Fréttir af flugi
68 69 70 71 72 73 74 75 76 … 147 ›
Ellefu lífeyrissjóðir eiga nærri helming hlutafjár í Icelandair Ellefu lífeyrssjóðir eru meðal tuttugu stærstu hluthafa í Icelandair þar af er Lífeyrissjóður verslunarmanna annar stærsti hluthafi í félaginu. Formaður VR segir að ekki verði lagt upp í björgunarleiðangur fyrir Icelandair nema félagið standi vörð um réttindi fólks. Þá þurfi fyrst og fremst að huga að því við fjárfestingu að hún sé fýsileg fyrir sjóðsfélaga. Viðskipti innlent 27.4.2020 14:05
Lentu eins hreyfils flugvél á hæsta fjalli Norðurlands Það er ekki á hverjum degi sem flugvélum er lent á einum af tíu hæstu tindum landsins. Félagarnir Kristján Þór Kristjánsson og Fáfnir Árnason gerðu þó tíunda hæsta fjall landsins, og hæsta fjall norðurlands, Kerlingu að flugbraut sinni í gær. Innlent 27.4.2020 11:31
Sammála um að ríkið þurfi að koma Icelandair til aðstoðar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, telja báðir að ríkisstjórnin eigi að hafa frumkvæði að því að lýsa því yfir að stjórnvöld muni koma Icelandair til aðstoðar. Viðskipti innlent 26.4.2020 18:47
Fjöldauppsagnir hjá Icelandair eftir helgi Koma mun til fjöldauppsagna hjá Icelandair strax eftir helgi. „Við verðum því miður að grípa til mjög erfiðra og mikilla aðgerða til að minnka útflæði fjármagns.“ Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Innlent 26.4.2020 15:01
Skrýtið ef ekki eigi að verja störf í flugi Formaður félags atvinnuflugmanna segir það skrýtið ef ríkisstjórnin ætlar ekki að verja störf í flugi. Stærsti niðurskurður Icelandair blasir við. Ferðamálaráðherra segir fyrirtækið með ærið verkefni í höndunum. Viðskipti innlent 25.4.2020 18:48
Boðað til starfsmannafundar hjá Icelandair Að því er segir í tilkynningu til starfsmanna um fundinn mun Bogi Nils Bogason, forstjóri fyrirtækisins, fara yfir stöðu mála og svara þeim spurningum sem starfsmenn kunna að hafa. Viðskipti innlent 24.4.2020 13:06
Umfangsmiklar aðgerðir og frekari uppsagnir hjá Icelandair Icelandair Group mun nú í aprílmánuði grípa til yfirgripsmikilla aðgerða sem fela bæði í sér uppsagnir og breytingar á skipulagi félagsins. Viðskipti innlent 22.4.2020 17:00
Breyttar reglur um sóttkví taka gildi á föstudag Öllum þeim sem koma til landsins verður skylt að fara í sóttkví í fjórtán daga frá komu. Samhliða því verður tekið upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum. Innlent 22.4.2020 10:44
Undirbjuggu hjartaflugið í flughermi í Hafnarfirði „Þetta kom nú þannig til að einn af flugstjórunum í þessu flugi kom með þessa hugmynd til okkar að sýna heilbrigðisstarfsfólki þennan þakklætisvott.“ Lífið 21.4.2020 10:29
Næst stærsta flugfélag Ástralíu í þrot Næst stærsta flugfélag Ástralíu, Virgin Australia, hefur lýst yfir gjaldþroti og er því fyrsta ástralska stórfyrirtækið sem verður faraldrinum að bráð. Erlent 21.4.2020 06:58
Fjögur dótturfélög Norwegian í þrot Norska flugfélagið Norwegian óskaði eftir því í dag að fjögur dótturfélög fyrirtækisins yrðu tekin til gjaldþrotaskipta. Viðskipti erlent 20.4.2020 19:02
Kanadamenn fluttu færanlega ratsjá á Stokksnes Kerfið var sett upp þar svo tryggja megi órofinn rekstur á ratsjárkerfum Atlantshafsbandalagsins hér á landi á meðan endurbætur standa yfir. Innlent 20.4.2020 17:55
Icelandair heldur miðjusætunum auðum Að óbreyttu munu miðjusætin í vélum Icelandair vera auð fram undir lok maí. Viðskipti innlent 20.4.2020 12:30
Mynduðu hjarta fyrir ofan borgina Flugmenn Boeing 767 vélar Icelandair sem komu til landsins í dag með átján tonn af lækningavörum frá Kína lögðu lykkju á leið sína til Keflavíkur og flugu yfir höfuðborgarsvæðið á sérstakan hátt. Innlent 19.4.2020 18:57
Misvísandi að segja launakostnað flugmanna stóran þátt í rekstrarvanda Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur sent frá sér tilkynningu þar sem félagið segir misvísandi að ýja að því að launakostnaður flugmanna Icelandair sé stór þáttur í rekstrarvanda félagsins. Viðskipti innlent 18.4.2020 16:23
Leggja Icelandair ekki til fé nema launamálin séu skýr Eðlilegt að fjárfestar setji ekki fé í Icelandair Group meðan launamálin eru í lausu lofti að sögn forstjórans. Viðskipti innlent 17.4.2020 11:38
Icelandair reynir að bjarga sér með hlutafjárútboði Icelandair Group segist hafa í hyggju að ráðast í hlutafjárútboð á næstunni, til að tryggja „samkeppnishæfni til lengri tíma litið.“ Viðskipti innlent 17.4.2020 09:15
Til greina komi að skera flotann niður um helming Icelandair hefur undanfarna daga rætt við stærstu hluthafa félagsins um að koma með eigið fé í reksturinn. Viðskipti innlent 17.4.2020 07:52
Samið um sextán ferðir til Boston, London og Stokkhólms Icelandair mun fljúga sextán ferðir til Boston, London og Stokkhólms samkvæmt samningi sem félagið hefur gert við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Samningurinn á að tryggja lágmarksflugsamgöngur til og frá landinu í kórónuveirufaraldrinum. Innlent 15.4.2020 18:03
Ríkið semur við Air Iceland Connect um flug til Egilsstaða og Ísafjarðar Stjórnvöld segjast hafa samið við flugfélagið Air Iceland Connect um reglulegar flugsamgöngur til Egilsstaða og Ísafjarðar til og með 5. maí. Innlent 15.4.2020 17:01
Von á tillögum um hömlur á ferðalög til og frá landinu Starfshópur er nú að störfum að vinna tillögur að því hvernig og hvort setja eigi hömlur á ferðalög til og frá Íslandi. Sóttvarnarlæknir er á því að einhverjar hömlur þurfi að setja. Innlent 15.4.2020 14:51
Ómögulegt að segja til um hvenær ferðalög til og frá Íslandi komist í samt horf Dómsmálaráðherra segir að ómögulegt að segja til um hvenær ferðalög til og frá Íslandi muni komast aftur í samt horf. Ísland mun taka þátt í framlengingu á lokun ytri landamæra ESB til 15. maí. Innlent 14.4.2020 14:34
Finnair og Juneyao í samstarf eftir faraldurinn Finnska ríkisflugfélagið Finnair hefur undirritað viljayfirlýsingu með hinu kínverska Juneyao Air um fyrirhugaða stofnun samáhættufélags. Viðskipti erlent 14.4.2020 11:39
Gengi Norwegian féll um rúmlega helming á tíu mínútum Hrunið kom greinendum lítið á óvart. Viðskipti erlent 14.4.2020 09:09
Flugáætlun Icelandair næstu þrjár vikur Icelandair flýgur aðeins til þriggja áfangastaða næstu þrjár vikurnar. Um er að ræða tvær borgir í Evrópu og eina í Bandaríkjunum. Innlent 12.4.2020 08:22
Bjarni segir enga ákvörðun hafa verið tekna um stefnu sem varðar ferðatakmarkanir til og frá landinu Ummæli Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra og varaformanns Framsóknarflokksins, í hlaðvarpi ViðskiptaMoggans hafa vakið verulega athygli. Innlent 9.4.2020 16:07
Bandarískir ríkisborgarar hafa tvö tækifæri til að komast frá Íslandi Tvö farþegaflug eru áætluð frá Íslandi til Bandaríkjanna. Um er að ræða flug Icelandair til Boston 8. apríl annars vegar og 15. apríl hins vegar. Innlent 7.4.2020 23:29
Setja fjóra milljarða í framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli Ríkisstjórnin hyggst auka hlutafé Isavia um fjóra milljarða með því skilyrði að félagið ráðist í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári. Innlent 7.4.2020 15:49
Óvíst með möguleika á heimkomu eftir páska Íslendingar sem enn eru erlendis og hyggja á heimferð eru hvattir að nýta sér ferðir Icelandair frá London og Boston næstu daga auk flugferða frá Stokkhólmi á morgun, þriðjudag, og frá Alicante á Spáni á miðvikudag. Innlent 6.4.2020 17:22
Icelandair flýgur til Alicante og sækir fegna farþega Íslendingar á Spáni fagna því að komast heim. Innlent 6.4.2020 13:13