Erlendar
242 243 244 245 246 247 248 249 250 … 264 ›
Yakubu fer ekki í Afríkukeppnina Nígeríski sóknarmaðurinn Yakubu hjá Middlesbrough hefur gefið út að hann muni ekki fara í Afríkukeppnina með landsliði sínu í næsta mánuði, en hann hefði misst úr sex til níu leiki í deildinni með Boro ef af því hefði orðiðið. Sport 20.12.2005 14:33
Er í fýlu út í Wenger út af jólakorti Nú er komið í ljós að Jose Mourinho, stjóri Chelsea, neitaði að taka í hönd Arsene Wenger eftir leik liðanna á dögunum af því hann var í fýlu yfir því að Wenger tók illa í einlægt jólakort sem Mourinho hafði sent honum fyrir leikinn, þar sem hann baðst afsökunar á ummælum sínum um Wenger í gegn um tíðina. Sport 20.12.2005 14:16
Tvíframlengt hjá Memphis og Detroit Detroit Pistons vann enn einn leikinn í NBA deildinni í nótt þegar liðið vann mjög nauman sigur á Memphis Grizzlies í tvöfaldri framlengingu 106-104. Chauncey Billups skoraði 30 stig fyrir Detroit og gaf 9 stoðsendingar, en Pau Gazol skoraði 32 stig og hirti 13 fráköst fyrir Memphis. Sport 20.12.2005 14:00
Ronaldinho bestur annað árið í röð Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona var kjörinn knattspyrnumaður ársins af FIFA annað árið í röð við sérstaka athöfn í kvöld og hlaut yfirburðakostningu. Frank Lampard hjá Chelsea varð í öðru sæti í kjörinu og félagi Ronaldinho hjá Barcelona, Samuel Eto´o varð í þriðja sæti. Sport 19.12.2005 20:30
Federer og Clijsters best á árinu Roger Federer og Kim Clijsters hafa verið útnefnd tennisleikarar ársins 2005 af alþjóða tennissambandinu. Fererer var í algjörum sérflokki á árinu og vann 11 mót, þar á meðal Wimbeldon og opna bandaríska meistaramótið, en Clijsters vann sig upp úr 134. sæti á styrkleikalistanum í það fyrsta og vann sigur á níu mótum. Sport 19.12.2005 18:29
Áttundi stjórinn rekinn Holger Fach þjálfara og Thomas Strunz knattspyrnustjóra Wolfsburg var sagt upp störfum hjá félaginu í dag eftir að liðið þótti valda miklum vonbrigðum það sem af er vetri. Þetta er því í áttunda skipti í vetur sem þjálfari í þýsku úrvalsdeildinni eru látinn taka pokann sinn. Sport 19.12.2005 18:08
Tólf sigrar í röð hjá Barca Spænsku meistararnir í Barcelona unnu sinn tólfta sigur í röð í deildinni um helgina, sem er besti árangur félagsins í hálfa öld. Portúgalski landsliðsmaðurinn Deco segir hinsvegar að það hjálpi þeim ekkert í lokaleik sínum á árinu þegar liðið tekur á móti Celta Vigo annað kvöld. Sport 19.12.2005 18:00
Junhui sigraði Davis í úrslitum Kínverski snókerspilarinn Ding Junhui vann góðan sigur á gömlu kempunni Steve David í úrslitaleik breska meistaramótsins í snóker í gær. Davis, sem var að keppa í sínum 100. úrslitaleik á ferlinum, þurfti að játa sig sigraðan 10-6 gegn Kínverjanum unga, sem er tuttugu árum yngri en Davis og er mikið efni. Sport 19.12.2005 17:22
Chelsea er dæmi um hvernig á ekki að reka félag Sepp Blatter, forseti FIFA er ekki hrifinn af því hvernig Chelsea sankar að sér útlendingum og segir að rekstur félagsins sé dæmi um hvernig eigi ekki að reka knattspyrnufélag. Hann segir að réttast væri að setja á reglur í ensku úrvalsdeildinni sem takmarka fjölda útlendinga í liðinum, eins og tíðkast víða annarsstaðar. Sport 19.12.2005 17:10
West Ham kaupir sóknarmann Úrvalsdeildarlið West Ham hefur gengið frá þriggja og hálfs árs samningi við ísraelska sóknarmanninn Yaniv Katan sem leikið hefur með Maccabi Haifa. Katan er aðeins 24 ára gamall, en spilaði m.a. með liðinu í Meistaradeildinni aðeins sautján ára gamall. Sport 19.12.2005 17:02
Brassarnir óhressir með stuðningsmennina Brasilísku leikmennirnir Ronaldo, Julio Baptista og Roberto Carlos hjá Real Madrid eru allir á einu máli um að óþolinmóðir áhorfendur á Bernabeu, heimavelli liðsins, séu ein helsta ástæða þess að liðið hefur átt erfitt uppdráttar þar í vetur. Sport 19.12.2005 14:45
Iquodala jafnaði troðslumet Háloftafuglinn Andre Iguodala hjá Philadelphia skoraði 26 stig í nótt þegar lið hans burstaði Toronto, en hann tróð boltanum alls sex sinnum í leiknum og það er það mesta í fimm ár hjá bakverði í NBA deildinni. Það er hinsvegar Dwayne Wade hjá Miami sem er með flestar troðslur allra bakvarða í NBA í vetur með 51 troðslu, en Iguodala kemur næstur þar á eftir með 39 troðslur. Sport 19.12.2005 14:20
Bruce heldur starfinu Stjórnarformaður Birmingham hefur gefið það út að Steve Bruce muni halda starfi sínu sem knattspyrnustjóri liðsins áfram, þrátt fyrir skelfilegt gengi það sem af er leiktíðinni. Bruce kallaði frammistöðu leikmanna sinna hörmulega í eftir 4-1 tap fyrir Manchester City um helgina. Sport 19.12.2005 14:08
Mourinho er hrokagikkur Bob Wilson, fyrrum markvörður Arsenal, segir að þó Jose Mourinho sé vissulega hæfileikaríkur knattspyrnustjóri, sé hroki hans ólíðandi og bendir því á að margir verði því fegnir þegar fer að halla undan fæti hjá honum. Sport 19.12.2005 13:38
Gæti átt yfir höfði sér sekt Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gæti átt yfir höfði sér sekt frá enska knattspyrnusambandinu vegna ummæla hans eftir leikinn við Chelsea í gær, þar sem hann lét ýmislegt flakka um lið Chelsea og dómara leiksins Rob Styles. Talið er líklegt að sambandið ræði við Wenger fljótlega og biðji hann að færa rök fyrir máli sínu. Sport 19.12.2005 13:24
Dæmdur í sex mánaða keppnisbann Varnarmaðurinn Ijah Anderson hjá Swansea hefur verið dæmdur í sex mánaða keppnisbann fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi á dögunum, en þar kom í ljós að hann hafði notað eiturlyf. Anderson hélt því fram að lyfjunum hefði verið laumað í drykk hans á skemmtistað, en það var ekki tekið til greina og nú verður honum líklega sparkað frá félaginu. Sport 19.12.2005 13:13
Fær Ronaldinho enn ein verðlaunin? Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldinho þykir afar líklegur til að verða fyrir valinu í kvöld þegar FIFA útnefnir knattspyrnumann ársins við hátíðlega athöfn. Ronaldinho hefur farið á kostum með Brasilíu og Barcelona og hefur sópað til sín verðlaunum undanfarið, enda þykir hann einfaldlega besti knattspyrnumaður heims. Sport 19.12.2005 12:48
Alonso fer til McLaren árið 2007 Þær stórfréttir bárust úr Formúlu 1 í morgun að heimsmeistarinn ungi, Fernando Alonso hjá Renault, hefur samþykkt að ganga til liðs við McLaren árið 2007 þegar samningur hans við Renault rennur út. Sport 19.12.2005 11:44
New Orleans skellti meisturunum New Orleans Hornets gerði sér lítið fyrir og lagði meistara San Antonio í NBA deildinni í nótt 89-76. Hornets héldu Tim Duncan í aðeins 11 stigum, sem er það lægsta sem hann hefur skorað í vetur. Tæplega 20.000 áhorfendur í Oklahoma City trylltust af fögnuði þegar þeir sáu nýliðann Chris Paul eiga frábæran leik og stýra liðinu til sigurs gegn sterku liði San Antonio. Sport 19.12.2005 10:50
Mark Van Persie var löglegt Arsene Wenger var afar óhress með frammistöðu Rob Styles dómara í tapinu fyrir grönnunum í Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Wenger þótti lið sitt vera rænt löglegu marki og sagði að Michael Essien hefði átt að vera rekinn af velli fyrir tæklingu sína á Lauren. Sport 18.12.2005 19:30
