Dýr

Fréttamynd

Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara var­lega

Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til þeirra sem standa nú að björgun á lundapysjunni að fara varlega og leggja leið sína að svokölluðu sleppisvæði og standa þar fyrir innan hlaðna veggi. Þeim hafi borist í það minnsta tvær tilkynningar um að fólk hafi staðið fyrir utan veggina og litlu munað að illa færi.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tökur í tengslum við inn­brot í minkabúið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt handtökur í tengslum við innbrotið í minkabúið í Mosfellsdal. Ekki hefur þó verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum. Bóndinn segir mikið uppbyggingarstarf fram undan en mikilvægt sé að fá ný dýr til landsins.

Innlent
Fréttamynd

Bjarga þúsundum pysja í Eyjum

Lundapysjutímabilið stendur sem hæst þessa dagana í Vestmannaeyjum en björgun lundapysja er einn af hápunktunum hjá ungviðinu í Eyjum ár hvert. Fréttastofan kíkti til Eyja og fylgdist með pysjubjörgun og eftirliti.

Innlent
Fréttamynd

Rán­fugl gæddi sér á smáfugli í Vestur­bænum

Íbúa í Vesturbæ Reykjavíkur brá heldur betur í brún þegar hann leit upp af kvöldmatnum og sá ránfugl gæða sér á spörfugli í bakgarðinum við heimili sitt. Hann segir atburðarásina hafa verið svo ólystuga áhorfs að hann missti matarlystina og þurfti að henda kvöldmatnum sínum í ruslið.

Innlent
Fréttamynd

Ferða­menn koma til að spyrja eftir hundinum

Hundur á sveitabæ einum í Húnaþingi er orðinn stjarna á netinu. Hann liggur gjarnan á áningarstað við Vatnsdalshóla og bíður eftir ferðamönnum sem streyma að til að fá að klappa honum.

Innlent
Fréttamynd

Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst?

Það er tiltölulega fyrirsjáanlegt hver viðbrögð mannfólks verða þann 12. ágúst þegar tunglið hylur sólina algjörlega og við upplifum örstutta nótt. Sumir munu reka upp stór augu, aðrir skella upp úr og einhverjir munu án efa fella tár. Hvernig dýr munu bregðast við er hins vegar ekki eins augljóst.

Innlent
Fréttamynd

Blöskrar hegðun ferða­manna við Sól­heima­jökul

Leiðsögumanni blöskrar að fólk stundi það að gefa villtum refum að éta við ferðamannastaði án þess að hugsa út í hvaða áhrif það kunni að hafa á dýrin. Í myndskeiði sem Þórir Sæmundsson deilir á samfélagsmiðlum sést refur vappa um bílastæði við Sólheimajökul. Líffræðingur segir óeðlilegt að refurinn hangi á bílastæðinu og ekki eigi að fóðra villt dýr.

Innlent
Fréttamynd

Halla Hrund og uglurnar þrjár

Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins varð fyrir sérkennilegri upplifun þegar hún fór til að veiða lax í Elliðaám fyrr í sumar.

Lífið
Fréttamynd

Fleiri en einn hafi verið að verki

Aðgerðir í Mosfellsdal gengu vel í nótt og halda áfram í dag að sögn bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Tilkynningar næturinnar megi telja á fingrum annarrar handar en aðgerðarstjórnin vilji vera með vaðið fyrir neðan sig. Honum þyki ekki ólíklegt að um sömu aðila sé að ræða og í innbroti í svínabú og kjúklingabú fyrr í sumar og að fleiri en einn hafi verið að verki.

Innlent
Fréttamynd

Dýralæknafélag Ís­lands for­dæmir skemmdar­verk í Dalsbúi

Dýralæknafélag Íslands fordæmir harðlega meint innbrot og skemmdarverk á þremur búum og að dýrum hafi verið sleppt úr haldi. Slík atvik staðfesti dómgreindarleysi þeirra sem að aðgerðunum standi. Félagið lýsir yfir stuðningi við lögreglu, Matvælastofnun og aðra sem koma að aðgerðunum í Mosfellsdal. 

Innlent
Fréttamynd

Mosfellsdalur minnti á víg­völl

„Þetta líktist næstum því vígvelli,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður sem fylgt hefur eftir atburðum í Mosfellsdal í dag, en þar hefur mátt heyra skothvelli á meðan drónar sveima yfir. Fréttir bárust af því í morgun að þúsundum minka hefði verið sleppt úr búrum sínum á Dalbúi, síðasta minkabúi landsins, og er unnið hörðum höndum að því að ná stjórn á minkafaraldrinum.

Innlent
Fréttamynd

Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður

Náttúruverndarstofnun telur að forsendur núverandi fyrirkomulags refaveiða séu í raun brostnar, meðal annars vegna þess að fáar formlegar tilkynningar um tjón af völdum refs hafi borist. Þetta er svo merkileg rökfræði að rétt er að beita henni á stofnunina sjálfa.

Skoðun
Fréttamynd

Allir á hlaupum að reyna fanga minka

Aðstoðarlögreglustjóri segir að rökstuddur grunur sé um að brotist hafi verið inn í minkabú og dýrunum hleypt úr búrunum. Alls hafi verið á milli tíu og tólf þúsund minkar í búinu en fjöldi viðbragðsaðila kemur að því að fanga minkana sem sluppu. Mikið sé undir.

Innlent
Fréttamynd

„Það er bara ekkert sniðugt við þetta“

Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum. 

Innlent