Ríkisstjórn
1 2 3 4 … 4 ›
Breyting Íbúðalánasjóðs gegn sáttmála Það brýtur í bága við stjórnarsáttmála að leggja Íbúðalánasjóð niður í núverandi mynd, í það minnsta meðan bankarnir bjóða ekki 90 prósenta lán, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Innlent 22.5.2006 22:11
90 hjúkrunarrými á Lýsislóðina Hjúkrunarheimili með 90 rými verður reist á Lýsislóðinni. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og Jónmundur Sigmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag. Innlent 22.5.2006 17:40
Gefur lítið fyrir gagnrýnina Iðnaðarráðherra gaf lítið fyrir gagnrýni á frumvarp um nýsköpunarsjóð á ársfundi Iðntæknistofnunar í morgun. Frumvarpið væri tilraun til að skera á aðskilnað milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins þegar kæmi að stuðningi við nýsköpun og atvinnuþróun. Innlent 17.5.2006 10:45
Hálfur annar milljarður í nefndir Nefndir ráðuneytanna kostuðu ríkissjóð nær einn og hálfan milljarð króna á síðasta ári. Rúmlega helmingur þeirrar upphæðar er vegna starfa einkavæðingarnefndar. Innlent 5.5.2006 11:56
Einn og hálfur milljarður í nefndastörf Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna nefndastarfa á vegum ráðuneyta nam nær einum og hálfum milljarði króna á síðasta ári. Tæplega helmingur þeirrar upphæðar er til kominn vegna starfa einkavæðingarnefndar. Innlent 5.5.2006 08:04
Sakar stjórnarandstöðu um verðbólguna Stjórnarandstæðingar sökuðu stjórnarliða um að flýja af hólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar og forðast að ræða efnahagsmál. Þingmaður Framsóknarflokksins svaraði með því að segja að stjórnarandstaðan hefði talað upp verðbólguna. Innlent 4.5.2006 15:06
Gríðarlegt ofbeldi og vitleysa Gríðarlegt ofbeldi og vitleysa eru orðin sem forstjóri 365 miðla notar um þá fyrirætlan ráðamanna að koma fjölmiðlafrumvarpinu og frumvarpinu um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins í gegn fyrir þinglok. Innlent 26.4.2006 22:24
Vilja sérkjörin burt sem fyrst Engar efndir hafa orðið á því að eftirlaunalögum yrði breytt þó ár sé síðan forsætisráðherra lofaði að það yrði gert. Þetta sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, á þingi í dag og deildi á forsætisráðherra sem sagði málið ekki stranda á sér. Innlent 11.4.2006 17:15
Útlendingum í starfaleit þarf ekki að fjölga Fólki frá Austur-Evrópu sem kemur hingað til lands að leita sér vinnu þarf ekki að fjölga þrátt fyrir að takmarkanir við för þeirra falla niður 1. maí. Þetta er mat félagsmálaráðherra og aðstoðarframkvæmdastjóra Alþýðusambands Íslands. Innlent 5.4.2006 13:06
Óttast ekki andstöðu við frumvarpið Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar verði að lögum núna í vor. Þetta segir hún þrátt fyrir að allir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í iðnaðarnefnd Alþingis geri athugasemdir við frumvarpið. Innlent 3.4.2006 16:58
Bjartsýn á að frumvarpið verði að lögum Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um Nýsköpunarmiðstöð verði að lögum í vor. Þetta sagði hún í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Valgerður svaraði þá fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingar, sem taldi að hún hefði stefnt í voða samkomulagi sem hafi verið að myndast um byggðastefnu. Innlent 3.4.2006 15:54
Árni lætur af embætti í dag Árni Magnússon lætur af embætti félagsmálaráðherra á ríkisráðsfundi sem hefst klukkan ellefu. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra færir sig þá um set yfir í félagsmálaráðuneytið og Siv Friðleifsdóttir tekur við heilbrigðisráðuneytinu. Innlent 7.3.2006 09:37
Helst illa á ráðherrum Það þarf að leita allt aftur til áttunda áratugar síðustu aldar til að finna ríkisstjórn sem situr í fjögur ár án þess að einn eða fleiri ráðherrar láti af embætti. Árni Magnússon er fjórði ráðherrann til að láta af embætti á þessu kjörtímabili. Innlent 6.3.2006 11:49
Löngu tímabær yfirlýsing Það var tími til kominn segir formaður Samfylkingar um yfirlýsingu forsætisráðherra um að Ísland verði komið í Evrópusambandið árið 2015. Utanríkisráðherra vill ekkert tjá sig um yfirlýsingu forsætisráðherra. Innlent 8.2.2006 16:58
Geir neitar að tjá sig Geir H. Haarde utanríkisráðherra neitar að tjá sig um þá yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra að hann telji að Ísland verði orðið aðili að Evrópusambandinu árið 2015. Innlent 8.2.2006 15:32
Ræddu stjórnarmyndun löngu fyrir kosningar Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson höfðu lagt grunninn að stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks eftir þingkosningarnar 1991, meðan Alþýðuflokkurinn var enn í vinstristjórn og áður en Davíð Oddsson felldi Þorstein í formannskosningu í Sjálfstæðisflokknum. Innlent 1.2.2006 15:58
Lögðu á ráðin um stjórn fyrir kosningar Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson lögðu grunninn að samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks með samningum nokkuð fyrir kosningar 1991 segir Össur Skarphéðinsson í pistli á heimasíðu sinni. Innlent 1.2.2006 06:50
Stjórnskipulegur vandi blasir við Stjórnskipulegur vandi blasir við ef einhver dómari höfðar mál á hendur ríkinu vegna afnáms úrskurðar kjaradóms um laun dómara segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari. Innlent 30.1.2006 06:49
Sökuð um að ganga erinda Bandaríkjamanna Íslensk stjórnvöld voru sökuð um að ganga erinda bandaríska landvarnaráðuneytisins í stað þess að gæta hagsmuna þjóðarinnar í skeleggum umræðum um fangaflug á Alþingi í dag. Innlent 26.1.2006 20:36
Unglingar mótmæltu stóriðjustefnu Ég vil nauðga náttúrunni, ég vil vinna í álveri, ég vil menga umhverfið! Þessi slagorð og fleiri glumdu af vörum ungmenna sem söfnuðust saman síðdegis í dag í móttöku iðnaðarráðuneytisins til að mótmæla stefnu stjórnvalda í virkjunarmálum. Ungmennunum var heitt í hamsi og atgangurinn slíkur að ráðuneytið óskaði eftir aðstoð lögreglu. Innlent 9.1.2006 19:15
Rannsóknardeildin réð úrslitum Lögreglan á Akranesi verður lykilembætti á Vesturlandi samkvæmt ákvörðun Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra en ekki Borgarnes eins og nefnd sem gerði tillögur um fækkun lögregluumdæma gerði tillögu um. Björn segir helstu ástæðuna þá að rannsókn lögreglumála sé eitt af stærstu verkefnum lykilembætta og mikil og góð reynsla sé af rannsóknastarfi á Akranesi. Innlent 4.1.2006 10:53
Vilja aðild að matvælanefnd Formaður Neytendasamtakanna hefur skrifað forsætisráðherra bréf þar sem hann fer fram á aðild samtakanna að nefnd sem forsætisráðherra hyggst skipa til að kanna ástæður hás matvælaverðs og leiðir til að lækka það. Innlent 3.1.2006 13:55
Skattbyrði lækkar aðeins hjá þeim tekjuhæstu Skattbyrði hefur aukist hjá öllum síðustu tvö árin, nema þeim tekjuhæstu. Hjá þeim hefur skattbyrðin lækkað. Skattbyrði þeirra sem hafa hæstar tekjur hefur lækkað um 1,7 prósentustig en skattbyrði þeirra tekjulægstu hækkað um tæp þrjú prósent. Innlent 17.12.2005 12:28
Skattbyrði allra nema þeirra tekjuhæstu eykst Skattbyrði hefur aukist hjá öllum síðustu tvö árin, nema þeim tekjuhæstu. Hjá þeim hefur skattbyrðin lækkað. Skattbyrði þeirra sem hafa hæstar tekjur hefur lækkað um 1,7 prósentustig en skattbyrði þeirra tekjulægstu hækkað um tæp þrjú prósent. Innlent 16.12.2005 19:44
Trúnaðarbrestur milli stjórnvalda og bótaþega Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir að trúnaðarbrestur hafi orðið milli stjórnvalda, aldraðra og öryrkja. Umræður um öryrkjaskýrslu Stefáns Ólafssonar endurspeglaði það. Hún vildi vita á Alþingi í dag hvort forsætisráðherra vildi beita sér fyrir fimm ára áætlun í samvinnu við fulltrúa lífeyrisþega í málefnum þessara hópa. Innlent 9.12.2005 12:48
Yfir 400 í mjög brýnni þörf 402 eldri borgarar eru í mjög brýnni þörf eftir dvöl á hjúkrunarheimili og 53 í brýnni þörf. Þetta kemur fram í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingar. Innlent 8.12.2005 07:13
Öryggisráðið eins og handboltamót? Ungir Vinstri grænir hvetja til þess að framboð Íslands til Öryggsiráðs Sameinuðu þjóðanna verði dregið til baka. Þetta kemur fram í ályktun sem ungliðahreyfingin sendi frá sér í gærkvöld. Í ályktuninni segir að svo virðist sem Halldór Ásgrímsson leggi framboðið að jöfnu við þátttöku í alþjóðlegu handboltamóti. Innlent 23.10.2005 15:02
85 milljónir að eigin vild Ráðherrar fá áttatíu og fimm milljónir króna á næsta ári sem þeir geta ráðstafað að eigin vild til samtaka, einkaaðila og ríkisstofnana vegna ýmissa verkefna. Sá ráðherra sem hefur mest fé til að deila út er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, eða átján milljónum króna. Innlent 23.10.2005 15:02
Fjárlagafrumvarpið kynnt í dag Árni Mathiesen leggur í dag fram sitt fyrsta fjárlagafrumvarp eftir að hann tók við lyklavöldum í fjármálaráðuneytinu úr hendi Geirs H. Haarde fyrir nokkrum dögum. Frumvarpið verður lagt fyrir Alþingi klukkan þrjú í dag. Innlent 23.10.2005 15:01
Endurskipulagning hefst í haust Það er tímabært að breyta skipan ráðuneyta. Endurskipulagning hefst í haust og á að ljúka á sem skemmstum tíma. Þetta var meðal þess sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í morgun í sínu fyrsta þjóðhátíðarávarpi. Innlent 13.10.2005 15:33