
Danski handboltinn

Elín Jóna fann sig ekki í stóru tapi
Elín Jóna Þorsteinsdóttir og stöllur hennar í danska liðinu Ringkøbing máttu þola stórt tap er liðið heimsótti Ajax frá Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Lokatölur 30-21, Ajax í vil.

Aron og félagar snéru taflinu við í seinni hálfleik
Aron Pálmarsson og félagar hans í Álaborg unnu góðan endurkomusigur er liðið heimsótti Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Eftir að hafa verið fimm mörkum undir í hálfleik komu Aron og félagar til baka og unnu góðan eins marks sigur, 31-30.

Elín Jóna fór á kostum í Íslendingaslag
Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti frábæran leik í marki Ringkøbing er liðið vann góðan átta marka sigur, 28-20, gegn Steinunni Hansdóttur og liðsfélögum hennar í Skanderborg í danska handboltanum í kvöld.

Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk í sigri Aalborg
Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk þegar að lið hans, Aalborg, bar sigurorð af Skive í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta fyrr í dag, 36-27. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari hjá liðinu.

Sandra markahæst í tapi
Sandra Erlingsdóttir var markahæst í tapi Álaborgar gegn SønderjyskE í dönsku B-deildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 22-28.

Aron skoraði sjö í naumum sigri
Fjórir leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, og í tveimur þeirra voru Íslendingar í eldlínunni. Arnon Pálmarsson skorai sjö mörk þegar að Álaborg sigraði Skjern með einu marki, 27-26, og Viktor Gísli Hallgrímsson stóð vaktina í marki GOG sem vann fimm marka sigur gegn TMS Ringsted, 36-31.

Aron snýr aftur til leiks
Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, er að komast í gang eftir að hafa meiðst í upphafi leiktíðar. Búast má við því að hann spili með Aalborg í Meistaradeild Evrópu í dag.

Bronsið til Álaborgar
Íslendingalið Álaborgar tryggði sér í dag bronsverðlaun á HM félagsliða í handbolta sem fram hefur farið í Sádi Arabíu undanfarna daga.

Viktor Gísli og félagar áfram með fullt hús stiga
GOG vann níu marka sigur á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, lokatölur 33-24. Þá vann Skövde nauman eins marks sigur í sænsku úrvalsdeildinni.

Gummersbach með fullt hús stiga | Elín Jóna fór mikinn
Íslendingarnir í þýsku B-deildinni í handbolta létu heldur betur finna fyrir sér í kvöld. Hákon Daði Styrmisson átti frábæran leik í 32-24 sigri Gummersbach á Grosswallstadt og þá var Anton Rúnarsson öflugur í 31-23 sigri Emsdetten á Ferndord.

Viktor og félagar með fullt hús | Aalborg vann örugglega án Arons
Fimm leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag og það voru Íslendingar í eldlínunni í fjórum þeirra. Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í GOG eru enn með fullt hús stiga eftir þriggja marka sigur gegn Mors Thy, 30-27.

„Sjaldan sem menn ná árangri strax“
Á ýmsu hefur gengið hjá Guðmundi Guðmundssyni undanfarna daga. Á sunnudaginn var honum sagt upp störfum hjá Melsungen í Þýskalandi en í gær var hann kynntur sem nýr þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Fredericia. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Fredericia og tekur við liðinu næsta sumar.

Hreifst af fyrirætlunum Fredericia: „Skýr og trúverðug markmiðasetning“
Guðmundur Guðmundsson segir að tilboð danska úrvalsdeildarliðsins Fredericia hafi verið afar heillandi og verkefnið þar á bæ sé mjög spennandi.

Guðmundur snýr aftur til Danmerkur
Guðmundur Guðmundsson tekur við danska úrvalsdeildarliðinu Fredericia næsta sumar. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fredericia.

Góðar fréttir af Aroni sem spilar samt ekki næstu vikurnar
Betur fór en á horfðist hjá Aroni Pálmarssyni, landsliðsfyrirliða í handbolta, sem þó verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst í leik með sínu nýja liði Aalborg í Danmörku.

Aron meiddur af velli: „Auðvitað hef ég áhyggjur“
Aron Pálmarsson varð að hætta leik með Aalborg gegn Ringsted í gær eftir að hafa spilað í tuttugu mínútur, vegna meiðsla í mjöðm.

Aron skoraði þrjú í stórsigri
Aron Pálmarsson og félagar hans í Aalborg unnu í dag átta marka sigur þegar að Ringsted kíkti í heimsókn í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Lokatölur 38-30 og Aron skoraði þrjú mörk fyrir heimamenn.

Óvænt samkeppni og bekkjarseta en gæti orðið mikilvægasta tímabilið á ferlinum
Staða Viktors Gísla Hallgrímssonar hjá danska úrvalsdeildarliðinu GOG breyttist talsvert í sumar þegar það fékk Torbjørn Bergerud, markvörð norska landsliðsins, til sín. Viktor segir að það hafi tekið tíma að venjast breyttu hlutverki hjá GOG en vonast til að þetta tímabil gæti reynst mikilvægt í framtíðinni.

„Eitt mest spennandi lið Evrópu, ef ekki það mest spennandi“
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson segist vera á leið til eins mest spennandi félags í Evrópu, ef ekki þess mest spennandi.

Fyrsta deildartap Arons í fjörutíu mánuði
Aron Pálmarsson upplifði í gær nokkuð sem hann hefur ekki gert í rúm ár; að tapa deildarleik.

Sveinn Jóhannsson hafði betur gegn Aroni Pálmarssyni í Íslendingaslag
Sveinn Jóhannsson og félagar hans í SønderjyskE unnu í kvöld góðan 29-28 sigur gegn Aroni Pálmarssyni og félögum hans í Aalborg í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Viktor Gísli sagður á leið til Frakklands
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson er sagður vera á leið til HBC Nantes í Frakklandi. Viktor Gísli er í dag samningsbundinn danska úrvalsdeildarfélaginu GOG.

Aron fer vel af stað í Danmörku
Aron Pálmarsson og félagar hans í Álaborg áttu ekki í miklum vandræðum með að vinna Midtjylland, 29-36, í dönsku bikarkeppninni í handbolta í dag.

Titill í fyrsta leik Arons með Aalborg
Aron Pálmarsson spilaði sinn fyrsta leik með nýju liði þegar hann og félagar hans í Aalborg unnu átta marka sigur gegn Mors Thy í danska Ofurbikarnum, 33-25.

Viktor Gísli og félagar áfram í danska bikarnum
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í GOG eru komnir áfram í danska bikarnum eftir fjögurra marka sigur gegn Ringsted, 32-28.

Viktor Gísli valinn besti ungi markmaður heims
Viktor Gísli Hallgrímsson var á dögunum kjörinn besti ungi markmaður heims í kjöri sem vefmiðillinn handball-planet stóð fyrir. Alls bárust yfir 31.000 atkvæði.

Mors-Thy bikarmeistari eftir spennutrylli
Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari Álaborgar, og hans lærisveinar þurftu að sætta sig við silfur í dönsku bikarkeppninni í handbolta eftir naumt tap, 32-31, fyrir Mors-Thy í úrslitaleik.

Elvar Örn skoraði fimm hjá Viktori Gísla og hlaut brons
Elvar Örn Jónsson og félagar hans í Skjern hlutu í dag brons í dönsku bikarkeppninni í handbolta eftir 31-26 sigur á Viktori Gísla Hallgrímssyni og hans félögum í GOG í bronsleik.

Álaborg vann Íslendingaslaginn og fer í úrslit
Álaborg vann 35-31 sigur á GOG í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar í handbolta í dag og mætir Mors-Thy í úrslitum keppninnar á morgun.

Elvar og félagar komust ekki í úrslit
Elvar Örn Jónsson og félagar hans í Skjern þurftu að þola 33-28 tap fyrir Mors-Thy í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar í handbolta í dag. Mors mætir annaðhvort GOG eða Álaborg í úrslitum.