Hefur ekki áhyggjur af Arsenal lengur Jose Mourinho segir að með sigrinum á Arsenal í dag, þar sem Chelsea náði 20 stiga forskoti á granna sína, geti hann hætt að hafa áhyggjur af Arsenal í toppbaráttunni og muni þess í stað horfa til Manchester United og Liverpool framvegis. Sport 18.12.2005 18:59
Ætlar að skrifa undir nýjan samning Ef marka má fréttir úr þýskum blöðum í dag, mun markvörðurinn Oliver Kahn líklega skrifa undir nýjan samning við Bayern sem gilda mun til ársins 2008. "Mér líður of vel hérna til að hugsa um að fara annað," sagði Kahn. Kahn hefur verið hjá Bayern síðan 1994 og eftir frábæra frammistöðu með liðinu á árinu, er talið víst að hann verji mark Þjóðverja á HM í sumar. Sport 18.12.2005 18:44
Chelsea sigraði Arsenal Chelsea vann góðan 2-0 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag og er sem fyrr með þægilegt forskot á toppnum. Þetta var þriðja tap Arsenal í deildinni í röð, en það hefur ekki gerst áður síðan Arsene Wenger tók við liðinu á sínum tíma. Það voru miðjumennirnir Arjen Robben og Joe Cole sem skoruðu mörk Chelsea, sem undirstrikaði styrk sinn enn eina ferðina. Sport 18.12.2005 17:59
Defoe fær óumbeðið jólafrí Enski landsliðsmaðurinn Jermaine Defoe meiddist á ökkla í leiknum gegn Middlesbrough í dag og telur Martin Jol, stjóri liðsins, að hann muni verða frá í að minnsta kosti tvær vikur fyrir vikið. Þetta eru mjög slæm tíðindi fyrir lið Tottenham, sem er við það að missa egypska framherjan Mido í Afríkukeppnina og hefur því úr litlu að moða með framherja í hinni stífu jólatörn sem framundan er. Sport 18.12.2005 17:47
Meiðslin ekki eins alvarleg og óttast var Meiðsli James Morrison, leikmanns Middlesbrough, eru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu, en hann rotaðist í leik Boro og Tottenham fyrr í dag eftir samstuð við Robbie Keane. Morrison lá hreyfingarlaus á vellinum eftir að hafa fengið spark í höfuðið, en þegar til búningsherbergja kom, rankaði hann við sér og er nú á batavegi. Sport 18.12.2005 17:37
Mílanóliðin í stuði Mílanóliðin AC og Inter söxuðu á forskot Juventus á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu í dag, en liðin unnu bæði sannfærandi 4-0 sigra á andstæðingum sínum. Sport 18.12.2005 17:13
Grétar Rafn skoraði fyrir Alkmaar Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson skoraði þriðja og síðasta mark AZ Alkmaar í dag þegar það sigraði RKC Waalwijk 3-0 í hollensku fyrstu deildinni í dag. Alkmaar skaust þar með aftur í toppsæti deildarinnar. Sport 18.12.2005 17:08
Chelsea leiðir í hálfleik Chelsea hefur 1-0 forystu í hálfleik gegn Arsenal á Highbury. Það var Arjen Robben sem skoraði mark gestanna á 39. mínútu. Chelsea hefur verið heldur sterkari aðilinn í leiknum, en Thierry Henry átti þó stangarskot fyrir Arsenal, sem hefur einnig fengið mark dæmt af vegna vafasamrar rangstöðu. Sport 18.12.2005 16:58
Stendur við gagnrýni sína á United Roy Keane hefur gefið það út að hann standi við hvert einasta orð sem hann sagði í gagnrýni sinni á fyrrum félaga sína í Manchester United á dögunum, þegar liðið steinlá fyrir Middlesbrough 4-1. Þrumuræða Keane varð að margra mati kveikjan að því að hann fór frá United. Sport 18.12.2005 16:41
Eiður Smári á varamannabekknum Jose Mourinho hefur kallað Claude Makelele inn í byrjunarlið Chelsea á kostnað Eiðs Smára í dag, en auk þess hefur William Gallas tekið stöðu hins meidda Asier del Horno í bakverðinum og Didier Drogba byrjar frammi í stað Hernan Crespo. Arsene Wenger gerði aðeins eina breytingu á sínu liði. Mathieu Flamini kemur inn í stað Gilberto Silva sem er í banni. Dennis Bergkamp er á bekknum hjá Arsenal. Sport 18.12.2005 15:48