Angóla

Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð
Áhrifavaldur í Angóla sem gagnrýndi forseta landsins á TikTok og 29 ára kona í Sádí-Arabíu sem birti myndir af sér án þess að klæðast kufli eru meðal manneskja í heiminum sem afplána fangelsisdóma. Amnesty berst fyrir lausn þeirra í herferð.

Stærsti bleiki demanturinn í þrjú hundruð ár
Námumenn í Angóla grófu upp 170 karata bleikan demant í gær. Stærri bleikur demantur hefur ekki fundist í þrjú hundruð ár.

Fyrrverandi forseti Angóla til 38 ára látinn
José Eduardo dos Santos, fyrrverandi forseti Angóla, er látinn, 79 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í Barcelona eftir landvinn veikindi.

Fótboltahakkari segist hafa lekið gögnunum um ríkustu konu Afríku
Maðurinn að baki Football Leaks vefsíðunni hefur stigið fram og viðurkennt að vera sá sem lak umfangsmiklum gögnum sem sögð hafa verið sýna fram á vafasaman uppruna auðsöfnunnar ríkustu konu Afríku.

Bankamaður sem tengdist meintum fjársvikum ríkustu konu Afríku fannst látinn
Maðurinn sá um reikning angólsks olíufyrirtækis sem fyrrverandi forsetadóttir er sökuð um að hafa rúið inn að skinni.

Saksóknarar í Angóla saka ríkustu konu Afríku um fjárdrátt og peningaþvætti
Dómsmálaráðherra Angóla segir að ásakanirnar á hendur Isabel dos Santos tengist stjórnartíð hennar sem stjórnarformaður ríkisolíufélagsins Sonangol.

Gríðarmikill gagnaleki sagður afhjúpa vafasaman uppruna ríkidæmis ríkustu konu Afríku
Gríðarmikill gagnaleki og umfangsmikil rannsókn fjölmiðla víða um heim virðist benda til þess að hin angólska Isabel Dos Santos, ríkasta kona Afríku, og eiginmaður hennar, hafi arðrænt landa sína og nýtt sér spillingu í Angóla til þess að safna gríðarlegum auðæfum.

Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Angóla handtekin vegna tengsla við Samherja
Bankareikningar Victória de Barros Neto,fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Angóla, hafa verið frystir vegna Samherjaskjalanna. Auk þess hafa bankareikningar eiginmanns hennar og barna verið frystir eftir að dómsmálaráðherra Angóla gaf út tilskipun þess efnis.

Meghan og Harry halda til Afríku með Archie
Hertogahjónin af Sussex, þau Harry Bretaprins og Meghan Markle, koma til Afríku í dag ásamt fjögurra mánaða gömlum syni sínum, Archie, en um er að ræða fyrstu opinberu heimsókn þeirra hjóna með syninum.

Rannsaka mögulega spillingu í innsetningarnefnd Trump
Einn helsti fjáraflari Repúblikanaflokksins er grunaður um að hafa nýtt sér aðstöðu sína hjá innsetningarnefnd Trump til að tryggja einkafyrirtækjum sínum viðskipti við erlend ríki.

Fundu hræ um 90 afríkufíla í Botsvana
Dýraverndunarsamtökin Elephants Without Borders hafa fundið hræ 87 afríkufíla í Botsvana. Botsvana hefur tekið hart á veiðiþjófnaði í gegnum tíðina. Nýkjörinn forseti hefur þó dregið úr aðgerðunum.

700 milljónir barna í heiminum fá ekki að njóta bernskunnar
Að minnsta kosti 700 milljónir barna í heiminum fá ekki að njóta bernskunnar af ýmsum ástæðum og eru þannig í raun svift því að fá að vera börn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnaheilla, sem kom út í dag á alþjóðlegum degi barna. Ísland er í áttunda sæti á lista yfir það hvar í heiminum bernsku barna er síst ógnað.

Á annan tug lét lífið í troðningi fyrir knattspyrnuleik
Að minnsta kosti sautján létu lífið og tæplega hundrað slösuðust í miklum troðningi við knattspyrnuvöllinn í borginni Uige í Angólu í kvöld. Fimm eru í lífshættu.

Óttast að gulusótt verði heimsfaraldur
Alþjóðlegu góðgerðarsamtökin Save the Children vara við því að gulusótt gæti orðið heimsfaraldur.