Íþróttir
279 280 281 282 283 284 285 286 287 … 334 ›
Juventus endurheimti 8 stiga forystu Juventus endurheimti naumlega 8 stiga forystu sína á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag þegar liðið sigraði Empoli 2-1. Eftir að hafa lent 0-1 undir á heimavelli sínum var það varnarmaðurinn Fabio Cannavaro sem gerðist hetja heimamanna og skoraði bæði mörk Juve. Sport 22.1.2006 17:14
Jafnt í hálfleik á Old Trafford Nú stendur yfir einn af stórleikjum ársins í enska fótboltanum þar sem staðan er markalaus hjá Man Utd og Liverpool þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Leikurinn hefur verið jafn þó Liverpool hafi verið meira með boltann sem nemur 57% gegn 43% heimamanna í Man Utd. Leikurinn hófst kl. 16:05 og er hægt að fylgjast með gangi mála í honum hér á úrslitaþjónustu Vísis hægra meginn á íþróttasíðunni. Sport 22.1.2006 16:59
Grönholm sigraði með mínútu forskoti Marcus Grönholm fór með sigur af hólmi í Monte Carlo-rallinu sem lauk í dag en þessi snjalli Finni ekur á Ford. Grönholm varð rúmri mínútu á undan heimsmeistaranum Sebastien Loeb sem stal senunnni í rallinu í gær þegar hann gerði sér lítið fyrir og vann allar sérleiðir dagsins. Sport 22.1.2006 16:39
Slæm byrjun hjá Arnari í Hollandi Arnar Þór Viðarsson lék í dag sinn fyrsta leik með hollenska úrvalsdeildarliðinu Twente sem tapaði á heimavelli fyrir Ajax 2-3. Arnar lék allan leikinn með Twente sem var með unninn leik í lúkunum en staðan var 2-1 fyrir Twente þegar 2 mínútur voru til leiksloka. Þá urðu Arnari á dýr mistök... Sport 22.1.2006 16:23
Charlton stöðvaði sigurgöngu Chelsea Chelsea mistókst að vinna sinn ellefta sigur í röð í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar meistararnir gerðu 1-1 jafntefli við Charlton. Eiður Smári Guðjohnsen kom Chelsea yfir á 18. mínútu en Marcus Bent kom inn á af varamannabekk Charlton og jafnaði metin. Bæði Eiður Smári og Hermann Hreiðarsson (Charlton) léku allan leikinn með sínum liðum. Sport 22.1.2006 15:35
Beckham og Carlos með glæsimörk fyrir Real Madrid Real Madrid komst í gærkvöldi í 3. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með 3-1 sigri á Cadiz. Mörk úr tveimur heimsklassaaukaspyrnum frá Robert Carlos og David Beckham tryggðu sigurinn. Atlético Madrid komst í 11. sæti deildarinnar í gærkvöldi þar sem liðið er með 23 stig með góðum 0-2 útisigri Real Zaragoza. 8 leikir eru á dagkrá La Liga á Spáni í dag; Sport 22.1.2006 15:13
Stúdínur í undanúrslitin Bikarmeistarar Hauka eru úr leik í bikarkeppni kvenna í körfubolta en þær töpuðu naumlega fyrir ÍS í 8 liða úrslitunum í gærkvöldi, 63-62. Leikurinn var æsispennandi allan tímann og höfðu Stúdínur 4 stiga forystu í hálfleik, 33-29 en leikið var í Kennaraháskólanum. Sport 22.1.2006 14:21
Eiður búinn að skora gegn Charlton Eiður Smári Guðjohnsen er búinn að skora fyrir Chelsea gegn Charlton en liðin eigast nú við á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Mark Eiðs kom eftir rúmlega 17 mínútna leik eftir sendingu frá Damien Duff og gerði Eiður sér lítið fyrir og skallaði boltann í netið á nærstöng. Staðan 1-0. Sport 22.1.2006 13:52
Dagný í 43. sæti en Björgvin úr leik Björgvin Björgvinsson frá Dalvík féll úr keppni í morgun í fyrri ferð á heimsbikarmótinu í skíðum í sem fram fer í Austurríki. Þá er Dagný Linda Kristjánsdóttir skíðakona frá Akureyri í 43. sæti í bruni kvenna á heimsbikarmótinu í St. Moritz í Sviss en síðar í dag verður keppt í svigi og með góðum árangri þar getur Dagný komist ofar þar sem sameiginlega er keppt í bruni og svigi í dag. Sport 22.1.2006 13:49
Eiður í byrjunarliði Chelsea gegn Charlton Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en leikurinn hófst kl. 13:30. Chelsea getur unnið sinn ellefta sigur í röð í deildinni í dag á meðan Charlton reynir að komast upp í efri hluta deildarinnar með sigri. Hermann er að venju í byrjunarliði Charlton. Sport 22.1.2006 13:41
West Ham kaupir sóknarmann á 7.25 milljónir punda Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham styrkti lið sitt til muna í dag þegar samningar náðust við 1. deildarlið Norwich City um kaup á sóknarmanninum Dean Ashton. Kaupverðið er engin skiptimynt eða 7.25 milljónir punda fyrir þennan 22 ára gamla leikmann. Ashton sem lék áður með U21 árs landsliði Englendinga skoraði 18 mörk í 46 leikjum fyrir Norwich. Sport 22.1.2006 13:17
LeBron James skoraði 51 stig Ungstirnið LeBron James skoraði 51 stig þegar lið Cleveland Cavaliers vann 108-90 sigur á Utah Jazz í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem James skorar yrir 50 stig í leik en árangur hans í nótt er sérstakur á tvo vegu. Annars vegar í ljósi þess að hann spilaði meiddur á hné. "Vá. Það eina sem ég get sagt er VÁ," sagði þjálfari hans, Mike Brown. Sport 22.1.2006 13:06
Við verðum að vinna Liverpool Ruud van Nistelrooy, sóknarmaður Manchester United, hlakkar gífurlega til stórleiks helgarinnar í enska fótboltanum en Rauðu Djöflarnir fá Liverpool í heimsókn á Old Trafford í dag. "Liverpool er á frábærri siglingu þessa dagana en við höfum unnið önnur lið í svipaðri stöðu áður..." Sport 21.1.2006 15:42
Létt hjá Inter Milan Inter Milan saxaði á forskot Juventus niður í 5 stig á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 3-0 sigri á Palermo. Inter er nú með 48 stig í 2. sæti deildarinnar en Juventus á leik til góða. Einnig í kvöld gerðu Lazio og Cagliari 1-1 jafntefli. Sport 21.1.2006 22:19
Guðjón á réttri leið með Notts County Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku 2. deildinni í knattspyrnunni vann í dag þriðja leikinn af síðustu fjórum þegar liðið sigraði Shrewsbury 2-1. Notts County stefnir nú óðum ofar í deildinni og er nú í 11. sæti, aðeins fjórum stigum frá umspilssæti. Sport 21.1.2006 22:08
Grétar lék allan leikinn með Alkmaar Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn með AZ Alkmaar sem gerði 1-1 jafntefli við Gröningen í hollenska fótboltanum í kvöld. Alkmaar er í 2. sæti deildarinnar með 45 stig og mistókst þannig að saxa meira á forskot toppliðs PSV Eindhoven sem er með 45 stig. Sport 21.1.2006 21:55
Garðar kom inn á hjá Dunfermline Garðar Gunnlaugsson lék sínar fyrstu mínútur í skoska fótboltanum í dag þegar hann kom inn á sem varamaður hjá Dunfermline sem tapaði á útivelli, 3-1 fyrir Hibernian í Edinborg. Garðar sem fór frá Landsbankadeildarliði Vals í vetur kom inn á þegar 16 mínútur voru til leiksloka en náði ekki að setja mark sitt á leikinn í þetta sinn. Sport 21.1.2006 20:49
Eto'o með þrennu fyrir Kamerún Markahæsti leikmaður spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, Samuel Eto'o sóknarmaður Barcelona stendur allstaðar undir væntingum þessa dagana en hann skoraði þrennu fyrir landslið Kamerún sem vann Angóla 3-1 á Afríkukeppninni í kvöld. Liðin leika í B-riðli og í hinum leik riðilsins vann Kongó 2-0 sigur á Tógó. Lomana Tresor LuaLua leikmaður Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni skoraði annað mark Kongó. Sport 21.1.2006 20:41
NFL undanúrslitin annað kvöld Á morgun verða leiknir undanúrslitaleikirnir í bandaríska fótboltanum NFL. Báðir leikirnir verða sýndir á Sýn. Denver Broncos og Pittsburg Steelers mætast í fyrri leiknum klukkan 20:30 og Seattle og Carolina í seinni leiknum um klukkan 22:30. Sport 21.1.2006 15:50
Loksins sigur hjá Sunderland Botnlið Sunderland náði sínu 9. stigi í ensku úrvalsdeildinni i knattspyrnu í kvöld þegar liðið vann 0-1 útisigur á W.B.A. Það var Anthony Le Tallec sem skoraði markið mikilvæga á 72. mínútu en leiknum var að ljúka. Sport 21.1.2006 19:13
6 marka tap fyrir Frökkum Íslenska handboltalandsliðið tapaði fyrir Frökkum, 30-36, í síðari æfingaleik liðanna á Ásvöllum nú undir kvöldið. Ísland átti góða möguleika í fyrri hálfleik og leiddi mestan hálfleikinn en Frakkar sigu framúr undir lok hans og voru yfir í hálfleik 15-17. Frakkar tóku öll völd í seinni hálfleik og náðu mest átta marka forskoti. Sport 21.1.2006 17:50
Mellor tryggði Wigan sigur í blálokin Birmingham náði að laga markatöluna sína þegar liðið tók Portsmouth í bakaríið með 5-0 sigri í botnslagnum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Tottenham sem er í 4. sæti gerði aðeins markalaust jafntefli við Aston Villa. Blackburn vann nauman útisigur á Newcastle, 0-1 og Neil Mellor lánsmaður frá Liverpool skoraði sigurmark Wigan á lokamínútu leiksins í 2-3 sigri á Middlesbrough. Sport 21.1.2006 17:26
Ísland 15-17 undir í hálfleik Íslendingar eru tveimur mörkum undir gegn Frökkum, 15-17 í hálfleik en síðari æfingaleikur liðanna fer nú fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Íslenska liðið hefur leitt mest allan leikinn með einu marki en Frakkarnir sigu fram úr undir lok fyrri hálfleiks. Markvarslan hefur ekki verið góð hjá íslenska liðinu sem á einnig í vandræðum með sendingar. Sport 21.1.2006 16:54
Haukastúlkur lögðu ÍBV Haukastúlkur unnu auðveldan sigur á ÍBV í toppbaráttu DHL-deildar kvenna í handbolta í dag, 36-28 en leikið var á Ásvöllum. Ramune Pekarskyté var markahæst Haukastúlkna með 10 mörk. Sport 21.1.2006 16:23
Gylfi á bekknum hjá Leeds Gylfi Einarsson er kominn á varamannabekkinn hjá Leeds sem leikur nú gegn Sheffield Wednesday í ensku 1. deildinni í fótbolta. Þetta er annar leikurinn í röð sem Gylfi er á bekknum en hann er að snúa aftur eftir meiðsli. Sport 21.1.2006 15:17
Everton lagði Arsenal Everton gerði sér lítið fyrir og sigraði Arsenal, 1-0 á heimavelli sínum, Goodison Park í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. James Beattie skoraði eina mark leiksins á 13. mínútu. Þar með mistókst Arsenal að hrifsa 4. sæti deildarinnar af Tottenham sem þar situr þremur stigum ofar með 40 stig. Everton lyfti sér hins vegar upp í 11. sætið með 29 stig. Sport 21.1.2006 14:51
Egyptar og Fílabeinsströndin unnu 25. Afríkumótið í fótbolta hófst í gær með leik heimamanna Egypta og Líbíu þar sem heimamenn fóru með sigur af hólmi, 3-0 en liðin leika í A-riðli. Síðari leik riðilsins í fyrstu umferð var svo að ljúka þar sem Fílabeinsströndin vann 1-0 sigur á Marokkó. Sport 21.1.2006 14:34
Everton yfir gegn Arsenal Everton er 1-0 yfir á heimavelli sínum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en verið var að flauta til hálfleiks. James Beattie skoraði markið á 13. mínútu. Arsenal er í 5. sæti deildarinnar með 37 stig, fjórum stigum á eftir Tottenham sem er í 4. sæti. Everton er hins vegar að berjast fyrir tilveru sinni í deildinni og er í 14. sæti með 26 stig. Sport 21.1.2006 13:41
Cudicini framlengir hjá Chelsea Ítalski knattspyrnumarkvörðurinn Carlo Cudicini hefur skrifað undir nýjan samning við Chelsea sem gildir til ársins 2009. Þessi tíðindi koma nokkuð á óvart sérstaklega í ljósi þess að Ítalinn þykir einn besti markvörðurinn í enska boltanum og hefur aðeins fimm sinnum fengið að leika í vetur. Sport 21.1.2006 13:37
Kvikmyndastjarna etur kappi við atvinnumenn Chad Campell heldur fjögurra högga forustu sinni á Bob Hope mótinu í golfi. Bob Hope mótið er spilað á fimm dögum á fjórum mismunandi völlum. Áhugamenn fá þarna tækifæri til að spila við atvinnumenn og er einn af þessum áhugamönnum, kvikmyndaleikarinn Matthew McConaughey sem átti eitt af bestu höggum gærdagsins. Sport 21.1.2006 13:30