Dýr

Fréttamynd

„Þetta er örugg­lega dauða­stríð sem tekur langan tíma“

Starfsmaður Vegagerðarinnar á Patreksfirði segir andarnefjuna sem liggi á Skeiðsnesi í Kjálkafirði ekki vera þá fyrstu sinnar tegundar sem reki á land á Vestfjörðum í sumar. Hann telji hvalreka hafa verið tíðari á svæðinu í sumar en áður sem sé miður enda langur og hræðilegur dauðdagi. Dýrið sem hefur verið fjallað um hafi líklega rekið á land og drepist fyrr en áður hefur komið fram.

Innlent
Fréttamynd

„Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“

Íbúi í Bolungarvík, tók eftir andarnefjuhræi í innanverðum Kjálkafirði þegar hann átti leið um svæðið fyrr í dag. Dýrið hafi virst nýdautt en þó verið skýr ummerki um varg sem sé dæmi um hve miskunnarlaus náttúran geti verið. Höfuðlagið hafi verið svo einkennandi að Bolvíkingurinn hafi þekkt tegundina um leið og hann kom auga á hræið.

Innlent
Fréttamynd

Moskító­flugan virðist hafa gufað upp

Moskítóflugan virðist hafa gufað upp að sögn prófessors í líffræði en ekkert hefur sést til hennar í sumar. Hann segir þó enn ekki hægt að afskrifa hana fullkomlega.

Innlent
Fréttamynd

Játar inn­brot í búin

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot og eignaspjöll í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ ásamt fleiri innbrotum í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri en einn yfir­heyrður en enginn í haldi

Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir búið að yfirheyra einstaklinga í tengslum við innbrot í svína- minka- og kalkúnabú í vor og sumar. Enginn hafi þó verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hún segir rannsókn málanna enn í gangi og vill lítið gefa upp um gang þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Langreyðarkvótinn mun tæp­lega nást

Hvalbátarnir tveir, Hvalur 8 og Hvalur 9, lönduðu fjórum langreyðum í fyrradag, tveimur hvölum hvor, til vinnslu í Hvalfirði. Þar með hafa samtals 72 langreyðar veiðst á vertíðinni en þeim fyrstu var landað í hvalstöðinni þann 26. júní síðastliðinn.

Innlent
Fréttamynd

Sex svín drápust eftir annað inn­brot

Svínum Stjörnugríss var sleppt út í Saltvík og var lögregla kölluð út að staðnum í morgun. Fimm smágrísir drápust og ein gylta fótbrotnaði svo þurfti að aflífa hana, auk þess sem fjölmörg dýr eru særð og með áverka. Verksummerki eru með svipuðum hætti og síðast þegar brotist var inn hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt í maí síðastliðnum.

Innlent
Fréttamynd

„Ó­harðnaðir ung­lingar sem kunna ekkert á lífið“

Fólki er misvel við máva en íbúar höfuðborgarsvæðisins segja margir farir sínar ekki sléttar af fuglunum og atgangi þeirra síðastliðnar vikur. Ekki sé við þá að sakast enda um svanga og óharðnaða unglinga að ræða, að sögn fuglafræðings. 

Innlent
Fréttamynd

Hvað veistu um... fugla?

Ísland er heimkynni fjölmargra fuglategunda og eru fuglarnir órjúfanlegur hluti af íslenskri náttúru og vistkerfi. Hér verpa bæði staðfuglar og farfuglar sem koma til landsins á vorin til að nýta sumarið til varps.

Lífið
Fréttamynd

„Ég er konan sem kýldi há­karl í and­litið“

Leah Stewart, 34 ára, kona frá Sydney sem lifði af hákarlaárás lýsti í sjónvarpsviðali því augnabliki þegar hún stóð augliti til auglitis við fjögurra metra langan hvíthákarl og kýldi hann þangað til hann hörfaði. 

Erlent
Fréttamynd

Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara var­lega

Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til þeirra sem standa nú að björgun á lundapysjunni að fara varlega og leggja leið sína að svokölluðu sleppisvæði og standa þar fyrir innan hlaðna veggi. Þeim hafi borist í það minnsta tvær tilkynningar um að fólk hafi staðið fyrir utan veggina og litlu munað að illa færi.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tökur í tengslum við inn­brot í minkabúið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt handtökur í tengslum við innbrotið í minkabúið í Mosfellsdal. Ekki hefur þó verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum. Bóndinn segir mikið uppbyggingarstarf fram undan en mikilvægt sé að fá ný dýr til landsins.

Innlent
Fréttamynd

Bjarga þúsundum pysja í Eyjum

Lundapysjutímabilið stendur sem hæst þessa dagana í Vestmannaeyjum en björgun lundapysja er einn af hápunktunum hjá ungviðinu í Eyjum ár hvert. Fréttastofan kíkti til Eyja og fylgdist með pysjubjörgun og eftirliti.

Innlent
Fréttamynd

Rán­fugl gæddi sér á smáfugli í Vestur­bænum

Íbúa í Vesturbæ Reykjavíkur brá heldur betur í brún þegar hann leit upp af kvöldmatnum og sá ránfugl gæða sér á spörfugli í bakgarðinum við heimili sitt. Hann segir atburðarásina hafa verið svo ólystuga áhorfs að hann missti matarlystina og þurfti að henda kvöldmatnum sínum í ruslið.

Innlent