Erlendar
187 188 189 190 191 192 193 194 195 … 264 ›
United á ekki möguleika á að ná okkur Varnarmaðurinn Ricardo Carvalho hjá Chelsea segir að Manchester United eigi ekki fræðilegan möguleika á að ná liði sínu að stigum í baráttunni um enska meistaratitilinn í vor, þó Manchester-liðið hafi verið á mikilli sigurgöngu undanfarið. Sport 7.4.2006 06:39
Eriksson hentar Real Madrid vel Danski harðjaxlinn Thomas Gravesen segir að Sven-Göran Eriksson væri kjörinn í að taka við stjórn Real Madrid þegar hann lætur af störfum sem landsliðsþjálfari Englendinga eftir HM í sumar. Forráðamenn Real Madrid eru nú að leita sér að góðum knattspyrnustjóra og er nafn Eriksson eitt þeirra sem oftast hefur verið nefnt til sögunnar að undanförnu. Sport 7.4.2006 06:27
Enn sigrar New Jersey Lið New Jersey Nets vann í nótt sinn 14. sigur í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Charlotte Bobcats 113-102 á heimavelli sínum. Detroit Pistons lagði Miami á útivelli 95-82 og Carmelo Anthony tryggði Denver 110-108 sigur á LA Lakers með skoti á síðustu sekúndum framlengingar. Sport 7.4.2006 06:07
Þetta var sögulegur sigur Steve McClaren, stjóri Middlesbrough var skiljanlega í skýjunum eftir sigur sinna manna á Basel í Evrópukeppni félagsliða í kvöld, en Boro tókst að komast áfram í undanúrslit keppninnar þrátt fyrir að lenda þremur mörkum undir í einvíginu. Massimo Maccarone skoraði sigurmark Boro á 90. mínútu og enska liðið vann samanlagt 4-3. Sport 6.4.2006 22:05
Ævintýralegur sigur Middlesbrough Middlesbrough komst í kvöld í undanúrslitin í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið lagði svissneska liðið Basel 4-1 á heimavelli sínum og fer því áfram samtals 4-3. Gestirnir komust yfir í upphafi leiks og því virtust vonir Boro um að komast áfram vera að engu orðnar. Mark Viduka skoraði tvö mörk fyrir Boro, Jimmy Floyd Hasselbaink eitt og það var svo Massimo Maccarone sem skoraði sigurmark Boro í uppbótartíma. Basel lék manni færra frá 73. mínútu. Sport 6.4.2006 21:08
Singh í forystu Fiji-búinn Vijay Singh hefur forystu á Masters-mótinu í golfi þegar fyrstu umferðinni er að verða lokið. Singh er á fimm höggum undir pari eða 67 höggum, en Bandaríkjamaðurinn Rocco Mediate kemur þar skammt á eftir á 68 höggum. Tiger Woods hefur verið nokkuð óstöðugur á fyrsta hringnum og er að leika á 72 höggum. Sýnt verður beint frá mótinu á sjónvarpsstöðinni Sýn um helgina. Sport 6.4.2006 20:24
Jafnt á Riverside í hálfleik Staðan í leik Middlesbrough og Basel í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða er 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Gestirnir komust yfir í upphafi leiks, en það var svo ástralski framherjinn Mark Viduka sem jafnaði fyrir heimamenn sem enn eiga langt í land ef þeir ætla sér áfram í keppninni. Þá er staðan í leik Schalke og Levski Sofia jöfn 1-1 þegar skammt er til leiksloka og þýska liðið því komið með annan fótinn áfram í undanúrslitin eftir öruggan sigur í fyrri leiknum. Sport 6.4.2006 20:10
Steua Búkarest áfram Steua Búkarest er komið áfram í undanúrslitin í UEFA-bikarnum í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli við granna sína í Rapid Búkarest í dag. Steua fer því áfram á marki skoruðu á útivelli, en hvort lið skoraði aðeins eitt mark í einvíginu. Þá eru vonir Middlesbrough um að komast áfram í keppninni orðnar ansi litlar, því liðið er undir á heimavelli sínum gegn Basel frá Sviss og þarf því að skora fjögur mörk til að komast áfram í keppninni. Sport 6.4.2006 19:26
Martröðin heldur áfram Meiðslamartröð enska varnarmannsins Jonathan Woodgate virðist hvergi nærri á enda og nú hefur þjálfari Real Madrid gefið það út að hann sé svartsýnn á að fyrrum landsliðsmaðurinn nái að koma til baka á þessari leiktíð vegna meiðsla sinna á læri. Þetta þýðir að draumur Woodgate um að komast í enska landsliðshópinn fyrir HM er að öllum líkindum úr sögunni. Sport 6.4.2006 19:19
Sevilla í undanúrslitin Spænska liðið Sevilla varð nú síðdegis fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við rússneska liðið Zenit frá St. Pétursborg og er því komið áfram samtals 5-2. Sport 6.4.2006 19:09
Við förum í úrslitaleikinn Hinn ungi Cesc Fabregas hjá Arsenal segist þess viss að liðið muni fara alla leið í úrslitaleikinn í Meistaradeildinni, en Arsenal mætir löndum hans í Villareal frá Spáni í undanúrslitinum. Fabregas hefur farið á kostum með Arsenal í Meistaradeildinni en vill ekki vera borinn saman við Patrick Vieira, fyrrum leikmann liðsins. Sport 6.4.2006 18:54
Ekki á leið til Villareal Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Arsenal hefur alfarið neitað sögusögnum um að hann sé búinn að skrifa undir samning við spænska liðið Villareal, sem einmitt mætir Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Pires hefur enn ekki náð samkomulagi við Arsenal um framlengingu á samningi sínum. Sport 6.4.2006 16:38
Tekst Boro að vinna upp forskot Basel Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough fær það erfiða verkefni í kvöld að vinna upp tveggja marka forskot svissneska liðsis Basel úr fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Steve McClaren er bjartsýnn á að Boro nái að stríða andstæðingum sínum á heimavelli, enda sé pressan öll á gestunum. Sport 6.4.2006 16:47
United nær okkur ekki Eiður Smári Guðjohnsen hefur engar áhyggjur af þeirri ógn sem Englandsmeisturum Chelsea stafar af Manchester United í úrvalsdeildinni um þessar mundir, en sigurganga Manchester undanfarið hefur þýtt að bilið milli liðanna hefur minnkað mikið. Sport 6.4.2006 16:31
Stóri-Sam sektaður Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton Wanderers, hefur verið sektaður um 2000 pund og ávítaður harðlega af enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sín í garð Mike Riley dómara eftir leik við Blackburn um miðjan janúar. Riley rak Hidetoshi Nakata af velli með rautt spjald í leiknum og Allardyce fór ekki leynt með skoðanir sínar á dómaranum eftir leikinn. Hann ætlar þó ekki að áfrýja dómi sambandsins. Sport 6.4.2006 16:14
Reynsluleysi Arsenal segir til sín í undanúrslitunum Varnarmaðurinnn Rodolfo Arruabarrena hjá Villareal sem skoraði sigurmark liðsins gegn Inter í vikunni, segir að þó Arsenal sé vissulega með hörkulið, muni reynsluleysi ungra leikmanna þess koma til með að segja til sín þegar pressan eykst í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Sport 6.4.2006 16:06
Chicago upp fyrir Philadelphia Lið Chicago Bulls vann í nótt afar mikilvægan sigur á Philadelphia 76ers 99-92 í NBA deildinni og höfðu liðin því sætaskipti í Austurdeildinni. Chicago hefur verið á góðu róli undanfarið á meðan illa hefur gengið hjá Philadelphia og nú er útlit fyrir að Chicago nái inn í úrslitakeppnina. Allen Iverson skoraði 26 stig fyrir Philadelphia, en Andres Nocioni og Ben Gordon skoruðu 21 stig hvor fyrir Chicago. Sport 6.4.2006 15:45
Landar 56 milljón punda samningi við AIG Manchester United hefur undirritað auglýsingasamning við tryggingafélagið AIG (American International Group) og mun félagið bera auglýsingu fyrirtækisins á treyjum sínum á næsta tímabili. Samningurinn hljóðar upp á 56,5 milljónir punda fyrir næstu fjögur ár. Sport 6.4.2006 15:26
Gummersbach lagði Lubbecke Fjórir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Íslendingalið Gummersbach lagði Lubbecke 27-21. Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson skoruðu 5 mörk hvor fyrir heimamenn, en Þórir Ólafsson komst ekki á blað hjá Lubbecke. Sport 5.4.2006 20:58
Celtic skoskur meistari Glasgow Celtic tryggði sér í kvöld skoska meistaratitilinn þegar liðið lagði Hearts frá Edinborg 1-0. Afmælisbarnið John Hartson hélt upp á daginn með því að skora eina mark leiksins eftir aðeins þrjár mínútur og því hafa lærisveinar Gordon Strachan endurheimt meistaratitilinn þó enn séu sex umferðir eftir af deildarkeppninni. Sport 5.4.2006 20:47
Arsenal áfram Arsenal er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir markalaust jafntefli við Juventus í Tórínó í kvöld. Arsenal vann fyrri leikinn 2-0 á heimavelli sínum og hélt vel aftur af ítalska liðinu í kvöld. Pavel Nedved fékk að líta rauða spjaldið hjá Juventus undir lokin, en heimamenn virkuðu frekar daufir í leiknum og virtust lítinn áhuga hafa á því að komast áfram í keppninni. Arsenal mætir spænska liðinu Villareal í undanúrslitunum. Sport 5.4.2006 20:38
Barcelona í undanúrslit Barcelona er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 sigur á portúgalska liðinu Benfica á heimavelli sínum Nývangi í kvöld. Ronaldinho kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik og það var svo Samuel Eto´o sem tryggði Barcelona sigurinn með marki úr skyndisókn skömmu fyrir leikslok. Barcelona mætir AC Milan í undanúrslitunum. Sport 5.4.2006 20:34
Stoudemire úr leik Framherjinn Amare Stoudemire spilar ekki meira með liði Phoenix Suns í vetur eftir að í ljós kom að hann þarf að fara í enn einn hnéuppskurðinn. Í þetta sinn er það þó hægra hnéð og uppskurðurinn minniháttar, en þetta þýðir engu að síður að hann getur ekki spilað með liði sínu í úrslitakeppninni eins og bjartsýnustu menn í herbúðum Phoenix höfðu vonast eftir. Þetta eru skelfileg tíðindi fyrir hinn gríðarlega efnilega Stoudemire, sem nú þarf að bíða fram á næsta haust með að sýna listir sínar á ný í NBA. Sport 5.4.2006 19:38
Barcelona leiðir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Barcelona hefur enn forystu gegn Benfica 1-0 með marki Ronaldinho, en markalaust er í Tórínó í leik Juventus og Arsenal. Leikirnir eru í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra. Sport 5.4.2006 19:35
Barcelona komið yfir Barcelona er komið yfir gegn Benfica á heimavelli sínum í síðari leik liðanna í Meistaradeild Evrópu. Það var brasilíski snillingurinn Ronaldinho sem skoraði mark Barca á 19. mínútu eftir frábæran undirbúning Samuel Eto´o , en hann misnotaði vítaspyrnu í upphafi leiks. Sport 5.4.2006 19:05
Þetta var töfrum líkast Framherjinn Filippo Inzaghi hjá AC Milan segir að sigurinn á Lyon í Meistaradeildinni í gærkvöldi hafi verið töfrum líkastur fyrir sig, en líklega hefur enginn fagnað eins mikið og Inzaghi í gær. Hann skoraði tvö marka Milan í leiknum og markaði þar með endanlega endurkomu sína eftir að hafa barist við erfið meiðsli í tvö ár. Sport 5.4.2006 17:38
United mun setja mikla pressu á Chelsea David Beckham, leikmaður Real Madrid og fyrrum leikmaður Manchester United, segir að fyrrum félagar sínir í United muni setja mikla pressu á Chelsea á lokasprettinum í ensku úrvalsdeildinni í vor. Sport 5.4.2006 17:28
Toyota rekur tæknistjórann Lið Toyota í Formúlu 1 rak í dag tæknistjóra sinn Mike Gascoyne úr starfi eftir að árangur hans þótti ekki viðeigandi, en eins hafa borist fréttir af stormasömu samstarfi hans við forráðamenn liðsins. Gascoyne var áður hjá liðum Jordan og Renault. Sport 5.4.2006 17:02
Federer er í algjörum sérflokki Fyrrum tennisstjarnan Pete Sampras segist ekki sjá að nokkur tennisleikari í heiminum eigi möguleika á að velta Roger Federer af stalli á næstunni. Federer hefur verið einráður á toppnum síðan Sampras lagði spaðann á hilluna fyrir fjórum árum. "Ég sé engann þarna úti með vopn til að slá honum við og þeir geta ekki annað en reynt að verjast honum, hann stýrir öllum leikjum sem hann tekur þátt í," sagði Sampras. Sport 5.4.2006 16:28
Verðum að vera óhræddir í Tórínó Arsene Wenger segist hafa brýnt fyrir sínum mönnum að vera óhræddir við að spila sinn leik í Tórínó í kvöld þegar liðið sækir Juventus heim í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Arsenal vann fyrri leikinn 2-0 og er því í lykilstöðu til að komast í undanúrslitin. Sport 5.4.2006 17:09