjórum Bretum íhugar að halda sig heima í dag vegna þeirrar ógæfu sem fylgir föstudeginum þrettánda. Hjátrú meðal Breta virðist þó fara minnkandi ef marka má nýja skoðanakönnun sem gerð var vegna dagsins í dag. Lífið 13.10.2006 08:23
Sensex í nýjum hæðum Indverska hlutabréfavísitalan Sensex fór í nýjar hæðir í kauphöll Indlands í dag þegar gengi hennar fór í 12.677 stig. Gengi vísitölunnar hefur aldrei verið hærra. Ástæðan fyrir 1,1 prósenta hækkun á markaðnum í dag var aukin bjartsýni fjárfesta um efnahagshorfur á Indlandi. Viðskipti erlent 13.10.2006 09:21
Elsti Kúbverjinn látinn Eitt hundrað tuttugu og sex ára Kúbverji, Benito Martinez Abogin, sem var þekktur sem elsti maður Kúbu, lést í fyrradag. Erlent 13.10.2006 08:14
Tveir deila friðarverðlaunum Nóbels Bangladessbúinn Mohammad Yunus og Grameen-bankinn sem hann stofnaði deila með sér friðarverðlaunum Nóbels í ár. Þetta var tilkynnt í morgun. Verðlaunin fá þeir fyrir viðleitni sína til að stuðla að efnahagslegum og félagslegum umbótum meðal hinna fátæku. Erlent 13.10.2006 09:04
Sex létust í sprengingu á lögreglustöð í Írak Að minnsta kosti sex létust og tólf særðust þegar sprengja sprakk á lögreglustöð í borginni Hilla í Írak í morgun. Á meðal látinnar er yfirmaður sérsveitar lögreglunnar á svæðinu. Þeir slösuðu eru allt lögreglumenn. Erlent 13.10.2006 08:29
Reynt að ná sátt um refsiaðgerðir vegna kjarnorkutilrauna Kínverjar og Suður-Kóreumenn styðja viðeigandi og nauðsynlegar aðgerðir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, gegn Norður-Kóreumönnum, vegna kjarnorkutilrauna þeirra. Öryggisráðgjafi Suður-Kóreu sagði þetta eftir fund forseta Suður-Kóreu og forseta Kína í morgun. Erlent 13.10.2006 07:30
Bænir í stað boltans Knattspyrna hefur lotið í lægra haldi fyrir trúariðkun í Nígeríu. Færa þurfti kappleik landsliðs karla sem skipað er leikmönnu 20 ára og yngri frá þjóðrleikvanginu í höfuðborginni Abuja vegna kristinnar bænasamkomu. Leikurinn fer fram á laugardaginn en samkoman hefst annað kvöld og stendur í sólahring. Erlent 12.10.2006 23:07
Bannað að gleðja hermenn á vakt Ráðamenn í Tælandi, sem rændu þar völdum í síðasta mánuði, hafa bannað þarlendum dansmeyjum að dansa nærri hermönnum og skriðdrekum þeirra á götum Bangkok. Aðfarir þeirra dragi athylgi mannanna frá því að gæta þess að allt fari fram með frið og spekt á götum borgarinnar. Erlent 12.10.2006 22:57
Atkvæðagreiðslu frestað Kínverjar og Rússar hafa fengið það í gegn að atkvæðagreiðslu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um ályktun Bandaríkjamanna vegna kjarnorkutilrauna Norður-kóreumanna verður frestað. Bandaríkjamenn vildu að greidd yrðu atkvæði um tillöguna á morgun en svo virðist sem það verði ekki gert fyrr en í fyrsta lagi um helgina. Erlent 12.10.2006 22:45
Madonna tekur að sér barn frá Malaví Poppsöngkonana Madonna og eiginmaður hennar, breski kvikmyndaleikstjórinn Guy Ritchie, sóttu í dag um að fá að ættleiða ársgamlan dreng frá Malaví. Þau tóku drenginn í fóstur í dag eftir að dómari í heimalandi hans hafði heimilað það. Um leið lögðu hjónin fram formlega umsókn um að fá að ættleiða hann. Erlent 12.10.2006 22:18
Yfirmaður breska heraflans vill kalla hermenn heim frá Írak Yfirmaður breska heraflans vill kalla alla breska hermenn í Írak heim. Hann segir veru þeirra þar auka á óstöðugleika í landinu. Þessi yfirlýsing hans er algjörlega á skjön við stefnu breskra stjórnvalda. Erlent 12.10.2006 21:58
Tyrkir kjósa þing að ári Tyrkneska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga að ári. Áður höfðu stjórnmálaskýrendur í Tyklandi gert því skóna að Réttlætis- og þróunarflokkurinn, sem situr í ríkisstjórn, ætlaði að boða til kosninga hið fyrsta. Erlent 12.10.2006 21:44
Fela sig meðal maríúana-plantna Kanadískir hermenn sem berjast nú við Talíbana í Afganistan hafa mætt heldur óvenjulegum vegtálma á ferð sinni. Þar eru að ræða skóglendi þar sem þriggja metra háar maríúana-plöntur vaxa. Erfiðlega hefur reynst að finna þá Talíbana sem þar fela sig. Erlent 12.10.2006 20:31
Refsivert að tala um annað en þjóðarmorð Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp um að refsivert verði að halda fram að Tyrkir hafi ekki framið þjóðarmorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Tyrkir eru fjúkandi reiðir og hyggjast gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að efri deild og forseti geri frumvarpið að lögum. Erlent 12.10.2006 19:52
Íbúar í New York voru slegnir Sá sem flaug lítilli einkavél á byggingu í New York í gærkvöldi reyndist vera hafnarboltastjarna úr New York Yankees-liðinu. Íslendingur, sem býr í næstu götu, segir borgarbúa hafa verið slegna og óttast að um hryðjuverk væri að ræða, en lögregluyfirvöld hafa útilokað að svo sé. Erlent 12.10.2006 19:48
Starfsemin flutt á Grundartanga Stjórn Elkems, móðurfélags Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, mun leggja það til á morgun að loka verksmiðjunni í Ålvik í Noregi og flytja starfsemina á Grundartanga. Þetta var fullyrt í fréttum norska ríkissjónvarpsins í kvöld. Erlent 12.10.2006 19:18
Ford á sjúkrahús Gerald Ford, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var fluttur í sjúkrahús í Kaliforníu í dag. Ford, sem er 93 ára, gengst þar undir rannsóknir. Ekki hefur fengist gefið upp hvað hrjáir hann en hann er ekki sagður illa haldinn. Erlent 12.10.2006 18:23
Fengu að hitta Guantanamo fanga Fulltrúar Rauða krossins hafa fengið aðganga að 14 grunuðum hryðjuverkamönnum sem fluttir voru í leynifangelsum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, til gæslu í fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu. Bandaríski herinn greindi frá þessu í dag. Erlent 12.10.2006 18:13
Ofbeldi gegn börnum oft hulið og samþykkt Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel samþykkt í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi samtakanna í gær. Erlent 12.10.2006 16:39
1 prósents verðbólga í Þýskalandi Verðlag í Þýskalandi lækkaði um 0,5 prósent á milli mánaða í september og mældist 1 prósents verðbólga í landinu á ársgrundvelli. Viðskipti erlent 12.10.2006 16:32
Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. Erlent 12.10.2006 15:20
Dow Jones í methæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones sló met í dag þegar hún fór í 11.909,92 stig og rauf 11.900 stiga múrinn. Ástæðan er aukin bjartsýni fjárfesta í kjölfar aukinnar afkomu fyrirtækja á borð við McDonald's þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagslífinu. Viðskipti erlent 12.10.2006 14:40
Metviðskiptahalli í Bandaríkjunum Vöruskipti voru óhagstæð um 69,8 milljarða bandaríkjadali eða rúma 4.815 milljarða íslenskra króna í Bandaríkjunum í ágúst. Viðskiptahallinn vestra nemur 716,7 milljörðum dala, jafnvirði 49.445 milljarða íslenskra króna og hefur aldrei verið meiri. Viðskipti erlent 12.10.2006 13:39