

Skjólstæðingarnir taka með sér um 200 milljóna króna framlag frá ríkinu.
Sveinn Guðmundsson ver á morgun doktorsritgerð sína í mannfræði við Háskóla Íslands sem ber heitið "Hugur og líkami eða huglíkami?“ - Læknar, hjúkrunarfræðingar og óhefðbundnar lækningar (Mind and Body or Mindbody - Doctors and Nurses Working with CAM).
Foreldrar tíu ára drengs sem glímir við alvarlegar geðraskanir segjast ráðþrota gagnvart íslensku heilbrigðskerfi.
Skerpa þurfti á leiðbeiningum til gesta Hrafnistu um að taka ekki myndir eða myndbönd af heimilismönnum án leyfis eftir að mál kom upp í sumar þar sem gestur tók myndband af íbúa heimilisins í óheppilegum aðstæðum.
Yfirlæknir segir að tekið sé á móti fólki sem þurfi geðhjálp alla daga, allan sólarhringinn. Áhættuþáttur sé að þjónustan sé á tveimur stöðum.
Margir hafa leitað til Landspítalans vegna sjálfsvígshugsana.
Landspítalinn hefur enn ekki sent frá sér yfirlýsingu vegna sjálfsvígs ungs manns á geðdeild á fimmtudaginn
Niðurstöður rannsókna Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur gefa til kynna að neysla óþvegins salats sé orsök matarsýkingar sem varð þess valdandi að fjöldi kennara við Hvassaleitishluta Háaleitisskóla fékk magapest.
Ingólfur glímir sjálfur við geðsjúkdóm en hann var á unglingsaldri þegar hann var greindur með kvíðaröskun.
Ungur karlmaður svipti sig lífi á geðdeild Landspítalans í gær. Þetta er í annað skipti á tíu dögum sem maður fellur fyrir eigin hendi á geðdeild spítalans.
Drengur sem handleggsbrotnaði á Akureyri fær ekki endukomutíma í Reykjavík þrátt fyrir að vera búsettur þar. Honum er vísað á slysa- og bráðadeildinna og þarf að bíða þar eftir þjónustu þrátt fyrir að tvær vikur séu liðnar frá slysinu og hann ekki bráðveikur.
Haraldur Briem, staðgengill sóttvarnarlæknis,segir að notkun á smokkum hafi í gegnum árin verið ansi stöðug.
Sóttvarnarlæknir hefur upplýst lækna á höfuðborgarsvæðinu um einkenni, sem gætu komið upp, vegna sýkinga af völdum saurmengunar á ströndum Reykjavíkur.
Árlega greinast hér á landi að meðaltali 134 tilfelli af krabbameini í ristli og endaþarmi en þar af eru 74 tilfelli hjá körlum og 60 tilfelli hjá konum.
Framboð nýrra krabbameinslyfja verður einnig skoðað og haft að markmiði að Ísland standist sömu kröfur, hvað lyf varðar, og samanburðarlönd.
Tilefni skrifa hennar eru tvær ritgerðir sem vistaðar eru inn á Skemmunni frá árinu 2016, þar sem rangfærslur er að finna um meyjarhaftið.
Lyfið hefur fengið það orð á sig að vera dýrasta lyf í heimi og er það meðal þess sem kemur fram í svari ráðherra. Þar segir að einn skammtur kosti 12,5 milljónir króna eða 125 þúsund dollara.
Verið er að skoða hvort að langir dagar bæli niður virkni melatóníns og hækki þar með hormónastarfsemi kvenna og sömuleiðis hvort að vetrardagar hækki virkni melatónins og minnki hormónastarfsemina.
Sérfræðingar eru uggandi yfir því að Evrópudómstóllinn hafi gefið það út að tengja megi veikindi við bólusetningar fyrir dómi þrátt fyrir að engin vísindaleg gögn bendi til orsakasamhengis þar á milli.
Sængur sjúklinga hjá Landspítala í Fossvogi eru nú sængurveralausar.
Upphaflega var tilkynnt um það að húsnæðið fyrir jáeindaskannann yrði tilbúið í september 2016 og búist var við því að skanninn yrði kominn í notkun áramótin 2016. Skanninn er þó ekki kominn í notkun og enn er verið að senda íslenska sjúklinga til Danmerkur í jáeindaskanna.
Starfsfólk deildarinnar vinnur eftir nýju verklagi að breskri fyrirmynd. Deildin ber heitið bráðalyflækningadeild og sinnir stærsta hluta þeirra sjúklinga sem leggjast inn á spítalann eða öllum sjúklingum sem meðhöndlaðir eru með lyfjum og tilheyra ekki skurðssviði eða kvensjúkdómalækningum.
Skortur á búsetuúrræðum þýðir að fólk bíður allt upp í tvö ár eftir því að komast út af geðsviði Landspítalans. Aðrir fá ekki inni vegna þessa og útilokað að vinna á biðlistum.
Landlæknir segist hafa góða reynslu af því að reka sjúkrahús sem hafi stjórn yfir sér. Hann telur hugmyndina vera til bóta fyrir Landspítalann. Stjórnarandstæðingar á Alþingi óttast pólitísk afskipti af stjórn spítalans.
Bæði fjármálaráðherra og formaður fjárlaganefndar telja æskilegt að skipa stjórn yfir Landspítalann. Formaður velferðarnefndar segir hugmyndina á frumstigi en að unnið sé að þingsályktunartillögu.
Landlæknisembættið vill meira öryggi í lyfjaávísunum til barna og koma upp viðvörunum í rafrænni sjúkraskrá. Að minnsta kosti fjögur atvik hafa verið tilkynnt til embættisins síðustu ár þar sem röngum skammti var ávísað.
"Því miður er óraunhæft að ætla að í náinni framtíð skapist þær aðstæður í íslenskri heilbrigðisþjónustu að ekki verði þörf á að koma mörgum af erfiðustu tilfellunum sem koma upp á landsbyggðunum á Landspítalann við Hringbraut,“ segir í bókun bæjarstjórnar Hornafjarðar.
Formenn læknafélaga og læknaráð Landspítalans bregðast harðlega við fullyrðingum landlæknis.
Segir ekki verið að einkavæða Fjölbrautaskólann við Ármúla verði hann sameinaður rekstri Tækniskólans.
Mun færri læknar sækja sér nú sérfræðimenntun í geðlækningum en undanfarin ár. Geðlæknar eru margir hættir að taka við nýjum sjúklingum.