EM 2022 í Englandi

Þorsteinn ráðinn landsliðsþjálfari
Þorsteinn Halldórsson hefur verið ráðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta.

„Hefði viljað ná henni núna því ég er ekki viss um að við náum henni seinna“
Helena Ólafsdóttir, spekingur Stöð 2 Sport og fyrrum landsliðsþjálfari kvenna, hefði viljað sjá Elísabetu Gunnarsdóttur taka við kvennalandsliðinu í fótbolta. Þetta sagði hún í Sportpakkanum á Stöð 2.

Nýr landsliðsþjálfari byrjar á leik gegn Frökkum
Fyrsti leikur nýs þjálfara íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta verður gegn ógnarsterku liði Frakka.

Ekki ásættanlegt að gera landsliðsþjálfarastarfið að hlutastarfi
„Ég held að við værum ekki einu sinni að ræða þetta ef að um karlalandsliðið væri að ræða,“ segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ, um þá niðurstöðu að ráða ekki Elísabetu Gunnarsdóttur í starf landsliðsþjálfara samhliða starfi hennar sem þjálfari Kristianstad.

Elísabet drullusvekkt með að verða ekki landsliðsþjálfari
Ekkert verður af því að Elísabet Gunnarsdóttir taki við íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta. Samningaviðræður hennar og KSÍ sigldu í strand.

Lazarov leiddi Norður-Makedóníu til sigurs og sætis í milliriðli
Norður-Makedónía tryggði sér sæti í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta í Egyptalandi með sigri á Síle, 32-29, í dag.

Ótrúlega stolt að hafa fætt tvö börn og fengið strax samning hjá nýju félagi
Innan við ári eftir að hafa fætt tvíbura í Stokkhólmi hefur landsliðsmarkmaðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir nú skrifað undir samning við nýtt félag, norska úrvalsdeildarfélagið Arna-Björnar.

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta lið ársins
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er lið ársins 2020 að mati Samtaka íþróttafréttamanna. Þetta kom fram á 65. hófi samtakanna sem var sýnt frá á RÚV í kvöld.

Ísland sextánda besta lið heims
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í 16. sæti á styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í dag.

Sammála um að Borghildur beri ekki ábyrgð
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands er einhuga og sammála um að Borghildur Sigurðardóttir, varaformaður KSÍ, og annað starfsfólk kvennalandsliðsins hafi sinnt sínu starfi í ferðinni örlagaríku til Ungverjalands af fagmennsku og þau beri ekki ábyrgð á framkomu Jóns Þórs Haukssonar, fráfarandi landsliðsþjálfara.

Andri biðst afsökunar á að hafa kallað landsliðskonur Íslands litlar mýs
Andri Júlíusson hefur nú komið fram og beðist afsökunar á skrifum sínum á Twitter. Honum sárnar að hafa verið sakaður um kvenfyrirlitningu.

Get ekki setið undir slíkum ásökunum enda eru þær fjarri sannleikanum
Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir segist ekki getað setið undir þeim ásökunum að leikmenn íslenska landsliðsins hafi á einn eða annan hátt hrakið Jón Þór Hauksson, þjálfara liðsins, úr starfi.

Sara Björk ofarlega á lista Guardian yfir hundrað bestu leikmenn heims
Enski miðill The Guardian velur ár hvert 100 bestu knattspyrnukonur ársins. Landsliðsfyrirliði Íslands, Sara Björk Gunnarsdóttir, er í 24. sæti listans fyrir árið 2020.

Fannst ekki við hæfi að ræða málið í Ungverjalandi á stjórnarfundi
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir að honum hafi ekki fundist við hæfi að ræða atvikið gerðist í Ungverjalandi á stjórnarfundi þar sem starfsfólk KSÍ hafi enn verið að safna gögnum um málið. Einnig hafi máli verið viðkvæmt starfsmannamál.

Sara Björk: Ég sem fyrirliði liðsins mun alltaf standa þétt við bakið á leikmönnum
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu tjáði sig í kvöld varðandi hvað átti sér stað í fagnaðarlátum íslenska liðsins er sætið á EM í Englandi var tryggt. Þá gagnrýnir hún ákveðna fjölmiðla og umfjöllun þeirra um málið.

„Vissi ekki að kvenfyrirlitning, karlremba og vanvirðing kæmust saman í eitt tíst“
Heitar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum hjá þeim sem hafa tekið til varna fyrir Jón Þór Hauksson, fráfarandi þjálfara íslenska kvennalandsliðsins.

Hver á að taka við kvennalandsliðinu?
Hver á að taka við íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta sem er án þjálfara? Vísir fer yfir líklega kosti í stöðunni.

Mál Jóns Þórs voru ekki rædd á stjórnarfundi KSÍ
Varaformaður KSÍ sagði félögum sínum í stjórn Knattspyrnusambands Íslands ekki frá því sem gerðist eftir leik Íslands og Ungverjalands þegar hún sat með þeim fund tveimur dögum síðar.

Segir að starfslokin hafi alfarið verið milli KSÍ og Jóns Þórs og engin pressa hafi verið frá leikmönnum
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, vildi ekki mikið tjá sig um starfslok Jóns Þórs Haukssonar sem er hættur með kvennalandsliðið í fótbolta. Hann neitaði því að leikmenn liðsins hefðu sett pressu á KSÍ að skipta um landsliðsþjálfara.

Jón Þór hættir sem landsliðsþjálfari
Jón Þór Hauksson er hættur sem þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá KSÍ.

Vill sjá Lars Lagerbäck sem yfirþjálfara beggja landsliðanna
Það stefnir allt í það að bæði íslensku landsliðin verði án þjálfara eftir daginn í dag og tvöföld þjálfaraleit því í gangi í jólamánuðinum hjá Knattspyrnusambandi Íslands.

Helena Ólafs um mál Jóns Þórs: Fyrst og fremst sorglegt
Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi Pepsi Max Markanna á Stöð 2 Sport, sem og fyrrum leikmaður og þjálfari íslenska landsliðsins, segir stöðu íslenska kvennalandsliðsins í dag fyrst og fremst sorglega.

Segja að KSÍ sé búið að ákveða að reka Jón Þór
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands ku hafa ákveðið að segja Jóni Þór Haukssyni upp störfum sem þjálfara kvennalandsliðsins í fótbolta.

Segja grænt ljós á drykkju í Búdapest algjöra undantekningu
Ekki er venjan að áfengi sé leyfilegt í ferðum íslensku fótboltalandsliðanna. Gerð var undantekning eftir að kvennalandsliðið tryggði sér sæti á EM í síðustu viku.

Segja að nokkrar fastakonur í landsliðinu íhugi að gefa ekki kost á sér
Framtíð Jóns Þórs Haukssonar sem þjálfara íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu mun vera tekin fyrir hjá stjórn Knattspyrnusambands Íslands í vikunni.

Jón Þór bíður eftir fundi með KSÍ og stelpunum
Framtíð Jóns Þórs Haukssonar sem þjálfara A-landsliðs kvenna er talin hanga á bláþræði í kjölfar framkomu þjálfarans gagnvart leikmönnum eftir frækinn sigur á Ungverjalandi í vikunni. Með sigrinum tryggði landsliðið sér sæti á Evrópumótinu 2022.

Ætlar ekki að tjá sig frekar um uppákomuna
Jón Þór Hauksson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, vildi ekki tjá sig nánar um það sem fram fór í fagnaðarlátum liðsins eftir að EM sætið var tryggt í Ungverjalandi fyrr í vikunni.

Framkoma Jóns Þórs í fögnuði landsliðsins til skoðunar
Framkoma Jóns Þórs Haukssonar landsliðsþjálfara í fögnuði íslenska kvennalandsliðsins eftir að þær tryggðu sér sæti á EM 2022 á þriðjudaginn er til skoðunar hjá KSÍ. Hann var undir áhrifum áfengis og þótti fara yfir strikið í samtölum sínum við leikmenn.

Hvaða leikmenn græða mest á því að EM fari fram ári síðar en upphaflega stóð til? [Seinni hluti]
Evrópumót kvenna í knattspyrnu fer fram sumarið 2022 í Englandi. Er þetta fjórða Evrópumótið í röð sem íslenska landsliðið tekur þátt í. Hvaða leikmenn liðsins græða mest á því að mótinu sé frestað um ár?

„Get gengið stolt frá borði“
Eftir þrettán ár í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta og 103 landsleiki hefur Rakel Hönnudóttir lagt landsliðskóna á hilluna. Hún segir nokkuð síðan hún tók þessa ákvörðun en hún hefði líklega leikið áfram með landsliðinu ef EM hefði ekki verið frestað um ár. Rakel segir framtíð landsliðsins bjarta.