Sveitarstjórnarmál Skátar í hávegum í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær verður fyrst bæjarfélaga til að semja um rekstur á skátastarfsemi. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, mun undirrita samstarfssamning við skátafélagið Hraunbúa í kvöld. Innlent 13.10.2005 18:48 Sameiningin í uppnámi Áformaðar kosningar um stórfellda sameiningu sveitarfélaga í apríl eru í uppnámi vegna ósamkomulags ríkis og sveitarfélaga um breytta tekjuskiptingu. Sveitarfélögin krefjast allt að fimm milljarða króna tekjuaukningar. Innlent 13.10.2005 18:45 Kostar 30.000 að leysa út kött Kosta mun um 30.000 krónur að leysa út kött sem eftirlitsmenn á Suðurnesjum hafa veitt og hefur verið geymdur í viku, að sögn Magnúsar Guðjónssonar framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Innlent 13.10.2005 15:29 Vindmyllan verður eitthvað áfram Enn er ekki komið á hreint hver á og ber ábyrgð á vindmyllunni í Grímsey, að sögn Óttars Jóhannssonar oddvita í sveitarfélaginu. Málið hefði verið til umræðu í sveitarstjórn en ekkert meira. Innlent 13.10.2005 15:28 Laun bæjarfulltrúa lækkuð Tillaga um að lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna í Reykjanesbæjar var borin upp á bæjarstjórnarfundi í gær og var tillögunni vísað til bæjarráðs. Það var Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem bar tillöguna fram en nauðsynlegt er að draga úr kostnaði hjá yfirstjórn bæjarins um fjórar milljónir króna. Innlent 13.10.2005 15:24 Fjárhagsáætlunin í uppnámi Fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar er í uppnámi eftir að Skipulagsstofnun vísaði aðalskipulagstillögu meirihluta Sjálfstæðismanna heim í hérað á ný. Í fjárhagsáætlun 2005, sem samþykkt var 24. nóvember síðastliðinn með atkvæðum meirihluta sjálfstæðismanna, er ráðgert að selja land Hrólfskálamels og Suðurstrandar og er áætlað söluverð 350 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 15:20 Lækkun fasteignagjalda á Nesinu Meirihluti Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Seltjarnarness hefur ákveðið að leggja fram tillögu um lækkun fasteignagjalda árið 2005 á Seltjarnarnesi á fundi bæjarstjórnar síðar í mánuðinum. Flokkurinn segir það í samræmi við stefnu hans um ábyrga fjármálastjórn bæjarins og lágar álögur. Innlent 13.10.2005 15:18 Borgin sameinist ekki Kjósarhreppi Reykjavíkurborg mælir ekki með því að kosið verði um sameiningu borgarinnar við Kjósarhrepp í allsherjarkosningu um sameiningu sveitarfélaga sem verður eftir fjóra mánuði. Mörg önnur sveitarfélög víða um land hafna einnig sameiningartillögu. Innlent 13.10.2005 15:14 Reykjanesbrautin ekki breikkuð? Bæjarstjórn Garðabæjar hefur hafnað því að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til að breikka Reykjanesbraut samkvæmt fyrirliggjandi tillögum. Bæjarstjórinn segir meðal annars hljóðmanir of háar en fundur verði með hagmunaðilum í næstu viku. Bæjarstjórinn efast ekki um að brautin verði breikkuð. Innlent 13.10.2005 15:12 Bæjarstjórinn komi úr Framsókn Líklegt er að framsóknarmenn í bæjarstjórn Kópavogs fari fram á að embætti bæjarstjóra haldist í þeirra röðum þangað til í júní þegar Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi og þingmaður Sjálfstæðisflokks, tekur við starfinu. Innlent 13.10.2005 15:05 Sveitarfélögin færri en hundrað Sameining fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu var samþykkt í gær og sömuleiðis sameining fjögurra sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar. Sveitarfélög í landinu eru þar með orðin færri en hundrað. Innlent 13.10.2005 15:01 Meirihlutinn á Dalvík sprakk Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Dalvíkur sprakk í dag. Ekki reyndist unnt að leysa ágreining um grunnskólann á Húsabakka í Svarfaðardal. Sjálfstæðismenn vildu leggja hann niður en framsóknarmenn ekki. Líklegt þykir að Sjálfstæðisflokkurinn myndi nýjan meirihluta með I-lista. Innlent 13.10.2005 15:01 Samvinna um stóriðju Norðlendingar þurfa að vinna saman í stóriðjumálinu. Innlent 13.10.2005 15:01 Þjónustugjöld á Akranesi hækka Bæjarráð Akraness hefur samþykkt hækkun þjónustugjalda um 5% frá 1. janúar 2005. Innlent 13.10.2005 14:56 Leikskólagjöld færa 28 milljónir Hækkun leikskólagjalda til námsmanna þar sem annað foreldra er í námi, færir borgarsjóði 28 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 14:56 Uppbygging byggðar í Urriðaholti. Garðabær kallar íbúa sveitarfélagsins, og aðra þá sem kunna að hafa áhuga á uppbyggingu nýrrar byggðar í Urriðaholti í Garðabæ, til fundar við sig í golfskála Oddfellow-reglunnar í Urriðavatnsdölum við Garðabæ í dag. Þar á að ræða uppbyggingu nýrrar byggðar í Urriðaholti. Innlent 13.10.2005 14:55 Sagði af sér formennsku Andrés Sigmundsson sagði af sér formennsku í bæjarráði Vestmannaeyja og verkefnastjórn Menningarhúss í Vestmannaeyjum eftir að upp komst um viljayfirlýsingu sem hann undirritaði um að kaupa hús í bænum fyrir 154 milljónir fyrir tæpum mánuði síðan. Innlent 13.10.2005 14:56 Afsögn formanns bæjarráðs Andrés Sigmundsson, formaður bæjarráðs Vestmannaeyja, hefur sagt af sér í framhaldi af umræðu sem átti sér stað á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær um undirritun hans á viljayfirlýsingu um skoðun kaupa á fasteignum. Frá þessu greinir á Eyjar.net. Andrés sagði af sér bæði sem formaður bæjarráðs og formaður í verkefnisstjórn um byggingu menningarhúss. Innlent 13.10.2005 14:55 Samkomulag um sorpið Nýtt deiliskipulag verður unnið á urðunarsvæði Sorpstöðvar Suðurlands á Kirkjuferjuhjáleigu, sem gildir þar til stöðin hættir urðun þar 1. desember 2008. Þá verður urðunarrein sem verið er að ganga frá lækkuð til samræmis við nýtt skipulag. Innlent 13.10.2005 14:54 Sorpflutningur spennandi kostur Alfreð Þorsteinsson stjórnarformaður Sorpu segir það spennandi kost að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu verði flutt austur fyrir fjall og því fargað á svæði vestan við Þorlákshöfn. Innlent 13.10.2005 14:53 Samkomulag náðist ekki Ekki náðist samkomulag meðal fulltrúa aðildarsveitarfélaga Sorpstöðvar Suðurlands um lausn á ágreiningi varðandi starfsemi stöðvarinnar. Innlent 13.10.2005 14:53 Vilja allt sorp til Þorlákshafnar Viðræður eru um að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu verði urðað skammt vestan við Þorlákshöfn. Heimamenn segjast hafa áhuga á að gera nútímasorpstöð. Samkomulag um Sorpstöð Suðurlands kynnt í dag. </font /> Hafin er athugun á því að flytja allt sorp af höfuðborgarsvæðinu á stórt svæði vestan við Þorlákshöfn, þar sem því yrði eytt. </b /> Innlent 13.10.2005 14:52 Samkomulag undirritað fyrir austan Oddvitar L-lista félagshyggjufólks og D lista sjálfstæðisflokks undirrituðu í gærkvöldi samkomulag um meirihlutasamstarf í hinu nýja sveitarfélagi Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir að nýtt stjórnskipulag verði tekið í notkun sem kallar á töluverðar breytingar, bæði hjá kjörnum fulltrúum og starfsmönnnum bæjarfélagsins. Innlent 13.10.2005 14:52 Fjárfestar í kísilduftið Gengið hefur verið frá samkomulagi við fjárfesta vegna fyrirhugaðrar kísilduftverksmiðju í Mývatnssveit, að sögn Sigbjörns Gunnarssonar sveitarstjóra. Innlent 13.10.2005 14:51 Nálgast samkomulag um sorp Heldur hefur þokast í átt til samkomulags milli sveitarstjórnar Ölfuss og stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands, að sögn Hjörleifs Brynjólfssonar oddvita sveitarstjórnar Ölfuss. Innlent 13.10.2005 14:50 Standa við lokun sorpstöðvar Lausn á ágreiningi um Sorpstöð Suðurlands er ekki í sjónmáli. Aðeins vika er í að stöðinni verði lokað. Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað til að leysa ágreininginn. Innlent 13.10.2005 14:48 Mynda nýjan meirihluta Héraðslisti félagshyggjufólks og listi Sjálfstæðisflokksins munu reyna að mynda nýjan meirihluta í nýsameinuðu sveitarfélagi Fellahrepps, Austur- og Norðurhéraðs en flokkarnir störfuðu saman í stjórn Austurhéraðs, fjölmennasta svæðisins, fyrir sameininguna. Innlent 13.10.2005 14:48 Íbúaþing í Hafnarfirði í dag Íbúaþing er haldið í Hafnarfirði í dag undir yfirskriftinni „Undir Gafli“. Markmið þingsins er að fá fram hugmyndir íbúa Hafnarfjarðar um málefni sveitarfélagsins, afla upplýsinga um hvað brennur helst á íbúum og nýta þær til að móta framtíðarsýn fyrir Hafnarfjörð, að því er fram kemur í frétt frá bæjarfélaginu. Innlent 13.10.2005 14:46 Vegagerðinni synjað um leyfi Bæjarstjórn Ölfuss synjaði Vegagerðinni um framkvæmdaleyfi vegna nýs vegar um Svínahraun fyrir helgi. Synjunin gæti orðið til þess að vegabæturnar frestist um fjölda ára. Innlent 13.10.2005 14:44 Sameining sveitarfélaga í pípunum Líklegt er að íbúar 80 sveitarfélaga gangi að kjörborðinu næsta vor til að greiða atkvæði um sameiningu við nágrannasveitarfélög. Það gerist ef tillögur um breytingar á sveitarfélagaskipan ná fram að ganga en þær verða kynntar á blaðamannafundi sem er nýhafinn á Hóteli Nordica. Innlent 13.10.2005 14:43 « ‹ 36 37 38 39 40 ›
Skátar í hávegum í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær verður fyrst bæjarfélaga til að semja um rekstur á skátastarfsemi. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, mun undirrita samstarfssamning við skátafélagið Hraunbúa í kvöld. Innlent 13.10.2005 18:48
Sameiningin í uppnámi Áformaðar kosningar um stórfellda sameiningu sveitarfélaga í apríl eru í uppnámi vegna ósamkomulags ríkis og sveitarfélaga um breytta tekjuskiptingu. Sveitarfélögin krefjast allt að fimm milljarða króna tekjuaukningar. Innlent 13.10.2005 18:45
Kostar 30.000 að leysa út kött Kosta mun um 30.000 krónur að leysa út kött sem eftirlitsmenn á Suðurnesjum hafa veitt og hefur verið geymdur í viku, að sögn Magnúsar Guðjónssonar framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Innlent 13.10.2005 15:29
Vindmyllan verður eitthvað áfram Enn er ekki komið á hreint hver á og ber ábyrgð á vindmyllunni í Grímsey, að sögn Óttars Jóhannssonar oddvita í sveitarfélaginu. Málið hefði verið til umræðu í sveitarstjórn en ekkert meira. Innlent 13.10.2005 15:28
Laun bæjarfulltrúa lækkuð Tillaga um að lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna í Reykjanesbæjar var borin upp á bæjarstjórnarfundi í gær og var tillögunni vísað til bæjarráðs. Það var Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem bar tillöguna fram en nauðsynlegt er að draga úr kostnaði hjá yfirstjórn bæjarins um fjórar milljónir króna. Innlent 13.10.2005 15:24
Fjárhagsáætlunin í uppnámi Fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar er í uppnámi eftir að Skipulagsstofnun vísaði aðalskipulagstillögu meirihluta Sjálfstæðismanna heim í hérað á ný. Í fjárhagsáætlun 2005, sem samþykkt var 24. nóvember síðastliðinn með atkvæðum meirihluta sjálfstæðismanna, er ráðgert að selja land Hrólfskálamels og Suðurstrandar og er áætlað söluverð 350 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 15:20
Lækkun fasteignagjalda á Nesinu Meirihluti Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Seltjarnarness hefur ákveðið að leggja fram tillögu um lækkun fasteignagjalda árið 2005 á Seltjarnarnesi á fundi bæjarstjórnar síðar í mánuðinum. Flokkurinn segir það í samræmi við stefnu hans um ábyrga fjármálastjórn bæjarins og lágar álögur. Innlent 13.10.2005 15:18
Borgin sameinist ekki Kjósarhreppi Reykjavíkurborg mælir ekki með því að kosið verði um sameiningu borgarinnar við Kjósarhrepp í allsherjarkosningu um sameiningu sveitarfélaga sem verður eftir fjóra mánuði. Mörg önnur sveitarfélög víða um land hafna einnig sameiningartillögu. Innlent 13.10.2005 15:14
Reykjanesbrautin ekki breikkuð? Bæjarstjórn Garðabæjar hefur hafnað því að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til að breikka Reykjanesbraut samkvæmt fyrirliggjandi tillögum. Bæjarstjórinn segir meðal annars hljóðmanir of háar en fundur verði með hagmunaðilum í næstu viku. Bæjarstjórinn efast ekki um að brautin verði breikkuð. Innlent 13.10.2005 15:12
Bæjarstjórinn komi úr Framsókn Líklegt er að framsóknarmenn í bæjarstjórn Kópavogs fari fram á að embætti bæjarstjóra haldist í þeirra röðum þangað til í júní þegar Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi og þingmaður Sjálfstæðisflokks, tekur við starfinu. Innlent 13.10.2005 15:05
Sveitarfélögin færri en hundrað Sameining fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu var samþykkt í gær og sömuleiðis sameining fjögurra sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar. Sveitarfélög í landinu eru þar með orðin færri en hundrað. Innlent 13.10.2005 15:01
Meirihlutinn á Dalvík sprakk Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Dalvíkur sprakk í dag. Ekki reyndist unnt að leysa ágreining um grunnskólann á Húsabakka í Svarfaðardal. Sjálfstæðismenn vildu leggja hann niður en framsóknarmenn ekki. Líklegt þykir að Sjálfstæðisflokkurinn myndi nýjan meirihluta með I-lista. Innlent 13.10.2005 15:01
Þjónustugjöld á Akranesi hækka Bæjarráð Akraness hefur samþykkt hækkun þjónustugjalda um 5% frá 1. janúar 2005. Innlent 13.10.2005 14:56
Leikskólagjöld færa 28 milljónir Hækkun leikskólagjalda til námsmanna þar sem annað foreldra er í námi, færir borgarsjóði 28 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 14:56
Uppbygging byggðar í Urriðaholti. Garðabær kallar íbúa sveitarfélagsins, og aðra þá sem kunna að hafa áhuga á uppbyggingu nýrrar byggðar í Urriðaholti í Garðabæ, til fundar við sig í golfskála Oddfellow-reglunnar í Urriðavatnsdölum við Garðabæ í dag. Þar á að ræða uppbyggingu nýrrar byggðar í Urriðaholti. Innlent 13.10.2005 14:55
Sagði af sér formennsku Andrés Sigmundsson sagði af sér formennsku í bæjarráði Vestmannaeyja og verkefnastjórn Menningarhúss í Vestmannaeyjum eftir að upp komst um viljayfirlýsingu sem hann undirritaði um að kaupa hús í bænum fyrir 154 milljónir fyrir tæpum mánuði síðan. Innlent 13.10.2005 14:56
Afsögn formanns bæjarráðs Andrés Sigmundsson, formaður bæjarráðs Vestmannaeyja, hefur sagt af sér í framhaldi af umræðu sem átti sér stað á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær um undirritun hans á viljayfirlýsingu um skoðun kaupa á fasteignum. Frá þessu greinir á Eyjar.net. Andrés sagði af sér bæði sem formaður bæjarráðs og formaður í verkefnisstjórn um byggingu menningarhúss. Innlent 13.10.2005 14:55
Samkomulag um sorpið Nýtt deiliskipulag verður unnið á urðunarsvæði Sorpstöðvar Suðurlands á Kirkjuferjuhjáleigu, sem gildir þar til stöðin hættir urðun þar 1. desember 2008. Þá verður urðunarrein sem verið er að ganga frá lækkuð til samræmis við nýtt skipulag. Innlent 13.10.2005 14:54
Sorpflutningur spennandi kostur Alfreð Þorsteinsson stjórnarformaður Sorpu segir það spennandi kost að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu verði flutt austur fyrir fjall og því fargað á svæði vestan við Þorlákshöfn. Innlent 13.10.2005 14:53
Samkomulag náðist ekki Ekki náðist samkomulag meðal fulltrúa aðildarsveitarfélaga Sorpstöðvar Suðurlands um lausn á ágreiningi varðandi starfsemi stöðvarinnar. Innlent 13.10.2005 14:53
Vilja allt sorp til Þorlákshafnar Viðræður eru um að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu verði urðað skammt vestan við Þorlákshöfn. Heimamenn segjast hafa áhuga á að gera nútímasorpstöð. Samkomulag um Sorpstöð Suðurlands kynnt í dag. </font /> Hafin er athugun á því að flytja allt sorp af höfuðborgarsvæðinu á stórt svæði vestan við Þorlákshöfn, þar sem því yrði eytt. </b /> Innlent 13.10.2005 14:52
Samkomulag undirritað fyrir austan Oddvitar L-lista félagshyggjufólks og D lista sjálfstæðisflokks undirrituðu í gærkvöldi samkomulag um meirihlutasamstarf í hinu nýja sveitarfélagi Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir að nýtt stjórnskipulag verði tekið í notkun sem kallar á töluverðar breytingar, bæði hjá kjörnum fulltrúum og starfsmönnnum bæjarfélagsins. Innlent 13.10.2005 14:52
Fjárfestar í kísilduftið Gengið hefur verið frá samkomulagi við fjárfesta vegna fyrirhugaðrar kísilduftverksmiðju í Mývatnssveit, að sögn Sigbjörns Gunnarssonar sveitarstjóra. Innlent 13.10.2005 14:51
Nálgast samkomulag um sorp Heldur hefur þokast í átt til samkomulags milli sveitarstjórnar Ölfuss og stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands, að sögn Hjörleifs Brynjólfssonar oddvita sveitarstjórnar Ölfuss. Innlent 13.10.2005 14:50
Standa við lokun sorpstöðvar Lausn á ágreiningi um Sorpstöð Suðurlands er ekki í sjónmáli. Aðeins vika er í að stöðinni verði lokað. Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað til að leysa ágreininginn. Innlent 13.10.2005 14:48
Mynda nýjan meirihluta Héraðslisti félagshyggjufólks og listi Sjálfstæðisflokksins munu reyna að mynda nýjan meirihluta í nýsameinuðu sveitarfélagi Fellahrepps, Austur- og Norðurhéraðs en flokkarnir störfuðu saman í stjórn Austurhéraðs, fjölmennasta svæðisins, fyrir sameininguna. Innlent 13.10.2005 14:48
Íbúaþing í Hafnarfirði í dag Íbúaþing er haldið í Hafnarfirði í dag undir yfirskriftinni „Undir Gafli“. Markmið þingsins er að fá fram hugmyndir íbúa Hafnarfjarðar um málefni sveitarfélagsins, afla upplýsinga um hvað brennur helst á íbúum og nýta þær til að móta framtíðarsýn fyrir Hafnarfjörð, að því er fram kemur í frétt frá bæjarfélaginu. Innlent 13.10.2005 14:46
Vegagerðinni synjað um leyfi Bæjarstjórn Ölfuss synjaði Vegagerðinni um framkvæmdaleyfi vegna nýs vegar um Svínahraun fyrir helgi. Synjunin gæti orðið til þess að vegabæturnar frestist um fjölda ára. Innlent 13.10.2005 14:44
Sameining sveitarfélaga í pípunum Líklegt er að íbúar 80 sveitarfélaga gangi að kjörborðinu næsta vor til að greiða atkvæði um sameiningu við nágrannasveitarfélög. Það gerist ef tillögur um breytingar á sveitarfélagaskipan ná fram að ganga en þær verða kynntar á blaðamannafundi sem er nýhafinn á Hóteli Nordica. Innlent 13.10.2005 14:43