Félagaskelfar, bænarskrá til útlendra banka, áhangendur handboltaliðsins 25. janúar 2007 18:25 Er það rétt sem Mogginn segir að væntanleg séu tvö framboð aldraðra og öryrkja? Og hóparnir þegar byrjaðir að kýta sín á milli. Liðsmaður úr öðrum hópnum segir að sér hafi verið neitað að sitja fund hjá hinum, en eftir forsvarsmanni annars framboðsins er haft: "Eftir því sem gremjan er meiri verða framboðin fleiri." "The more the merrier!" Mér sýnist að meðal þessa áhugafólks séu menn af því taginu sem hafa verið kallaðir "félagaskelfar". Menn sem þræða félagasamtök og ná einhvern veginn að vekja upp illdeilur hvar sem þeir fara. Kannski bara með nærveru sinni - svona eins og spákarlinn Prolix í bókinni Asterix og falsspámaðurinn. En það er svosem ekkert einsdæmi að svona framboð líti dagsins ljós. Um daginn var ég að lesa mér til um nýafstaðnar þingkosningar í Serbíu og þar var meðal annars framboð lífeyrisþega. --- --- --- Kristján Jónsson á Morgunblaðinu er einhver gleggsti blaðamaður landsins - frumlegur í hugsun og athugull. Það hefur verið unun að lesa Viðhorfspistla hans þá sjaldan að hann skrifar. Þess vegna fagnar maður því að Kristján sé byrjaður að blogga. Samt er eiginlega með herkjum að maður rati núorðið inn á svona góðar síður - Hrafn Jökulsson upplýsir nefnilega að 5000 bloggsíður séu virkar þessa dagana. En Kristján byrjar vel. Hann skrifar grein undir yfirskriftinni Sendum erlendum bönkum bænarskrá. Upphaf hennar er svona: "Við sem skuldum húsnæðislán erum búin að uppgötva að við erum mjólkurkýr íbúðarlánasjóðs og banka sem græða feitt á því að við eigum ekki í önnur hús að venda. Í gamla daga sendu Íslendingar kónginum stundum bænarskrá þegar þeim ofbauð skattpíning og önnur valdníðsla. Getum við ekki beðið útlendinga um hjálp í neyð okkar núna? Þeir þurfa ekki einu sinni að vera neitt sérstaklega blíðir í lund, nóg að þeir átti sig á góðu viðskiptatækifæri og hafi hemil á gróðafíkninni." Svona í framhaldi af þessu má benda á þessa frétt úr Ríkisútvarpinu þar sem segir að dráttarvextir hafi hækkað úr 17 prósentum í 25 prósent á þremur árum. Þetta kom fram í svari Jóns Sigurðssonar við fyrirspurn frá Jóhönnu Sigurðardóttir. Jóhanna bregst svosem ekki aðdáendum sínum. En það er vandamál hversu Samfylkingin er hrædd við að taka stórauðvaldið til bæna. --- --- --- Það er svosem allt í lagi að sýna íslenska áhorfendur á pöllunum á handboltamótinu í Þýskalandi, þótt þeir keppi ekki við brasilískar stúlkur sem fylgja fótboltalandsliði þeirrar þjóðar. Maður verður samt ekki fyrir neinni "skönhedsåbenbaring". En best er að forðast að sýna þá sem eru mjög fullir. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Pistlar Silfur Egils Skoðanir Mest lesið Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun