Morðið á Kim Jong-nam

Segja bróður Kim Jong-un hafa verið uppljóstrara fyrir CIA
Bróðir einræðisherra Norður-Kóreu er einnig talinn hafa verið í samskiptum við leyniþjónustu Kínverja.

Morðið á Kim Jong-nam: Víetnömsku konunni sleppt í næsta mánuði
Lögmaður Doan Thi-Huong segir að henni verði sleppt úr malasísku fangelsi 3. maí næstkomandi.

Meintur morðingi Kim Jong-nam látinn laus
Konunni, Siti Aisyah, var gefið að sök að hafa makað taugaeitrinu VX í andlit Kims á flugvellinum í Kuala Lumpur árið 2017.

Leita vitna að morðinu á Kim
Kim Jong-nam lést í febrúar mánuði 2017 á alþjóðaflugvellinum í Kúala Lúmpur, höfuðborg Malasíu. Við rannsókn málsins fundust leifar af taugaeitrinu VX á andliti Kim.

Réttað yfir meintum morðingjum Kim Jong-nam í nóvember
Dómstóll í Malasíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að sönnunargögn gegn tveimur konum sem sakaðar eru um að hafa myrt Kim Jong-nam séu nægjanleg til að réttarhöld geti farið fram.

Taugaeitur notað til að myrða hálfbróður Kim Jong-un
Bandarísk yfirvöld ætla að beita Norður-Kóreu frekari refsiaðgerðum vegna morðsins.

Fjórir Norður-Kóreumenn grunaðir um aðild að drápinu á Kim Jong-nam
Lögregla í Malasíu hefur birt nöfn fjögurra manna sem grunaðir eru um aðild að morðinu á Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu.

Leifar af VX fundust á konunum sem myrtu Kim
Konurnar eru sagðar hafa gengið að honum á alþjóðaflugvellinum í Kuala Lumpur í Malasíu í febrúar og smurt taugaeitrinu framan í hann.

Eiga yfir höfði sér dauðadóm
Konurnar tvær sem grunaður eru um að hafa myrt hálfbróður leiðtoga Norður-Kóreu lýstu yfir sakleysi sínu við upphaf réttarhaldanna gegn þeim í Malasíu nú í morgun.

Trump harðorður í garð Norður-Kóreu og Íran
Forseti Bandaríkjanna kallaði eftir því að allar þjóðir heimsins einangruðu einræðisríkið alfarið.

Óttast að eitrað verði fyrir landsliðinu
Tunku Ismail Sultan Ibrahim, forseti knattspyrnusambands Malasíu, hefur áhyggjur af því að eitrað verði fyrir leikmönnum malasíska landsliðsins ef leikur þess gegn Norður-Kóreu í Asíukeppninni fer fram í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu.

Malasísk yfirvöld reka sendiherra Norður-Kóreu úr landi
Malasísk yfirvöld hafa látið í ljósi mikla óánægju með ummæli sendiherrans um rannsóknina á morði Kim Jong-nam.

Þáði aðeins um tíu þúsund krónur fyrir að myrða Kim Jong-nam
Konan taldi að hún væri að taka þátt í sjónvarpshrekk, ekki banatilræði.

Bróðurmorð og innflutningsbann
Furðufréttir berast enn frá Norður-Kóreu. Yfirvöld eru talin hafa látið myrða bróður leiðtoga ríkisins. Kínverjar sett innflutningsbann á kol frá ríkinu.

Hyggjast gefa út handtökuskipan á hendur sendiráðsstarfsmanni vegna morðsins á Kim Jong-Nam
Fjórir einstaklingar hafa verið handteknir grunaðir um aðild að morðinu á Kim Jong-Nam, tvær konur og tveir karlmenn.

Stórhættulegt taugaeitur var notað til að bana Kim
Kim Jong-nam var hálfbróðir einræðisherrans í Norður-Kóreu, Kim Jong-un.

Kim Jong Nam myrtur með gereyðingarvopni
VX-taugaeitrið er talið eitraðasta taugaeitur sem þekkist.

Segja yfirvöld í Malasíu bera ábyrgð á dauða Kim Jong-nam
Í frétt á KCNA, ríkisfjölmiðli Norður-Kóreu segir að Malasía beri ábyrgð á dauða norður-kóresk ríkisborgara.


Leita að sendiráðsstarfsmanni í tengslum við morðið á Kim Jong-nam
Yfirvöld í Malasíu hafa óskað eftir aðstoða yfirvalda í Norður-Kóreu við það að hafa uppi á sendiráðsstarfsmanni Norður-Kóreu í Kuala Lumpur í tengslum við morðið á Kim Jong-nam.

Kim Jong-nam var óttasleginn og vænisjúkur áður en hann dó
Kim Jong-nam var seinustu ár óttasleginn og vænisjúkur, í felum frá einræðisstjórn Norður-Kóreu sem hálfbróðir hans, Kim Jong-un stýrir.

Fjölmiðlar birta myndband sem talið er að sýni morðið á Kim Jong-nam
Japönsk sjónvarpsstöð hefur birt myndband sem talið er að sýni morðið á Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu.

Lögreglan telur stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa skipulagt morðið
Fjórir Norður-Kóreumenn flúðu frá Malasíu daginn sem fregnir bárust af því að hálfbróðir leiðtogans Kim Jong Un hafi verið myrtur í landinu.

Fjórða handtakan vegna morðsins á Kim Jong-nam
Malasíska lögreglan handtók í gærkvöldi norðurkóreskan ríkisborgara í tengslum við morðið á Kim Jong-nam, hálfbróður einræðisherrans Kim Jong-un.

Grunuð um að myrða Kim Jong-nam: Hélt hún væri að taka þátt í sjónvarpshrekk
Indónesísk kona sem handtekin var í vikunni, grunuð um að myrða Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, var talið trú um að hún væri að taka þátt í grínþætti í sjónvarpi með því að hrekkja fólk.

Uppreisnargjarni glaumgosinn Kim Jong-nam
Kim Jong-nam var vafalaust ætlað leiðtogahlutverki í Norður-Kóreu. Hann var hins vegar ráðinn af dögum af útsendurum Norður-Kóreustjórnar fyrr í vikunni.

Önnur kona handtekin vegna morðsins á Kim Jong-nam
Krufningu á líkinu er lokið en niðurstöður hennar hafa þó ekki verið gerðar opinberar.

Kona í haldi vegna morðsins á Kim Jong-Nam
Malasískir fjölmiðlar segja að hin grunaða sé frá Mýanmar (Búrma) en hún var handtekin á flugvellinum í Kuala Lumpur í gærmorgun.

Suður-Kóreustjórn staðfestir að hálfbróðir Kim Jong-un hafi verið drepinn
Starfandi forseti Suður-Kóreu segir að ef í ljós komi að Norður-Kóreustjórn beri ábyrgð á árásinni myndi það varpa ljósi á "hrottalegt og ómanneskulegt“ eðli hennar.