Íþróttir
209 210 211 212 213 214 215 216 217 … 334 ›
Khan ætlar ekki að misstíga sig Hinn 19 ára gamla vonarstjarna Breta í hnefaleikum, Amir Khan, ætlar að láta vandræði þeirra Scott Harrison og Prince Naseem Hamed verða sér víti til varnaðar í framtíðinni, en þeir hafa báðir lent í miklum erfiðleikum utan hringsins og bardaga Harrison sama kvöld hefur verið frestað eftir að hann ákvað að fara í áfengismeðferð. Sport 18.5.2006 16:37
Hrósaði Arsenal í hástert Frank Rijkaard komst í einstakan hóp manna í knattspyrnusögunni þegar hann varð aðeins fimmti maðurinn til að verða Evrópumeistari bæði sem leikmaður og þjálfari. Rijkaard hrósaði leikmönnum Arsenal fyrir baráttu sína í úrslitaleiknum í gær og sagðist hafa gert sér grein fyrir að yrði gríðarlega erfitt að brjóta vörn þeirra á bak aftur. Sport 18.5.2006 16:23
Lögregla réðist inn á skrifstofur Juventus Heimildamaður Reuters-fréttastofunnar greindi frá því í dag að ítalskar lögreglusveitir hefðu í dag ráðist til inngöngu á skrifstofur knattspyrnufélagsins Juventus og lagt þar hendur á gögn sem tengjast meðal annars leikmannakaupum Ítalíumeistaranna. Sport 18.5.2006 16:05
Gaf vísbendingar um framtíðina Thierry Henry þótti gefa vísbendingar um að hann ætlaði að vera áfram í herbúðum Arsenal á næsta ári þegar hann ávarpaði félaga sína í flugvélinni á leið frá París. Sport 18.5.2006 15:36
Hafnaði tilboði frá Manchester United Búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov, sem gengur í raðir Tottenham á næstu vikum fái hann atvinnuleyfi á Englandi, segir að honum hafi borist tilboð frá Manchester United sem hann hafi hafnað. Sport 18.5.2006 15:22
Heiðar Davíð í vandræðum Heiðar Davíð Bragason, Íslandsmeistari í höggleik, náði sér alls ekki á strik á öðrum keppnisdeginum í sænsku mótaröðinni í golfi í dag. Eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á pari í gær, spilaði hann annan hringinn á 75 höggum í dag eða 5 höggum yfir pari. Sport 18.5.2006 15:13
Birgir á höggi yfir pari í Belgíu Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék fyrsta hringinn á einu höggi yfir pari eða 73 höggum á áskorendamóti sem haldið er í Belgíu. Birgir Leifur byrjaði frekar illa og átti erfitt uppdráttar á fyrstu holunum, en náði að rétta hlut sinn á lokasprettinum. Sport 18.5.2006 15:09
Góð byrjun hjá Ólöfu Ólöf María Jónsdóttir byrjar mjög vel á Deutsche Bank mótinu í golfi sem fram fer í Sviss. Ólöf lauk keppni á tveimur höggum undir pari á fyrsta keppnisdeginum eða 70 höggum. Hún á því ágæta möguleika á að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu á morgun ef hún heldur uppteknum hætti. Sport 18.5.2006 15:04
Þurfum á Henry að halda Arsene Wenger segir að enn eigi eftir að koma í ljós hvort franski framherjinn Thierry Henry verði áfram hjá Arsenal eða ekki, en bendir á að hann sé vongóður um að halda honum. Hann segir jafnframt að Henry sé algjör lykilmaður í framtíð félagsins. Sport 18.5.2006 14:55
Hauge sér eftir ákvörðun sinni Norski dómarinn Terje Hauge segist sjá nokkuð eftir ákvörðun sinni að senda Jens Lehmann af leikvelli með rautt spjald í upphafi úrslitaleiksins í meistaradeildinni í gær og viðurkennir að hann hefði átt að bíða aðeins lengur með að taka ákvörðun sína. Sport 18.5.2006 13:47
