Íþróttir
171 172 173 174 175 176 177 178 179 … 334 ›
FH - Legia Varsjá í beinni á Sýn Nú styttist í að fyrri leikur FH og pólska liðsins Legia Varsjá í annari umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu hefjist á Kaplakrikavelli og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Útsending hefst klukkan 18:15. Búist er við gríðarlegri stemmingu á vellinum og fregnir herma að miðasala hafi gengið vonum framar. Búist er við hundruðum Pólverja á leikinn í kvöld, en eins og flestir vita er fjöldi Pólverja búsettur hérlendis og því má eiga von á líflegri stemmingu á pöllunum. Fótbolti 26.7.2006 17:52
Ánægður með hugarfar Nistelrooy Sir Alex Ferguson gaf sér í dag tíma til að hrósa hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy fyrir hugarfar sitt og frammstöðu á æfingum með Manchester United undanfarna daga, en talið er öruggt að leikmaðurinn yfirgefi herbúðir liðsins á næstunni. Sport 26.7.2006 16:44
Pennant til Liverpool Vængmaðurinn Jermaine Pennant hefur skrifað undir fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarliðið Liverpool en hann var áður hjá 1.deildarliði Birmingham. Kaupverðið er talið vera um 6,2 milljónir punda og mun gamla félagið hans Arsenal fá um 25% af kaupverðinu sem skilyrði fyrir sölu hans á sínum tíma. Sport 26.7.2006 16:34
Ísland tapaði fyrir Þjóðverjum Íslenska piltalandsliðið í körfubolta tapaði í dag 92-63 fyrir því þýska á EM í körfubolta sem fram fer í Grikklandi. Brynjar Björnsson var stigahæstur í íslenska liðinu í dag með 22 stig. Úrslitin þýða að U-18 ára lið Íslands er fallið niður í B-deildina. Sport 26.7.2006 16:27
Fékk gæsahúð þegar ég heyrði afmælissönginn Margrét Lára Viðarsdóttir hélt upp á tvítugsafmælið sitt með stæl í gærkvöldi þegar hún skoraði hvorki meira né minna en sjö mörk þegar Valur burstaði Fylki í Landsbankadeild kvenna. Hópur stuðningsmanna Valsliðsins söng afmælissönginn fyrir hana eftir leikinn, en Margrét skorar tæp þrjú mörk að meðaltali í leik í sumar sem er tölfræði sem hvaða handboltamaður gæti verið stoltur af. Sport 26.7.2006 15:43
Michael Neville gerir kauptilboð í Aston Villa Hópur fjárfesta undir forystu Aston Villa-stuðningsmannsins Michael Neville hefur lagt fram kauptilboð í félagið upp á 64 milljónir punda. Hópurinn sýndi áhuga í fyrra þegar Doug Ellis auglýsti félagið fyrst til sölu, en þá varð ekkert úr málinu. Ameríski milljarðamæringurinn Randy Lerner hefur einnig sýnt félaginu áhuga, en hefur enn ekki gert formlegt tilboð. Sport 26.7.2006 14:34
Gæti misst af upphafi leiktíðar Sænski miðjumaðurinn Freddy Ljungberg gæti misst af fyrstu leikjum Arsenal í ensku úrvalsdeildinni, en hann á við ökklameiðsli að stríða. Talsmaður Arsenal segir hann vera mjög bólginn á ökklanum og segir leikmanninn hafa fengið sprautur við þessu, sem ekki hafi skilað tilsettum árangri. Arsenal mætir Aston Villa í fyrsta leik sínum í úrvalsdeildinni þann 19. ágúst. Sport 26.7.2006 14:30
Ashley Cole gæti farið frá Arsenal í sumar Arsene Wenger hefur nú í fyrsta sinn viðurkennt að bakvörðurinn Ashley Cole gæti verið á förum frá félaginu, en Cole hefur verið orðaður við Englandsmeistara Chelsea að undanförnu. Sport 26.7.2006 14:16
Arca til Boro Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, keypti í dag fyrsta leikmanninn síðan hann tók við stjórnartaumunum af Steve McClaren. Hér er um að ræða miðjumanninn Julio Arca sem áður lék með liði Sunderland. Arca er 25 ára gamall Argentínumaður og hafði verið hjá Sunderland í fimm ár. Kaupverðið er 1,75 milljón punda. Sport 26.7.2006 14:03
Real Madrid gerir nýtt tilboð Real Madrid hefur nú gert nýtt kauptilboð í hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United og hljóðar nýja tilboðið upp á 10,3 milljónir punda. Það er þó enn nokkuð frá uppsettu verði enska félagsins sem vill fá 15 milljónir fyrir kappann, sem einnig er orðaður við Bayern Munchen í Þýskalandi. Sport 26.7.2006 13:32
Fortune kominn í Bolton Suður-Afríski leikmaðurinn Quinton Fortune er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Bolton og hefur undirritað eins árs samning við félagið. Fortune var áður hjá Manchester United en var látinn fara þaðan eftir erfiða baráttu við meiðsli. Sam Allardyce, stjóri Bolton, sagði í samtali við BBC í dag að hann hefði miklar mætur á Fortune sem leikmanni, því hann hefði mikla reynslu og gæti spilað nokkrar stöður á vellinum. Sport 26.7.2006 13:30
Margrét Lára skoraði sjö mörk á afmælisdaginn Valskonur halda uppteknum hætti í toppbaráttunni í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu og í kvöld valtaði liðið yfir Fylki 14-0 á Valbjarnarvelli. Margrét Lára Viðarsdóttir hélt upp á tvítugsafmælið sitt með því að skora 7 mörk í leiknum. Þrír aðrir leikir fóru fram í deildinni í kvöld. Sport 25.7.2006 22:13
Powell náði frábærum tíma í Svíþjóð Spretthlauparinn Asafa Powell kom fyrstur í mark í 100 metra hlaupi á sterku móti í Stokkhólmi í kvöld, þegar hann hljóp á tímanum 9,86 og setti glæsilegt mótsmet. Hann fékk að launum demant að verðmæti 10.000 punda. Jamaíkumaðurinn á sem kunnugt er heimsmetið í greininni með Bandaríkjamanninum Justin Gatlin, en það er 9,77 sekúndur. Sport 25.7.2006 18:50
Lazio og Fiorentina áfram í A-deild - AC Milan í meistaradeild Lazio og Fiorentina halda sæti sínu í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu, en Juventus verður áfram í B-deildinni. Þetta var úrskurður áfrýjunardómstóls á Ítalíu sem tilkynnti þessa niðurstöðu í kvöld. Juventus fær þó örlítið mildari refsingu en á dögunum, því dregin verða 17 stig af liðinu í upphafi leiktíðar í stað 30. Stig verða einnig dregin af Lazio og Fiorentina í A-deildinni. Fótbolti 25.7.2006 19:09
Pennant á leið til Liverpool? Breska sjónvarpið hefur eftir heimildamanni sínum hjá Birmingham að félagið hafi samþykkt 6,2 milljón punda tilboð Liverpool í vængmanninn Jermaine Pennant. Birmingham neitaði nýverið 3,5 milljóna tilboði þeirra rauðu, en nú herma fregnir að Pennant sé þegar kominn í viðræður við Liverpool. Sport 25.7.2006 18:40
Þáttur um Essomótið á Sýn í kvöld Í kvöld klukkan 20:10 verður á dagskrá Sýnar sérstakur heimildarþáttur í umsjón Þorsteins Gunnarssonar íþróttafréttamanns um Essomótið í knattspyrnu sem fram fór í 20. sinn á dögunum. Mótið var venju samkvæmt haldið á Akureyri og verður stemmingunni á vellinum sem og í kring um mótið gerð góð skil í þætti kvöldsins. Sport 25.7.2006 17:40
Bjarnólfur í tveggja leikja bann Nokkrir leikmenn úr efstu deild karla í knattspyrnu voru dæmdir í leikbann í dag þegar aganefnd KSÍ kom saman og fundaði. Bjarnólfur Lárusson, leikmaður KR, var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að vera rekinn af velli gegn fyrrum félögum sínum í ÍBV í Visa-bikarnum í gær. Sport 25.7.2006 17:31
Sigur á Englendingum Íslenska stúlknalandsliðið vann í dag sigur á Englendingum 96-79 í B-deildinni á Evrópumóti U-18 ára landsliða sem fram fer á Ítalíu. Helena Sverrisdóttir og María Ben Erlingsdóttir skoruðu 20 stig hvor og Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 17 stig. Sport 25.7.2006 17:13
Birkir Már framlengir við Val Knattspyrnudeild Vals hefur framlengt samning sinn við varnarmanninn Birkir Má Sævarsson til ársins 2010. Birkir er uppalinn Valsmaður og hefur spilað ágætlega með liðinu í sumar. Þá var Birkir fyrir nokkru valinn í íslenska U21 árs landsliðshópinn. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals í dag. Sport 25.7.2006 16:50
Haukastúlkur til Ungverjalands Í morgun var dregið í Evrópukeppni bikarhafa í kvennaflokki og þá varð ljóst að bikarmeistarar Hauka í kvennaflokki mæta ungverska liðinu Cornexi-Alcoa-HSB. Haukar spila fyrri leik sinn á heimavelli um miðjan október og útileikinn viku síðar. Handbolti 25.7.2006 15:24
Niðurstöðu að vænta í kvöld Síðar í kvöld er að vænta niðurstöðu áfrýjunar liðanna fjögurra sem fengu refsingu í knattspyrnuskandalnum á Ítalíu á dögunum, en Reuters-fréttastofan telur sig hafa heimildir fyrir því að refsingar liðanna verði mildaðar umtalsvert. Ekki er búist við að niðurstaðan í kvöld verði fyllilega rökstudd fyrr en síðar, en ljóst er að vænta má áhugaverðra tíðinda í kvöld. Nánar verður greint frá niðurstöðum hér á Vísi um leið og fréttir berast. Fótbolti 25.7.2006 15:31
Bygging valla verður lyftistöng fyrir atvinnulífið Framkvæmdir er nú senn að hefjast í Suður-Afríku þar sem HM í knattspyrnu verður haldið árið 2010. Áætlað er að byggingar nýrra leikvanga muni kosta yfir 60 milljarða króna og skipulagsnefnd mótsins þegar farin að vinna á fullu við undirbúning. Suður-Afríka er með stærsta efnahagskerfi allra Afríkulanda, en þó er atvinnuleysi í landinu metið yfir 25% og því er von manna að mótshaldið verði vítamínssprauta fyrir atvinnulífið í landinu. Sport 25.7.2006 14:57
Ullrich ætlar að snúa sér annað Þýski hjólreiðakappinn Jan Ullrich ætlar ekki að aðhafast frekar í máli sínu gegn liði T-mobile sem rak hann úr hópnum á dögunum vegna tengsla hans við rannsókn á lyfjamisnotkun. Ullrich, sem sigraði í Frakklandshjólreiðunum árið 1997 og hefur fimm sinnum hafnað í öðru sæti, segist þess í stað ætla að finna sér nýtt lið til að hjóla fyrir og stefnir á að vinna Frakklandshjólreiðarnar einu sinni enn áður en hann hættir. Sport 25.7.2006 15:14
Dunga ráðinn landsliðsþjálfari Brasilíska knattspyrnusambandið hefur nú fetað í fótspor þess þýska og réði í gærkvöld fyrrum fyrirliða landsliðsins, Dunga, sem næsta landsliðsþjálfara. Dunga hefur litla sem enga reynslu af þjálfun, en var fyrirliði Brassa þegar liðið varð heimsmeistari árið 1994 í fyrsta sinn í 24 ár. Fyrsti landsleikur hans við stjórnvölinn verður æfingaleikur við Norðmenn þann 16. ágúst næstkomandi. Sport 25.7.2006 14:44
Bilic ráðinn landsliðsþjálfari Fyrrum landsliðsmaðurinn Slaven Bilic hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Króata í knattspyrnu, en hann tekur við af Zlatko Kranjcar sem var rekinn eftir dapurt gengi Króata á HM. Bilic er 37 ára gamall og var í króatíska liðinu sem náði þriðja sætinu á HM 1998. Hann stýrði síðast U-21 árs liði Króata en sem leikmaður spilaði hann meðal annars með West Ham og Everton á Englandi. Sport 25.7.2006 14:36
Quinn tekur við Sunderland Gamli framherjinn Niall Quinn hefur tekið að sér að verða næsti knattspyrnustjóri 1.deildarliðs Sunderland, en hann lék lengst af ferlinum með liðinu. Quinn fer auk þess fyrir hópi fjárfesta sem hafa hug á að kaupa félagið og hefur gefið til kynna að tíð hans í stjórastólnum gæti orðið stutt, því ef góður stjóri verði á lausu fljótlega, muni hann stíga til hliðar. Sport 25.7.2006 14:28
Loksins framlengir Barton við City Miðjumaðurinn Joey Barton hefur nú loksins framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City. Samningaviðræður milli umboðsmanns hans og forráðamanna félagsins hafa staðið yfir í óratíma og á einum tímapunkti fór leikmaðurinn fram á að verða seldur. Sport 25.7.2006 14:21
Ég fer ekki frá Atletico Madrid Framherjinn Fernando Torres hjá spænska liðinu Atletico Madrid gaf út sérstaka yfirlýsingu á blaðamannafundi í dag þar sem hann undirstrikaði að hann færi ekki frá félaginu. Þessi frábæri 22 ára gamli framherji hefur verið einhver eftirsóttasti og umtalaðasti leikmaður Evrópu á liðnum árum, en þó hann sé hvað eftir annað orðaður við lið eins og Manchester United, virðist hann ætla að klára ferilinn með uppeldisfélagi sínu. Fótbolti 25.7.2006 14:16
Útsendarar enskra liða fylgdust með Veigari Norskir fjölmiðlar greina frá því í dag að útsendarar þriggja enskra úrvalsdeildarfélaga hafi fylgst með Veigari Páli Gunnarssyni í gærkvöld þegar hann skoraði eitt mark og lagði upp annað í 3-1 sigri Stabæk á Tromsö í norsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 25.7.2006 14:06
Birmingham hafnar tilboði Liverpool í Pennant Enska 1. deildarliðið Birmingham staðfesti í dag að það hefði hafnað 3,5 milljón punda tilboði Liverpool í vængmanninn Jermaine Pennant. Steve Bruce, stjóri Birmingham, segir að leikmaðurinn sé einfaldlega ekki falur fyrir svo lága upphæð. Pennant gekk í raðir Birmingham fyrir 3 milljónir punda frá Arsenal í fyrra. Sport 25.7.2006 13:47