Íþróttir
324 325 326 327 328 329 330 331 332 … 334 ›
Wenger fær ekki háar summur í janúar Keith Edelman, yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal, segir að þó bráðlega verði farið að selja Highbury undir framtíðar íbúðir, muni Arsene Wenger ekki geta vænst þess að fá peninga til leikmannakaupa strax og segir þá fjámuni sem koma muni inn á næstunni alla fara í nýja leikvanginn, Ashburton Grove. Sport 27.10.2005 17:25
Fimm leikir í kvöld Þriðja umferðin í úrvalsdeild karla í körfuknattleik hefst í kvöld með fimm leikjum. Grindavík og Hamar/Selfoss mætast í Grindavík, en bæði þessi lið hafa unnið báða leiki sína í deildinni. Njarðvíkingar eru einnig taplausir, en þeir taka á móti Haukum á heimavelli sínum. Sport 27.10.2005 16:07
Skapsmunir hans eru jákvæðir Knattspyrnugoðsögnin Diego Maradona sagði í viðtali við breska blaðið Sun að hinir umdeildu skapsmunir Wayne Rooney séu ekki neikvæðir, heldur þvert á móti af hinu góða. Margir hafa spáð því að Rooney eigi eftir að verða skotmark á HM í Þýskalandi næsta sumar vegna skapsmuna sinna, en Maradona hefur engar áhyggjur af því. Sport 27.10.2005 15:47
Við getum keppt við Chelsea Arsene Wenger hefur gefið það út að Arsenal-liðið geti veitt Chelsea harða keppni í vetur, en bendir á að meiðsli hafi sett strik í reikninginn í byrjun tímabils. Sport 27.10.2005 15:34
Hugurinn liggur frá Highbury Bresk blöð greina frá því í dag að framherjinn Thierry Henry hafi viðurkennt fyrir vinum sínum að ef hann ætti að gera upp hug sinn í dag, myndi hann fara frá Arsenal. Hann hefur engu að síður sagt að hann muni ekki taka ákvörðun fyrr en næsta sumar. Sport 27.10.2005 15:12
Magloire til Milwaukee Bucks Milwaukee Bucks var duglegt á leikmannamarkaði NBA í sumar og fékk meðal annars fyrsta valréttinn í nýliðavalinu. Í gærkvöldi nældi félagið svo í enn einn leikmanninn þegar það fékk til sín miðherjann Jamaal Magloire frá New Orleans, í skiptum fyrir framherjann Desmond Mason og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári. Sport 27.10.2005 04:15
Annað tap Real Madrid í röð Stjörnum prýtt lið Real Madrid steinlá fyrir Deportivo 3-1 í spænska boltanum í gærkvöldi og tapaði þar með öðrum leik sínum í röð í deildinni. Barcelona sigraði Malaga 2-0 með mörkum frá Ronaldinho og Larsson. Sport 27.10.2005 03:45
Sigur Charlton var heppni og ekkert annað Jose Mourinho sagðist ekki geta kvartað yfir frammistöðu sinna manna í tapinu fyrir Charlton í gærkvöldi og sagði að heppnin hefði einfaldlega verið á bandi mótherjanna í það skiptið. Sport 27.10.2005 03:31
Juventus setti met Juventus hefur enn fimm stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar eftir 2-0 sigur á Sampdoria í gærkvöldi, sem var jafnframt níundi sigurleikur liðsins í röð í upphafi leiktíðar, sem er nýtt met í A-deildinni. Sport 27.10.2005 03:20
Henry tæpur gegn Tottenham Nárameiðsli Thierry Henry hjá Arsenal hafa nú tekið sig upp að nýju og að sögn knattspyrnustjórans Arsene Wenger eru ekki nema 30% líkur á að hann geti verið með í grannaslagnum við Tottenham á morgun. Sport 27.10.2005 21:26
Charlton lagði Chelsea í vítakeppni Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton gerðu sér lítið fyrir og slógu handhafa enska deildarbikarsins úr keppni í kvöld, þegar þeir lögðu Eið Smára og félaga í Chelsea í vítaspyrnukeppni á Stamford Bridge. Eiður og Hermann léku allan leikinn og skoruðu báðir af fádæma öryggi úr spyrnum sínum í vítakeppninni. Sport 26.10.2005 21:47
Jafnt hjá Chelsea og Charlton Nú er kominn hálfleikur í flestum leikjunum í enska deildarbikarnum. Staðan í leik Chelsea og Charlton er 1-1, þar sem John Terry og Darren Bent skoruðu undir lok hálfleiksins. Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea í kvöld. Sport 26.10.2005 19:36
Chelsea-Charlton í beinni á Sýn Nokkrir leikir verða á dagskrá í enska deildarbikarnum í kvöld og leikur Lundúnaliðanna Chelsea og Charlton verður í beinni útsendingu á Sýn nú klukkan 18:35. Þar á eftir verður á dagskrá leikur Real Madrid og Deportivo í spænska boltanum. Sport 26.10.2005 17:51
Lárus Orri tekur við þjálfun Þórs Fyrrum atvinnumaðurinn Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari fyrstu deildarliðs Þórs á Akureyri. Lárus hefur leikið með liðinu síðan hann sneri aftur heim úr atvinnumennsku og mun nú verða spilandi þjálfari liðsins. Samningurinn er til þriggja ára, en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins í dag. Sport 26.10.2005 17:36
Keflvíkingar töpuðu í Finnlandi Íslandsmeistarar Keflavíkur biðu lægri hlut fyrir finnska liðinu Lappeenranta í fyrsta leik sínum í Evrópukeppninni í dag, 92-77, eftir að hafa verið 17 stigum undir í hálfleik. Sport 26.10.2005 17:42
Bjarni aðstoðar Eyjólf Bjarni Jóhannsson, þjálfari Blika í Landsbankadeildinni, mun verða aðstoðarmaður félaga síns Eyjólfs Sverrissonar hjá íslenska landsliðinu. Þetta var tilkynnt í dag og kemur kannski ekki mikið á óvart, því þeir félagar hafa starfað saman áður. Sport 26.10.2005 17:26
Pardew skrifar undir nýjan samning Bresk blöð greina frá því í dag að Alan Pardew, stjóri West Ham, sé búinn að undirrita nýjan samning við félagið sem gildi til ársins 2010. Sport 26.10.2005 15:47
Kýldi í vegg og handarbrotnaði Glen Johnson hjá Chelsea kýldi í vegg á heimili sínu og handarbrotnaði, samkvæmt fréttum í breskum blöðum í dag. Johnson hefur ekki verið í náðinni hjá Jose Mourinho knattspyrnustjóra liðsins og hefur átt í vandræðum með aga, bæði hjá Chelsea og enska landsliðinu. Sport 26.10.2005 15:34
Getum ekki keppt við Chelsea Alex Ferguson segir að Manchester United eigi ekki möguleika á að keppa við Chelsea á leikmannamarkaðnum, því liðið hafi ótakmarkað fé og geti því fengið til sín hvaða leikmenn sem er, en Ferguson er þó með ákveðnar hugmyndir um hvernig á að byggja upp gott knattspyrnulið. Sport 26.10.2005 14:19
Rómverjar sektaðir Knattspyrnulið Roma hefur verið sektað um 25.000 evrur eftir að stuðningsmenn liðsins köstuðu smápeningi í höfuðið á dómaranum í grannaslag Roma og Lazio um helgina. Því miður eru atburðir sem þessi tíðir á Ólympíuleikvanginum í Róm, en stuðningsmenn liðanna beggja eru þekktir fyrir að vera ansi heitir. Sport 26.10.2005 04:02
Frankfurt burstaði Schalke Þýska úrvalsdeildarliðið Frankfurt er heldur betur í stuði þessa dagana, því eftir að hafa unnið Cologne 6-3 um helgina, burstaði Frankfurt lið Schalke í gærkvöldi 6-0. Schalke komst alla leið í úrslitin í fyrra, en voru niðurlægðir í gærkvöldi. Sport 26.10.2005 04:14
Ánægður þrátt fyrir tapið Rafa Benitez var ánægður með leik sinna manna í Liverpool í gærkvöldi, þrátt fyrir að þeir létu 1. deildarlið Crystal Palace slá sig út úr deildarbikarnum. Sport 26.10.2005 03:37
Heiðar og félagar úr leik Heiðar Helguson og félagar í Fulham biðu lægri hlut fyrir West Brom í framlengdum leik 3-2 í enska deildarbikarnum í kvöld og Wigan skoraði þrjú mörk í framlengingu gegn Watford og tryggði sér farseðilinn í 16-liða úrslitin. Sport 25.10.2005 21:29
Liverpool úr leik, Heiðar skoraði Crystal Palace sló Evrópumeistara Liverpool út úr deildarbikarnum í kvöld og fullkomnaði slæma viku fyrir Rafael Benitez og hans mönnum. Dougie Freedman kom Palace yfir í leiknum, en Steven Gerrard jafnaði skömmu síðar. Það var svo Marco Reich sem gerði út um leikinn í síðari hálfleik og skaut Palace í 16-liða úrslitin. Sport 25.10.2005 20:45
Jafnt í hálfleik hjá Palace og Liverpool Nú er hálfleikur í enska deildarbikarnum, en þar er fjöldi leikja á dagskrá í kvöld. Í sjónvarpsleiknum á Sýn er staðan hjá Crystal Palace og Liverpool jöfn 1-1. Dougie Freedman kom Palace yfir í leiknum, en Steven Gerrard jafnaði skömmu síðar. Sport 25.10.2005 19:22
Gerði þriggja ára samning Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Ásgeir Elíasson samþykkt að taka við þjálfun 1. deildar liðs Fram og hefur nú undirritað þriggja ára samning við sitt gamla félag, sem náði góðum árangri undir stjórn Ásgeirs á sínum tíma. Sport 25.10.2005 17:57
Neitar ákæru knattspyrnusambandsins David O´Leary hefur neitað að gangast við ákæru enska knattspyrnusambandsins sem lagðar voru á hendur honum eftir leik Aston Villa og Birmingham á dögunum, þar sem O´Leary var sakaður um ósæmilega hegðun. Sport 25.10.2005 16:14
Gleymum Chelsea Gary Neville hjá Manchester United hefur sagt samherjum sínum að gleyma því að reyna að ná Chelsea í toppslagnum í úrvalsdeildinni og einbeita sér frekar í að hinum liðunum þremur sem eru fyrir ofan United í dag. Sport 25.10.2005 15:33
Spjald Beckham dregið til baka David Beckham verður klár í slaginn með Real Madrid í spænska boltanum annað kvöld eftir að rauða spjaldið sem hann fékk gegn Valencia um helgina var dregið til baka nú rétt áðan. Sport 25.10.2005 16:02
Gerrard væntanlega með Liverpool Níu leikir verða á dagskrá í enska deildarbikarnum í kvöld og verður leikur Crystal Palace og Liverpool sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Gert er ráð fyrir að Steven Gerrard verði í leikmannahópi Liverpool í kvöld. Sport 25.10.2005 15:19