Reykjavík síðdegis

Ekki komin á þann stað að ráðherrar þurfi lífverði
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, telur ekki að íslensk þjóð sé komin á þann stað að æðstu ráðamenn þjóðarinnar þurfi á lífvarðargæslu að halda öllum stundum þrátt fyrir fréttir síðustu vikna um að tveir menn eigi að hafa rætt sín á milli um að ráða tiltekið stjórnmálafólk af dögum.

Segist heyra margar kjaftasögur um Play en blæs á þær allar
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist heyra margar kjaftasögur um starfsemi félagsins. Hann blæs á þær allar og minnir á að félagið sé skráð á markað.

„Ég veit ekki hvernig þau ætla að klára þingið“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness getur ekki sagt til um hvaða áhrif sú upplausn sem varð á þingi ASÍ í dag muni hafa á komandi kjaraviðræður. Hann segir að það verði að koma í ljós á næstu dögum hvort að fulltrúar þeirra félaga sem gengu út á þingi myndi með sér nýtt bandalag.

Sniðugt að greiða niður skuldir áður en fjárfest verði í listaverkum
Lektor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands segir sniðugt að greiða niður lán og skuldir áður en farið verði í óhefðbundnari fjárfestingar. Mikilvægast sé þó að fjárfesta í sjálfum sér enda lífið stutt og fólk eigi að reyna að láta drauma sína rætast.

Íslendingar aldrei óhamingjusamari: „Verðum að finna gæðastundir án snjallsíma“
Íslendingar mælast sífellt óhamingjusamari og síðustu tvö ár hafa komið illa út í mælingum Landlæknis. Eftir hrun jókst hamingja þar sem foreldrar eyddu meiri tíma á heimilinu með börnum. Í heimsfaraldri kórónaveiru gerðist það sama en þá virðast heimavinna og snjallsímar hafa komið í veg fyrir gæðastundir á heimilum fólks.

Ekki selst fleiri miðar á árshátíð lögreglunnar síðan 1998
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna segir að lögregluþjónar kalli eftir auknum rannsóknarheimildum og rafbyssum til að auka bæði öryggi sitt í starfi og öryggi borgara landsins.

Sendiherrann vakinn um miðja nótt
Sendiherra Íslands í Lundúnum var vakinn við hljóðfæraleik og trommuslátt í vikunni þegar verið var að æfa fyrir útför Elísabetar II, sem fram fer á mánudaginn næstkomandi. Þúsundir manna hafa streymt til borgarinnar síðustu daga og öryggisgæsla hefur aldrei verið meiri.

„Þá verður allt vitlaust á Akranesi“
Forseti bæjarstjórnar Akraness segir að það verði allt vitlaust í bænum, nái hugmyndir innviðaráðherra um gjaldtöku í jarðgöngum fram að ganga. Það gildi allt annað um Hvalfjarðargöngin en önnur göng, enda sé löngu búið að borga göngin upp.

Embla er íslensk Siri í stöðugri þróun
Með tæknivæðingunni hafa komið hinar ýmsu snjalllausnir eins og rafræna aðstoðarkona Apple, Siri og aðstoðarkona Amazon, Alexa. Siri og Alexa skilja ekki íslensku en nú er íslensk útgáfa í þróun, hún ber heitið Embla.

„Það er búið að rugla í okkur svo lengi“
„Maður veltir oft fyrir sér með þær systur, í hvaða súpu þær eru, í hvaða hringiðju. Ég held að þær séu á þeim stað þar sem pressan er óhugsandi,“ segir Erna Kristín Stefánsdóttir talskona fyrir jákvæða líkamsímynd og guðfræðingur um Kardashian systurnar.

„Það er kannski einhverjum sem finnst þetta órómantískt“
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir eigandi Munum og framkvæmdastjóri ÍMARK telur að það ætti að reka fjölskyldur og heimili meira eins og fyrirtæki. Hún hafði velt þessu mikið fyrir sér og stofnaði í kjölfarið verkefnið Fjölskyldan ehf.

Segir dómarann færa fullgild rök fyrir niðurstöðu sinni
Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi Hæstaréttardómari segir rök dómarans vegna dómsins sem féll nú á dögunum vegna stunguárásar í miðbæ Reykjavíkur vera fullgild. Hann hafi verið á því máli að dómurinn hafi átt að vera þyngri þar til hann las dóminn.

Lítur út fyrir að flugvöllur í Hvassahrauni sé úr myndinni
Formaður borgarráðs segir það líti út fyrir að flugvöllur í Hvassahrauni sé úr myndinni. Þó þurfi enn að bíða eftir niðurstöðum starfshóps til þess að útiloka hann alveg.

Stýrivaxtahækkanir komi verst við þá sem keyptu húsnæði í Covid
Þingmaður Samfylkingarinnar kallar eftir því að stjórnvöld ráðist í sértækar aðgerðir til að bregðast við stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem kynnt var í dag. Hækkunin komi sérstaklega illa niður á þeim sem keyptu húsnæði í heimsfaraldri með hvatningu fjármálaráðherra og seðlabankastjóra.

Sagði upp stöðu fjármálastjóra og er nú hamingjusamur sem þjónn
Héðinn Sveinbjörnsson var fjármálastjóri hjá Reykjavíkurborg en tók u-beygju í lífinu og starfar nú sem þjónn í Grundarfirði. Allt í þágu hamingjunnar.

Næstu kynslóðir þurfi að búa sig undir tíð eldgos
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að næstu kynslóðir landsmanna þurfi að búa sig undir tíð eldgos á Reykjanesskaganum.

Vill prófa að breyta klukkunni í Vestmannaeyjum
Reglulega hefur komið til umræðu að seinka klukkunni á Íslandi um eina klukkustund til að færa hana nær sólartíma og samræma betur líkamsklukku Íslendinga.

Lúsmýið úlfaldi úr mýflugu
Meindýraeyðir telur að lúsmýið sé komið til að vera. Það virki að eitra fyrir flugunum en með því að eitra sé verið að drepa fleiri skordýrategundir í leiðinni.

Ákvörðun um að loka hjólhýsabyggð á Laugarvatni endanleg
Hjólhýsaeigendur á Laugarvatni verða að vera búnir að koma öllum hjólhýsum, pöllum og öðrum fylgihlutum í burtu fyrir næstu áramót samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar. Formaður félags hjólhýsaeigenda á Laugarvatni ætlar ekki að gefast upp en sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir ákvörðunina endanlega.

Fjárfestar haldi fyrstu kaupendum frá fasteignamarkaði
Elvar Guðjónsson, fasteignasali, segir fjárfesta halda nýjum kaupendum frá fasteignamarkaðnum. Fjárfestar eigi of auðvelt með að kaupa sér fleiri fasteignir á kostnað nýrra kaupenda og seðlabankastjóri hafi gert fasteignamarkaðinn enn ójafnari með því að hækka vexti og lækka lánshlutfall.

Mikil óþolinmæði í samfélaginu
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að fólk geti verið nokkuð rólegt yfir því að verið sé að færa faglega símaþjónustu Læknavaktarinnar til heilsugæslnanna. Breytingin tekur gildi 1. september næstkomandi.

Hefur áhyggjur af aukinni dagdrykkju eldri borgara
Alkóhólistum fjölgar ört í hópi eldri borgara á Íslandi og tæp tvöföldun hefur orðið í dagdrykkju 61 árs og eldri, samkvæmt innlagnartölum á Vogi. Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af þróuninni og segir áfengisdýrkun ríkja í samfélaginu.

Fátt um fína drætti í júlí en ágúst lofar góðu
Rætt var við Sigurð Þ. Ragnarsson, veðurfræðing sem betur er þekktur sem Siggi Stormur, í Reykjavík síðdegis í dag. Hann segir að veðrið í júlí verði bland í poka. Besta veðrið verði líklegast á Suðurlandi um helgina og síðan á Norðurlandi helgina eftir.

Þróun mála í Bandaríkjunum „sérstök og ömurleg“
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir þróun mála í Bandaríkjunum í kjölfar niðurfellingu fordæmis Roe v Wade vera ömurlega. Þungunarrof sé sjálfsagður réttur kvenna.

Skaðleg efni leynast víða
Bergdís Björk Bæringsdóttir, sérfræðingur í þrávirkum efnum hjá Umhverfisstofnun segir PFAS efni leynast víða og geta valdið hinum ýmsu heilsukvillum eins og frjósemis- og skjaldkirtilsvandamálum.

Óttast að verið sé að ganga of langt
Aðalhagfræðingur Stefnis óttast að verið sé að ganga of langt til að kæla fasteignamarkaðinn. Hann segir verðbólguna geta farið að sjatna þegar daginn tekur að stytta.

Ekki hægt að breyta skoðun sinni á Bitcoin þótt verðið fari upp eða niður
Rafmyntir hafa tekið mikinn skell síðustu vikur í takt við hefðbundna hlutabréfamarkaði. Dæmi eru um að virði margra minni rafmynta sé orðið að engu en stærsta rafmyntin, Bitcoin, stendur nú í rúmum 22 þúsund dollurum. Bitcoin fór hæst í 69 þúsund dollara í nóvember á síðasta ári.

„Ég er algjörlega sammála, þetta er bara viðbjóðslegt“
Forstjóri flugfélagsins Play tekur undir að hótel sem farþega var boðið eftir að flugferð félagsins var aflýst hafi verið óboðlegt. Hann segir lítið annað hægt að gera en að biðjast afsökunar og læra af reynslunni.

Betra fyrir andlega heilsu að borða nóg en að borða hollt
Næringarfræðingur segir nýja rannsókn, sem Heilbrigðisvísindastofnun HÍ hefur tekið þátt í, benda til þess að heilbrigt mataræði geti hjálpað til við að draga úr þunglyndiseinkennum og þannig stuðlað að bættri geðheilsu. Meira máli skiptir þó að fólk borði nóg en að það borði hollt.

Hugmyndir Simma fara illa í landsmenn
Grein Sigmars Vilhjálmssonar, athafnamanns og formanns Atvinnufjelagsins, sem birtist á Vísi í gær virðist ekki hafa farið vel í landsmenn. Á netmiðlum hafa notendur keppst við að gagnrýna hugmyndir Sigmars og þurfti hann sjálfur að verja sig í kommentakerfum netmiðla.