Íþróttir
313 314 315 316 317 318 319 320 321 … 334 ›
Enn á gjörgæslu og sýnir lítil batamerki George Best liggur enn á gjörgæsludeild Cromwell-spítalans í London, en læknar segja ástand hans stöðugt, hvorki betra né verra. "Blóðprufur sýna ögn skárra ástand á honum, en heilsa hans heilt yfir hefur ekki skánað mikið og það er ákveðið áhyggjuefni," sagði einn læknanna sem annast Best. Sport 21.11.2005 18:11
Vill setja stuðningsmenn United í bann Stuðningsmenn Manchester United eiga yfir höfði sér bann á heimavelli Charlton ef kvörtun þeirra nær fram að ganga eftir atburði helgarinnar. Starfsmaður á vellinum varð fyrir kynferðislegri áreitni frá stuðningsmanni United og þar að auki fóru nokkrir stuðningsmenn liðsins inn á völlinn eftir að leikmenn liðsins höfðu stofnað til mikilla láta við endalínuna þegar þeir fögnuðu marki sínu í leiknum. Sport 21.11.2005 16:34
Verðum að sigra Villareal Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að leikurinn við Villareal í Meistaradeildinni annað kvöld verði að vinnast og treystir á að heimavöllurinn nægi til að koma sínum mönnum áfram. Sport 21.11.2005 16:26
Crouch þarf að vera grimmari Markakóngurinn Ian Rush hefur góð ráð handa Peter Crouch, framherja Liverpool, en hann segir hinn lappalanga Crouch skorta eigingirni og grimmd til að skora mörk í ensku úrvalsdeildinni. Sport 21.11.2005 16:14
Raul meiddur á hné Fyrirliði Real Madrid, framherjinn Raul, er meiddur á hné og verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði. Raul meiddist í tapinu gegn Barcelona um helgina, en forráðamenn Real vona að hann þurfi ekki í aðgerð vegna þessa. Ef allt fer þó á versta veg, gæti það hinsvegar sett strik í reikninginn fyrir þáttöku Raul á HM með Spánverjum næsta sumar. Sport 21.11.2005 15:43
Besta byrjun Clippers í sögunni Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar bar hæst að Los Angeles Clippers lagði Golden State og hefur því unnið átta af fyrstu tíu fyrstu leikjum sínum, sem er besta byrjun í sögu félagsins. Sport 21.11.2005 14:54
Petersson með stórleik Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Alexander Petersson fór á kostum í liði Grosswallstadt og skoraði 12 mörk þegar liðið lagði Minden 29-27 á útivelli. Einar Hólmgeirsson bætti við tveimur mörkum fyrir Grosswallstadt, en Snorri Steinn Guðjónsson var líka frábær í liði Minden og skoraði 9 mörk. Sport 21.11.2005 14:18
Logi skoraði 25 stig fyrir Bayeruth Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson átti mjög góðan leik með liði sínu Bayeruth í þýsku 2. deildinni í gærkvöldi þegar liðið sigraði Heidelberg 91-82. Logi skoraði 25 stig í leiknum. Þá skoraði Jón Arnór Stefánsson 7 stig þegar lið hans Napoli burstaði Rosetu 84-66 í ítölsku úrvalsdeildinni. Sport 21.11.2005 14:12
Útlitið dökkt hjá Ólöfu Maríu Ólöf María Jónsdóttir lék á þremur höggum yfir pari á þriðja keppnisdegi úrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina og er því að samtals 13 höggum yfir pari. Möguleikar Ólafar á því að komast áfram eru því heldur litlir eins og staðan er í dag. Sport 21.11.2005 14:05
Viggó leitar á náðir Patreks Vegna meiðsla þeirra Markúsar Mána Michaelssonar og Jaliesky Garcia, hefur Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari ákveðið að kalla Patrek Jóhannesson aftur inn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Morðmönnum um næstu helgi. Patrekur hefur ekki spilað landsleik lengi og hefur átt við erfið meiðsli að stríða. Hann hefur þó sýnt gamla takta við og við með Stjörnunni og skoraði m.a. 13 mörk í síðasta leik. Sport 21.11.2005 13:55
Fram sigraði ÍR Fram vann góðan sigur á ÍR í DHL-deild karla í handbolta í Austurbergi í kvöld, 38-32. Sergiy Serenko skoraði 8 mörk fyrir Fram og Haraldur Þorvarðarson og Jóhann Einarsson skoruðu 7 hvor, en hjá heimamönnum voru þeir Ólafur Sigurjónsson og Andri Númason með sex mörk hvor. HK sigraði FH í Digranesi 29-26. Sport 20.11.2005 21:01
Hitzfeld segir Manchester United hafa boðið sér starf Ottmar Hitzfeld, fyrrum þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, segir að forráðamenn Manchester United hafi boðið sér starf hjá félaginu. Sport 20.11.2005 20:04
Lokadeginum aflýst og Wales sigraði Kylfingarnir Stephen Dodd og Bradley Dredge frá Wales höfðu sigur á heimsbikarmótinu í golfi sem var blásið af í dag vegna veðurs. Þetta var í annað skipti sem Wales vinnur sigur á mótinu, en síðast gerðist það fyrir um 20 árum síðan. Englendingarnir Luke Donald og David Howell urðu í öðru sæti á mótinu. Sport 20.11.2005 19:36
Eitt Íslandsmet á lokadeginum Meistaramóti Íslands í sundi lauk í Laugardalslauginni í dag, Fjögur Íslandsmet féllu á mótinu, þar af eitt í dag. Sigrún Brá Sverrisdóttir úr Fjölni bætti metið í 200 metra flugsundi þegar hún synti á 2 mínútum 20,23 sekúndum. Örn Arnarsson var ekki með á lokadeginum eftir að hafa þurft á sjúkrahús vegna hjartsláttartruflana eftir keppni á laugardag. Sport 20.11.2005 19:21
Chelsea kaupir ungling á metfé Ensku meistararnir Chelsea gengu í dag frá kaupum á serbneska varnarmanninum Slobodan Rajkovic frá OFK Belgrad á metfé, 3,5 milljónir punda. Þetta er hæsta upphæð sem greidd hefur verið fyrir leikmann undir 18 ára aldri. Fjöldi stórliða í Evrópu hefur lengi verið á höttunum eftir Rajkovic, sem er fastamaður í U-21 árs liði Serbíu og Svartfjallalands. Sport 20.11.2005 19:12
Næsti sólarhringur sker úr um framhaldið Knattspyrnugoðið George Best liggur enn þungt haldinn á Cromvell sjúkrahúsinu í London með sýkingu í lungum. Læknar gáfu það út nú fyrir stundu að væntanlega kæmi í ljós á næstu 24 tímum hvort Best lifði raunina af, en hann er í öndunarvél og er í bráðri lífshættu. Fjölskylda hans dvelur nú öll hjá honum á sjúkrahúsinu, en Best hefur ekki komið til meðvitundar í nokkurn tíma. Sport 20.11.2005 19:05
Stórsigur Fiorentina á Milan Fiorentina skaust í annað sæti ítölsku A deildarinnar í dag, þegar liðið vann stórsigur á AC Milan, 3-1. Ítalski landsliðsmaðurinn Luca Toni skoraði tvö marka Fiorentina, sem er í öðru sætinu ásamt Milan eftir sigurinn. Juventus hefur enn fimm stiga forskot í deildinni eftir sannfærandi 4-1 sigur á Roma í gær. Sport 20.11.2005 18:55
Ólöf lék betur í dag Ólöf María Jónsdóttir lék annan hringinn á úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina í golfi á þremur höggum yfir pari í dag og er því alls á tíu höggum yfir pari. Ólöf lék hringinn í dag á 76 höggum og er í 62.-67. sæti, en 50 bestu kylfingarnir vinna sér inn þáttökurétt á mótaröðinni á næsta ári. Sport 20.11.2005 18:50
Mayweather stóð við stóru orðin Hnefaleikarinn Floyd Mayweather stóð við stóru orðin í gær og lumbraði auðveldlega á Sharmba Mitchell, en það tók hann aðeins sex lotur að láta dómarann stöðva bardagann, svo vel saumaði hann að andstæðingi sínum. Mayweather hefur unnið alla 35 bardaga sína á ferlinum. Sport 20.11.2005 18:27
Woods sigraði í bráðabana Tiger Woods vann sjöunda golfmót sitt á árinu í nótt þegar hann tryggði sér sigur í bráðabana á Dunlop Phoenix mótinu í golfi sem fram fór í Japan. Woods og heimamaðurinn Kaname Yokoo voru efstir og jafnir á 8 höggum undir pari eftir lokahringinn, en Woods tryggði sér sigurinn með öruggu golfi í bráðabananum eftir að hafa verið klaufi á síðustu holunum á lokahringnum. Sport 20.11.2005 18:14
Baráttusigur Middlesbrough Middlesbrough vann 3-2 baráttusigur á Fulham á heimavelli sínum í dag, í síðari leiknum í ensku úrvalsdeildinni. Boro lenti tvisvar undir í leiknum en náði að tryggja sér sigurinn í lokin með marki Jimmy Floyd Hasselbaink. Sport 20.11.2005 18:08
Cleveland vann sjöunda leik sinn í röð Cleveland Cavaliers vann sigur á Philadelphia 76ers í NBA í nótt í æsilegum leik sem endaði 123-120 fyrir Cleveland. Larry Hughes hjá Cleveland og Allen Iverson hjá Philadelphia skoruðu báðir 37 stig í leiknum, en LeBron James náði þrennu með 36 stigum, 11 fráköstum og 10 stoðsendingum. Sport 20.11.2005 17:44
Við vorum óheppnir Martin Jol, stjóri Tottenham var ekki sáttur við að missa leikinn gegn West Ham niður í jafntefli á síðustu andartökunum í dag, en liðin skildu jöfn á White Hart Lane 1-1. Sport 20.11.2005 17:29
Auðveldur sigur Premat Frakkar héldu sigurgöngu sinni áfram á heimsmeistaramótinu í kappakstri um helgina, þegar Malasíukappaksturinn fór fram. Alexandre Premat, sem var annar í rásröðinni í morgun, vann sprettkeppnina og vann svo auðveldan sigur í aðalkeppninni eftir að hafa haldið forystunni í 30 hringi. Sport 20.11.2005 17:05
Ferdinand tryggði West Ham stig Anton Ferdinand tryggði West Ham stig á elleftu stundu gegn Tottenham í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Mido kom heimamönnum í Tottenham yfir á 16. mínútu, en Ferdinand jafnaði leikinn á síðustu andartökunum í uppbótartíma. Sport 20.11.2005 15:43
NBA karfan, Hnefaleikar og A1 í beinni San Antonio Spurs og Phoenix Suns, liðin sem börðust í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í fyrra, eigast við í beinni útsendingu á NBA TV í nótt, en auk þessa verður nóg um að vera á sjónvarpsstöðinni Sýn í nótt og í fyrramálið, þar sem boðið verður upp á hnefaleika og kappakstur í beinni útsendingu. Sport 19.11.2005 22:02
Ólafur hafði betur í Íslendingaslagnum Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar í spænska handboltanum, hafði betur gegn Torrevieja 35-27 í dag, en hornamaðurinn Einar Örn Jónsson leikur með Torrevieja. Ólafur skoraði fimm mörk í leiknum, þar af eitt úr vítakasti, en Einar Örn skoraði sex fyrir lið sitt, þar af þrjú úr vítum. Ciudad Real er í þriðja sæti deildarinnar, einu stigi frá toppnum, en Torrevieja er í ellefta sæti. Sport 19.11.2005 21:28
Gummersbach sigraði Pfullingen Þrír leikir fóru fram í þýska handboltanum í dag. Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach unnu góðan sigur á Pfullingen 30-25, þar sem Guðjón Valur skoraði 7 mörk og Róbert Gunnarsson bætti við 6 mörkum. Sport 19.11.2005 20:50
Anja bætti eigið met Sundkonan Anja Ríkey Jakobsdóttir úr Ægi bætti eigið met í 100 metra baksundi á Íslandsmótinu í sundi í dag. Anja synti 100 metrana á 1 mínútu, 2,81 sekúndu, sem er bæting um 13/100 úr sekúndu. Sport 19.11.2005 20:26
Naumur sigur Hauka Haukar unnu nauman sigur á Víkingi/Fjölni í Grafarvogi í dag 30-28 og komust fyrir vikið í þriðja sæti deildarinnar. Þá vann topplið Vals auðveldan sigur á Selfyssingum 38-27. Sport 19.11.2005 20:12