Lífeyrissjóðir
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 19 ›
Sammála niðurstöðu LOGOS varðandi málefni ÍL-sjóðs Róbert R. Spanó, fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og gestaprófessor við lagadeild Oxford háskóla í Bretlandi, staðfestir niðurstöður LOGOS lögmannsþjónustu, varðandi málefni ÍL-sjóðs. Þetta kemur fram í álitsgerð Róberts sem íslenskir lífeyrissjóðir hafa fengið í hendur. Innlent 7.12.2022 20:13
„Umhugsunarefni“ að lífeyrissjóðir kaupi ekki sértryggðar útgáfur bankanna Núna þegar vaxtastig fer hækkandi eftir langt tímabil þar sem áhætta var ekki rétt verðlögð þá hljóta ótryggðar skuldabréfaútgáfur bankanna að byrja að verða „aðlaðandi“ fyrir fjárfesta á borð við íslensku lífeyrissjóðina, að sögn varaseðlabankastjóra. Hann segir það jafnframt vera „umhugsunarefni“ af hverju lífeyrissjóðirnir séu ekki í meira mæli að kaupa sértryggðar útgáfur af íslensku bönkunum sem skili þeim betri ávöxtun borið saman við að lána beint út til sjóðsfélaga sinna. Innherji 7.12.2022 15:31
Tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins seldu í Íslandsbanka fyrir um milljarð Eftir að hafa stækkað stöðugt við hlut sinn í Íslandsbanka um langt skeið minnkuðu tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins stöðu sína í bankanum í liðnum mánuði. Áætla má að sjóðirnir hafi selt bréf í Íslandsbanka fyrir hátt í einn milljarð króna. Innherji 6.12.2022 12:00
Lífeyrissjóðir vilja auka vægi erlendra hlutabréfa eftir lækkanir á mörkuðum Margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins hafa sett sér það markmið að auka talsvert hlutfall erlendra hlutabréfa í eignasöfnum sínum á komandi ári, að því er lesa má út úr nýlega samþykktum fjárfestingastefnum sjóðanna. Sömu lífeyrissjóðir áforma meðal annars að minnka samtímis vægi eigna sinna í ríkisskuldabréfum og þá ráðgera einnig sjóðir eins og Gildi og LSR að leggja minni áherslu á innlend hlutabréf frá því sem nú er. Innherji 6.12.2022 06:31
Heimilin bregðast við hærri vöxtum og færa sig yfir í verðtryggð íbúðalán Hækkandi vaxtastig til að reyna stemma stigu við mikilli verðbólgu hefur þýtt að heimilin eru núna í fyrsta sinn frá því í árslok 2017 að sækjast í meira mæli eftir verðtryggðum íbúðalánum en óverðtryggðum hjá bönkunum. Seðlabankastjóri hefur margsinnis varað við endurkomu verðtryggingarinnar á íbúðalánamarkaði, sem myndi meðal annars draga úr virkni peningastefnunnar, ef verðbólgan fer að festa sig í sessi. Innherji 29.11.2022 07:01
Ekki rétti tíminn að auka heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta erlendis Aukinn viðskiptahalli og versnandi ytri staða þjóðarbúsins þýðir að nú er ekki rétti tíminn til að ráðast í lagabreytingar í því skyni að auka fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða í erlendum gjaldmiðlum, að sögn seðlabankastjóra. Frumvarp fjármálaráðherra þess efnis hefur verið lagt fyrir Alþingi. Innherji 25.11.2022 07:01
Seðlabankinn telur sig vera að „hjálpa til“ við kjarasamninga með hækkun vaxta Þróunin í efnahagsmálum varð með öðrum hætti en Seðlabankinn vonaðist til eftir síðasta vaxtaákvörðunarfund í október og hefur bankinn áhyggjur af einkaneyslunni sem sé komin á það stig að hún valdi viðskiptahalla. Það setur þrýsting á gengi krónunnar, sem gerir það erfiðara um vik að ná niður verðbólgu, og kann að leiða til meiri vaxtahækkana en ella. Seðlabankastjóri segir það ranga túlkun á nýlega birtri rannsóknarritgerð að ekki sé tölfræðilegt orsakasamband milli launa og verðlags heldur sýni hún fremur að „rétt framkvæmdar“ launahækkanir búi ekki til verðbólgu. Innherji 24.11.2022 06:01
„Staðfestir mjög sterka lagalega stöðu“ Lögfræðiálit um ÍL-sjóð og möguleg slit hans staðfesta sterka lagalega stöðu lífeyrissjóðana gagnvart ríkinu. Áform fjármálaráðherra um gjaldþrot eða sambærileg slit sjóðsins brýtur gegn bæði stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu. Innlent 23.11.2022 21:45
Segja ráðherra bera ábyrgð á ÍL-sjóði Forsvarsmenn lífeyrissjóða landsins segja lagalega stöðu sjóðanna afar sterka vegna fyrirhugaðra slita ÍL-sjóðs. Ábyrgð ríkisins á skuldum ÍL-sjóðs sé skýr. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var út eftir að lögfræðiálit frá LOGOS var kynnt forsvarsmönnum sjóðanna í dag. Viðskipti innlent 23.11.2022 16:50
Grænþvottur: Allir þurfa að vera fullvissir um að loforð standist Grænþvottur – Er allt vænt sem vel er grænt? er yfirskrift fundar sem IcelandSIF stendur fyrir næstkomandi mánudag, en IcelandSIF eru samtök fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, tryggingafélaga og aukaaðila sem hefur það hlutverk að efla þekkingu félagsaðila á aðferðarfræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. Atvinnulíf 18.11.2022 07:01
Innlán lífeyrissjóða minnka ört eftir miklar fjárfestingar erlendis Innlán lífeyrissjóða hafa dregist hratt saman á einu ári eða um 26 prósent. Sérfræðingar segja að hluti skýringarinnar felist í að lífeyrissjóðir hafi fjárfest í erlendum hlutabréfum fyrir um 150 milljarða. Eðlilegt sé að innlán dragist saman í ljósi þess að vænt ávöxtun annarra eignaflokka sé hærri. Vísbendingar séu um að botninum sé náð og að kauptækifæri hafi skapast til dæmis á hlutabréfamarkaði. Innherji 18.11.2022 07:01
Lífeyrissjóðir fá Arctica Finance sem fjármálaráðgjafa Verðbréfafyrirtækið Arctica Finance verður sérstakur fjárhagslegur ráðgjafi helstu lífeyrissjóðanna sem hafa nú flestir hverjir myndað með sér sameiginlegan vettvang vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna ÍL-sjóðs. Í þeim hópi er hins vegar ekki Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins. Innherji 17.11.2022 11:52
Gjaldeyriseignir Gildis jukust um nærri tíu prósent á þriðja fjórðungi Eftir að hafa dregist stöðugt saman í um tvö ár þá jókst verulega vægi erlendra fjárfestinga í eignasafni Gildis á liðnum ársfjórðungi þegar gjaldeyriseignir lífeyrissjóðsins hækkuðu um liðlega 24 milljarða. Hlutfall erlendra eigna annarra stærstu lífeyrissjóða landsins jukust sömuleiðis, samt mun minna en í tilfelli Gildis, samhliða því að gengi krónunnar fór lækkandi. Innherji 14.11.2022 14:01
Ríkið væri ekki að „efna fyllilega loforð“ um ábyrgð með því að slíta ÍL-sjóði Ein ástæða þess að stjórnvöld hafa nú boðað aðgerðir til að leysa upp ÍL-sjóð er að hann stenst ekki skilyrði um að vera sjálfstæð stofnun, samkvæmt Evrópsku hagstofunni, en við það færast skuldbindingar sjóðsins undir ríkisreikning frá og með 2022 sem gæti aukið skuldir ríkissjóðs um 650 milljarða, að mati dósents í fjármálum. Hann telur farsællegast að ná samkomulagi við kröfuhafa um uppgjör ÍL-sjóðs en verði farin sú leið að slíta sjóðnum með sérstakri lagasetningu, sem hann efast um að fjármálaráðherra vilji í raun gera, þá væri ríkið ekki að „efna fyllilega loforð“ um ábyrgð á skuldum hans. Innherji 9.11.2022 18:01
Bláa lónið setur stefnuna á Kauphöllina í byrjun næsta árs Bláa lónið, eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, vinnur nú að undirbúningi að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað sem það áformar að geti orðið að veruleika á fyrri hluta næsta árs. Tvö innlend fjármálafyrirtæki hafa verið fengin sem ráðgjafar Bláa lónsins við skráningarferlið þar sem til stendur að bjóða hluti í félaginu til sölu. Fyrirtækið var verðmetið á um 60 milljarða í síðustu stóru viðskiptum með bréf í félaginu fyrir meira en ári. Innherji 8.11.2022 13:37
Merki um að heimilin séu að snúa aftur í verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóða Ný verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóðanna voru nánast jafn mikil og upp- og umframgreiðslur þeirra í september en sjóðsfélagar höfðu áður greitt upp slík lán samfellt frá því á vormánuðum ársins 2020. Er þessi viðsnúningur í samræmi við þá útlánaþróun sem hefur sést hjá bönkunum á allra síðustu mánuðum samtímis hækkandi vaxtastigi en Seðlabankastjóri hefur sagst hafa áhyggjur af því að heimilin færi sig aftur yfir í verðtryggð lán. Innherji 7.11.2022 09:00
Birta gæti þurft að taka á sig sex milljarða högg við virðislækkun íbúðabréfa Birta gæti orðið fyrir um sex milljarða króna tapi að núvirði ef lífeyrissjóðurinn þarf að færa niður verðmæti íbúðabréfa við tryggingafræðilegt endurmat á eignum sínum vegna áforma fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulag við kröfuhafa um uppgreiðslu bréfanna. Innherji 6.11.2022 15:11
Gildi færir niður íbúðabréfin um fimmtán milljarða Gildi lífeyrissjóður hefur fært niður virði skuldabréfa, útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, um samtals 14,7 milljarða króna vegna áforma fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulagi við kröfuhafa. Niðurfærslan hefur þegar haft áhrif á greiðslur úr séreignardeild Gildis. Innherji 2.11.2022 13:00
Yfirmaður og sjóðstjórar framtakssjóða Stefnis segja upp störfum Forstöðumaður og sjóðstjórar framtakssjóða Stefnis, dótturfélags Arion banka, hafa allir sagt upp störfum. Brotthvarf þeirra kemur í kjölfar þess að til skoðunar hafði verið að koma á fót nýju sjálfstæðu félagi, sem myndi annast rekstur sérhæfðu sjóðanna og yrði meðal annars að hluta í eigu sömu starfsmanna, en slíkar hugmyndir fengu ekki brautargengi hjá lífeyrissjóðum, helstu eigendum framtakssjóðanna. Innherji 2.11.2022 10:48
Skúli hættir hjá Kviku eignastýringu og fer yfir til LSR Skúli Hrafn Harðarson, sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Kviku eignastýringu síðustu ár, hefur sagt upp störfum hjá félaginu. Mun Skúli Hrafn í kjölfarið hefja störf hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR), stærsta lífeyrissjóði landsins, síðar á árinu, samkvæmt upplýsingum Innherja. Klinkið 2.11.2022 05:31
Stál í stál: Fáir að biðja um að allir borgi segir Bjarni um lífeyrissjóðina Það kemur ekki til greina að lífeyrissjóðirnir slái af kröfum sínum á ÍL-sjóð, segir framkvæmdastjóri Landsambands lífeyrissjóða. Á sama tíma segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lífeyrissjóðina ekki munu komast upp með það að stilla ríkissjóði upp við vegg. Innlent 27.10.2022 14:37
Blaðamannafundurinn sem þurrkaði upp milljarða Eftir lokun markaða á fimmtudag hélt fjármálaráðherra blaðamannafund þar sem hann kynnti að Íbúðalánasjóður færi að óbreyttu í þrot eftir 12 ár og að þá myndi reyna á ríkisábyrgð. Samkvæmt þessari sviðsmynd liggur líka fyrir að næstu 12 árin á sjóðurinn fyrir skuldbindingum sínum. Skoðun 27.10.2022 09:30
Kristrún og Bjarni saka hvort annað um fáfræði um efnahagsmál Fjármálaráðherra er með frumvarp í undirbúningi þannig að hægt verði að slíta ÍL sjóði á næsta ári en segist helst vilja semja við kröfuhafa þannig að ekki þurfi að leggja frumvarpið fram. Stjórnarandstöðuþingmenn saka ráðherra um að ætla að varpa skuld sjóðsins yfir á lífeyrissjóðina. Innlent 26.10.2022 19:20
Skuldabréfasjóðir færa niður eignir um milljarða vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Stærstu skuldabréfasjóðir landsins, sem eru opnir öllum fjárfestum og margir hverjir með stórt hlutfall eignasafnsins bundið í íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, hafa nú þegar fært niður virði eigna sinna um marga milljarða króna eftir að fjármálaráðherra boðaði aðgerðir til að slíta ÍL-sjóði, samkvæmt greiningu Innherja. Mestu munar um tæplega fimm prósenta gengislækkun 20 milljarða ríkisskuldabréfasjóðs í stýringu Íslandssjóða í einu vetfangi sem þýddi niðurfærslu á virði eigna hans um meira en 900 milljónir. Innherji 26.10.2022 08:15
Alltof stór orð notuð og hafa verði í huga hver láti þau falla Fjármálaráðherra segir mikilvægt að halda því til haga að þeir sem hafi gagnrýnt fyrirhuguð skipti á ÍL-sjóðinum séu aðeins þeir sem hafi beina hagsmuni í málinu - lífeyrissjóðirnir. Stór orð þeirra um greiðslufall ríkissjóðs og laskað lánstraust minnir hann á umræðuna í uppgjörinu við föllnu bankana. Viðskipti innlent 25.10.2022 14:01
Ráðherra „mótmælir harðlega“ að slit á ÍL-sjóði líkist greiðslufalli ríkissjóðs Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist „mótmæla harðlega“ þeirri skoðun sem stjórnarmaður í lífeyrissjóði hefur sett fram að ef ÍL-sjóður, áður gamli Íbúðalánasjóðurinn, verði settur í slitameðferð jafngildi það greiðslufalli ríkissjóðs sem er í ríkisábyrgð fyrir skuldbindingum sjóðsins. Innherji 25.10.2022 08:36
Verðið á íbúðabréfum fellur um 16 prósent vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Verðið á íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum lækkaði verulega á markaði í morgun í fyrstu viðskiptum sem hafa átt sér stað með bréfin, sem eru á sérstökum athugunarlista Kauphallarinnar, eftir að fjármálaráðherra boðaði tillögur um hvernig megi leysa upp ÍL-sjóð síðasta fimmtudag. Miðað við verð bréfanna í viðskiptunum, sem voru aðeins upp á samtals 300 þúsund krónur, má áætla að markaðsvirði útistandandi íbúðabréfa hafi lækkað um samtals meira en 100 milljarða króna. Innherji 24.10.2022 11:49
„Hæpið“ að eignaréttindi kröfuhafa séu skert verði ÍL-sjóður settur í þrot Sérstök lög sem hefðu það að markmiði að knýja fram skiptameðferð á ÍL-sjóði, þar sem í engu væri samt haggað ríkisábyrgð á eftirstöðvum skulda sjóðsins, er mun „vægari“ aðgerð en það svigrúm sem löggjafanum hefur verið heimilað af dómstólum til að setja notkun og ráðstöfun eiga skorður vegna almannahagsmuna. Innherji 24.10.2022 06:00
Fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði fara með rangt mál Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttir þingmann Viðreisnar ranglega halda því fram að hann hafi lengi borið ábyrgð á málefnum ÍL-sjóðs. Hið rétta sé að málið hafi komið í hans hlut árið 2020 og hann sé að leggja fram góða lausn, sem geti sparað tugi milljarða, nái tillagan fram að ganga. Innlent 23.10.2022 10:53
Fjármálaráðherra hafi „kallað fram óþarfa óvissu á markaði“ Framkvæmdastjóri eins stærsta lífeyrissjóðs landsins, sem eru langsamlega stærstu eigendur krafna á hendur ÍL-sjóði, gagnrýnir harðlega tímasetningu Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann kynnti tillögur sínar um hvernig gera megi upp eignir og skuldir sjóðsins eftir lokun markaða í gær. Ávinningur ríkissjóðs af aðgerðunum muni jafnframt á móti þýða tap fyrir lífeyrissjóði. Innherji 21.10.2022 16:04