Fangelsismál
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 15 ›
Sextíu sæta gæsluvarðhaldi og kerfið þolir ekki meira Sextíu einstaklingar sæta nú gæsluvarðhaldi en fjöldinn er að jafnaði um tuttugu. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir fjöldann mega rekja til stórra mála sem komið hafa upp á síðustu vikum; fíkniefnamál, ofbeldismál og nú síðast hópárásin á Bankastræti Club síðastliðinn fimmtudag. Innlent 22.11.2022 07:01
Lögreglan kalli ekki eftir forvirkum rannsóknarheimildum Dómsmálaráðherra hefur boðað stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal aðgerða í stríðinu er að auka forvirkar rannsóknarheimildir og skoða aukinn vopnaburð, til dæmis með tilkomu rafbyssa. Þingmaður Samfylkingarinnar segir lögreglumenn ekki kalla eftir því sem dómsmálaráðherra vill veita þeim. Innlent 21.11.2022 21:08
Þolendum mansals refsað Vel á annan tug erlendra kvenna hafa dvalið í gæsluvarðhaldsklefum fangelsisins á Hólmsheiði undanfarnar vikur og mánuði. Það sem þær eiga flestar sameiginlegt er að neyðin bankaði á dyr og fyrir vikið enduðu þær sem fórnarlömb mansals. Skoðun 21.11.2022 11:30
Fangar undir átján ára aldri skulu vistast á vegum barnaverndaryfirvalda Undanfarin fimm ár hefur einn einstaklingur undir átján ára verið dæmdur til óskilorðsbundinnar fangelsisvistar. Enginn einstaklingur undir lögaldri hefur afplánað refsingu í hefðbundnu fangelsi. Alls hafa rúmlega þúsund börn undir átján ári aldri verið sett á sakaskrá undanfarin tíu ár. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Evu Sjafnar Helgadóttur þingmanns Pírata. Innlent 19.11.2022 07:01
Brjótum glæpahringina upp Aldrei hafa fleiri sætt gæsluvarðhaldi og nú. Fangelsismálastjóri segir að álagið sé orðið það mikið að erfitt sé að tryggja öryggi starfsfólks. Flest sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um brot á fíkniefnalögum. Samtímis reynir dómsmálaráðherra að koma í gegn frumvarpi um forvirkar rannsóknarheimildir sem á skv. greinargerð að miða að því að koma í veg fyrir afbrot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi, bæði innanlands og á milli landa. Skoðun 18.10.2022 07:01
Skallaði og beit fangaverði í fangelsinu á Hólmsheiði Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Sigurð Brynjar Jensson í sextíu daga fangelsi fyrir að hafa skallað og bitið fangaverði í fangelsinu á Hólmsheiði. Innlent 11.10.2022 14:10
Fangelsismálastjóri segir Barnakot á Hrauninu viðbjóðslegt Fangelsismálastjóri segir húsnæði til að taka á móti börnum á Litla-Hrauni vera viðbjóðslegt. Velgjörðamanni blöskraði svo að hann ákvað að styrkja fangelsið. Hann segir brýnt að bæta aðstöðu barna sem eiga foreldra í fangelsum. Innlent 4.10.2022 20:01
Ísland langt á eftir þegar kemur að börnum fanga Umboðsmaður barna segir ljóst að börn sem eiga foreldra í fangelsum séu gleymdur hópur og ráðast þurfi í úrbætur til að bæta þeirra stöðu. Niðurstöður nýrra rannsókna benda til að Ísland sé langt á eftir hinum Norðurlöndunum í málaflokknum. Innlent 3.10.2022 15:07
AA og Afstaða í fangelsum Allt frá stofnun Afstöðu árið 2005 hefur eitt af höfuðmarkmiðum félagsins verið að hvetja fanga til þess að taka þátt í starfi AA-samtakanna. Upp úr aldamótum voru ekki margir sem nýttu sér úrræðið og horfðum við forsvarsmenn Afstöðu upp á hvern AA-fund á fætur öðrum þar sem enginn fangi mætti. Skoðun 12.9.2022 14:32
Fangar fá námsráðgjöf í upphafi annar og vikulega fjarráðgjöf Til stendur að taka upp nýtt fyrirkomulag námsráðgjafar á Kvíabryggju í byrjun annar. Markmiðið er að nýta það fjármagn sem Fjölbrautaskólinn á Suðurlandi fær frá ríkinu betur. Þetta segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSU í samtali við Fréttablaðið. Innlent 26.8.2022 07:16
Lét höggin dynja á fangavörðum og fanga Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir þrjár líkamsárásir sem áttu sér stað í fangelsinu á Hólmsheiði, tvær gegn fangavörðum og eina gegn samfanga sínum. Innlent 25.8.2022 11:57
Segir skólameistara FSu hafa lokað á nám fanga án samráðs Formaður Afstöðu, félags fanga, segir skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands hafa upp á sitt einsdæmi ákveðið að loka á nám fanga við skólann. Það hafi hann gert með því að skrúfa fyrir fjármagn til námsráðgjafa sem lagt hefur leið sína á Kvíabryggju til að aðstoða fanga við nám. Innlent 24.8.2022 20:49
Öryggisvistun vegna alvarlegra líkamsárása á fangaverði og samfanga Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið gert að sæta áframhaldandi öryggisvistun vegna tveggja alvarlegra líkamsárása sem áttu sér stað í fangelsinu á Hólmsheiði í janúar síðastliðnum. Innlent 13.7.2022 13:46
Annar hver fangi með ADHD Rannsóknir nýs geðheilbrigðisteymis fangelsa landsins benda til þess að um helmingur fanga sé með taugaþroskaröskunina ADHD. Innlent 8.7.2022 11:58
Mannskemmandi fyrir fólk að vera dregið aftur í myrkrið Formaður Afstöðu kallar eftir breyttri löggjöf um reynslulausn á Íslandi. Fangar sem fá þyngri dóma fá sjaldan sem aldrei reynslulausn hér ólíkt því sem tíðkast á Norðurlöndum. Innlent 26.6.2022 21:29
Stefnir íslenska ríkinu fyrir frelsissviptingu: „Þetta var helvíti“ Kona sem svipt var réttinum á að afplána utan fangelsis undir rafrænu eftirliti og kölluð aftur í fangelsi árið 2018 segir síðustu tvö ár afplánunar hafa verið helvíti. Hún hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir það sem hún kallar ólögmæta frelsissviptingu. Á sakaskrá konunnar er eitt stærsta fíkniefnamál síðari tíma á Íslandi. Innlent 25.6.2022 18:45
Skortur á úrræðum og engin lausn að senda veikt fólk í fangelsi Formaður Afstöðu, félags fanga, segir engin úrræði standa fólki með geðræn vandamál til boða inni í fangelsiskerfinu. Svokallaðar tifandi tímasprengjur finnist víða í þjóðfélaginu. Ísland sé áratugum á eftir í málaflokknum en stjórnvöld skorti vilja til að taka á vandamálinu. Innlent 11.6.2022 18:57
Enginn undir 18 ára afplánað í hefðbundnu fangelsi í fimm ár Enginn einstaklingur undir 18 ára aldri hefur þurft að afplána óskilorðsbundna fangelsisrefsingu í hefðbundnu fangelsi síðastliðin fimm ár. Frá 1. janúar 2017 hefur einungis einn dómur varðandi einstakling undir 18 ára aldri borist Fangelsismálastofnun. Innlent 10.6.2022 10:02
Áður voru þetta lurkar sem völdust í fangavörsluna Ímynd fangavarða hefur breyst í gegnum tíðina að sögn Guðmundar Gíslasonar skólastjóra Fangavarðaskóla ríkisins en hann kveður nú eftir rúma fjóra áratugi sem forstöðumaður. Innlent 9.6.2022 09:45
Ósakhæfur = eilífðar fangelsi? Þegar einstaklingur telst ekki ábyrgur gjörða sinna er hann talinn ósakhæfur. Oftar en ekki eru ósakhæfir einstaklingar andlega veikir, en undir ósakhæfi falla einnig einstaklingar með greindarskerðingar eða fötlun. Skoðun 25.5.2022 16:01
Trúleysingjar æfir yfir styrk ráðherra til Þjóðkirkjunnar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, veitti nýverið Þjóðkirkjunni styrk að upphæð 10 milljónir króna til þess að geta boðið aðstandendum fanga upp á þjónustu, stuðning og ráðgjöf. Styrkveitingin féll í grýttan jarðveg hjá samtökum trúleysingja. Innlent 24.5.2022 17:04
Rifjar upp flótta Matthíasar Mána af Litla-Hrauni: „Vorum smeyk að eitthvað hefði komið fyrir hann“ Einn best skipulagði flótti úr fangelsi hér á landi var þegar Matthíasi Mána Erlingssyni tókst að flýja úr fangelsinu á Litla-Hrauni í desember 2012. Fyrrverandi forstöðumaður á Litla-Hrauni segir starfsmenn hafa haft miklar áhyggjur af Matthíasi á meðan hans var leitað, enda var hann einn á ferli í uppsveitum Árnessýslu um miðjan desember. Innlent 28.4.2022 16:44
Tískuglæpur: Fangaverðir óhressir með saumaskap fanganna Spænskir fangaverðir eru afar ósáttir við nýja endurhæfingaráætlun sem ætlað er að veita föngum atvinnureynslu áður en þeir halda út í samfélagið. Áætlunin felur í sér að fangarnir sauma einkennisbúninga fangavarðanna og útkoman þykir ekki auka á glæsileika fangavarðanna. Erlent 24.4.2022 07:10
Páll skorar á strokufangann að gefa sig fram Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar og sálfræðingar stofnunar hafa þungar áhyggjur af því hverjar afleiðingar stroks ungs fanga geti orðið og biðla til hans að gefa sig fram. Innlent 20.4.2022 16:24
Samfella í stuðningi við fanga með þroskahömlun og á einhverfurófinu Erlendar rannsóknir sýna svart á hvítu að fólk með þroskahömlun og/eða á einhverfurófi sem dæmt er til fangelsisvistar hefur mjög mikla þörf fyrir viðeigandi stuðning og vernd meðan á fangelsisvist stendur og eftir að það hefur lokið afplánun. Skoðun 19.4.2022 10:30
Fyrri áfallasaga rauður þráður hjá föngum Alvarleg áföll sem leiddu til vímuefnavanda og neyslutengdra afbrota er rauður þráður í reynslu íslenskra kvenfanga samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Geðhjúkrunarfræðingur segir það koma heim og saman við sambærilegar rannsóknir erlendis. Innlent 1.4.2022 19:01
Vissi að lögreglan fylgdist með honum vegna dularfulls leka Maður sem grunaður er um skipulagða glæpastarfsemi segir vinnubrögð lögreglu í máli sínu yfirdrifin og til skammar. Alvarlegur gagnaleki úr lögreglu síðasta sumar kom sér vel fyrir manninn, sem á langan brotaferil að baki. Innlent 13.3.2022 10:00
Ríkið sýknað af tugmilljóna kröfu Barkar Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um sýknu íslenska ríkisins af tugmilljóna króna skaðbótakröfu Barkar Birgissonar. Börkur krafðist bóta vegna vistunar á öryggisgangi á Litla-Hrauni í eitt og hálft ár. Innlent 4.3.2022 18:19
Fangavarðaskólinn í fjarnámi – 26 nemendur í skólanum Tuttugu og sex nemendur eru nú í Fangavarðaskólanum þar sem um þriðjungur þeirra eru konur. Námið fer fram í fjarnámi, auk einnar viku í staðarlotu í verklegum æfingum í samstarfi við þjálfara Lögregluskólans. Fangavörður segir starfið glettilega skemmtilegt og gefandi. Innlent 12.2.2022 14:06
Tuttugu fangaverði vantar til starfa Fangaverðir hafa verulegar áhyggjur af öryggi sínu í fangelsum landsins vegna viðvarandi undirmönnunar. Á Kvíabryggju er til dæmis aðeins einn fangavörður á næturvöktum með 22 fanga og á Hólmsheiði eru þrír fangaverðir á næturvöktum með 50 fanga. Innlent 6.2.2022 13:01