Íþróttir
216 217 218 219 220 221 222 223 224 … 334 ›
Ásthildur leikur ekki með Blikum í sumar Kvennalið Breiðabliks í Landsbankadeildinni hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku fyrir átökin í sumar, því ljóst er að landsliðskonan Ásthildur Helgadóttir mun ekki spila með liðinu í sumar. Ásthildur hefur náð samkomulagi við lið sitt Malmö í Svíþjóð um að leika áfram með liðinu, þrátt fyrir að vera áfram búsett hérlendis. Þetta kemur fram á heimasíðu Breiðabliks í dag. Sport 9.5.2006 16:25
Spilar ekki kveðjuleik Alan Shearer Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, hefur farið þess á leit að Michael Owen taki ekki þátt í kveðjuleik Alan Shearer á St. James´ Park á laugardaginn þar sem hann vill að framherjinn jafni sig betur af meiðslum sínum. Það verða Newcastle og Glasgow Celtic sem mætast í kveðjuleik Shearer um helgina. Sport 9.5.2006 16:20
Ætlar sér stóra hluti í Ameríku Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton ætlar að sýna úr hverju hann er gerður á laugardagskvöldið þegar hann keppir sinn fyrsta bardaga í Bandaríkjunum. Bardaginn er sá fyrsti af þremur í samningi hans við HBO-sjónvarpsstöðina. Bardagi Hatton og Luis Collazo í Boston verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn á laugardagskvöldið. Sport 9.5.2006 15:14
Slasaðist í átökum á næturklúbbi Enski landsliðsmaðurinn Wayne Bridge lenti í átökum á næturklúbbi í London í gærkvöldi og slasaðist lítillega á andliti. Hann var staddur á klúbbnum ásamt nokkrum öðrum leikmönnum til að fagna því að deildarkeppninni væri lokið, en lenti í riskingum við nokkra menn og voru þrír þeirra handteknir í kjölfarið. Bridge hlaut lítinn skurð í andlitinu en afþakkaði aðstoð sjúkraliða sem kallaðir voru á svæðið. Sport 9.5.2006 15:08
Engar auglýsingar á búningum Barcelona Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona ætlar að halda í gamlar hefðir sínar og bera ekki auglýsingu styrktaraðila framan á treyju sinni á næstu leiktíð. Barcelona er eina stórliðið í Evrópu sem ekki ber auglýsingar á treyjunum, en þó samningaviðræður við hugsanlega stuðningsaðila hafi staðið yfir undanfarið, var ákveðið að bakka út úr þeim. Sport 9.5.2006 15:01
Tim Howard lánaður til Everton Manchester United hefur ákveðið að lána bandaríska markvörðinn Tim Howard til Everton í eitt ár. Howard hefur ekki fengið mörg tækifæri í marki United síðan Hollendingurinn Edwin van der Sar gekk í raðir liðsins, en búast má við að Howard verði aðalmarkvörður Everton á næstu leiktíð. Sport 9.5.2006 14:20
Mourinho stjóri ársins Jose Mourinho var í morgun kjörinn knattspyrnustjóri ársins í ensku úrvalsdeildinni en sérstök nefnd þjálfara, leikmanna og stuðningsmanna stendur að valinu. Undir stjórn Mourinho vann Chelsea annan meistaratitil sinn í röð, en það afrek hefur aðeins Manchester United unnið síðan úrvalsdeildin var stofnuð árið 1992. Sport 9.5.2006 14:03
Phoenix hafði betur í skoteinvígi við Clippers Það var lítið um varnir í fyrsta leik Phoenix Suns og LA Clippers í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í nótt, þar sem heimamenn höfðu sigur 130-123. Steve Nash var afhent styttan fyrir að vera kjörinn verðmætasti leikmaður ársins fyrir leikinn, en hann féll klárlega í skuggann af öðrum leikmanni lengst af í nótt í leik sem sýndur var beint á NBA TV. Sport 9.5.2006 13:41
New Jersey skellti Miami New Jersey Nets vann í nótt nokkuð auðveldan sigur á Miami 100-88 á útivelli í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA deildinni. New Jersey hafði gott forskot allan leikinn, en þó heimamenn næðu góðu áhlaupi í fjórða leikhlutanum, var sigur Nets aldrei í hættu. Sport 9.5.2006 13:34
Chris Paul nýliði ársins Bandaríska dagblaðið Times-Picayune hefur eftir heimildarmanni sínum í NBA deildinni að leikstjórnandinn Chris Paul hjá New Orleans Hornets verði útnefndur nýliði ársins í deildinni á miðvikudaginn. Þessar fréttir hafa enn ekki verið staðfestar, en reynist þær réttar, koma þær sannarlega ekki á óvart. Paul bar höfuð og herðar yfir aðra nýliða í deildinni í vetur og líklega yrði það að teljast hneyksli ef annar maður hlyti nafnbótina. Sport 8.5.2006 21:56
Leeds í úrslitaleikinn Leeds tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni að ári þegar liðið lagði Preston 2-0 á útivelli og samtals 3-1. Rob Hulse og Frazer Richardson skoruðu mörk Leeds í kvöld og náði liðið að halda forystu sinni í leiknum þrátt fyrir að tveimur leikmönnum liðsins væri vísað af velli með rauð spjöld í síðari hálfleiknum. Leeds mætir Crystal Palace eða Watford í úrslitaleiknum. Sport 8.5.2006 21:40
Koeman tekur við PSV Ronald Koeman hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri PSV Eindhoven í Hollandi og hefur þegar skrifað undir tveggja ára samning við hollenska liðið. Hann sagði upp störfum hjá portúgalska liðinu Benfica í dag og sagði fjölskylduástæður hafa ráðið miklu um að hann kaus að snúa aftur til heimalandsins. Koeman stýrði Benfica í þriðja sæti deildarinnar, en undir stjórn hans náði liðið óvæntum árangri í meistaradeildinni. Sport 8.5.2006 20:10
Wallace varnarmaður ársins Ben Wallace, miðherji Detroit Pistons, hefur verið kjörinn varnarmaður ársins í fjórða sinn á ferlinum. Wallace er aðeins annar leikmaðurinn í sögu NBA deildarinnar til að hljóta þessa nafnbót fjórum sinnum á ferlinum. Sport 8.5.2006 19:11
Fékk landsliðssætið á meðan hann tók bílprófið Theo Walcott fékk í dag að vita það síðastur manna að hann hefði verið valinn í HM-hóp Englendinga í knattspyrnu, því hann var upptekinn við að taka bílprófið þegar hringt var í faðir hans og honum tilkynnt um fréttirnar góðu. Walcott er sagður hafa fengið nett áfall þegar hann heyrði tíðindin. Sport 8.5.2006 20:23
Ég hef aldrei séð Walcott spila Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, hefur verið gagnrýndur harðlega í breskum fjölmiðlum í dag eftir að hann valdi táninginn Theo Walcott hjá Arsenal í HM hóp sinn. Eriksson viðurkennir að hann hafi hvorki séð drenginn spila með berum augum, né yfir höfuð talað við hann. Sport 8.5.2006 18:40
Sigfús semur við Fram til þriggja ára Leikstjórnandinn snjalli Sigfús Sigfússon hjá Íslandsmeisturum Fram hefur gert nýjan þriggja ára samning við Safamýrarliðið. Sigfús var lykilmaður í spútnikliði Fram í vetur og var meðal annars kosinn efnilegasti leikmaður ársins af þjálfurum í DHL-deildinni á nýafstaðinni leiktíð. Þetta kemur fram á heimasíðu Fram í dag. Sport 8.5.2006 18:14
Redknapp samþykkir nýjan samning Harry Redknapp samþykkti í dag að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarliðið Portsmouth, en aðeins á eftir að ganga frá formsatriðum áður en samningurinn verður formlega undirritaður. Redknapp var samningslaus í gær eftir að liðið spilaði sinn síðasta leik á tímabilinu, en Redknapp tókst að bjarga liðinu frá falli eftir að útlitið hafði um tíma verið heldur dökkt í vetur. Sport 8.5.2006 18:10
Vongóður um að spila úrslitaleikinn Miðjumaðurinn Xabi Alonso fór í aðra myndatöku í dag eftir að hann meiddist á ökkla í leiknum gegn Portsmouth í gær, en þá kom í ljós að meiðsli hans eru ekki jafn alvarleg og óttast var í fyrstu og því gæti farið svo að hann yrði klár í slaginn í bikarúrslitaleiknum um næstu helgi. Sport 8.5.2006 16:41
Hefði aldrei tekið Walcott fram yfir Defoe Sir Bobby Robson, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segist hafa áhyggjur af landsliðshópnum sem Sven-Göran Eriksson tilkynnti í dag og segist sérstaklega óttast að þunn sveit framherja eigi eftir að verða liðinu að falli á HM í sumar. Sport 8.5.2006 16:55
Alonso kallar á úrbætur Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault vill að lið hans spýti í lófana fyrir næstu keppni til að bregðast við góðri byrjun fyrrum heimsmeistarans Michael Schumacher og Ferrari í móti ársins, en Þjóðverjinn hefur nú unnið tvær keppnir í röð. Næsta mót fer fram á heimavelli Alonso á Spáni strax um næstu helgi. Sport 8.5.2006 16:31
Preston - Leeds í beinni í kvöld Síðari undanúrslitaleikur Preston og Leeds United í umspili um laust sæti í ensku úvalsdeildinni á næstu leiktíð verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 18:30. Fyrri leiknum á Elland Road lauk með 1-1 jafntefli og því ljóst að allt verður í járnum í síðari leiknum í kvöld, þar sem sigurvegarinn mætir annað hvort Crystal Palace eða Watford í úrslitaleiknum í Cardiff þann 21. maí. Sport 8.5.2006 16:22
Duncan Ferguson á förum Úrvalsdeildarlið Everton hefur ákveðið að endurnýja ekki samninga við framherjann skapheita Duncan Ferguson og sömu sögu er að segja af kínverska landsliðsmanninum Li-Tie. Þá ætlar félagið ekki að kaupa varnarmanninn Matteo Ferrari sem verið hefur á lánssamningi frá Roma. Everton hefur hinsvegar boðið þeim Alan Stubbs og David Weir áframhaldandi samninga. Sport 8.5.2006 16:09
Fleiri en einn leikmaður neitaði að spila Ástandið í herbúðum Birmingham á síðustu dögum félagsins í ensku úrvalsdeildinni voru ekki ánægjulegir ef marka má nýjustu fréttir úr herbúðum liðsins. Steve Bruce hefur gefið upp að fleiri en einn leikmaður liðsins hafi neitað að spila í lokaleiknum gegn Bolton í gær, en liðið var sem kunnugt er þegar fallið í fyrstu deild. Sport 8.5.2006 15:55
Mikil áhætta að velja Walcott Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, segist viðurkenna að það sé mikil áhætta fólgin í því að velja hinn 17 ára gamla Theo Walcott í enska landsliðshópinn, en Walcott hefur enn ekki spilað leik fyrir aðallið Arsenal síðan hann gekk í raðir félagsins fyrir 17 milljónir punda í janúar. Sport 8.5.2006 14:20
Theo Walcott í enska landsliðshópinn Sven-Göran Eriksson hefur nú valið 23-manna landsliðshóp sinn fyrir HM í Þýskalandi í sumar og óhætt er að segja að valið komi nokkuð á óvart. Hinn ungi Theo Walcott hjá Arsenal er einn þeirra sem valdir eru í landsliðshópinn, en hann hefur enn ekki spilað leik fyrir aðallið félagsins. Þá sitja menn eins og Darren Bent, Shaun Wright-Phillips, Ledley King og Jermain Defoe úti í kuldanum. Sport 8.5.2006 13:52
Shevchenko meiddur Úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan getur ekki leikið knattspyrnu það sem eftir lifir maímánaðar eftir að hann meiddist á hné í leik með liði sínu um helgina. Meiðsli hans eru þó ekki talin það alvarleg að setja þáttöku hans á HM í sumar í hættu. "Shevchenko ætti að geta spilað fótbolta aftur eftir 25 daga," er sagt á heimasíðu Milan. Sport 8.5.2006 13:44
Tottenham íhugar málssókn Úrvalsdeildarfélagið Tottenham bíður nú eftir niðurstöðum úr rannsóknum sem verið er að gera á matvælum á Marriott-hótelinu í London, þar sem tíu leikmenn liðsins veiktust af því sem talið er hafa verið matareitrun skömmu fyrir leikinn mikilvæga gegn West Ham í gær. Ekki er útilokað að félagið fari í mál við hótelið ef sýnt þykir að maturinn á hótelinu hafi verið skemmdur. Sport 8.5.2006 13:29
Daníel Jakobsson nýr formaður Skíðasamband Íslands Daníel Jakobsson var kosinn nýr formaður Skíðasamband Íslands sem haldið var um liðna helgi í Húsabakkaskóla í Svarfaðardal. Friðrik Einarsson lét af formennsku í framhaldi af því að hann var kosinn inn í framkvæmdastjórn ÍSÍ á Íþróttaþingi fyrir viku síðan. Sport 8.5.2006 11:31
Varnarleikur meistaranna gerði útslagið San Antonio hafði ekki nema einn og hálfan sólarhring til að jafna sig eftir viðureign sína við Sacramento í fyrstu umferðinni áður en liðið sneri aftur heim og tók á móti Dallasí fyrsta leik annarar umferðarinnar í Vesturdeildinni. Meistararnir skelltu í lás í vörninni á lokasprettinum í hnífjöfnum leik og höfðu sigur 87-85. Sport 8.5.2006 01:26
Detroit lék sér að Cleveland Það rigndi þriggja stiga körfum í Detroit í gærkvöldi þegar LeBron James og félagar mættu þangað í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA. Detroit hitti úr 10 af 11 þriggja stiga skotum sínum í fyrri hálfleik og lagði grunninn að auðveldum 113-86 sigri sínum. LeBron James skoraði öll 22 stig sín í fyrri hálfleiknum og sá aldrei til sólar frekar en aðrir félagar hans hjá Cleveland. Sport 8.5.2006 01:02
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent