Erlent
205 206 207 208 209 210 211 212 213 … 334 ›
Nektardans er list Norskur áfrýjunardómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að nektardans sé listgrein og því eigi nektardansstaðir að vera undanþegnir virðisaukaskatti. Erlent 6.12.2006 19:03
Farsímanotkun talin skaðlaus Danskir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekkert bendi til þess að notkun farsíma geti valdið krabbameini þótt símarnir sendi frá sér öflugar rafsegulbylgjur. Erlent 6.12.2006 19:01
Grænt ljós á kaup NYSE á Euronext Stjórn samevrópska hlutabréfamarkaðarins Euronext greindi frá því í dag að ráðgjafaþjónusta um góða stjórnarhætti fyrirtækja (ISS) hefði mælt með yfirtökutilboði NYSE Group, sem rekur kauphöllina í New York í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 6.12.2006 15:45
Ryanair framlengir tilboðsfrest í Aer Lingus Stjórn írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair hefur ákveðið að framlengja yfirtökutilboðsfrest í írska innanlandsflugfélagið Aer Lingus fram til 22. desember næstkomandi í kjölfar þess að innan við 1 prósent hluthafa í Aer Lingus studdi tilboðið. Viðskipti erlent 6.12.2006 15:03
Tvennt líflátið í Sádi-Arabíu Í dag tóku stjórnvöld í Sádi-Arabíu pakistanskan karl og konu af lífi vegna fíkniefnasmygls og hafa þá alls 31 verið tekin af lífi í landinu það sem af er ári. Parið var tekið af lífi í borginni Mecca en öllum dauðadómum er framfylgt opinberlega. Ströng sharíalög, eða íslömsk lög, gilda í konungsdæminu. Erlent 6.12.2006 14:40
Neyðarástand í Sómalíu vegna flóða Sameinuðu þjóðirnar báðu aðildarþjóðir í dag um styrk að verðmæti 18 milljónum dollara, eða 1.3 milljarða íslenskra króna, til þess að hjálpa þeim sem hafa orðið heimilislausir vegna hinna gríðarlegu flóða í Sómalíu undanfarið. Erlent 6.12.2006 13:42
Bush segist ætla fara eftir ráðleggingum George W. Bush Bandaríkjaforseti lofaði því í dag að taka ráðleggingar nefndar um stefnuna í Írak mjög alvarlega. Erlent 6.12.2006 13:09
Neyðarlög sett á Fídjieyjum Neyðarlög eru í gildi á Fídjieyjum eftir að her landsins rændi þar völdum í gær. Leiðtogar valdaránsins hafa haft hraðar hendur undanfarinn sólarhring, meðal annars leyst upp þingið, sett nýjan forsætisráðherra í embætti til bráðabirgða og rekið lögreglustjóra ríkisins. Erlent 6.12.2006 12:56
Farsímanotkun ekki skaðleg Danskir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekkert bendi til að notkun farsíma geti valdið krabbameini. Erlent 6.12.2006 12:46
Lugovoi mun tala við breska lögregluþjóna Andrei Lugovoi, lykilvitni í morðinu á rússneska fyrrum njósnaranum Alexander Litvinenko, mun hitta breska lögreglumenn í dag en frá þessu skýrði rússneska ITAR-Tass fréttastofan í dag. Erlent 6.12.2006 11:48
Trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða Frakkar sögðu í dag að heimsveldin sem nú funda í París, til þess að reyna að ná samkomulagi vegna kjarnorkuáætlana Írans, yrðu að hraða verkinu því annars væri trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða. Erlent 6.12.2006 11:34
Ísraelsher skýtur á Palestínumenn Ísraelskir hermenn skutu á og særðu tvo Palestínumenn sem nálguðust landamæri Ísraels við Gaza svæðið. Palestínskir sjúkraflutningamenn sögðu að mennirnir hefðu verið óvopnaðir en þetta er fyrsta árásin sem ísraelski herinn gerir á svæðinu síðan sæst var á vopnahlé þann 26. nóvember síðastliðinn. Erlent 6.12.2006 11:08
Kabila settur í embætti Joseph Kabila, sigurvegari í forsetakosningum í Austur-Kongó, verður settur í embætti í dag. Kabila bar sigur af Jean-Pierre Bemba í einum mikilvægustu kosningum í Afríku undanfarna áratugi. Búist er við fyrirmönnum frá fjölmörgum löndum vegna athafnarinnar en Bemba hefur þó sagt að hann muni ekki vera viðstaddur. Erlent 6.12.2006 10:49
Einræktun fósturvísa leyfð í Ástralíu Ástralir hafa ákveðið að leyfa einræktun á fósturvísum eftir miklar og tilfinningaríkar umræður en forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, var á móti lögunum. Hin nýju lög gera það kleift að rannsaka hugsanlegar erfðalækningar á erfiðum sjúkdómum og fötlunum. Erlent 6.12.2006 10:24
Ísraelar treysta ekki þjóðstjórn Palestínumanna Varaforsætisráðherra Ísraels, Shimon Peres, sagði í dag að þjóðstjórn í Palestínu myndi engu áorka auk þess sem hún væri frekar miðuð að því að fá pening þeim til handa en að vinna að friðsamlegri lausn deilunnar við Ísrael. Erlent 6.12.2006 09:58
8 látnir og 40 særðir Sprengjum var varpað á vinsælt verslunarhverfi í miðborg Bagdad í dag. Átta manns létust og um 40 særðust. Sprengjurnar voru fjórar eða fimm talsins og gerðist þetta í eldra hverfi Bagdad en í því hefur nýlega orðið mikil aukning á árásum. Erlent 6.12.2006 09:07
Pervez býður fram sáttahönd Pervez Musharraf, forseti Pakistan, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann væri tilbúinn til þess að gefa upp á bátinn allar kröfur til hins umdeilda héraðs Kasmír ef Indland myndi gjalda í sömu mynt og leyfa svæði í Himalaya fjöllum, sem Pakistan og Indland hafa lengi deilt um, að öðlast sjálfsstjórnarrétt. Erlent 6.12.2006 08:52
Of mikil tilfinningasemi varðandi hvalveiðar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sagði í viðtali við Reuters fréttaveituna í morgun að hvalveiðar Íslendinga væru ekki ógn við lífríki sjávar og að alþjóðleg viðbrögð einkenndust af of mikilli tilfinningasemi. Erlent 6.12.2006 08:35
Stjórnarkreppa í Úkraníu Viktor Yuschenko, forseti Úkraínu, ætlar að bjóða þinginu byrginn og fyrirskipa að utanríkisráðherra landsins sitji sem fastast eftir að þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum og innanríkisráðherra Úkraínu í síðustu viku. Erlent 6.12.2006 08:18
Norður-Kórea segir langt í viðræður Sexveldaumræðurnar munu ekki hefjast á þessu ári eða í náinni framtíð vegna ósanngjarnra skilyrða Bandaríkjastjórnar en þessu halda norður-kóreskir embættismenn fram. Þessu skýrði rússneska fréttastofan Interfax frá í morgun en hún er ein af fáum fréttastofum sem hafa aðgang að norður-kóreskum fréttamiðlum. Erlent 6.12.2006 08:02
Átta láta lífið í sjálfsmorðsárás Sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp fyrir utan höfuðstöðvar bandarísks öryggisfyrirtækis í suðurhluta Afganistan í morgun. Átta létust í árásinni og þar af tveir Bandaríkjamenn. Árásin átti sér stað í borginni Kandahar. Erlent 6.12.2006 07:55
Ítalskar veggmyndir frá 14.öld loksins sýndar umheiminum Veggmyndir sem uppgötvuðust í gömlum sal í klaustri í Róm voru loks sýndar umheiminum í gær eftir níu ára viðgerðir. Erlent 6.12.2006 07:20
Engin umbreytt fita í New York Heilbrigðisráð New York borgar ákvað í gær að gera borgina þá fyrstu í Bandaríkjunum þar sem bannað er að nota umbreytta fitu í matvæli. Umbreytt fita er fita sem hefur verið efnabætt til þess að bragðbæta og gera hana endingarbetri en hún er notuð í fjölmörgum matvörum í dag. Erlent 6.12.2006 07:15
Gates samþykktur af varnarmálanefnd Varnarmálanefnd Bandaríkjaþings samþykkti einróma tilnefningu Robert Gates sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Gates kom fyrir nefndina í gær og svaraði spurningum hennar. Öldungadeildin mun í framhaldinu greiða atkvæði um tilnefningu Gates og ræður það því hvort hann taki við embættinu af Donald Rumsfeld. Erlent 6.12.2006 07:02
Neyðarástandi lýst yfir á Fídjieyjum Útvarpið á Fídji-eyjum greindi frá því í nótt að neyðarástandi verði lýst yfir í landinu í dag, en herinn framdi valdarán í landinu í fyrrinótt. Það var það fjórða sem framið er á eyjunum síðastliðin 20 ár. Erlent 6.12.2006 06:59
Lagt til að Bandaríkjaher verði til stuðnings Nefndin sem George W. Bush Bandaríkjaforseti setti á laggirnar til þess að endurskoða stefnu Bandaríkjanna í Írak skilaði af sér skýrslu sinni í morgun. Erlent 6.12.2006 06:54
Fjórða valdaránið á 19 árum Herinn á Fídji-eyjum rændi völdum í nótt og hneppti forsætisráðherra landsins í stofufangelsi. Þetta er fjórða valdaránið á eyjunum síðan 1987. Erlent 5.12.2006 17:22
Gildir einu hvort skilgreint sem borgarastyrjöld Tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak. Fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir ástandið þar verra en borgarastyrjöld. En á meðan tekist er á um hvort borgarastyrjöld geisi þar deyja fjölmargir Írakar víðsvegar um landið á degi hverjum og fyrir ættingju þeirra gildir einu hvernig átökin í Írak eru skilgreind. Erlent 5.12.2006 17:16
Forstjóraskipti hjá Rio Tinto Ákveðið hefur verið að skipta um forstjóra hjá ál- og námafyrirtækinu Rio Tinto. Leigh Clifford, forstjóri fyrirtækisins, mun láta af störfum í maí en við starfi hans tekur Tom Albanese. Viðskipti erlent 5.12.2006 16:10
Ríkið selur hlut sinn í Alitalia Ríkisstjórn Ítalíu hefur ákveðið að selja 30,1 prósents hlut sinn í flugfélaginu Alitalia gegn ákveðnum skilyrðum. Franska flugfélagið Air France-KLM hefur haft hug á kaupum og samruna flugfélaganna. Af því geti aðeins orðið verði skuldastaða flugfélagsins bætt verulega. Viðskipti erlent 5.12.2006 15:24
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent