Lífeyrissjóðir
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 19 ›
Vonbrigði ef seðlabankastjóri vill „losna við lífeyrissjóði“ af lánamarkaði Þótt það kunni að vera kostir og gallar við þátttöku lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði þá eru það „ákveðin vonbrigði“ að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri taki undir þann málflutning forsvarsmanna bankanna sem getur leitt til þess að þátttakendum á samkeppnismarkaði fækki verulega. Innherji 5.4.2022 17:43
Lífeyrissjóðir minnka enn við sig í Skel en sjóðir Stefnis kaupa fyrir 700 milljónir Íslensku lífeyrissjóðirnir halda áfram að losa um stóran hluta bréfa sinna í Skel fjárfestingafélagi, sem áður hét Skeljungur, en Gildi og Lífsverk seldu samanlagt um þriggja prósenta eignarhlut í fyrirtækinu í síðasta mánuði. Á sama tíma komu tveir hlutabréfasjóðir í stýringu Stefnis nýir inn í hlutahafahóp Skel með kaupum á tæplega 2,2 prósenta hlut sem má ætla að þeir hafi greitt tæplega 700 milljónir fyrir. Innherji 4.4.2022 18:21
Lífeyrissjóðir keyptu fyrir 20 milljarða, einkafjárfestar með þriðjung útboðsins Íslenskir lífeyrissjóðir fengu úthlutað meira en þriðjung þeirra eignarhluta í Íslandsbanka sem ríkissjóður seldi í hlutafjárútboðinu sem kláraðist í síðustu viku. Samtals keyptu 23 lífeyrissjóðir, sem áttu fyrir útboðið samanlagt um 16 prósenta hlut í bankanum, fyrir 19,5 milljarða króna, eða sem jafngildir liðlega 8,5 prósenta eignarhlut. Innherji 1.4.2022 12:17
Aukin áhersla á ábyrgar fjárfestingar ekki „tískufyrirbæri,“ segir formaður LIVE Með því að marka sér heildstæða stefnu um ábyrgar fjárfestingar er Lífeyrissjóður verslunarmanna (LIVE) á engan hátt á sama tíma að slá af kröfum um arðbærni og áreiðanleika fjárfestinga. Stefnan er hins vegar sett á fjárfestingar sem standast breyttar kröfur til þeirra sem eru „óðum að verða ráðandi í heiminum,“ einkum hjá stærstu fjárfestunum. Innherji 29.3.2022 07:01
Fjórir lífeyrissjóðir meðal sex stærstu hluthafa Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Capital Group er ekki lengur annar stærsti hluthafi Íslandsbanka heldur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins með 5,23 prósenta hlut. Áætlað er að Bankasýsla ríkisins birti uppgjör á útboði ríkisins á hlut í Íslandsbanka í dag. Viðskipti innlent 28.3.2022 13:00
Eignarhaldið á Promens að færast aftur í hendur íslenskra fjárfesta Tveir íslenskir framtakssjóðir, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, eru að ganga í sameiningu frá kaupum á starfsemi Promens hér á landi af bandarísku fyrirtækjasamsteypunni Berry Global sem er eigandi plastframleiðslufyrirtækjanna Sæplasts og Tempra. Kaupverðið er talið vera samtals á annan tug milljarða króna. Innherji 23.3.2022 06:00
Ríkið felldi tillögu um að jafnræði sé tryggt við endurkaup á Íslandsbankabréfum Stór hópur hluthafa í Íslandsbanka, annarra en Bankasýslunnar sem heldur utan um 65 prósenta hlut ríkissjóðs, lagðist gegn því að stjórn bankans fengi heimild til kaupa á eigin hlutum sem opnar á að félagið geti gert einstökum hluthöfum, eins og til dæmis íslenska ríkinu, tilboð um kaup á bréfum þeirra án þess að aðrir hluthafar hafi möguleika á þátttöku í slíkum endurkaupum. Innherji 22.3.2022 16:00
Kísilverið á Bakka réttum megin við núllið eftir hækkanir á verði kísilmálms Kísilverið á Bakka skilaði jákvæðri rekstarafkomu í fyrra eftir „uppörvandi frammistöðu“ á síðasta ársfjórðungi. Þetta kemur fram í ársfjórðungsskýrslu þýska félagsins PCC, sem er aðaleigandi kísilversins. Innherji 22.3.2022 11:16
„Djúpstæð óánægja“ meðal lífeyrissjóða, innlend eignasöfn gætu orðið ósjalfbær Ef það verða of miklar hömlur á fjárfestingar lífeyrissjóða í erlendum gjaldmiðlum þá er hætta á því að stórir sjóðir „neyðast til að fjárfesta í innlendum eignum umfram það sem þeir telja æskilegt“ út frá hagsmunum sinna sjóðfélaga. Við það skapast „talsverð hætta á ruðningsáhrifum og bólumyndun á innlendum eignamarkaði sem getur leitt til þess að innlend eignasöfn lífeyrissjóða verði að einhverju leyti ósjálfbær til framtíðar.“ Innherji 22.3.2022 06:01
Aukið svigrúm lífeyrissjóða til að fjárfesta erlendis „mjög jákvætt skref“ Seðlabanki Íslands telur að áform fjármála- og efnahagsráðherra um að rýmka heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta í erlendum eignum í áföngum allt fram til ársins 2038 séu „mjög jákvætt skref“. Það sé ljóst að þegar ferðaþjónustan tekur við sér af fullum krafti þá „munum við þurfa á lífeyrissjóðunum að halda við að kaupa þann gjaldeyri“ sem mun streyma til landsins. Innherji 21.3.2022 06:01
Tíu karlar bítast um tvö sæti í stjórn Almenna Alls hafa tíu karlar boðið sig fram til stjórnarsetu í Almenna lífeyrissjóðnum en kosið verður um tvö sæti. Viðskipti innlent 17.3.2022 14:55
Erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða „ekkert síður áhættusamar,“ meiri sveiflur í ávöxtun Raunávöxtun erlendra eigna íslensku lífeyrissjóðanna hefur sveiflast meira heldur en innlendra á árunum 2000 til 2020. Það skýrist að hluta til af því að vægi skuldabréfa, sem flöktir að jafnaði minna en hlutabréfa, er hátt í innlendum eignum sjóðanna en í tilfelli erlendu eignanna er hlutfall hlutabréfa talsvert meira. Innherji 14.3.2022 17:59
Frumvarpið „vonbrigði,“ auka þarf svigrúm til fjárfestinga erlendis „hraðar og meira“ Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna, meðal annars tveggja af þremur stærstu sjóðunum, gagnrýna að ekki sé gengið lengra í frumvarpsdrögum Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra um auknar heimildir þeirra til fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum. Innherji 11.3.2022 09:00
Svigrúm lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis verður aukið verulega á næstu árum Heimildir íslensku lífeyrissjóðanna til fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum verður rýmkað nokkuð á komandi árum þannig að lögbundið hámark erlendra eigna verður fært úr því að mega vera að hámarki 50 prósent af heildareignum sjóðanna upp í 65 prósent. Mun þessi breyting taka gildi í fimmtán jafn stórum skrefum á árunum 2024 til 2038. Innherji 9.3.2022 16:33
Auka aftur réttindi sjóðfélaga og heimila lífeyristöku frá 60 ára aldri Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur aukið réttindi sjóðfélaga vegna sterkrar stöðu sjóðsins í annað sinn á innan við hálfu ári. Réttindi verða aukin til viðbótar þeirri 10% hækkun sem varð í nóvember 2021 og hækka lífeyrisgreiðslur um liðlega 7%. Viðskipti innlent 9.3.2022 10:12
Rökrætt um lífeyrismál ASÍ stendur nú fyrir metnaðarfullum rökræðufundi um lífeyrismál og lífeyrissjóði á Selfossi. Þar er formönnum aðildarfélaga ASÍ, fulltrúum vinnandi fólks í stjórnum lífeyrissjóða, félögum í lífeyrisnefnd ASÍ og ungliðahreyfingunni boðið til þátttöku. Skoðun 4.3.2022 13:01
Landsvirkjun fyrir almannahag Fyrir um tveimur árum viðraði ég fyrst þá skoðun opinberlega að til greina kæmi að ríkið seldi lífeyrissjóðum landsins 30-40% hlut í Landsvirkjun en með ströngum skilyrðum. Þetta gerði ég þá sem ég formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða. Skoðun 2.3.2022 07:31
Vægi erlendra eigna stóru sjóðanna hélt enn að aukast þótt krónan hafi styrkst Hlutfall erlendra eigna tveggja stærstu lífeyrissjóða landsins, sem eru með eignir upp á samanlagt meira en 2.500 milljarða króna, jókst enn frekar á árinu 2021. Á fjórum árum hefur hlutfallslegt vægi slíkra eigna hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóði verslunarmanna (LIVE) hækkað um eða yfir 40 prósent og færst stöðugt nær lögbundnu hámarki sem kveður á um að erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða megi ekki vera meiri en sem nemur helmingi af heildareignum þeirra. Innherji 28.2.2022 19:00
Vill að ríkið selji 30 til 40 prósenta hlut í Landsvirkjun Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, telur rétt að íslenska ríkið selji stóran hlut í Landsvirkjun til lífeyrissjóða með ákveðnum skilyrðum. Innlent 24.2.2022 10:10
Fjölskyldur landsins í „hlekkjum afborgana“ Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis stéttarfélags, segir að það sé meðvituð ákvörðun stjórnvalda að stýra ekki húsnæðismarkaðnum og láta frumskógarlögmálið ráða för. Innlent 23.2.2022 14:30
Lífeyrissjóðir samþykkt að leggja Mílu til meira fé til að hraða uppbyggingu innviða Forsvarsmenn íslensku lífeyrissjóðanna, sem eru að kaupa samanlagt um fimmtungshlut í Mílu, dótturfélagi Símans, eru sammála væntanlegum meirihlutaeigenda fjarskiptafyrirtækisins – franska fjárfestingarsjóðnum Ardian – um að leggja því til meira fjármagn á komandi árum til að hraða uppbyggingu á 5G og ljósleiðarakerfi félagsins. Innherji 21.2.2022 12:33
Lífeyrissjóðir hafa bætt 6 prósentum við hlut sinn í Íslandsbanka Lífeyrissjóðir hafa bætt töluvert við hlut sinn í Íslandsbanka frá hlutafjárútboði bankans í júní á síðasta ári en á sama tíma hefur hlutdeild erlendra fjárfesta í bankanum minnkað. Þetta má lesa úr skýrslu fjármálaráðherra um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka, sem var lögð fyrir Alþingi. Innherji 11.2.2022 16:08
Stærsti hluthafinn bætir við sig í Kviku fyrir um milljarð Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti hluthafinn í Kviku, stækkaði stöðu sína í bankanum í nýliðnum mánuði þegar hann keypti samanlagt 35 milljónir hluta að nafnvirði, sem jafngildir rúmlega 0,7 prósenta eignarhlut. Innherji 2.2.2022 12:02
Lífeyrissjóðir færast nær kaupum á fimmtungshlut í Mílu Hópur íslenskra lífeyrissjóða er langt kominn með að ganga frá kaupum á um tuttugu prósenta hlut í Mílu, dótturfélagi Símans, fyrir vel yfir fimmtán milljarða króna, bæði í eigin nafni og eins í gegnum nýjan framtakssjóð í rekstri Summu sem mun sérhæfa sig í fjárfestingum í innviðum. Innherji 31.1.2022 06:01
Umboðsádrepa Umboðsskylda stjórna lífeyrissjóða er vel skilgreind að mínu mati og mér þykir það miður að Ársæll telji að í fjárfestingastefnu Birtu felist blönduð áform og umboðsvandi. Fjárfestingastefna Birtu er skrifuð fyrir sjóðfélaga, til að kalla fram umræðu og það er sjálfstætt fagnaðarefni að hún skuli vera í kastljósinu. Umræðan 28.1.2022 11:02
Ósanngjörn hækkun lífeyristökualdurs Ávöxtun lífeyrissjóða hefur verið mjög góð undanfarin þrjú ár, langt umfram 3,5% viðmiðið þeirra, ef marka má fréttir frá Landssamtökum lífeyrissjóðanna. Þetta eru jákvæðar fréttir og þó ekkert sé tryggt um framtíðina hlýtur þessi ávöxtun að gefa góða von um að 3,5% meðalávöxtun standist til lengri tíma. Skoðun 28.1.2022 07:31
Enn um umboðsskyldu Hætta er á að ESG fjárfestingar fórni hagsmunum umbjóðenda, til dæmis varðandi áhættudreifingu í safni. Fjárfestingastefna sem byggi á blönduðum ásetningi sé í raun ígildi þess að umboðsmaður láti greiðslu af hendi rakna frá umbjóðendum til þriðja manns. Það geti umboðsaðili ekki gert án þess að hafa skýrt umboð. Umræðan 25.1.2022 09:30
Hvernig langar þig að hafa það? Það segir sig sjálft að til þess að sparnaður gangi sem best er mikilvægt að forðast öll neyslulán eins og heitan eldinn. Að setja sér þá reglu að kaupa aldrei neitt og borga síðar þýðir að við getum greitt okkur sjálfum vexti í stað þess að leka mánaðarlega dýrmætu sparifé til annarra. Umræðan 19.1.2022 10:19
Fyrirtækjalánin að færast úr bönkunum til fjárfesta og lífeyrissjóða Á sama tíma og afar lítill vöxtur hefur verið í útlánum bankakerfisins til fyrirtækja um nokkurt skeið hefur atvinnulífið í auknum mæli verið að sækja sér fjármögnun til annars konar lánveitenda. Innherji 18.1.2022 13:08
Grænar fjárfestingar ekki pólitískari eða umdeildari en margt annað Lífeyrissjóðurinn Birta telur að aukin áhersla á grænar fjárfestingar á komandi árum, sem fellur undir þau UFS-viðmið sem sjóðurinn hefur sett sér í fjárfestingarstefnu sinni, geti skilað sjóðsfélögum betri ávöxtun til lengri tíma litið. Sjóðurinn stefnir að því að um átta prósent af eignasafni hans verði í slíkum fjárfestingum fyrir árslok 2030. Það er um þrisvar sinnum hærra hlutfall en er í dag. Innherji 17.1.2022 07:01