Innlendar

Pálmi og Unnbjörg settu bæði Íslandsmet
Pálmi Rafn Steindórsson úr Foldaskóla og Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir úr Réttarholtsskóla settu bæði Íslandsmet þegar Skólahreysti MS hélt áfram á fimmtudagskvöldið.

Ásdís og Bergur Ingi kasta á Kanarí
Ásdís Hjálmsdóttir Ármanni og Bergur Ingi Pétursson FH hafa verið valin til að keppa á níunda Vetrarkastmóti Evrópu, sem fram fer á Los Realejos á Tenerife, 14.-15. mars næstkomandi.

Jóhanna með gull og silfur á danska meistaramótinu
ÍR-ingurinn Jóhanna Ingadóttir setti endapunktinn á flott innanhústímabil hjá sér með því að vinna til tveggja verðlauna á danska meistaramótinu í frjálsíþróttum sem auk í Skive í gær.

Ásta dansmeistari í þriðja landinu á ferlinum
Ásta Sigvaldadóttir og dansfélagi hennar Przemek Lowicki eru bestu latin-dansarar Póllands eftir að þau tryggðu sér sigur á pólska meistaramótinu í í samkvæmisdönsum á dögunum.

Einvígi Hafdísar og Jóhönnu heldur áfram í Danmörku um helgina
Innanhústímabilinu í frjálsum íþróttum er formlega lokið hjá fullorðnum á Íslandi en sex íslenskir frjálsíþróttamenn eru komnir til Danmerkur þar sem þau keppa á opna danska meistaramótinu í Skive um helgina.

Aldrei fleiri keppendur á MÍ í frjálsum 11 til 14 ára
Það verður margt um manninn í Laugardalshöllinni um helgina þegar fram fer Meistaramótið í frjálsum hjá 11 til 14 ára krökkum.

59 milljónum úthlutað úr ferðasjóði - sótt um 330 milljónir
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands úthlutaði í dag í annað sinn styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða sem farnar voru á skilgreind mót á árinu 2008.

Bjarni og Ágústa Íslandsmeistarar í fjölþraut
Bjarni Malmquist í Fjölni og Ágústa Tryggvadóttir Selfossi, urðu um helgina Íslandsmeistarar í fjölþraut .

Fimm sækja um landsmótið
Fimm sækja um að fá að halda unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina.

Katrín Jónsdóttr er Íþróttamaður Reykjavíkur
Katrín Jónsdóttir, fyrirliði Vals og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, var í dag útnefnd Íþróttamaður Reykjavíkur árið 2008.

Katrín náði góðum árangri í Bandaríkjunum
Katrín Guðrún Tryggvadóttir hafnaði í fimmta sæti á vetrarleikum Special Olympics-leikanna en hún keppti í listdansi á skautum.

Landsliðið í badminton vann Ungverjaland
Íslenska landsliðið í badminton hóf leik á Evrópumóti landsliða með því að vinna Ungverjaland 3-2 í kvöld. Mótið fer fram í Liverpool og alls 32 þjóðir sem taka þátt.

ÍR sigraði á Meistaramótinu (myndir)
ÍR varð í dag Íslandsmeistari félagsliða í frjálsum íþróttum á meistaramótinu sem lauk í Laugardalshöll í dag. ÍR háði harða baráttu við FH sem varð í öðru sæti.

Kristinn fyrstur yfir 15 metrana í þrístökki
30 ára gamalt Íslandsmet var slegið í dag þegar keppt var til úrslita í 12 greinum á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum.

Þórey Edda keppir á MÍ um helgina
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fer fram í Laugardalshöllinni um helgina í umsjón Ármanns og Fjölnis og eru 160 keppendur skráðir til leiks.
Óðinn bætti árangur sinn innanhúss
Kúluvarparinn Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH bætti persónulegt met sitt innanhúss í gær þegar hann kastaði kúlunni 19,16 metra á móti í Laugardalshöllinni.

Björgvin hafnaði í 42. sæti
Björgvin Björgvinsson skíðamaður frá Dalvík varð í 42 sæti í svigi heimsbikarkeppninnar á skíðum í Adelboden í morgun, 2,99 sekúndum á eftir Austurríkismanninum Manfred Pranger sem náði bestum tíma í fyrri ferðinni.

Ólafur Stefánsson íþróttamaður ársins 2008
Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, er íþróttamaður ársins 2008. Þetta var tilkynnt á Grand Hótel í Reykjavík nú rétt í þessu. Ólafur fékk fullt hús í kjörinu.

Viktor og Ásdís fimleikafólk ársins
Fimleikasamband Íslands tilkynnti í dag val á fimleikakonu og fimleikamanni 2008. Viktor Kristmannsson og Ásdís Guðmundsdóttir úr Gerplu urðu fyrir valinu.

Sigrún Brá bætti Íslandsmetið sitt
Sigrún Brá Sverrisdóttir sló í morgun eigið Íslandsmet í 400 metra skriðsundi þegar hún kom í mark á 4 mínútum og 17,09 sekúndum á EM í 25 metra laug sem fram fer í Króatíu.

Ásdís og Bergur frjálsíþróttafólk ársins
Frjálsíþróttasamband Íslands hefur tilkynnt um frjálsíþróttamenn ársins 2008. Það eru þau Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari úr Ármanni og sleggjukastarinn Bergur Ingi Pétursson úr FH.

Sigursælir þjálfarar í Utan vallar
Hinn vikulegi íþróttaþáttur Utan vallar verður á sínum stað á Stöð 2 Sport í kvöld. Gestir þáttarins eru þjálfararnir Guðmundur Guðmundsson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Vignir og Jóna blakfólk ársins
Vignir Þröstur Hlöðversson er blakmaður ársins 2008 og Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir er blakkona ársins. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Blaksambands Íslands í gær.

Atvinnumennirnir okkar á Spáni
Nú standa yfir tökur á sjónvarpsþáttaröðinni Atvinnumennirnir okkar. Tökulið þáttanna er á Spáni og mun næstu daga vinna að þáttum um handboltahetjuna Ólaf Stefánsson og fremsta fótboltamann Íslands, Eið Smára Guðjohnsen.

Sindri náði silfri í Sviþjóð
Sindri Þór Jakobsson, sundkappi úr ÍRB, vann til silfurverðlauna í gær á Norðurlandameistaramóti unglinga sem fór fram í Södertalje í Svíþjóð um helgina.

Guðjón í Utan vallar í kvöld
Guðjón Þórðarson verður í nærmynd í þættinum Utan vallar sem er á dagskrá Stöðvar 2 Sports í kvöld.

Örn og Ragnheiður sundfólk ársins
Örn Arnarson úr SH og Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR voru í gærkvöld útnefnd sundfólk ársins á uppskeruhátíð sunsambandsins.

Jakob Jóhann þríbætti Íslandsmet
Alls féllu fjögur Íslandsmet á lokakeppnisdegi Íslandsmeistaramótsins í sundi í 25 metra laug. Keppt var í Laugardalslauginni.

Þrjú Íslandsmet féllu í dag
Jakob Jóhann Sveinsson úr sundfélaginu Ægi bætti í dag tvö Íslandsmet er þriðji keppnisdagur Íslandsmeistaramótsins í 25 metra laug fór fram í Laugardalslauginni í dag.

Fjölnir vildi ekki taka upp nafn Fram - viðræðum slitið
Í dag var gefin út fréttatilkynning frá vinnuhópi sem vann að sameiningu Fram og Fjölnis að ákveðið hefði verið að slíta viðræðum um sameininguna.