Þráðlaust net á vellinum í sumar Og Vodafone hefur tekið í notkun þráðlaust net (Hot Spot) á öllum völlum í efstu deild karla og kvenna í sumar, alls 13 völlum. Innlent 18.5.2006 11:19
Meistararnir gefast ekki upp Meistarar San Antonio neituðu að láta slá sig út úr úrslitakeppninni á heimavelli sínum í gær þegar liðið minnkaði muninn í 3-2 í einvígi sínu við Dallas í undanúrslitum Vesturdeildarinnar með 98-97 sigri. Sigurinn var þó alls ekki auðveldur gegn frábæru liði Dallas og úrslitin réðust í rafmagnaðri spennu á lokasekúndunum líkt og í síðustu leikjum. Sport 18.5.2006 06:04
Cleveland að takast hið ómögulega? Cleveland Cavaliers sendi körfuboltasérfræðingum um allan heim langt nef í gær þegar liðið lagði Detroit Pistons 86-84 á útivelli og vann þar með sinn þriðja leik í röð í einvíginu. Cleveland getur nú klárað dæmið á heimavelli í næsta leik, en úrslit gærkvöldsins eru líklega einhver þau óvæntustu í áraraðir. Sport 18.5.2006 05:35
James fékk flest atkvæði í lið ársins Undrabarnið LeBron James hjá Cleveland Cavaliers fékk flest atkvæði allra í valinu á úrvalsliði ársins í deildarkeppni NBA í vetur, en niðurstöðurnar voru birtar nú í kvöld. Kobe Bryant hjá LA Lakers fékk næst flest atkvæði og þriðji kom svo verðmætasti leikmaður ársins, Steve Nash hjá Phoenix. Sport 17.5.2006 20:12
Harmi sleginn eftir rauða spjaldið Þýski markvörðurinn Jens Lehmann var að vonum daufur í dálkinn eftir úrslitaleik meistaradeildarinnar í kvöld þar sem hann fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins 20 mínútna leik og setti það stórt strik í reikninginn fyrir lið Arsenal. Sport 17.5.2006 22:18
Verður Gerrard framherji? Sven-Göran Eriksson segir vel koma til greina að Steven Gerrard verði færður í framlínu enska landsliðsins á HM ef svo fer að Wayne Rooney nái sér ekki af meiðslum sínum í tæka tíð. Sport 17.5.2006 20:04
Sætt að sigra gegn gömlu félögunum Giovanni van Bronchorst, leikmaður Barcelona og fyrrum leikmaður Arsenal, sagði það hafa verið sætt að leggja gömlu félagana í úrslitaleiknum í meistaradeildinni í kvöld. Sport 17.5.2006 22:10
Jöfnunarmarkið var rangstaða Arsene Wenger var að vonum ósáttur við tapið í úrslitaleik meistaradeildarinnar í kvöld, en hann var þó ánægður með leik sinna manna á miðað við aðstæður. Hann sagði að jöfnunarmark Katalóníumannanna hefði alls ekki átt að standa því þar hefði verið um rangstöðu að ræða. Sport 17.5.2006 21:28
Dómgæslan var hræðileg Thierry Henry var ekki sáttur við meðferðina sem hann fékk hjá varnarmönnum Barcelona í úrslitaleiknum í kvöld og vandaði dómara leiksins ekki kveðjurnar. Sport 17.5.2006 21:13
Barcelona Evrópumeistari Spænska liðið Barcelona er Evrópumeistari í knattspyrnu árið 2006 eftir 2-1 sigur á Arsenal í úrslitaleik í París. Sol Campbell kom enska liðinu yfir í fyrri hálfleik, en þeir Samuel Eto´o og Juliano Belletti tryggðu Barcelona sigurinn með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla undir lokin. Sport 17.5.2006 20:42
