Tyrkland
1 2 3 4 5 6 7 8 … 16 ›
Erdogan samþykkir NATO-aðild Svía Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti hefur samþykkt aðild Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, greindi frá þessu í kvöld. Erlent 10.7.2023 19:47
Rússar reiðir eftir að Erdogan sleppti verjendum Maríupól Fimm af leiðtogum úkraínskra hermanna í Maríupól fengu í gær að fara frá Tyrklandi til Úkraínu, í fylgd með Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Það að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi leyft þeim að fara til Úkraínu hefur reitt yfirvöld í Moskvu til reiði. Erlent 9.7.2023 08:57
Freista þess að tryggja aðild Svía í Vilníus í næstu viku Joe Biden Bandaríkjaforseti tók á móti Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, í Hvíta húsinu í gær, þar sem leiðtogarnir ræddu meðal aðildarumsókn Svía að Atlantshafsbandalaginu. Erlent 6.7.2023 07:42
Ráðist inn í sænska sendiráðið í Bagdad vegna Kóranbrennu Hópur reiðra mótmælenda réðst inn í sænska sendiráðið í Bagdad. Mótmælin voru boðuð eftir að írakskur maður kveikti í Kóraninum fyrir utan mosku í Stokkhólmi í gær. Fjöldi múslimaríkja hefur fordæmt bókabrennuna. Erlent 29.6.2023 14:06
Icelandair hefur samstarf við Turkish Airlines Icelandair og Turkish Airlines undirrituðu í morgun samstarfssamning sem felst í því flugfélögin munu geta boðið viðskiptavinum sínum tengingar á milli leiðakerfa sinna og þannig aukið úrval tengimöguleika. Viðskipti innlent 4.6.2023 11:32
Sigur Erdogans staðfestur Recep Tayyip Erdogan var í dag endurkjörinn forseti Tyrklands. Hann verður forseti í fimm ár til viðbótar og mun þá hafa verið í embætti í aldarfjórðung. Hann hafði betur gegn mótframbjóðandanum Kemel Kilicdaroglu í seinni umferð forsetakosninga. Erlent 28.5.2023 20:38
Stefnir í fimmta kjörtímabil Erdogan Þrátt fyrir að það sé mjótt á munum í seinni umferð forsetakosninganna í Tyrklandi stefnir allt í að Erdogan Tyrklandsforseti nái enn einu sinni endurkjöri. Forsetatíð Erdogan er orðin tuttugu ár og hann verður áfram forseti næstu fimm árin ná hann endurkjöri. Hann ávarpaði stuðningsmenn sína fyrir skömmu og lýsti yfir sigri í kosningunum. Erlent 28.5.2023 17:05
Erdogan í góðri stöðu fyrir aðra lotu Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, er í góðri stöðu eftir fyrstu lotu forsetakosninga. Flokkarnir á bakvið hann héldu líklega meirihluta á þingi og hann er aðeins rúmlega hálfu prósentustigi frá því að tryggja sér meirihluta atkvæða. Erlent 15.5.2023 12:01
Allar líkur á annarri umferð í forsetakosningunum í Tyrklandi Mestar líkur virðast nú vera á því að önnur umferð muni fara fram í forsetakosningunum í Tyrklandi, þar sem kosið verður á milli tveggja efstu frambjóðandanna. Erlent 15.5.2023 06:39
Bilið milli Erdogan og Kilicdaroglu minnkar Munurinn milli forsetaframbjóðenda í Tyrklandi hefur minnkað síðan fyrstu tölur bárust í kvöld. Enginn frambjóðandi er með yfir helming atkvæða eins og stendur. Endi kosningarnar þannig þarf að ganga aftur til kosninga. Erlent 14.5.2023 20:58
Erdogan leiðir en Kilicdaroglu er sigurviss Núverandi forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, leiðir forsetakosningarnar í landinu eftir fyrstu tölur. Búið er að telja tæplega rúm fjörutíu prósent atkvæða og fékk Erdogan um 52,5 prósent þeirra. Helsti andstæðingur Erdogan í kosningunum, Kemal Kilicdaroglu, fékk 41,55 prósent atkvæða. Erlent 14.5.2023 17:35
Twitter sagt láta undan þrýstingi Erdogan Andófsmaður og rannsóknarblaðamaður eru á meðal þeirra sem samfélagsmiðillinn Twitter virðist hafa fallist á að fela fyrir tyrkenskum notendum sínum rétt fyrir mikilvægustu kosningar í landinu í áraraðir. Twitter hefur ekki sagt hvers kyns efni miðilinn samþykkti að ritskoða. Erlent 14.5.2023 09:23
Skrúfa fyrir valið efni korter í kosningar Samfélagsmiðillinn Twitter hefur tilkynnt að ákveðið efni á miðlinum verði ekki aðgengilegt notendum hans í Tyrklandi. Gríðarlega mikilvægar kosningar verða í landinu á morgun en litlu sem engu munar á sitjandi forsetanum Erdogan og keppinauti hans Kemal Kilicdaroglu í skoðanakönnunum. Erlent 13.5.2023 21:24
Gera sér vonir um að velta Erdogan úr sessi Tyrkneska stjórnarandstaðan vonast til þess að tuttugu ára valdatíð Receps Erdogan forseta ljúki eftir forseta- og þingkosningar sem fara fram á sunnudag. Erdogan er ekki talinn hafa staðið eins veikt og nú áður, að stórum hluta vegna óstjórnar í efnahagsmálum. Erlent 13.5.2023 08:08
Hækkar laun um 45 prósent rétt fyrir kosningar Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, tilkynnti í morgun að laun opinberra starfsmanna yrðu hækkuð um 45 prósent. Nokkrir dagar eru í forsetakosningar í Tyrklandi en skoðanakannanir gefa til kynna að Erdogan sé í vandræðum. Erlent 9.5.2023 13:31
Segir Tyrki hafa fellt leiðtoga ISIS Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrknesku leyniþjónustuna hafa fellt Abu Hussein al-Qurashi, sem sagður er hafa tekið við stjórn Íslamska ríkisins eftir að Abu Ibrahim al-Qurayshi lést í árás Bandaríkjamanna á heimili hans í febrúar í fyrra. Erlent 30.4.2023 22:39
Íslenskar björgunarsveitir fengu viðurkenningu frá Erdogan Tyrkir héldu í dag athöfn til að þakka erlendum og tyrkneskum björgunarsveitum sem sinntu björgunarstarfsemi í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir í Tyrklandi sjötta febrúar. Fulltrúi íslenskra björgunarsveita var meðal þeirra sem tóku við heiðursorðu frá Tyrklandsforseta á athöfninni. Innlent 25.4.2023 19:01
110 grunaðir PKK-liðar handteknir í Tyrklandi Lögregla í Tyrklandi hefur handtekið á annað hundrað manns vegna gruns um að tengjast kúrdíska verkamannaflokknum PKK sem stjórnvöld í Tyrklandi skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Um þrjár vikur eru nú til kosninga í landinu. Erlent 25.4.2023 07:46
Tyrkland leggur blessun sína yfir umsókn Finnlands Finnland og Svíþjóð óskuðu eftir því að ganga inn í Atlantshafsbandalagið, NATO, á síðasta ári í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Umsóknin hefur strandað á Tyrklandi en nú hefur tyrkneska þingið samþykkt umsóknina. Öll aðildarríki bandalagsins hafa því nú samþykkt inngöngu Finnlands. Erlent 30.3.2023 22:16
Erdogan segist styðja aðild Finna að NATO Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í dag að tyrkneska þingið myndi greiða atkvæði um að samþykkja umsókn Finnlands um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ekki stendur til að samþykkja aðild Svía að svo stöddu og eru auknar líkur á því að Finnar gangi einir í NATO í bili. Erlent 17.3.2023 16:13
Tyrkir sagðir ætla að samþykkja umsókn Finna Útlit er fyrir að yfirvöld í Tyrklandi ætli að samþykkja aðildarumsókn Finna í Atlantshafsbandalagið á næstu vikum en forseti Finnlands mun fara til Tyrklands á morgun. Tyrkir ætla þó ekki að samþykkja umsókn Svía að svo stöddu. Erlent 15.3.2023 16:48
Stjórnarandstaðan sameinast um mótframbjóðanda gegn Erdogan Sex stjórnarandstöðuflokkar í Tyrklandi, sem jafnan hafa verið sundraðir í sínum störfum, hafa náð saman um forsetaframbjóðanda sem þeir vonast til að muni ná að koma Recep Tayyip Erdogan af forsetastóli í kosningunum sem fram fara í landinu í maí. Erlent 7.3.2023 11:57
Þrír látnir í Tyrklandi eftir skjálfta gærdagsins Björgunarsveitir í Tyrklandi leita nú aftur að fólki í rústum húsa eftir að tveir öflugir skjálftar riðu þar yfir í gær. Erlent 21.2.2023 06:32
Annar öflugur skjálfti á landamærum Tyrklands og Sýrlands Jarðskjálfti af stærðinni 6,4 reið yfir á landamærum Tyrklands og Sýrlands fyrir skömmu. Aðeins tvær vikur eru frá því að skjálfti af stærðinni 7,8 skók svæðið með þeim afleiðingum að 47.000 hafa látist og gríðarlegur fjöldi mannvirkja jafnaðist við jörðu. Erlent 20.2.2023 18:30
Vilja aftur funda með Svíum um NATO-aðild Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að til standi að halda fleiri fundi með fulltrúum sænskra og finnskra stjórnvalda um NATO-aðild þeirra. Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi frá þessu í morgun. Erlent 20.2.2023 10:12
Atsu fannst látinn í rústum Ganverski knattspyrnumaðurinn Christian Atsu hefur fundist látinn í rústum heimilis síns í Tyrklandi. Hans hafði verið saknað frá því að jarðskjálfti skók stóran hluta Tyrklands og Sýrlands þann 6. febrúar síðastliðinn. Fótbolti 18.2.2023 08:48
Tala látinna komin í 45 þúsund Tala látinna eftir jarðskjálftann í Tyrklandi og Sýrlandi er komin í 45 þúsund og óttast er að hún hækki. 264 þúsund íbúðarhús hrundu í Tyrklandi en síðast í gær var þremur bjargað úr rústum þar í landi. Stríðsátök eru hafin á ný í Sýrlandi, sem hamlar björgunarstarfi. Erlent 18.2.2023 08:05
„Þetta var miklu, miklu stærri atburður en við höfðum æft“ Seinni hluti íslenska hópsins sem var við störf á jarðskjálftasvæðinu í Tyrklandi kom heim til Íslands í dag. Teymisstjóri hópsins segir frábært að geta hjálpað en að sama skapi sé gott að vera komin heim. Innlent 17.2.2023 18:48
Færði heimsbyggðinni þakkir fyrir aðstoðina Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, þakkaði í dag öllum þeim ríkjum sem hafa boðið fram aðstoð sína eftir skjálftana mannskæðu í síðustu viku en að hans sögn hafa hundrað ríki boðist til að aðstoða og eru björgunarsveitir frá 76 löndum núna í Tyrklandi. Erlent 15.2.2023 19:59
Erfitt að fara heim frá hamfarasvæðinu í Tyrklandi Hluti íslenska hópsins sem fór út til Tyrklands til aðstoðar vegna jarðskjálfanna kom heim í dag og fékk höfðingjalegar mótttökur. Hópstjóri segir að það hafi verið erfitt að yfirgefa landið þegar hörmungarnar standa enn yfir en það eigi eftir að koma í ljós hvernig þær hafi áhrif á íslenska hópinn. Innlent 14.2.2023 23:31