
Pistlar

Erfitt að manna framboð, það sem er gott fyrir bankana, skoðanakönnun um klám
Samkvæmt heimildum gengur erfiðlega að manna framboð hægri grænna. Það er dálítið stór ákvörðun að gefa kost á sér í alþingiskosningum. Margir eru hræddir við það. Hræddir við að það eyðileggi starfsferil sinn...

Píkusögur, P-dagur, frelsum ástina, flokksráð VG, bókmenntafræði
Í Silfrinu í gær sagði ég frá því að mér þætti leikritið Píkusögur geysilega klámfengið. Spurði hvort ekki þyrfti að banna það? Einu sinni var ég viðstaddur fund þar sem flutt var brot úr verkinu...

Stefán og Hannes í Silfrinu
Prófessorarnir Stefán Ólafsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson verða sérstakir gestir í Silfri Egils á sunnudag. Þeir munu ræða um ójöfnuð í íslensku samfélagi, fátækt, skatta og sitthvað í þeim dúr...

Maó var norskur
Hér er fjallað um klámhátíðina miklu sem ekki verður haldin í Reykjavík, norsk áhrif á hugmyndir íslenskra vinstrimanna og femínista, leðurheteró, framboðsmál Vinstri grænna og Samfylkingarinnar og loks er spurt hvað Jón Baldvin ætli að gera...

Bankauppreisn, öskudagur, dýr íbúðarlán, Eyðimörk
Það er víðar en á Íslandi að bankar eru umdeildir, gróði þeirra, græðgi og feikileg umsvif. Dagblaðið The Independent slær upp á forsíðu sinni uppreisn gegn bönkunum í Bretlandi og álögum þeirra á viðskiptavini...

Þunglyndislegar dýralífsmyndir, íslenskt karneval, brú yfir Skerjafjörð
Yfirleitt byrja dýralífsmyndir vel, með mörgum sætum, skemmtilegum og áhugaverðum dýrum. Svo syrtir í álinn. Fyrst byrja dýrin að eðla sér. Svo fara þau að éta hvort annað...

Eiki Hauks, pidgin-íslenska, Norður-Kórea norðursins, samgönguáætlun
Í hliðargötu út frá Karli Jóhanni, framan við krá eina, sérstæður mannsöfnuður. Þar voru að mér sýndist svona fimm þúsund menn sem allir litu út eins og Eiríkur Hauksson og Pétur heitinn Kristjánsson...

Afskipt börn
Við höfum komið okkur upp eins konar kerfi aðskilnaðarstefnu þar sem börnin eru geymd á stofnunum frá því í frumbernsku. Við getum reyndar ekki heldur beðið eftir því að skutla gamla fólkinu inn á stofnanir líka...

Afmæli Kims, Evróvisjón, maður í ræktinni, spjótkast
Kim Jong-il, hinn mikli leiðtogi Norður-Kóreu, varð sextíu og fimm ára í vikunni. Erfitt að trúa því. Það er bara eins og séu örfá ár síðan hann var ungur maður við fótskör föður síns, Kims Il Sung...

Eru óperur leiðinlegar?
Ef eitthvað getur orðið banabiti íslensku óperunnar þá er þá er það ef hún setur upp kassastykki eins og Carmen eða La Bohème. Eitthvað sem fólkið vill sjá. Þess vegna er sett upp obskúr ópera eftir frekar leiðinlegt tónskáld, Stravinsky...

Baugsmálið, Króníkan, klámþing og femínistar
Baugsmálið er farið að minna mig á leikrit eftir Harold Pinter. Pinter samdi verk þar sem allir tala í kross, enginn skilur neinn, öll samskipti milli fólks eru meira eða minna markleysa...

Kosningatrix, samgöngumiðstöð, Bjargsmálið, Latino-Nordics
Er eitthvað að marka samgönguáætlun sem Sturla Böðvarsson lagði fram í gær? Það er allsendis óvíst að Sturla sitji í næstu ríkisstjórn – dagar hans sem ráðherra eru líklega taldir. Ríkisvaldið er líka þekkt fyrir annað en að fara eftir svona áætlunum...

Líf og dauði Sankti Kildu
Eyjaskeggjum var hótað vítisvist ef þeir iðkuðu söng og dansa. Mikill tími fór í kirkjulegar athafnir – fólkinu var bannað að vinna á sunnudögum. Það var heldur óráðlegt, því lífsbaráttan var svo hörð að helst mátti ekki missa úr dag...

Paradís fyrir fjármagnið
Þetta er blautur nýfrjálshyggjudraumur. Það er eins hægt að ganga með skilti í kröfugöngu. Þetta er stéttabarátta þar sem frekur og valdamikill minnihluti vill tryggja sér lífskjör sem eru órafjarri því sem tíðkast meðal fjöldans...

Vel mannað Silfur
Geir H. Haarde, Bragi Kristjónsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Guðrún Pétursdóttir og Bjarni Harðarson eru meðal gesta í Silfrinu á morgun...

Spilltur fótbolti
Nú dettur mér ekki í hug að halda með Liverpool lengur. Maður heldur ekki með fyrirtæki, ekki fótboltaliði fremur en Sony, Pepsi Cola eða Starbuck´s....

Ómar fær ekki að tala, Sólrún tekur á sig rögg, konur í pólitík
Ómar Ragnarsson mun ekki hafa fengið að ávarpa fund Framtíðarlandsins í kvöld. Hann taldist víst ekki fullgildur meðlimur. Samt hafði honum verið boðið fyrsta sætið á lista þess – ef af framboði yrði...

Víðernin, hálendisvegur, Byrgismál, Breiðavík, póstlistar, taugaveiki
Stærstu ósnortnu víðerni í Evrópu er orðin einhvers konar mantra. Vei þeim sem kann ekki að meta þau, eða lýsir hrifningu sinni ekki nógu sterkt...

Óboðlegar skoðanakannanir
Maður vonast til að fá almennilegar skoðanakannanir fyrir kosningar, ekki rusl eins og þetta og það sem kemur frá batteríi sem kallar sig Púlsinn. Kjósendur eiga betra skilið og líka stjórnmálamennirnir...

Kjalvegur, Örfirisey, Framtíðarlandið, Stúdentapólitík, Moggaforsíða
Ég er ekki alveg að kaupa þá kenningu að fjallvegur yfir Kjöl eyðileggi hálendi Íslands. Þessu er meðal annars haldið fram í mjög æstum leiðara í Mogganum í dag þar sem Ómar Ragnarsson og Andri Snær Magnason eru krafðir svara um framkvæmdina....

Bensínstöðvablús
Íslendingar eru haldnir einhvers konar bensínstöðva-fetishisma. Hér eru bensínstöðvar út um allt og passað upp á að hafa þær einstaklega áberandi í borgarlandslaginu. Þar sem ég hef komið í útlendum borgum er yfirleitt reynt að fela bensínstöðvar...

Kosningavíxlar, samgönguáætlun, loftslagsbreytingar, prumpandi kýr
Loforðasúpa ráðherra fyrir kosningar er gengin langt út í öfgar. Hví leggur samgönguráðherra fram samgönguáætlun þremur mánuðum fyrir kosningar? Er það ekki í hæsta máta óeðlilegt? Býst einhver við því að Sturla Böðvarsson verði ráðherra eftir kosningarnar?

Vinstrimenn fá á kjaftinn, áfengi í matvörubúðum, hátæknispítalinn
Sósíalisminn sé í rauninni dauður, varla tóri neitt af honum nema ameríkuhatrið. Það hafi verið skrítið að sjá vinstrimenn út um alla Evrópu í fjöldagöngum til að verja fasistann Saddam Hussein. Og fagna því síðan í raun og veru hversu uppbyggingin í Írak gengur illa...

Utanríkismálanefnd í stuði, Latibær, Chavez, verðlagshetja
Halldór Blöndal ætlar að boða forsetaritara fyrir utanríkismálanefnd til að hlýða honum yfir um setu forsetans í svonefndu þróunarráði Indlands. Þetta er mikið ofurkapp. Fátt vita Halldór og vinir hans skemmtilegra en að koma Ólafi Ragnari í bobba...

Íslenska sérstaðan
Menn eru mikið að dást að afkomutölum bankanna. Eitt af því sem er mært er hversu miklar skatttekjur koma frá þeim í ríkissjóð. Gott og vel. Hinn úttútnaði ríkissjóður er mælikvarði margra hluta í þessu landi...

Úlfur úlfur!
Við Íslendingar erum oft dálítið á eftir; maður sér ekki að gróðurhúsaáhrif hafi nein áhrif á stjórnmálabaráttuna hér. Kannski af því flestum þykir þetta jafn óraunverulegt eins og mér. Mengunin hérna blæs burt með næstu vindhviðu...

Dómara drekkt, Ólafur á Indlandi, Jón Baldvin, Framsókn, Frjálslyndir
Nú eru Baugsmenn, verjendur þeirra og saksóknarar í málinu búnir að drekkja Arngrími Ísberg dómara í pappír og málæði - maður spáir því að ekki líði á löngu áður en hann vísar öllu klabbinu frá...

Gráðugir bankar, vaxtamunur, vandi óánægjuframboða
Mér þykir mikilvægt að umræðan um okrið hér á landi lognist ekki út af. Það er ágætt að menn séu farnir að beina sjónum sínum að bönkunum, þeir hafa skotið sér bak við að mikið af ofurhagnaðinum komi frá útlöndum – en er endilega víst að það sé satt?

Nýr kúrs á Mogga, kvenkyns leiðtogar, bensínstöð í Vatnsmýri, grísk ferja
Margir ráku upp stór augu þegar þeir sáu forsíðu Morgunblaðsins í morgun. Þar var mynd af sakborningum í Baugsmálinu og fyrir neðan fyrirsögn með stríðsletri: Öll sýknuð. Var maður að ruglast – var þetta kannski Baugsmiðillinn Fréttablaðið?

Félagaskelfar, bænarskrá til útlendra banka, áhangendur handboltaliðsins
Er það rétt sem Mogginn segir að væntanleg séu tvö framboð aldraðra og öryrkja? Og hóparnir þegar byrjaðir að kýta sín á milli. Liðsmaður úr öðrum hópnum segir að sér hafi verið neitað að sitja fund hjá hinum, en eftir forsvarsmanni annars framboðsins er haft: "Eftir því sem gremjan er meiri verða framboðin fleiri."