Barcelona komið yfir Barcelona er komið í 2-1 gegn Arsenal í úrslitaleik meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Samuel Eto´o jafnaði leikinn fyrir Barcelona á 76. mínútu leiksins og aðeins fjórum mínútum síðar skoraði varamaðurinn Beletti sitt fyrsta mark fyrir félagið á ferlinum og kom Börsungum í vænlega stöðu gegn aðeins tíu leikmönnum Arsenal. Sport 17.5.2006 20:29
Arsenal leiðir í hálfleik Arsenal er yfir 1-0 gegn Barcelona þegar flautað hefur verið til leikhlés í úrslitaleik meistaradeildarinnar. Það var Sol Campbell sem skoraði markið sem skilur liðin að á 37. mínútu, en Arsenal hefur leikið manni færra frá 19. mínútu þegar Jens Lehmann var vikið af leikvelli. Sport 17.5.2006 19:36
Campbell kemur Arsenal yfir Sol Campbell hefur komið Arsenal yfir gegn Barcelona á 37. mínútu með glæsilegum skalla eftir aukaspyrnu. Barcelona hefur verið heldur sterkari aðilinn eftir að Arsenal missti mann af velli með rautt spjald, en nú verður spænska liðið greinilega að spýta í lófana. Sport 17.5.2006 19:23
Lehmann rekinn útaf Dramatíkin er strax byrjuð í úrslitaleik Barcelona og Arsenal í meistaradeildinni, en Jens Lehmann markvörður Arsenal var rétt í þessu rekinn af leikvelli með rautt spjald eftir að hann felldi Samuel Eto´o sem var kominn á auðan sjó fyrir framan mark Arsenal. Manuel Almunia er því kominn í mark Arsenal og Robert Pires var tekinn af velli í hans stað. Skelfileg byrjun á úrslitaleiknum fyrir Arsenal. Sport 17.5.2006 19:05
Tap fyrir Hollandi Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði í kvöld síðari æfingaleik sínum við Hollendinga í Ásgarði 25-21. Ísland hafði yfir í hálfleik 13-12, en hollensku stúlkurnar voru sterkari í síðari hálfleiknum og unnu sannfærandi sigur. Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst í íslenska liðinu með 6 mörk og Ágústa Edda Björnsdóttir skoraði 5 mörk. Sport 17.5.2006 18:55
Byrjunarliðin klár Nú er búið að tilkynna byrjunarliðin í úrslitaleik meistaradeildar Evrópu sem er að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Sport 17.5.2006 18:04
Ísland yfir í hálfleik Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik hefur yfir 13-12 í hálfleik gegn Hollendingum í síðari æfingaleik þjóðanna á tveimur dögum. Leikurinn fer fram í Ásgarði í Garðabæ og hófst klukkan 17. Sport 17.5.2006 17:37
Berbatov ætlar sér stóra hluti Búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov sem gekk í raðir Tottenham í dag, segist ekki geta beðið eftir því að hitta nýju félagana á fyrstu æfingunni og er staðráðinn í að uppfylla þær væntingar sem gerðar eru til hans eftir að hann var keyptur á tæpar 11 milljónir punda frá Bayer Leverkusen. Sport 17.5.2006 16:53
Chelsea vill fá mig Bakvörðurinn magnaði Roberto Carlos hjá Real Madrid heldur því fram í samtali við spænska dagblaðið Marca í dag að Chelsea hafi áhuga á að fá sig til Englands. Sport 17.5.2006 16:22
Campell væntanlega í byrjunarliðinu Nú styttist óðum í úrslitaleik Arsenal og Barcelona í meistaradeildinni sem sýndur verður beint á Sýn í kvöld klukkan 18. Reiknað er með að Sol Campbell verði í byrjunarliði Arsenal, en Arsene Wenger stendur í langan tíma frammi fyrir því að geta valið úr mönnum í nokkrar stöður á vellinum. Sport 17.5.2006 16:06
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent