Írak
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 27 ›
Vilja að aftökum verði hætt í Írak Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa kallað eftir því að aftökum í Írak verði hætt og hvetja bæði bandaríska og breska herinn til að afhenda írökskum stjórnvöldum ekki menn sem dæmdir hafa verið til dauða í landinu. Erlent 20.4.2007 08:53
Reid:Íraksstríðið er tapað Harry Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, sagði George Bush Bandaríkjaforseta á fundi í gær að hann teldi að Íraksstríðið væri tapað og að viðbótarherafli sem sendur hefði verið nýverið til Íraks hefði engu skilað. Erlent 19.4.2007 19:23
Átta milljónir þurfa á hjálp að halda Fjöldi þeirra sem þurfa á bráðri hjálp að halda í Írak er átta milljónir, þar á meðal tvær milljónir flóttamanna og tvær milljónir heimilislausra. Þetta kom fram á sérstökum fundi sem haldin var um málefni Írak. Erlent 17.4.2007 14:03
Bandarískir hermenn skutu þrjá írakska lögreglumenn Bandaríski herinn rannsakar nú hvers vegna bandarískir hermenn skutu í dag þrjá írakska lögreglumenn til bana í áhlaupi á híbýli uppreisnarmanna sem taldir eru tengjast al-Qaida. Erlent 16.4.2007 13:52
Stríðið hefur alvarleg áhrif á íröksk börn Sjö af hverjum tíu börnum í grunnskólum í hverfi í Norður-Bagdad þjást af áfallaröskun þannig að þau stama eða pissa undir. Þetta leiðir ný skýrsla á vegum írakska heilbrigðisráðuneytisins í ljós en í rannsókninni var kannað hvaða áhrif stríðið í Írak hefði á börnin. Erlent 16.4.2007 10:34
Hreyfing Sadrs ætlar úr ríkisstjórn Stjórnmálahreyfing herskáa sjíaklerksins Moqtada al-Sadrs tilkynnti í dag að hún hygðist draga sig út úr ríkisstjórn Íraks á morgun til þess að þrýsta á um að Bandaríkjamenn legðu fram áætlun um brotthvarf hermanna sinna. Erlent 15.4.2007 20:01
Vel á annað hundrað látinn eftir helgina í Írak Vel á annað hundrað hafa fallið í hrinu ofbeldisverka í Írak um helgina. Mörg hundruð liggja þungt haldnir eftir röð bílsprengjuárása um allt landið í dag og í gær. Þá fórust tveir breskir hermenn þegar tvær herþyrlur skullu saman rétt utan við höfuðborgina Bagdad í morgun. Erlent 15.4.2007 19:16
Áframhaldandi blóðbað í Írak Átján féllu og fimmtíu manns eru særðir eftir tvær bílsprengjuárásir í fjölförnu hverfi í Baghdad í Írak í morgun. Seinni sprengjan sprakk aðeins nokkrum mínútum á eftir þeirri fyrri, þegar fjöldi fólks hafði safnast saman á staðnum þar sem sú fyrri sprakk. Erlent 15.4.2007 09:46
Mikið mannfall í árás í Karbala í morgun Lögregla í hinni helgu borg Karbala hefur lýst yfir útgöngubanni og lokað öllum leiðum inn og út úr borginni eftir að hátt í fimmtíu manns létust og yfir 60 særðust í sjálfsmorðsárás í morgun. Árásarmaðurinn sprengdi sprengjuna við fjölfarna strætisvagnastöð nærri bænahúsi sjía í borginni þar sem barnabarn Múhameðs spámanns er sagt grafið. Erlent 14.4.2007 11:12
Hópur tengdur al-Qaida segist bera ábyrgð á sprengjutilræði Íslamska ríkið í Írak, sem er uppreisnarhópur tengdur al-Qaida, lýsti í dag yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárásinni sem gerð var á veitingastað í írakska þinginu í gær. Erlent 13.4.2007 14:16
Þrír starfsmenn í íraska þinghúsinu yfirheyrðir Íraska þingið fordæmdi í morgun sjálfsmorðssprengjuárás sem gerð var í þinghúsinu í Bagdad í gær. Einn þingmaður lét lífið í árásinni og tuttugu og tveir særðust. Þrír starfsmenn mötuneytis þingsins hafa verið yfirheyrðir í morgun vegna árásarinnar. Erlent 13.4.2007 12:07
Árás í þingi glæpaverk hugleysingja Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, lýsti árásinni í írakska þinginu í Bagdad í morgun sem glæpaverki hugleysingja og sagði að hún myndi ekki draga kjarkinn úr írökskum þingmönnum. Að minnsta kosti tveir írakskir þingmenn eru nú sagðir látnir og vel á annan tug manna særður eftir árásina sem var í kaffiteríu í írakska þinginu. Erlent 12.4.2007 14:57
Varnarmálaráðuneytið lengir dvöl hermanna á vígstöðvum Bandarískir hermenn í Írak og Afganistan þurfa framvegis að vera 15 mánuði í stað eins árs á vígstöðvunum samkvæmt nýjum reglum sem Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kynnti í dag. Erlent 11.4.2007 21:59
Saka Írana um að vopnbúa uppreisnarmenn súnnía Talsmaður Bandaríkjahers sakaði í dag Írana um að um sjá uppreisnarmönnum úr röðum súnnía í Írak fyrir vopnum í baráttu sinni. Þetta er í fyrsta sinn sem Bandaríkjaher heldur slíku fram en áður höfðu Bandaríkjamenn sakaða Írana, sem eru langflestir sjíar, um að sjá sjíum í Írak fyrir vopnum. Erlent 11.4.2007 20:41
Máli á hendur Rasmussen vegna Íraksstríðs vísað frá Landsréttur í Danmörku vísaði í dag frá máli sem 26 andstæðingar Íraksstríðsins höfðuðu á hendur Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, vegna þátttöku Dana í stríðinu. Hópurinn, sem nefndi sig stjórnarskrárnefndina, var stofnaður í kjölfar innrásarinnar í Írak árið 2003. Erlent 11.4.2007 13:10
Vill ekki sjá frumvarp með áætlunum um brottflutning hermanna George Bush Bandaríkjaforseti hvatti Bandaríkjaþing í dag til samþykkja hið fyrsta frumvarp um fjárveitingar til Íraksstríðsins þar sem ekki væri gert ráð fyrir skilyrðum um hvenær kalla ætti herinn heim frá Írak. Erlent 3.4.2007 14:48
Stakk sér undir borð Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, stakk sér undir borð þegar sprengja sprakk meðan hann hélt blaðamannafund í Írak í dag ásamt Nouiri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks. Erlent 22.3.2007 17:20
Réttur þriðjungur Bandaríkjamanna styður stríðið í Írak Rétt liðlega þriðjungur Bandaríkjamanna styður hernaðinn í Írak samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem bandaríska fréttastöðin CNN birti í dag en hún var gerð í tilefni þess að fjögur ár eru liðin frá því að Bandaríkjamenn réðust inn í Írak ásamt stuðningsmönnum sínum og steyptu Saddam Hussein af stóli. Erlent 18.3.2007 19:47
Mótmæli vegna fjögurra ára afmælis Íraksstríðsins Mótmæli hafa farið fram víða í dag í tilefni þess að fjögur ár eru um þessar mundir frá því að Bandaríkjamenn réðust ásamt bandamönnum sínum inn í Írak og steyptu Saddam Hussein, forseta landsins, af stóli. Erlent 17.3.2007 17:25
Boða mestu herferð gegn andófsmönnum sem farin hefur verið Herferð írakskra og bandarískra hersveita gegn andófsmönnum í Bagdad, sem staðið hafa fyrir fjömörgum blóðugum árásum undanfarna mánuði, hefst innan skamms og verður stærrri en nokkur aðgerð sem lagt hefur verið í frá því að ráðist var inn í Írak fyrir nærri fjórum árum. Erlent 4.2.2007 20:17
Segja helming árásarmanna koma frá Sýrlandi Íröksk stjórnvöld segja að helmingur þeirra andófsmanna úr röðum súnnía sem staðið hafi fyrir sprengjuárásum að undanförnu í Írak hafi komið frá Sýrlandi. Segjast yfirvöld í Írak jafnframt hafa sýnt sýrlenskum stjórnvöldum sannanir þar að lútandi. Erlent 4.2.2007 11:32
Mannskæðasta árás ársins í Írak Hvíta húsið lýsir sjálfsmorðsárásinni í Bagdad í dag þar sem um 135 manns létu lífið og á þriðja hundrað særðist sem grimmdarverki gegn saklausum borgum og heitir því að hjálpa írökskum yfirvöldum að koma á lögum og reglum í borginni. Erlent 3.2.2007 20:02
Segist munu binda enda á stríðið í Írak sem forseti Hillary Clinton, sem hefur boðið sig fram sem forsetaefni demókrata í kosningunum 2008, segist munu binda enda á stríðið í Írak ef hún verði fyrir valinu sem forsetaefni flokksins. Þessu lýsti hún yfir á fundi með átta öðrum sem vonast eftir því að verða forsetaefni demókrata í kosningunum. Erlent 3.2.2007 19:28
Mikið mannfall í bílsprengjuárás í Bagdad 45 eru látnir og 95 særðir eftir að vörubíll fullur af sprengiefni sprakk við fjölfarinn markað í miðborg Bagdad í dag. Sprengingin varð í Sadriya-hverfinu þar sem sjíar eru fjölmennir en sprengjuárásir hafa áður verið gerðar þar. Erlent 3.2.2007 15:04
Hersveitir hafa heimild til að handtaka og drepa Írana í Írak George Bush Bandaríkjaforseti greindi frá því í dag að bandarískar hersveitir í Írak hefðu heimild til að handtaka og drepa íranska ríkisborgarar sem tækju þátt í árásum á hersveitir bandamanna. Erlent 26.1.2007 17:00
Skildi sprengju eftir í dúfnakassa Að minnsta kosti fimmtán létu lífið og tugir særðust í sprengjuárás í miðborg Bagdad í morgun. Hryðjuverkið var framið á fjölförnum dýramarkaði í miðborginni en talið er að árásarmaðurinn hafi falið vítisvél sína í kassa sem var fullur af dúfum. Erlent 26.1.2007 13:00
Um hundrað látnir í Írak í dag Hundrað manns hið minnsta hafa fallið í bílsprengju- og eldflaugaárásum í Bagdad í dag og er dagurinn því einn sá blóðugasti frá upphafi árs. 88 létust og 160 særðust snemma í morgun þegar tvær bílsprengjur sprungu á markaði með notuð föt sem fátækir íbúar Bagdad-borgar sækja mikið. Erlent 22.1.2007 16:30
Mannskæð árás í Sadr-hverfinu í Bagdad Sautján eru sagðir látnir og yfir þrjátíu slasaðir eftir að sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi bíl sinn í loft upp á markaði Sadr-hverfi sjía í Bagdad í dag. Er þetta önnur mannskæða árásin í dag en um tíu manns létust og yfir 40 særðust í sams konar árás við lögreglustöð í Kirkuk í Norður-Írak í morgun. Erlent 17.1.2007 15:25
Sjálfsmorðsárás á lögreglustöð í Kirkuk Sjálfsmorðsárásarmaður ók vörubíl hlöðnum sprengiefni inn í lögreglustöð í borginni Kirkuk í Írak í morgun og segja sjónarvottar að töluvert mannfall hafi orðið. Erlent 17.1.2007 11:38
Hátt í hundrað látnir í árásum í Bagdad Að minnsta kosti 85 eru látnir eftir fjölda árása í Bagdad í Írak í dag. Um 60 manns eru sagðir hafa látist í sjálfsmorðsárás tveggja manna við háskóla í austurhluta borgarinnar og þar særðust yfir hundrað manns. Erlent 16.1.2007 16:04
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent