Umferðaröryggi
Ekkert hraðaeftirlit í Vaðlaheiðargöngum
Hraðamyndavélar lögreglu hafa ekki enn verið settar upp í Vaðlaheiðargöngum en göngin hafa verið opin nú í tæpt hálft ár. Framkvæmdastjóri segir stutt í að búnaður verði settur upp en ökumenn almennt löghlýðna í göngunum.
Engin tölfræði til um tengsl símnotkunar og umferðarslysa hér á landi
Íslensk stjórnvöld hafa enga tölfræði um tengsl símtækjanotkunar og umferðarslysa hér á landi og ekkert er fjallað um símnotkun í slysaskýrslu Samgöngustofu fyrir árið 2018. Ástæðan er sú að þessar upplýsingar eru aldrei skráðar af lögreglu nema ökumenn veiti þær sjálfir.
Öryggi eykst í Ölfusi þegar fyrsta áfanga lýkur í haust
Breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss er komin vel á veg og stefnt að því að fyrsta áfanga ljúki í haust. Umferð á hringveginum er beint tímabundið um nýjan innansveitarveg.
Alltof algengt að fólk virði ekki umferðarlokanir
Fólk þurfi að bera virðingu fyrir störfum lögreglu og varast að spilla vettvangi.
Ökumenn virtu ekki lokanir eftir að ekið hafði verið á barn
Lögreglan segir það vera með öllu óskiljanlegt þegar ökumenn virða ekki lokanir.
Langflestir sem keyra á dýr stinga af
Aðeins um 15% þeirra sem aka á búfé á vegum á Suðurlandi tilkynna það til lögreglu.
Spyrna og reykspól ungra karlmanna viðvarandi vandamál
Íbúar í Vesturbæ Reykjavíkur hafa orðið varir við ökumenn sem leggja leið sína út á Granda síðla kvölds þar sem þeir nýta stór bílastæði á svæðinu í spyrnu og reykspólun með tilheyrandi hávaða. Lögreglumaður hjá Umferðardeild segir þetta vera viðvarandi vandamál.
Hættulegur vegarkafli í Öræfum ekki breikkaður fyrr en eftir nokkur ár
Samgönguráðherra segir að vegarkafli í Öræfum þar sem rútuslys hafa orðið verði ekki breikkaður fyrr en eftir nokkur ár miðað við fyrirliggjandi áætlanir. Tölur Vegagerðarinnar sýna að umferð um Suðurlandið hefur aukist um tugi prósenta undanfarin ár.
Ákall til stjórnvalda um stórátak í vegamálum
Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri í Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur miklar áhyggjur af vegamálum innan sveitarfélagsins í kjölfar rútuslyssins á fimmtudaginn.
Voru fæst í belti þrátt fyrir tilmæli bílstjóra
Búið er að ræða við bílstjóra rútunnar en hann hafði gefið farþegum tilmæli um að spenna beltin.
Yfirlögregluþjónn spyr hvort fjölskylda á sunnudagsrúntinum eigi að njóta vafans eða timbraður ökumaður
Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi gagnrýnir breytt verklag ríkissaksóknara vegna ökumanna sem aka undir áhrifum fíkniefna. Breytingin felst í því að ökumaður er ekki lengur sviptur ökuréttindum við fyrsta brot þegar fíkniefni greinast eingöngu í þvagi en ekki blóði hans.
Rúmlega tvöfalt fleiri kærðir fyrir of hraðan akstur á Suðurlandi
Rúmlega tvöfalt fleiri ökumenn hafa verið kærðir fyrir hraðakstur á Suðurlandi fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Yfirlögregluþjónn í rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi telur þetta hafa leitt til fækkunar slysa.
Vinsældir hjólreiða gera kröfu um breytta hegðun í umferðinni
Hákon Hrafn Sigurðsson, reyndur hjólreiðarmaður segir að hjólreiðarmenningin á Íslandi sé komin styttra en víðast hvar erlendis. Tillitssemi í garð allra vegfarenda leiki þar stórt hlutverk.
Gífurleg fjölgun á slysum vegna fíkniefnaaksturs
Fjöldi slasaðra vegna fíkniefnaaksturs hefur margfaldast á síðustu árum. Deildarstjóri hjá Samgöngustofu segir tíðindin hörmuleg. Erfitt sé þó að taka á vandanum með auglýsingaherferð.
Slysum vegna fíkniefnaaksturs fjölgar stórlega
Nærri þrefalt fleiri slösuðust í umferðarslysum vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna í fyrra en fyrir áratug síðan og í fyrsta sinn er fíkniefnaakstur orðið stærra vandamál en ölvunarakstur. Samgönguráðherra segir þetta mikið áhyggjuefni og að málið verði skoðað í tengslum við breytingar á umferðarlögum.
Fleiri slasast vegna fíkniefna- en ölvunaraksturs
Ýmislegt forvitnilegt má finna í nýrri skýrslu um umferðarslys.
Til skoðunar að lækka hámarkshraða á Snorrabraut, Langholtsvegi og víðar
Meirihluti þeirra sem látast eða slasast alvarlega í umferðarslysum í borginni eru hjólandi og gangandi vegfarendur. Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar segir það vera til skoðunar að lækka hámarkshraða víða í borginni. Þannig megi draga úr líkum á því að þeir sem verði fyrir bílum hljóti alvarleg meiðsl.
Gangbrautir upplýstar eins og leiksvið
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðis f lokksins hefur lagt fram tillögu fyrir borgarstjórnarfund á morgun um að fara í tilraunaverkefni til að auka öryggi á gangbrautum.
40% ökunema falla í fyrstu tilraun við bóklega prófið
40,4% ökunema sem þreyta bóklegt próf, falla í fyrstu tilraun. Fallhlutfall hefur aukist úr 32,9% árið 2017 og 33,3% árið 2016 án þess að sérstakar breytingar hafi verið gerðar á kröfum eða þyngdarstigi prófa.
Ráðherra stóðst prófið
Ekki er útilokað að allir viðskipavinir bílaleiga verði skyldaðir til að ljúka ítarlegri umferðarfræðslu áður en þeir fá afhenta lykla að bílaleigubíl. Markmið tilraunaverkefnis sem ýtt var úr vör í dag er að bæta hegðun ökumanna og fækka óhöppum.
Ökumaður á rauðu ljósi ók á barn rétt hjá hinum slysstaðnum á Hringbraut
Lækkun hámarkshraða hefur þegar tekið gildi á Hringbraut en ekki verður hægt að framfylgja lækkuninni fyrr en merkingar verða settar upp í maí.
400 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur síðustu daga á þeim slóðum þar sem banaslysið varð
Banaslys varð á þjóðveginum í botni Langadals, utan Blönduóss, vestan Húnavers í gærkvöldi.
Sektaður um 210 þúsund vegna hraðaksturs
Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært allmarga ökumenn fyrir of hraðan akstur á síðastliðnum dögum.
Lögreglan þarf 500 milljónir í auka fjárframlög ef frumvarp til nýrra umferðarlaga verður að lögum
Aðallögfræðingur hjá lögreglunni segir breytingar um að lækka leyfileg mörk vínandamagns í blóði ökumanns leiða til töluvert fleiri verkefna hjá lögreglu, sem muni kalla á aukin útgjöld
Fleiri snappa undir stýri
Fleiri framhaldsskólanemendur senda Snapchat-skilaboð eða leita að upplýsingum á netinu undir stýri en fyrir þremur árum. Þetta kemur fram í nýrri könnun Sjóvár.
Börnin ekki í bílstólum og ökumaðurinn með útrunnið skírteini
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gær afskipti af ökumanni sem var með tvö börn í bifreið sinni og voru þau ekki í bílstólum.
Verkhönnun 2+1 vegar um Kjalarnes boðin út
Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun vegna breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnes. Vonast er til að nýr tveir plús einn vegur með aðskildum akreinum verði tilbúinn eftir þrjú ár.
Ekkert banaslys orðið í umferðinni á árinu það sem af er
Ekkert banaslys hefur orðið í umferðinni það sem af er ári og fara þarf tæplega áttatíu ár aftur í tímann til þess að finna tímabil þar sem ekkert banaslys hafði orðið þegar svo langt er liðið inn á árið eins og nú.
Mætti á stöðina og borgaði hraðasektina með klinki
Ökumaður, sem staðinn hafði verið að hraðakstri, mætti nýverið á lögreglustöð á höfuðborgarsvæðinu og borgaði sektina með smámynt.
Ný gatnamót á Sæbraut við Frakkastíg
Frakkastígur verður tengdur Sæbraut með nýjum gatnamótum og hefjast framkvæmdir á næstu dögum. Auk framlengingar á Frakkastíg út að Sæbraut verður gatan endurgerð milli Skúlagötu og Lindargötu.